Morgunblaðið - 21.01.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Samkvæmt fjárlögum fyrir yf-
irstandandi ár hyggjast stjórnvöld
lækka útgjöld vegna hjálpartækja
um 150 milljónir á árinu. Það verður
m.a. gert með því að auka greiðslu-
þátttöku notenda, auk þess sem
Sjúkratryggingar Íslands hyggjast
endurnýta hjálpartæki á borð við
hjólastóla og göngugrindur í aukn-
um mæli.
Í nýrri reglugerð um styrki vegna
hjálpartækja, sem tók gildi um ára-
mót, hefur greiðsluþátttaka Sjúkra-
trygginga í mánaðargjaldi vegna ör-
yggiskallkerfis á einkaheimili verið
minnkuð úr 6.700 krónum í 5.500
krónur og þá verða notendur héðan
í frá að greiða 10% af bleiukostnaði.
Auk þess hætta Sjúkratryggingar
að taka þátt í kostnaði vegna
brjóstahaldara og sundbola fyrir
konur sem hafa gengist undir
brjóstnám, svo eitthvað sé nefnt.
Minnkandi verðmunur
„Breytingarnar snúa að því að
það er ýmislegt nýtt, sumt sem er
breytt og annað sem er farið út,“
segir Björk Pálsdóttir, sviðsstjóri
hjá Sjúkratryggingum Íslands, um
reglugerðarbreytingarnar. Hún
segir að hvað ákvæði um gervihluta
varðar sé verið að laga reglugerðina
að breyttri meðferð og að reglur á
hinum Norðurlöndunum hafi verið
hafðar til hliðsjónar.
Aðrar breytingar sem hafa verið
gerðar á ákvæðinu eru m.a. þær að
það nær nú til gervibrjóstafleyga
jafnt og gervibrjósta.
Sjúkratryggingar munu sam-
kvæmt nýju reglugerðinni greiða
fyrir sérstyrkt brjóstahöld vegna
uppbyggingar brjósta en Björk seg-
ir að ákvörðunin um að hætta
greiðsluþátttöku vegna brjóstahald-
ara og sundbola fyrir gervibrjóst
hafi m.a. verið tekin í ljósi þess að
verðmunur milli slíkra flíka og hefð-
bundinna brjóstahaldara og sund-
bola hafi farið minnkandi. Greiðslu-
þátttaka vegna gervibrjósta og
-fleyga verður hér eftir ákveðin eftir
verðkönnun en áður var um að ræða
ákveðna upphæð á ári.
Þröng skilyrði
Sjálfsbjörg – landsamband fatl-
aðra hefur gagnrýnt breytingarnar
á reglugerðinni og bendir m.a. á að
nú standi til að láta fólk greiða fyrir
ýmis tæki sem Sjúkratryggingar
hafa greitt fyrir um árabil. Til dæmis
hafa verið sett ströng skilyrði hvað
varðar greiðsluþátttöku í stöfum og
hækjum og stuðningshandriðum og
stoðum en Sjúkratryggingar greiða
nú aðeins fyrir þessi tæki fyrir þá
sem eru „með sjúkdóma sem valda
alvarlegri lömun eða hrörnun, t.d.
MS, MND og aðra vöðvarýrnunar-
sjúkdóma, helftarlömun, Parkinson-
sjúkdóm, illvíga RA-liðagigt, spina
bifida [klofinn hrygg] svo og ein-
staklinga með lungna- og /eða
hjartasjúkdóm á háu stigi.“
Sem dæmi um aðrar reglugerð-
arbreytingar sem urðu um áramót
má nefna að mánaðarleg greiðslu-
þátttaka einstaklinga vegna nær-
ingar um slöngu var hækkuð en þá
tryggja ný ákvæði í reglugerðinni
um hjálpartæki og reglugerð um
styrki til kaupa á næringarefnum
og sérfæði greiðsluþátttöku Sjúkra-
trygginga fyrir einnota vörur og
næringarefni og sérfæði, á meðan á
skammtímadvöl á sjúkrahúsi eða
stofnun stendur.
Styrkir réttarstöðu fólks
„Það er ýmislegt þarna sem er til
bóta, sem hefur verið ágreiningur
um,“ segir Björk. „Þegar fólk fer í
skammtímadvöl inn á sjúkrahús eða
stofnanir þá tryggir nýtt ákvæði í
reglugerðinni að Sjúkratryggingar
borga einnota vörur þegar viðkom-
andi fer í skammtímadvöl, í allt að
sex vikur,“ segir Björk en þetta
styrki réttarstöðu fólks.
