Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Síða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Síða 38
Hverju ætlar þú að klæðast á gamlárskvöld? Á gamlárs ætla ég að vera í bláum pallíettu-diskógalla sem ég keypti mér fyrir wrap-partí sem ég fór í um daginn en náði ekki til mín í tæka tíð. Hann fær því að vera í stuði með mér á gamlárs. Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Bestu kaupin mín fatakyns eru líklega pelsarnir mínir; þeir eru tímalausir, alltaf fallegir, hlýir og notalegir. En þau verstu? Ekki til … ég geri mjög sjaldan mis- tök í búðum. Hvaðan sækir þú innblástur varðandi fataval? Ég þarf ekkert að sækja inn- blástur sérstaklega hvað klæðnað varðar en hef alltaf haft sterkar skoðanir á fatavali. Ég geng bara í fötum sem mér þykja falleg og þau geta komið hvað- an sem er. Hverju er mest af í fataskápnum? Fataskápurinn minn er fullur af gallabuxum, bómullarbolum og hælum. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Eiginlega ekki, ég nota allt sem ég á og oftast þangað til það dettur af mér! Reyndar á ég gullfallegan ljósgráan minkakeip sem amma mín, Fríða heitin, gaf mér og er enn að bíða eftir rétta tilefninu til að fá að koma út úr skápnum. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert færirðu? Ég myndi hringja í vinkonur mínar í partílest- inni og fara til New York, þar myndum við blinga yfir okkur og skella okkur beint á Studio 54. Ætlar þú að fá þér eitthvað sérstakt fyrir nýja árið? Ég ætla að fá mér hlýja úlpu til að verma mig í frostinu fyrir austan þar sem ég ætla að eyða fyrstu mánuðum nýja ársins. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Fatastíllinn minn er fjölbreyttur, mér líður best þegar ég mixa saman dót úr mismunandi áttum og tímabilum og lít ekki út eins og gína í glugga í kringlunni. Áttu þér uppáhaldsflík? Uppáhaldsflíkin mín þessa dagana er nýi Absence of Colour fringe-jakkinn minn … hann er æði. Stíll Silvíu Daggar er fjölbreyttur enda blandar hún gjarnan saman flíkum frá ólíkum tímabilum. ALLTAF HAFT STERKAR SKOÐANIR Á FATAVALI Í pallíettu- diskógalla á gamlárs SYLVÍA DÖGG HALLDÓRSDÓTTIR ER LISTAMAÐUR SEM GERIR EINSTÖK LISTAVERK UNDIR NAFNINU LOVETANK. SYLVIA ER NÝFLUTT HEIM FRÁ BELFAST Á ÍRLANDI ÞAR SEM HÚN STARFAÐI Í BÚNINGADEILD SJÓNVARPSÞÁTTANNA GAME OF THRONES. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Partílestin myndi „blinga“ yfir sig og skella sér beint á Studio 54. *Föt og fylgihlutir Hárið má ekki gleymast um áramót en greiðslan þarf ekki að vera flókin til að virka vel »40 Sylvía heldur upp á pelsana sína. Verk Sylvíu eru einstaklega áhugaverð. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.