Morgunblaðið - 21.01.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 21.01.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014 Bláhamrar 3 ∙ 112 Rvk Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 109 fm, 4 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og góðum palli. Þetta er skemmtileg eign sem er nánast búið að taka alla í gegn á mjög vandaðan og smekklegan hátt. V: 31,9 Heimir Bergmann Sölufulltrúi 630-9000 Kristján Ólafsson hrl. Lögg. fasteignasali 414-4488 Opið hús miðvd. 22.jan kl: 18:00-18:30 Höfuðborg fasteignamiðlun ∙ Hlíðasmára 2, 6. hæð ∙ 414-4488 Heimir Bergmann S: 630-9000 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Þetta er frekar óeðlilegt ástand,“ sagði Sveinn Sveinbjörnsson fiski- fræðingur í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi um loðnuveið- arnar fyrir norðaustan land. Hann sagði að engin almennileg loðnu- ganga hefði enn fundist þegar liðnar eru rúmar tvær vikur frá því vertíð- in hófst. Sveinn er um borð í rannsóknar- skipinu Árna Friðrikssyni sem hefur leitað að loðnu á miðunum úti af Langanesi frá því um helgina. Hann segir að loðnuskipin hafi verið að skrapa smávegis undanfarna daga, en veiðin sé aðallega smáloðna. Frysting á loðnu hófst í uppsjáv- arfrystihúsi HB Granda á Vopna- firði á föstudaginn eftir að Ingunn AK kom þangað með fyrsta loðnu- farminn á vertíðinni. Stærri loðnan fryst Á vef Síldarvinnslunnar er haft eftir Magnúsi Runólfssyni vinnslu- stjóra að frystingin gangi vel en loðnan sé í smærri kantinum enn sem komið er. „Við flokkum stærstu loðnuna frá og frystum í þá stærð- arflokka sem markaður er fyrir en annað fer til framleiðslu á fiskmjöli og –lýsi,“ segir hann. Nú eru 75 til 80 manns við vinnu í frystihúsinu. „Þetta er frekar óeðlilegt ástand“  Engin veruleg loðnuganga enn fundist Guðmundur Dýri Karlsson, starfsmaður Fasteigna- viðhalds ehf., var í óða önn að fjarlægja veggjakrot af gömlu verbúðunum á Grandagarði í Reykjavík í gær þegar ljósmyndara bar að garði. Margar umferðir þarf af málningu til þess að þekja veggjakrotið og þess í stað er sett sérstakt þykkt efni á vegginn sem þekur veggjakrotið. Dugir þá aðeins ein umferð af málningu ofan á til þess að upprunalegur litur veggj- arins náist. Guðmundur segir töluvert vera um veggjakrot á svæðinu. „Það er því miður þannig að það er alltaf verið að krota þarna,“ segir Guðmundur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verbúðirnar vandlega hreinsaðar Embætti landlæknis hefur ekki gert athugasemdir við notkun ör- yggisfjötra á hjúkrunarheimilum, fyrir utan á Sólvangi í Hafnarfirði en notkun fjötra þar hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið. „Það er ekki mikið um fjötra en á þessu ákveðna heimili er það fyrir ofan meðaltal. Það er eina heimilið sem við höf- um gert athugasemdir við vegna notkunar á fjötrum,“ segir Sigríð- ur. „Við höfum unnið með Sól- vangi í sambandi við mönn- unarmál. Við gerðum úttekt á heimilinu að þeirra eigin beiðni í maí 2012 og sendum niðurstöður til velferðarráðuneytisins að það væri lítið svigrúm til að fækka starfsfólki nema eiga á hættu að minnka gæði og öryggi þjónust- unnar,“ segir Sigríður. Ekki mikið um notkun fjötra HJÚKRUNARHEIMILI Undirmönnun gæti komið í ljós  Mönnunarviðmið hjúkrunarheimila til vinnslu hjá embætti landlæknis Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Mönnunarviðmið hjúkrunarheimila voru meðal þess sem fulltrúar frá embætti landlæknis ræddu á fundi velferðarnefndar Alþingis í gær- morgun en þar voru málefni aldr- aðra á hjúkrunarheimilum í brenni- depli. Mönnunarviðmiðin, sem eru unnin undir stjórn Ingibjargar Hjaltadóttur hjúkrunarfræðings og fagfólks frá hjúkrunarheimilum að beiðni landlæknisembættisins, verða líklega gerð opinber í vikunni. Sigríður Egilsdóttir fer með eft- irlit og gæðamat á hjúkrunarheim- ilum hjá landlækni. Hún telur að mönnunarviðmiðin muni hafa áhrif á þann fjölda sem starfar á hjúkrun- arheimilum. „Ég get alveg ímyndað mér að það verði uppi fótur og fit víða þegar viðmiðin birtast, að það komi í ljós að það sé undirmönnun víða,“ segir Sigríður. Enginn skyldugur „Það hefur verið mikið kallað eftir þessum mönnunarviðmiðum, bæði af starfsfólki og stjórnendum heimil- anna og eins almenningi. Þess vegna var farið í þessa vinnu á sínum tíma.