Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.12. 2013
Hrúturinn hefur farið í gegnum dramatískar breytingar í lífi sínu undanfarin tvö ár. Einkum
hrútar sem fæddir eru í mars og fyrstu vikunni í apríl. Sviptingar verða ekki eins miklar árið 2014
en eru þó alls ekki yfirstaðnar og þær verða oftar gleðilegri.
Fyrstu mánuði ársins má hrúturinn alls ekki gleyma sér. Hann þarf að fara öðru hverju inn í
heimabankann því ef hann gleymir stund og stað í sinni stórbrotnu tilveru í ár verða fjármálin
komin í kaldakol í sumar. Með sjálfsaga og yfirsýn verður þetta allt í lagi. Ástæða þess að hrút-
urinn verður ráðvilltur er sú að valmöguleikarnir verða svo margir, á það við um ást, vinnu og allt
utan þess. Líklegt er að hrúturinn verði öfundaður af þessu líflega ári en hann verður svo upptek-
inn að hann mun ekki spá í það fyrr en einhver umhverfist. Auk fjárhagsins eru veiku hliðar árs-
ins heilsufarið og hrúturinn verður að passa að fara til tannlæknis. Árið verður eitt það rómant-
ískasta sem hrúturinn hefur upplifað. Á það einkum við fyrri parts árs en í ágúst hægist á
atburðarásinni. Ný ástarsambönd verða flókin en ástríðufull. Langtímasambönd styrkjast í ár.
Hrúturinn
21. MARS - 19. APRÍL
Hugsanir nautsins og íhygli er á tímamótum og það mun spyrja sig spurninga sem það hefur ekki
spurt áður. Nú í desember hefur þessara áhrifa þegar gætt og þetta mun vara í nokkur ár.
Síðla árs mun nautið uppskera launa- eða stöðuhækkun í vinnunni og ef það vinnur sjálfstætt
munu verk þess hljóta lof og vekja eftirtekt. Nautið er fjárfestir í eðli sínu en í ár má það búa sig
undir að græða ekki mikið en það mun þó heldur ekki lenda í neinum skakkaföllum. Mikilvægt er
að nautið hugi að hjarta, höfði og hálsi. Það er viðkvæmt í janúar, júlí og ágúst.
Það að nautið finni þessa þörf til að færa lífið upp á æðra plan getur birst í námi. Það mun ekki
fara til London eða þeirra staða sem það heimsækir ár eftir ár heldur rannsakar það nýja staði á
ferðalögum. Nautið laðar að sér fólk sem er í sömu pælingum, á samskipti við andans fólk, heim-
spekinga, jafnvel miðla. Einhleyp naut eiga ástarævintýri erlendis, heillast af háskólaprófessor,
kynnast listfræðingi eða fólki úr menningarheiminum. Eilítið eldri maður eða kona verður á vegi
þess og rómantíkin svífur yfir vötnum. Engu að síður munu öll sambönd þróast hægt í ár.
Gift naut skulu hafa það í huga að grasið er ekki alltaf grænna hinum megin.
Nautið
20. APRÍL - 20. MAÍ
Það verður mikið að gera í félagslífi tvíburans árið 2014 og hann kynnist fólki í starfi sínu sem
mun gegna þýðingarmiklu hlutverki í lífi hans og starfi á næsta ári, þetta er líklega valdamikið
fólk. Tvíburinn heillar með gáfum, hnyttni og framkomu. Hann nær einstökum tökum á þeim
hæfileikum sínum og komist hann í tæri við þjóðhöfðingja, yfirmenn stórfyrirtækja og aðrar stór-
stjörnur munu þeir hinir sömu biðja hann um að sitja með sér til borðs.
Hins vegar mun reyna á gömul vináttusambönd og kvarnast upp úr hans innsta hring. Hann er
hinsvegar heppinn með nýtt fólk sem hann mun kynnast um mitt ár og eignast lífstíðarvini.
Tvíburinn mun geta lagt meiri pening fyrir en áður. Upp úr miðjum ágúst er gott að láta slag
standa fyrir þá sem ganga með viðskiptahugmynd í maganum sem og óskrifaðar skáldsögur.
Tvíburinn verður ekkert sérstaklega upptekinn af ástamálum sínum í ár. Hann mun þó heilla
einhvern sem honum hefði ekki dottið í hug að tengja við sig.
Tvíburinn
21. MAÍ - 20. JÚNÍ
Krabbinn stendur í stórræðum í ár og verður undir heilmiklu álagi. Stórræðin tengjast starfs-
vettvangi. Hann mun þurfa að bregðast skjótt við tækifærum og þótt krabbinn kunni því best að
fá drjúgan umhugsunarfrest verður sá frestur ekki alltaf í boði – hann mun þurfa að grípa gæs-
ina. Að vísu er það svo að rétta starfið virðist ætla að finna hann ef hann finnur það ekki sjálfur.