Reglugerðarbreytingarnar voru
tilkynntar rétt fyrir áramót og segir
Björk að vissulega hafi fyrirvarinn
verið lítill. Hún segir að ekki hafi
verið kannað hver kostnaðaráhrifin
verða hjá einstökum notendahópum
en gerir ráð fyrir að kostnaðar-
aukningin dreifist nokkuð víða.
Björk segir að Sjúkratryggingum
hafi borist nokkuð af fyrirspurnum
frá einstaklingum, notenda-
samtökum og birgjum um reglu-
gerðarbreytingarnar en fáar kvart-
anir.
Nýtt tekið inn, ýmsu
breytt og annað út
Lækka útgjöld vegna hjálpartækja um 150 milljónir
Morgunblaðið/Ernir
Hjálpartæki Til stendur að gera frekara átak í endurnýtingu hjálpartækja
á borð við hjólastóla og göngugrindur en á þeim er skilaskylda.
Sjúkratryggingar
» Konur sem hafa gengist
undir brjóstnám geta fengið
styrk hjá Sjúkratryggingum til
kaupa á gervibrjóstum eða
gervibrjóstafleygum. Greitt er
fyrir 2 stykki á fyrsta ári og
síðan 1 stykki á ári við missi
annars brjósts og 4 stykki á ári
og síðan 2 stykki á ári við missi
beggja brjósta.
» Virðisaukaskattur á bleium
var lækkaður úr 25,5% í 7%
um áramótin en áætlaður
sparnaður vegna virðisauka-
skattslækkunarinnar og
greiðsluþátttöku notenda í
kostnaði vegna bleia nemur 30
milljónum króna.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sendiherrar og annað starfsfólk ut-
anríkisþjónustunnar er byrjað að
blogga um störf sín og eru skrifin,
sem birt eru á vef utanríkisráðuneyt-
isins, liður í að vekja athygli á starf-
seminni. Fyrstu færslurnar voru sett-
ar inn á vefinn fyrir helgi og er
áformað að setja inn nýjar færslur
sem oftast.
„Þetta er góð leið til þess að opna
gluggann inn í starfið,“ segir Urður
Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utan-
ríkisráðuneytisins. Hún bendir á að
niðurstöður nýrrar könnunar um
starfsemi utanríkisþjónustunnar sýni
að svarendur telji starfsemina nauð-
synlega en hún sé ekki mjög nútíma-
leg. Skrifin séu liður í því að nálgast
almenning betur en áður og reyndar
hafi verið ákveðið að fara þessa leið
áður en könnunin var gerð í desem-
ber sem leið.
Góðir pennar
Urður segir að margir „góðir
pennar“ séu í utanríkisráðuneytinu
og bloggið gefi þeim tækifæri til þess
að vekja athygli á merkum mál-
efnum. Hverjum og einum sé frjálst
að skrifa um hvað sem er. „Við viljum
að sem flestir, sem finna hjá sér þörf
og löngun til þess að skrifa um það
sem þeir gera, geri það,“ segir Urður.
AFP
Finnland Kristín A. Árnadóttir, sendiherra í Finnlandi, bloggar um heim-
sókn Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra til Helsinki.
Blogg starfsfólksins
á vef ráðuneytisins
Nýjung hjá utanríkisráðuneytinu
Hjálmar W. Hannesson, aðalræð-
ismaður í Winnipeg í Kanada, skrif-
ar meðal annars um fjarlægðir í
Vesturheimi.
„Í ágústbyrjun komu forsætis-
ráðherrahjónin til að taka þátt í Ís-
lendingadeginum í Gimli og Deuce
of August hátíðinni í Mountain í
Norður-Dakóta (Fjallabyggð). Við
Anna ókum þá með þeim heim-
sóknardagana og loks að flugvell-
inum í Winnipeg til að kveðja.
Sama dag ókum við af stað í meiri-
háttar ökuferð til Regina (höf-
uðborgar Saskatchewan), Calgary,
Red Deer, Mar-
kerville, Ed-
monton (höf-
uðborgar
Alberta) og til
baka um Sas-
katoon, og loks
Wynyard og
Foam Lake
(Vatnabyggð)
og lokuðum
hringnum hér. Þá höfðum við setið
í bílnum samtals í meira en eina
vinnuviku, eða 44 klst. á fjórtán
dögum.“
Í bílnum í 44 klukkustundir
MIKLAR VEGALENGDIR Í VESTURHEIMI
Hjálmar W.
Hannesson