“ Embætti landlæknis mun nota viðmiðin í úttektum og gæðamati sínu á hjúkrunarheimilum. Hvað það þarf marga starfsmenn á hvert heimili verður reiknað út frá fjölda heimilismanna og hjúkrunarþyngd miðað við fjölda hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ófaglærðs starfsfólks. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er eitt og hálft ár síðan Morgunblaðið/Ómar Á ferðinni Eldri borgarar. vinnunni við mönnunarviðmiðin lauk, niðurstöðurnar fóru til um- sagnar til velferðarráðuneytisins og hafa legið þar síðan. Mönnunarvið- miðin eru aðeins viðmið og því verð- ur enginn skyldugur til að fara eftir þeim, en fjármagn verður líka að fylgja fjölgun starfsfólks. Mikilvægt tæki Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir að þau fagni því að mönnunar- viðmiðin séu væntanleg. Viðmiðin skipti miklu máli við fjárlagagerð, þegar ákveðið er hversu miklu á að veita til hjúkrunarheimilanna. Verði kjarasamningar á almennum markaði staðfestir, mun ríkisstjórnin taka til endurskoðunar og lækkunar nýálögð gjöld samkvæmt lögum um ýmsar forsendur frumvarps til fjár- laga. Þetta kemur fram í bréfi sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra, sendi stjórnum fyrirtækja í ríkiseigu í gær. Fyllsta aðhalds verði gætt Í bréfinu beinir fjármálaráðherra þeim eindregnu tilmælum til fyrir- tækjanna að fyllsta aðhalds verði gætt varðandi breytingar á gjald- skrám og að þær ákvarðanir um gjaldskrárbreytingar sem þegar hafa verið ákveðnar verði endur- metnar í ljósi ofangreindra markmiða. Seg- ir enn fremur í bréfinu að mið- að sé við að gjaldskrár- hækkanir ríkis- ins verði undir verðbólgumark- miði Seðlabanka Íslands næstu tvö árin. Mikilvægt sé að fyrirtæki í ríkis- eigu taki virkan þátt í þeirri viðleitni að draga úr hækkun verðlags og efni ekki til hækkana umfram það sem al- gjörlega nauðsynlegt getur talist. Kaupmáttaraukning markmiðið Bjarni vísar í bréfinu til fyrri yfir- lýsinga ríkisstjórnarinnar í aðdrag- anda að gerð kjarasamninga. Í yfir- lýsingum sínum studdi ríkisstjórnin þá viðleitni samningsaðila að lögð yrði áhersla á að skapa forsendur fyrir auknum kaupmætti með lágum nafn- launabreytingum og verðlagsaðhaldi. „Hin þráláta verðbólga sem ríkt hefur á Íslandi minnkar samkeppni, hækk- ar vexti, slævir verðskyn og heldur niðri lífskjörum,“ segir í bréfinu. bmo@mbl.is »8 Verði virk í viðleitni við að draga úr hækkunum  Fjármálaráðherra sendir fyrirtækjum í ríkiseigu bréf Bjarni Benediktsson Í sameiginlegri yfirlýsingu hand- knattleikssambanda Íslands, Aust- urríkis og Evrópu kemur fram að landslið Íslands og Austurríkis munu mætast í tvígang í vináttu- landsleikjum í apríl. Boðað er til leikjanna til að undirstrika sam- starfsvilja sambandanna, en um- mæli sem Björn Bragi Arnarsson, þáttastjórnandi á RÚV, lét falla í leik Íslands og Austurríkis vöktu hörð viðbrögð í Austurríki og víðar. Í kjölfar yfirlýsingarinnar fór Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðisins, í viðtal við austurrísku sjónvarpsstöðina ORF strax eftir leik landsliðsins í gær. Þar sagði hann ummælin aðeins hafa verið tilraun eins manns til fyndni en að tilraunin hafi verið skot, hátt yfir markið. „Við viljum taka fram að ummælin endurspegla ekki skoðanir handknattleikssam- bandsins né íslensku þjóðarinnar,“ sagði Guðjón. Landsliðin munu leika vináttuleiki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.