Hann verður að grípa gæsina og þá verður útkoman líka glæst. Hætt er við að krabbinn ofgeri
sér árið 2014 því heima fyrir gæti hann að þurft að standa í ströngu. Bæði hefur krabbinn nóg að
gera en maki hans verður líklega í sömu sporum og börn ganga kannski að mestu sjálfala fyrri
part árs, sem er ólíkt krabbaheimilinu alla jafna. Tryggið reykskynjara og önnur tæki, heimilið
virðist viðkvæmt á fleiri sviðum. Afgangstíma ætti að nýta til að rækta fjölskylduna, annars gætu
orðið árekstrar og þá helst í apríl.
Einhleypir krabbar eiga villt ár í ástalífinu og nokkrir elskhugar og ástkonur eru í kortunum.
Krabbinn ætti að velja vel hverjum hann hleypir inn á gafl til sín.
Krabbinn
21. JÚNÍ – 22. JÚLÍ
Fyrstu sex mánuði ársins þarf ljónið að vera varkárt og huga að heilsunni. Það þarf einnig að
hemja skap sitt og jafnvel kyngja stoltinu. Ljónið gæti nú þegar verið hætt lestri en þessi atriði
eru lykillinn að því að það sé ekki óhamingjusamt í enda árs.
Heima fyrir þarf það til dæmis að gera málamiðlanir og taka á óánægju sinni og annarra. Það
má hafa það í huga að í ár þarf það kannski frekar að dekra við aðra í stað þess að láta dást að sér.
Engar áhyggjur, kæra ljón, árið 2015 uppskerðu dúllerí og dekur fyrir þessa vinnu ef þú leggur
alúð við hana. Raunar mun ljónið finna mikinn mun um miðjan júlí og litríkt eðli þess og stór-
brotin sál fá að njóta sín. Ágæt tækifæri í starfi gefast einnig síðla árs. Ljón ættu ekki að fara út í
fjárfestingar í ár og halda vel utan um aurinn.
Einhleyp ljón gætu hitt einstakling sem hittir þau í hjartastað og raunar gæti ást lífs þeirra
orðið á vegi þeirra á þessu ári. Einnig það verður seinni hluta árs. Raunar gæti ljónið þá farið að
upplifa árið sem eitt það skemmtilegasta og líflegasta sem það hefur lifað og þá verða fyrstu mán-
uðir þess fljótir að gleymast. Það eru dásamleg ár framundan, árið 2015 og 2016 eru á við galdra.
Ljónið
23. JÚLÍ – 22. ÁGÚST
Meyjan verður óvenjukærulaus í ár. Hún hefur minni áhyggjur af heilsufari sínu, sumarblómin
setur hún niður hist og her og hún leiðréttir jafnvel ekki þágufallssjúka. Þetta kann að hljóma
undarlega en ástæðan er sú að ekkert af því sem ýtir vanalega undir smámunasemina er fyrir
hendi. Heilsan er góð, heimilislífið rólegt, góð sambönd halda áfram að vera góð og tíminn sem
framundan er sá átakaminnsti og afslappaðasti í áraraðir. Með minni áhyggjum er meiri tími til
að njóta og tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt verða ótalmörg í ár. Ungar meyjur, náms-
menn til dæmis, munu þó hafa minni frítíma og námið verður meira krefjandi árið 2014 en áður.
Meyjan mun á einn eða annan hátt hafa undir höndum mikla peninga á þessu ári. Það gæti ver-
ið arfur, það gæti verið lán, það gæti verið óvæntur launabónus. Hvað sem það er þá er það eitt-
hvað stórt. Þar sem þetta verða óvenjumiklir peningar þarf hún að sýna mikla ráðdeild.
Meyjan getur valið úr vonbiðlum ef hún er makalaus. Ef einhver á brúðkaup í vændum árið
2014 er það fólk sem fætt er í meyjarmerkinu.
Meyjan
23. ÁGÚST – 22. SEPTEMBER
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Blandan byggist upp á fljótandi lífrænu járni,
sérvöldum jurtum, ávaxta djús og blöndu af c-
og b-vítamíni, til að auka járnbúskap líkamans.
Floradix er jurtablanda sem
hjálpar til við að auka járnmagnið
í blóðinu, án aukefna.
Ertu slöpp?
Getur verið að þig vanti járn?
Stjörnuspáin 2014