Morgunblaðið - 21.01.2014, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Það er komið að kveðjustund.
Mig langar í fáum orðum til þess
að minnast tengdamóður minnar,
Kristínar Sigríðar, Siggu eins og
hún var alltaf kölluð. Sigga ólst
upp í Tálknafirði og var þar fram
Kristín Sigríður
Guðmundsdóttir
✝ Kristín Sigríð-ur Guðmunds-
dóttir fæddist 16.
september 1926 í
Innstu-Tungu í
Tálknafirði. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Keflavíkur 23. des-
ember 2013.
Útför Kristínar
fór fram frá Kefla-
víkurkirkju 7. jan-
úar 2014.
til 19 ára aldurs, þá
réð hún sig í vist til
frænda síns, Sigurð-
ar Magnússonar út-
gerðarmanns, og
Sigurlaugar Ólafs-
dóttur húsfrúar, en
þau bjuggu á Sól-
heimum í Grindavík.
Í Grindavík kynnt-
ist Sigga eftirlifandi
manni sínum, Sigur-
bergi Sverrissyni,
en þau eignuðust níu börn. Það er
svo margt sem ég gæti talið upp
og margs er að minnast, en fyrst
og fremst vil ég þakka fyrir okk-
ar góðu stundir gegnum árin, það
fór alltaf vel á með okkur Siggu,
hún reyndist mér góð tengda-
móðir og vinkona. Ég þakka fyrir
þau ár sem við áttum saman.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn,
á enda skeiðið runnið. Í
hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
á liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Elsku Sigga mín.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég vil votta tengdaföður mín-
um, börnum og fjölskyldum
þeirra mína dýpstu samúð. Hafðu
þökk fyrir allt, elsku Sigga mín,
megir þú hvíla í friði.
Þín tengdadóttir,
Gunnhildur Gunnardóttir.
HINSTA KVEÐJA
Kæra frænka
Ég kveð þig, hugann heillar
minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við
hönd.
(Guðrún Jóh.)
Kristín, Helgi
og fjölskylda.
Þegar ég hugsa til Laufeyjar
er mér minnisstæðast glaðlyndi
hennar, góðlyndið og jafnvægið.
Hún var heillandi kona með mikla
útgeislun, alltaf vel til höfð og
glæsileg. Og nú hefur hún lokið
vegferð sinni, þessi heilsteypta og
skemmtilega kona sem var vinur
okkar allra í Safnahúsinu.
Við Laufey unnum saman í
mörg ár á Landsbókasafninu þeg-
Laufey Jensdóttir
✝ Laufey Jens-dóttir fæddist
21. maí 1924 á Ný-
lendugötu 19 í
Reykjavík. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Grund 19. des-
ember 2014.
Sálumessa var
sungin í Dómkirkju
Krists konungs í
Landakoti 27. des-
ember 2014.
ar það var í Safna-
húsinu við Hverfis-
götu en þar var
einnig Þjóðskjala-
safnið til húsa. Hún
vann í móttökunni
alveg fram að opnun
Þjóðarbókhlöðunn-
ar 1994. Laufey var
góður starfsmaður
með mikla sam-
skiptafærni og elsk-
uð og virt af öllum.
Við Laufey vorum oft einu starfs-
mennirnir eftir í húsinu í lok dags
á kvöldvöktunum, hún við símann
og ég á lestrarsalnum á efri hæð-
inni. Húsið var öllum opið og alls
von. Þá var mikið öryggi að vita af
traustum og úrræðagóðum
starfsmanni eins og Laufeyju í
móttökunni en hún var mikill
mannþekkjari. Hún var sannar-
lega staðarprýði. Við urðum fljótt
góðar vinkonur. Það var oft mikið
spjallað, glaðst og hlegið, aldrei
skortur á umræðuefni og margar
sögur sagðar. Hún átti auðvelt
með að sjá björtu hliðarnar á hlut-
unum, enda stutt í kímnina og
glettnina hjá henni. Hún var um-
hyggjusöm og góðhjörtuð og vildi
gera gott úr öllu. Hún flíkaði ekki
tilfinningum sínum heldur var
hreinskiptin og heiðarleg. Hún
hafði sterka réttlætiskennd, var
gædd góðum gáfum og fróð um
menn og málefni. Þótt aldurs-
munurinn væri mikill þá kom það
ekki að sök því hún var síung í
hugsunarhætti. Og hún var líka
fjölskylduvinur sem fylgdist með
ungum dætrum mínum sem komu
stundum með mér á safnið. Dætr-
um mínum þótti oft gaman hvað
hún talaði skemmtilega til þeirra.
Eftir að hafa hlaupið upp og niður
stóru marmaratröppurnar í
Safnahúsinu þótti litlum mann-
eskjum gott að setjast hjá Lauf-
eyju og þiggja kleinubrot og
spjalla við hana. Maðurinn minn
minnist hennar einnig með hlý-
hug.
Ég lærði margt af Laufeyju.
