Morgunblaðið - 21.01.2014, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
✝ Dóra Magn-úsdóttir fædd-
ist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Akureyri 3. ágúst
1955 og lést þar 19.
desember 2013.
Foreldrar hennar
voru Valgerður
Þorbergsdóttir og
Magnús Jón Árna-
son og eru þau
bæði látin. Dóra
var næstyngst fjögurra systk-
ina. Systkini hennar voru Bára,
Lilja og Árni. Þau eru öll látin.
Dóra ólst upp á Hjalteyri og bjó
þar þar til hún fór á Sólborg á
Akureyri. Fyrst í dagþjónustu
og síðar átti hún þar heimili.
Dóra var meðal fyrstu íbúa
Sólborgar sem
flutti á sambýli.
Eiginmaður hennar
var Áskell Trausta-
son en honum
kynntist hún þegar
þau bjuggu saman í
sambýli í Borgar-
hlíð. Þau giftu sig
11. september 1999
en Áskell lést í júní
2013. Síðustu árin
bjuggu þau í Akur-
síðu 4 á Akureyri. Dóra var í
dagvist á Sólborg, vann lengi í
Iðjulundi og síðan á Plastiðjunni
Bjargi/Iðjulundi. Síðasta ára-
tuginn var Dóra í Skógarlundi
(áður hæfingarstöð).
Útför Dóru fór fram frá Gler-
árkirkju 6. janúar 2014.
Enn hefur myndast skarð í
hópinn okkar hér í Skógarlundin-
um. Dóra Magnúsdóttir, einn af
okkar litríkustu félögum, kvaddi
þennan heim fimmtudaginn 19.
desember.
Dóra er búin að vera með okk-
ur í mörg ár en áður sótti hún
vinnu í Iðjulundi og seinna PBI.
Dóra var einstök kona. Öllum
vildi hún vel og margoft talaði hún
um að hækka launin okkar um
6%. Starfsfólkið hér væri vel sett
hefðu allar þessar hækkanir náð
fram að ganga.
Dóra hafði mikið skap og var
oft snögg til svars. Einhverju
sinni, þegar sýning á myndverk-
um notenda Skógarlundar var í
Deiglunni var hún spurð: „Dóra
ætlar þú ekki að koma í Deigluna
og sjá sýninguna?“ Vei (nei), sagði
Dóra ákveðin, en spurði svo:
„hvaða helvítis beyglu?“ Ef hún
vildi láta fólk finna til tevatnsins
kallaði hún það ýmist Sjálfstæð-
isflokkinn eða Ingibjörgu Sólrúnu
og lét nokkur vel valin orð fylgja
með.
Dóra var alveg bráðskemmti-
leg. Átti á árum áður til hin ýmsu
uppátæki. Dóra var ákaflega
fundaglöð. Henni þótti mjög mik-
ilvægt að halda reglulega fundi til
að skipuleggja ýmsa þætti starfs-
ins sem og hverjir kæmu á vakt-
ina kl. 15.
Dóra var mikil gleðinnar kona.
Hún hafði gaman af því að fara í
frí til útlanda og til Jenseyjar á
Selfossi, þó að hún hafi ekki viljað
fara í sumar sem leið. Hún hafði
gaman af því að fá sér smábjór og
dansa en Dóra var mikill dansari.
Á föstudögum voru það fastir liðir
hjá Dóru að hlusta á Óska-
stundina og syngja og dansa með.
Dóra var vinnusöm hér áður
fyrr og sinnti ákveðnum verkefn-
um hér í Skógarlundinum. Einn
góðan veðurdag í ákveðni sinni
sagði hún upp þessum verkefnum
og snéri sér meira og minna að
skrifstofustörfunum sínum.
Í sumarbyrjun þessa árs missti
Dóra elskulegan lífsförunaut og
eiginmann, hann Kela. Við brott-
för Kela var eins og fótunum væri
kippt undan Dóru. Allt varð erf-
iðara. Allir hennar nánustu voru
farnir. Foreldrar, systkinin öll og
síðast Keli. Þá var eins og Dóra
bugaðist og það fór virkilega að
halla undan fæti. Fasti punktur-
inn í tilverunni var horfinn. Allt
varð erfiðara og trúlega óyfirstíg-
anlegt. Dóra kom ekki oft í Skóg-
arlundinn eftir andlát Kela. Hún
vildi bara vera heima.
Elsku Dóra, nú skilur leiðir.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt
þig að. Þú hefur gefið okkur mik-
ið.
Nú veit ég að sumarið sefur
í sál hvers einasta manns.
Eitt einasta augnablik getur
brætt ísinn frá brjósti hans,
svo fjötrar af huganum hrökkva
sem hismi sé feykt á bál,
uns sérhver sorg öðlast vængi
og sérhver gleði fær mál.
(Tómas Guðmundsson.)
Systkinabörn Dóru, Silló og
aðrir aðstandendur. Ykkur öllum
vottum við okkar dýpstu samúð
og biðjum almættið að umvefja
ykkur og styrkja.
Elsku Dóra. Hlutverki þínu á
jarðríki er lokið og nú skilur leiðir.
Við brotthvarf þitt myndast skarð
sem er vandfyllt og er þín sárt
saknað. Hafðu hjartans þökk fyrir
samfylgdina sem var gefandi og
skemmtileg. Í hjörtum okkar eig-
um við minningu um þig káta og
lífsglaða.
Megi góður Guð geyma þig.
F.h. allra í Skógarlundi,
Margrét Ríkarðsdóttir.
Dóra Magnúsdóttir
Kæra Sonja
frænka. Þín verður
sárt saknað af okkur
systrunum og kom það okkur mik-
ið á óvart þegar við fréttum af
andláti þínu enda þinn tími ekki
nærri því kominn. Við minnumst
þess tíma þegar við vorum litlar
og vorum í gistingu hjá ykkur
Pétri þegar mamma og pabbi voru
erlendis. Þremur dýnum var kom-
ið fyrir í stofunni og þarna pískr-
uðum við og göntuðumst fyrir
svefninn á kvöldin. Það var alltaf
spennandi að koma til ykkar og
fara í ísbúðina í Vesturbænum og í
sundlaugina og rifjast upp sá tími
þegar leið okkar liggur þangað í
dag. Leiðir ykkar systkina (þín og
pabba) og fjölskyldna lágu oft
saman í gegnum árin og var það
ykkur Pétri að þakka að við syst-
urnar stigum á skíði og lærðum að
renna okkur. Alltaf voruð þið
tilbúin að rétta hjálparhönd og
leiðbeina okkur og kenna og erum
við þakklátar fyrir alla þá aðstoð.
Sonja Sigrún
Nikulásdóttir
✝ Sonja SigrúnNikulásdóttir
fæddist á Akranesi
23. júlí 1940. Hún
lést 14. desember
2013.
Útför Sonju fór
fram frá Neskirkju
30. desember 2013.
Þú varst einstök
kona, Sonja, með
góðan og skemmti-
legan húmor og sást
alltaf björtu hliðarn-
ar á öllu. Ef við sögð-
um mömmu frá ein-
hverju vandamáli
þegar þú varst í
heimsókn varstu
fljót að koma með
lausn á vandanum.
Vinskapur ykkar
mömmu var einstakur og náðuð
þið mjög vel saman. Eftir að þið
hættuð báðar að vinna höfðuð þið
nóg fyrir stafni í dansi, leikfimi,
við vinnu á Thorvaldsensbasar, í
utanlandsferðum eða hvað sem
ykkur datt í hug að gera. Þið
mamma voruð einnig duglegar að
kíkja saman í búðir og eyða góðum
stundum saman. Það er því mikill
missir fyrir mömmu að þurfa að
horfa á eftir góðri vinkonu sinni,
einnig fyrir pabba að missa systur
sína, svo trygg og góð kona sem
þú varst.
Elsku besta frænka, nú ertu
komin á góðan stað og fylgist með
þínum nánustu og verndar þau,
við munum sakna þín og verður þú
ávallt í hjarta okkar.
Kæru Pétur, Sigrún, Ólöf og
fjölskylda, hugur okkar er hjá
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Hrönn, Björg og Katrín.
Hinsta kveðja til góðs drengs
og vinnufélaga, Magnúsar Krist-
inssonar, er lést í desember síð-
astliðnum.
Leiðir okkar Magga lágu saman
við vinnu í Filtertækni og BB.
Magnús Birgir
Kristinsson
✝ Magnús BirgirKristinsson
fæddist 2. nóv-
ember 1945 í
Reykjavík. Hann
lést á heimili sínu í
Kópavogi 14. des-
ember 2013.
Útför Magnúsar
fór fram frá Guð-
ríðarkirkju 20. des-
ember 2013.
Hann var góður
starfskraftur og
skemmtilegur félagi
og við eigum minn-
ingar um hann og
skemmtilega tíma
með honum í bunk-
um. Bara við tilhugs-
unina er ekki hægt
annað en brosa, og þó
svo dauðinn sé graf-
alvarlegur hlutur þá
er bara ekki hægt að
hugsa um eða til Magga öðru vísi
en með bros á vör. Bara engin leið.
Stundum brugðum við vinnufélag-
arnir okkur í bæjarferð til að halda
upp á eitthvað og í einni slíkri ferð
hittum við Skota sem var í útsýn-
isferð um sundin sem við skelltum
okkur í. Um borð var skipst eitt-
hvað á skoðunum og málin rædd
eins og gengur. Líka við Skotann
að sjálfsögðu. Seinna um kvöldið
tókum við eftir því að Maggi var
kominn í miklar samræður við
Skotann en Maggi þvertók fyrir
það að tala nokkra ensku. Hafði
margoft sagt okkur að hann kynni
ekkert nema „von bír“ og „há
möts?“ Við spurðum hann hvernig
mætti vera að þeir gætu rætt málin
saman og svaraði Maggi sposkur á
svip að þetta væri svo einfalt. „Jú,
sjáiði til,“ sagði hann. „Á himnum
tala allir íslensku svo Skotinn ætti
ekki að vera í vandræðum með
þetta.“ Og stundum ef eitthvað
kom upp á sagði Maggi gjarnan:
„Kiddi sér um sína.“ Þeir sem
þekktu hann vita hvað hann átti
við. Honum fannst ekki rétt að hafa
of miklar áhyggjur af daglegu basli
og svaraði oft með söng í stað
langrar orðræðu ef hann vildi
koma einhverju mikilvægu til skila.
Hann átti til að kyrja vísur með
hárri rödd og spann um leið og
hann söng. Textinn lýsti þá oftar en
ekki aðstæðum og atburðum líð-
andi stundar. Ekkert okkar gat
fylgt honum eftir í þessu en leyfð-
um okkur að hlusta og njóta í stað-
inn. Maggi var fastur punktur í
okkar tilveru og því skrítið til þess
að hugsa nú að hann sé farinn.
Hvert vitum við ekki, en erum þess
nokkuð viss að þar sé sungið og
farið með vísur. Að þar sé lífsgátan
hugsanlega ráðin og komi Magga
ekkert á óvart. Þarna er farinn
góður drengur og vinnufélagi sem
er okkur enn kær. Minningarnar
geymum við.
Vinnufélagar úr Filtertækni og
BB,
Elín Vigfúsdóttir, Elís Hans-
son, Guðveig Lilja Bjarka-
dóttir, Hinrik Morthens, Ísak
Beck, Orri Morthens, Reynir
Georgsson, Vigfús Morthens.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku frændi. Alltaf við minn-
umst þín fyrir kátínu, léttleika,
geislandi af fjöri og glensi, það
var alltaf svo gaman að hitta þig
og heyra í þér.
Þvílíkur sælkeri sem þú varst
Rúnar Ketill
Georgsson
✝ Rúnar KetillGeorgsson
fæddist í Reykjavík
14. september
1943. Hann lést á
líknardeild LSH 30.
desember 2013.
Rúnar var jarð-
sunginn frá Frí-
kirkjunni í Reykja-
vík 9. janúar 2014.
á mat, sætindi og
góða músík, sem
var þítt líf og yndi
frá unga aldri. Það
var æðislegt að
hlusta á þig spila af
þvílíkri innlifun að
unun var að horfa á
og njóta.
Hver óttast er lífið við
æskunni hlær
sem ærslast um sólríka
vegi
og kærleikur útrás í kætinni fær
sé komið að skilnaðardegi.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Elsku Arndís, Björg, Ketill,
Elva og aðrir aðstandendur, við
biðjum góðan Guð að veita ykkur
styrk í sorginni. Megi minning
um góðan mann vera huggun
ykkar.
Sigfinnur, Hildur, Guðrún,
Jónas, Hannes, Soffía og
fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengda-
faðir,
ÁSGRÍMUR STEFÁNSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
föstudaginn 17. janúar.
Útförin fer fram föstudaginn 31. janúar
kl. 14.00 frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu,
Hátúni 2, Reykjavík.
Þóra Pálsdóttir,
Kristinn Ásgrímsson, Þórdís Karlsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
FRÍÐA BJÖRG LOFTSDÓTTIR,
Neshaga 15,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn
17. janúar.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Stefanía Magnúsdóttir,
Jónína Leósdóttir,
Árni Leósson
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LYDÍA ÞORKELSSON,
Hamrahlíð 29,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 12. janúar á hjúkrunar-
heimilinu Eir.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 24. janúar kl. 13.00.
Oddur Carl Einarsson, Sigríður Elín Sigfúsdóttir,
Rannveig Alma Einarsdóttir, Ellert Kristján Steindórsson,
Gunnlaug Helga Einarsdóttir, Helgi Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA BJARNADÓTTIR,
Laugateigi 31,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum föstudaginn 17. janúar.
Jarðarförin fer fram mánudaginn 27. janúar
frá hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu kl. 13.00.
Valdís Finnbogadóttir,
Ólafur Finnbogason, Rannveig Agnarsdóttir,
Sigríður Rósa Finnbogadóttir, Völundur Þorgilsson,
Stefán Finnbogason, Guðbjörg Gísladóttir,
Trausti Finnbogason, Kristín Sigurðardóttir,
Ingólfur Waage,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN ÁRNASON,
fv. félagsmálastjóri,
Suðurgötu 8,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugar-
daginn 18. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtu-
daginn 6. febrúar kl. 13.00.
Sigurður Björgvinsson, Þórdís Guðjónsdóttir,
Svala Björgvinsdóttir, Baldur Kristjánsson,
Árni Björgvinsson, Friðbjörg Helgadóttir,
Sveinn Vopnfjörð Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku mamma, amma, langamma og langa-
langamma,
RAGNA SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR,
Fífuhvammi 11,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
15. janúar.
Útför fer fram frá Digraneskirkju fimmtu-
daginn 23. janúar kl. 11.00.
Gunnar Berg Sigurjónsson, Sesselja Ólafsdóttir,
Ragna Berg Gunnarsdóttir,
Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir, Brynjólfur Gíslason,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.