Morgunblaðið - 21.01.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Einrúm
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Sófi úr hljóðísogsefni sem býr
til hljóðskjól í miðjum skarkala
opinna skrifstofurýma, auk
þess að bæta hljóðvist rýmisins
Sturla Már Jónsson
Húsgagna- og
innanhússarkitekt
hannaði Einrúm
Hér sem annars staðar leitastmenn við að veifa fögrum
fána í málaefnaslagnum. Það er
eðlilegt.
Óeðlilegt erþað þó þeg-
ar óhlutdrægir
umræðustjórar
eru staðnir að
því að fylgja vilj-
ugir með.
Umræður um réttmæti fóstur-eyðinga eru fyrirferðar-
miklar í bandarískum stjórn-
málum. Þau mál virðast ekki
endilega upplögð til slagsmála eft-
ir pólitískum línum, en eru það
vestra.
Hin grófa skipting er sú, aðRepúblikanar eru hægfara
eða á móti en Demókratar opnari
eða hlynntir. Í Bandaríkjunum hef-
ur þeim síðarnefndu tekist að ráða
yfirskrift umræðunnar. Það skiptir
máli.
Öðrum megin í umræðunnistanda „andstæðingar fóstur-
eyðinga“ en hinum megin línunnar
stuðningsmenn „ákvörðunarréttar
kvenna.“
Ekki „andstæðingar fóstureyð-inga“ og „fylgismenn fóstur-
eyðinga.“
Þegar evran missti aðdráttaraflog andstaða við aðild að ESB
tapaði sífellt stuðningi meðal Ís-
lendinga byrjuðu hörðustu aðild-
arsinnarnir að kalla sig „viðræðu-
sinna“ og töluðu þá um „samninga-
viðræður“ þótt engar slíkar færu
fram.
Og umræðustjórarnir bregðastekki fremur en endranær.
Skrift á vegg eða
krot í kastala
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.1., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló -7 alskýjað
Kaupmannahöfn 1 alskýjað
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -12 snjókoma
Lúxemborg 5 skúrir
Brussel 6 skúrir
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 7 heiðskírt
París 7 súld
Amsterdam 2 skúrir
Hamborg -1 þoka
Berlín -2 frostrigning
Vín 8 skúrir
Moskva -12 heiðskírt
Algarve 13 heiðskírt
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -26 skafrenningur
Montreal -12 alskýjað
New York 5 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 16 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:40 16:39
ÍSAFJÖRÐUR 11:08 16:22
SIGLUFJÖRÐUR 10:51 16:04
DJÚPIVOGUR 10:15 16:03
Árið 2013 voru
ávana- og
fíkniefnaakst-
ursbrot í
fyrsta sinn
fleiri en ölv-
unarakst-
ursbrot og
hafa þau aldrei
áður verið fleiri. Þá hefur ölvunar-
akstur staðið í stað síðustu ár á
meðan akstur undir áhrifum áv-
ana- og fíkniefna hefur aukist ár
frá ári seinustu fjögur ár, eða frá
árinu 2010.
Í afbrotatíðindum ríkislög-
reglustjóra kemur fram að árið
2006 hafi fjöldi ölvunaraksturs-
brota verið 2.127 en fjöldi ávana-
og fíkniefnaakstursbrota verið að-
eins 95. Hins vegar hefur fjöldi áv-
ana- og fíkniefnaakstursbrota auk-
ist með verulegum hætti seinustu
ár en í fyrra var fjöldi þeirra 1.318.
Dregið hefur úr fjölda ölvunar-
akstursbrota á sama tímabili en í
fyrra voru þau 1.298 talsins.
Þá kemur fram í afbrotatíðind-
unum að 64% af öllum fíkniefna-
brotum hafi átt sér stað á höfuð-
borgarsvæðinu í fyrra. 21% þeirra
á Suðurlandi, tíu prósent á Vest-
urlandi og Vestfjörðum, fjögur
prósent á Norðurlandi og loks eitt
prósent á Austurlandi.
Aldrei fleiri
teknir fyrir
vímuakstur
„Við höldum ótrauð áfram barátt-
unni og fylgjum eftir ábendingum.
Græni listinn lengist sem betur fer
stöðugt þó svo að við söknum enn
stórra aðila í smá- og heildsölu,“
segir Henný Hinz, hagfræðingur á
hagdeild ASÍ, um stöðuna á átakinu
gegn verðhækkunum.
Vel yfir 100 fyrirtæki voru í gær
komin á græna listann svonefnda,
yfir þau fyrirtæki sem heita því að
hækka ekki hjá sér verð á vörum og
þjónustu. Um leið bættust þrjú fyr-
irtæki við á „svarta“ listanum sem
hafa hækkað hjá sér verðið. Þetta
voru RARIK, ISS Ísland og Orku-
veita Húsavíkur. Fyrir á þessum
lista voru Arion banki, Rafveita
Reyðarfjarðar, Landsvirkjun, Sím-
inn, Íslandspóstur, World Class,
Landsbankinn, Pottagaldrar, Orku-
veita Reykjavíkur, Lýsi, Nói-Síríus
og Freyja. Þessar upplýsingar eru
birtar á vefsíðunni vertuaverdi.is,
þar sem einnig er hægt að koma á
framfæri ábendingum um lækkun
og hækkun á vörum og þjónustu.
Átakið gegn verðhækkunum er
einnig með síðu á Facebook, undir
heitinu „Við hækkun ekki“. Þar hafa
allmörg fyrirtæki tilkynnt lækkun á
verði, eða að þau ætli ekki að hækka.
Á síðunni vertuaverdi.is eru m.a.
ábendingar um hækkanir hjá World
Class og fleiri líkamsræktar-
stöðvum. Ekki náðist í Björn Leifs-
son hjá World Class en á vef fyr-
irtækisins kemur fram að í kjölfar
villandi umfjöllunar sé áréttað að ný
verðskrá hafi tekið gildi 2. janúar sl.
Þá hafi aðgangskort í heilsurækt
hækkað um 4% og aðgangur í
heilsurækt og baðstofu um 9%.
bjb@mbl.is
Græni listinn lengist stöðugt
Sífellt fleiri fyrirtæki lofa að hækka ekki verð Þrjú ný á „svarta“ listanum