Morgunblaðið - 21.01.2014, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Grænn markaður ehf. | Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.flora.is | Sími 535 8500 | info@flora.is
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar í úrvali
Eingöngu
sala til fyrirtækja
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Milano sett 3+1+1 verð 199.900 áður 35
6.900
Roma Hornsófi 2H2 verð 129.900 áður 2
38.900
AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM70%
Allt a
ð
ÚTSALA
Rúm 153x200
frá 99.000
verð áður 218.900
Barskápur 119x158x52
frá 89.000
verð áður 149.900
Tungusófar frá 125.900 kr
Hornsófar frá 129.900 kr
Sófasett frá 199.900 kr
Bast stólar
5.900
verð áður 24.900
Sjónvarpskápur 235x80x52
frá 55.900
verð áður 113.900
Skenkur 235x80x52
frá 77.000
verð áður 221.900
Sjónvarpsskápar
frá 33.500
verð áður 47.900
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Áform eru uppi um að opna Þokuset-
ur á Stöðvarfirði, þar sem ferða-
menn geta fengið ýmsar upplýsingar
og fróðleik um Austfjarðaþokuna
kunnu. Verkefnið hefur fengið 600
þúsund króna styrk gegnum Vaxt-
arsamning Austurlands og atvinnu-
og menningarnefnd Fjarðabyggðar
tók nýverið jákvætt í erindi um að
setrið fái inni í gamla félagsheimilinu
á Stöðvarfirði.
Þeir sem standa að verkefninu eru
Ívar Ingimarsson, fv. atvinnumaður
í knattspyrnu, sem er frá Stöðvar-
firði, Hilmar Gunnlaugsson, lögmað-
ur á Egilsstöðum, og Hafliði Hafliða-
son, fv. starfsmaður Arion banka og
Þróunarfélags Austurlands, einnig
búsettur á Austfjörðum.
Gengið upp úr þokunni
Á fundi atvinnu- og menningar-
nefndar Fjarðabyggðar sl. föstudag
var lagt inn formlegt erindi, þar sem
óskað er viljayfirlýsingu frá hendi
sveitarfélagsins vegna gamla félags-
heimilisins á Stöðvarfirði.
„Atvinnu- og menningarnefndn
tekur jákvætt í erindið og óskar eftir
að grundvöllur þess verði kannaður
frekar. Erindi jafnframt vísað til
framkvæmdasviðs og til kynningar í
eigna-, skipulags- og umhverfis-
nefnd. Að því loknu verði erindið
sent til bæjarráðs til afgreiðslu,“
segir í bókun nefndarinnar.
Hilmar Gunnlaugsson segir við
Morgunblaðið að hugmyndin sé tví-
þætt. Í fyrsta lagi verði útbúin að-
staða til að taka á móti ferðamönnum
og veita þeim upplýsingar og fróð-
leik um Austfjarðaþokuna, t.d. ljós-
myndir, kvikmyndir, bæklinga og
fleira. Ætlunin er að vinna þennan
fróðleik í samstarfi við Veðurstofuna
og háskólasamfélgið, að sögn Hilm-
ars.
Í öðru lagi verði útbúnir sérstakir
þokustígar víða um Austfirði, þar
sem hægt verður að fara eftir sér-
stökum gönguleiðum upp úr þok-
unni, ef hún er til staðar. Hilmar seg-
ir stígana verða þannig úr garði
gerða að ekki verði hægt að villast í
þokunni.
„Stöðvarfjörður er einn fjölsótt-
asti áningarstaður ferðamanna á
Austurlandi, sem flykkjast árlega að
steinasafninu hennar Petru. Það
vantar hins vegar betri aðstöðu fyrir
ferðamenn, þar sem þeir geta komið
á einn stað, fengið sér kaffisopa og
um leið fróðleik um þokuna, göngu-
leiðir og fleira sem ferðafólk þarf á
að halda. Gamla félagsheimilið á
Stöðvarfirði er lítið notað og hentar
vel undir svona starfsemi,“ segir
Hilmar.
Austfjarðaþokan er þekkt fyrir-
bæri og getur legið yfir fjörðunum
svo dögum skiptir. Hilmar og félagar
vænta samstarfs við Veðurstofuna
um verkefnið með vinnslu upplýs-
inga um þokuna en Þokusetrið verð-
ur sjálfseignarstofnun.
„Vonandi tekst okkur að gera
þetta þannig að sómi sé að. Við
stefnum að því að geta opnað setrið á
næsta ári og þá geta gestir Aust-
fjarða tekið með sér þokuna heim í
poka,“ segir Hilmar að lokum, léttur
í bragði.
Ljósmynd/Hilmar Gunnlaugsson
Austfjarðaþokan Horft yfir Héraðssand hulinn þoku, tekið af Vatnsskarði, og í bakgrunni er Hellisheiði eystri.
Selja Austfjarðaþok-
una frá Stöðvarfirði
Undirbúa opnun Þokuseturs í gamla félagsheimilinu
Þokusetur Gamla félagsheimilið á Stöðvarfirði í þokunni, vel skreytt. Til
stendur að opna þar Þokusetur á næsta ári fyrir ferðamenn.
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga