Morgunblaðið - 21.01.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Við Landmannahelli Vala Hjörleifsdóttir og Angel Ruiz-Angulo búa í
Mexíco en gengu með Guðna s.l sumar. Löðmundarvatn í baksýn.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég geri þetta fyrir sjálf-an mig og ég er í eftir-litsferð í leiðinni. Fyrirmig er nauðsynlegt að
fara þarna í eina lúxusferð á ári
með fólki sem nennir að ganga
með mér,“ segir Guðni Olgeirsson
en hann er fararstjóri og leiðsögu-
maður ferðar í sumar um hið
margbrotna landslag sem Hellis-
mannaleið geymir. Gönguleiðin er
um 81 km löng og gengið er frá
Leirubakka í Landmannalaugar á
fjórum dögum. Guðni hefur ásamt
fjölskyldu og vinum stikað þessa
leið. „Ég er búinn að ganga þetta
svo oft og ég veit hvaða fyrir-
komulag virkar best. Til dæmis er
allur matur sameiginlegur í þess-
um ferðum, en það er miklu ódýr-
ara heldur en að hver og einn
komi með sinn skrínukost. Ég
skipulegg ferðina í samráði við
hópinn sem gengur með mér
hverju sinni, við höldum saman
fund, ákveðum matseðil og fleira í
þeim dúr. Ég smala saman fólki
sem ég þekki og þekkist innbyrðis,
en líka einhverjum sem þekkjast
ekki. Þetta verður því ný ferð í
hvert sinn.“
Þarf að ná sálinni í þetta,
syngja saman og hafa gaman
Guðni segist vera hrifnastur
af því fyrirkomulagi að ganga alla
leiðina á fjórum dögum en hafa
svo fimmta og síðasta daginn al-
veg frjálsan. „Þá getur fólk andað
að sér hálendinu og gert það sem
því sýnist. Sumir fara að veiða sil-
ung í Ljótapolli eða öðrum þeirra
ótal vatna sem þarna eru, aðrir
slaka á og lesa eða prjóna, aðrir
ganga á eitt fjall til viðbótar. Svo
er grillað saman um kvöldið. Mér
finnst of hratt farið að ganga alla
þessa leið og keyra svo beint
heim. Fólk þarf að ná sálinni í
þetta, syngja saman og hafa gam-
an í restina, skálastemningu og
kertaljós.“
Guðni þekkir afar vel allt það
svæði sem leiðin liggur um, enda
er hann fæddur og uppalinn í
Nefsholti í Holtum í Rangárvalla-
sýslu. „Ég hafði samt aldrei geng-
ið þessar dagleiðir fyrr en fyrir
nokkrum árum. Pabbi rak okkur
áfram í því að stika þessa leið og
líka þeir sem vildu fá fleiri
gönguleiðir á þessu svæði sem
valkost við Laugaveginn. Við
byrjuðum á einni dagleið og bætt-
um svo smátt og smátt við sem
og aukakrókum. Ég fer á hverju
vori í eina vinnuferð með ýmsum
sem hafa áhuga á þessu svæði, til
að halda leiðinni við og laga það
sem þarf, og fyrir vikið er mjög
gott ástand á leiðinni sjálfri.“
Best að hugsa eins og sauð-
kind til að finna bestu leiðina
En hvernig verður dagleið
til? „Fyrsti ramminn voru sælu-
húsin fyrir þá sem smala þetta
svæði, svokölluð gangnamanna-
hús, síðan var okkar verk að
finna bestu leiðirnar á milli stað-
anna. Það gekk ekkert alltaf
mjög vel, það var mjög lærdóms-
ríkt ferli og við gerðum fullt af
mistökum. Þetta voru ekki
gönguleiðir heldur aðeins kinda-
slóðar og svæði þar sem menn
höfðu smalað á hestum. En til að
finna bestu leiðina er best að
hugsa eins og sauðkind. Við höf-
um líka fengið fólk til liðs við
okkur sem þekkir best til á hverj-
um stað. Stundum þarf að taka
Þá getur fólk andað
að sér hálendinu
Guðni Olgeirsson þekkir Hellismannaleið eins og lófann á sér, enda hefur hann
gengið hana ótalsinnum, fyrst til að stika hana og síðar sér til ánægju. Hann ætl-
ar að ganga þessa leið með góðum hópi í sumar og í leiðinni verður gengið í gegn-
um jarðsöguna, Íslandssöguna, útilegumannasöguna, þjóðsögurnar og sögur úr
smalamennskum, því Guðni leggur sig fram um að varpa ljósi á það allt saman.
Hægt er að stunda margar íþróttir
utandyra yfir veturinn og um að gera
að prófa eitthvað nýtt. Ekki þarf
nauðsynlega að stunda þetta af
kappi, getur líka verið gaman að
prófa einn dag með vinum og eða
fjölskyldu. Mörgum finnst öll vetrar-
ævintýri sem boðið er upp á hér á
landi aðeins vera fyrir ferðamenn, en
því fer fjarri að svo sé. Við Íslending-
ar eigum kannski að vera duglegri við
að skella okkur í ævintýri upp á jökul,
hvort sem það er á jeppum, fjórhjól-
um eða vélsleðum, renna okkur eða
ganga á skíðum, skella okkur á snjó-
bretti, klifra í ísnum, skoða íshella
eða hvaðeina annað sem fólk langar.
Ótal margt er í boði þegar kemur að
afþreyingu um vetur hér á landi, enda
eitt af því besta sem landið hefur upp
á að bjóða: Snjór, vetur og ís. Alveg
tilvalið að fara með vinnufélögunum,
drífa sig út úr húsi og hrista fólk
saman í kuldagöllum. Nú eða synda í
ísköldum sjónum, það er svo svaka-
lega hressandi. Koma svo! Drífa sig!
Vetrarsport
Ís og ævintýri
um veturinn
Morgunblaðið/RAX
Jöklastuð Gaman að skoða íshella.
Guðni á Hellismanna-
leiðinni Séð yfir Vondu-
giljaaura og fjallasal við
Landmannalaugar og
Laugahraunið frá 1477.