Hún var listræn og var einstak-
lega smekkleg og óhrædd við að
vera hún sjálf og mótaði sinn eigin
stíl. Það eru forréttindi að hafa
fengið að kynnast henni. Ef Lauf-
eyjar hefði ekki notið við hefðu ár
mín í Safnahúsinu orðið ólíkt fá-
tæklegri. Þegar ég lít til baka þá
er hún einn minnisstæðasti sam-
starfsmaður minn í Safnahúsinu
frá þessum árum. Það var ein-
staklega gott andrúmsloft meðal
starfsmanna í þessu litla sam-
félagi og báðar fórum við þaðan
með góðar minningar í fartesk-
inu.
Laufey skilur eftir sig sterka
og heila mynd. Hún lifir áfram í
verkum sínum og ekki síst í þeim
áhrifum sem hún hafði á sam-
ferðamenn sína. Ég kveð Lauf-
eyju með kæru þakklæti fyrir
framúrskarandi kynni. Blessuð sé
minning hennar. Börnum hennar
og öðrum aðstandendum sendi ég
innilegustu samúðarkveðjur.
Svanfríður S.
Óskarsdóttir.
Guðfinna Elín
Einarsdóttir
✝ Guðfinna ElínEinarsdóttir
fæddist á Selfossi
14. mars 1963. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands 29. desember
2013.
Útför Guðfinnu
Elínar fór fram frá
Selfosskirkju 9.
janúar 2014.
Hinn 9. janúar sl.
var borin til grafar
elskuleg mágkona
mín, Guðfinna Elín
Einarsdóttir. Ég
kynntist Elínu árið
1994, fyrir heilum 20
árum síðan. Ég
minnist þess þegar
við Örn keyrðum í
hlaðið í Spóariman-
um og á móti okkur
kom þessi reffilega, fallega kona
með ljósu lokkana sína og geisl-
andi brosið. 10 ára aldursmunur
var á okkur Elínu og fannst mér
hún aðdáunarverð með fallegu
börnin sín þrjú og hlýlegt og nota-
legt heimili og blómlegan garð.
Við Örn vorum tíðir gestir á heim-
ili Elínar og Einars næstu árin og
var okkur alltaf tekið opnum örm-
um með hlýju og vinsemd og
skemmtilegum félagsskap. Þegar
börnin okkar tvö fæddust voru
þau ekki síður velkomin og fannst
þeim ætíð mjög skemmtilegt að
heimsækja Elínu og Einar auk
þess sem það kom fyrir að þau
fengu að vera í pössun hjá Elínu
frænku. Elín var afar listræn og
hæfileikarík og rak hún á tímabili
gallerí þar sem hún bjó til listmuni
úr leir og hafði til sölu. Hún var í
raun snillingur í höndunum að öllu
leyti og prjónaði mikið, heklaði og
saumaði föt. Þá lagði hún mikla
vinnu í að safna saman gömlum
fjölskyldumyndum á diska og hafa
fjölskyldumeðlimir allir notið góðs
af þeirri vinnu hennar. Elín naut
þess að eiga ástríka og samheldna
fjölskyldu sem á eftir að sakna
hennar sárt en jafnframt eiga all-
ar ómetanlegu stundirnar sem
munu lifa í minningunni. Minning-
in um dásamlega konu mun ætíð
lifa í hjörtum okkar.
Steinunn Fjóla
Sigurðardóttir
Á kveðjustund vill hugurinn
fara á flug, hverfur langt aftur
í tímann.
Rifjuð upp árin þegar sveita-
stelpan úr Borgarfirðinum
leigði herbergi í höfuðborginni.
Hvað það var gott að banka
upp á í Ásendanum heima hjá
Dísu vinkonu. Að eiga visst at-
hvarf á heimili og vera umvafin
hlýju og gestrisni en af því var
Bryndís
Jóhannsdóttir
✝ Bryndís Jó-hannsdóttir
fæddist á Skriðu-
felli í Þjórsárdal 27.
ágúst 1926. Hún
lést á Landspít-
alanum 18. desem-
ber 2013.
Útför Bryndísar
var gerð frá Laug-
arneskirkju 6. jan-
úar 2014.
nóg til. Sé ljóslif-
andi fyrir mér
Bryndísi húsmóður
með blik í augum
og glettna á svip
þar sem hún býður
mér inn og segir si
svona: „Var að
setja matinn á
borðið, nóg er til
fyrir alla, vertu
velkomin“ eða „Er-
um á leið í laugar,
viltu koma með?“
Að gista, sem oft kom fyrir,
var sjálfsagt mál.
Fyrir þessar og ótal fleiri
löngu liðnar stundir sem gáfu
mér óendanlega mikið vil ég
þakka.
Ég mun ávallt hugsa með
hlýhug til Bryndísar. Hún var
einstök kona.
Helga Magnúsdóttir.
Elsku amma og langamma.
Það er stutt á milli sorgar og
gleði. Stuttu eftir að þú kvaddir
okkur tókum við á móti litla engl-
inum hennar Sóleyjar. Við vitum
að þú varst til staðar og munt
fylgjast með börnunum stækka
og þroskast. Við erum svo þakk-
látar fyrir allar þær góðu stundir
sem við áttum saman, minnumst
með gleði þegar þú söngst fyrir
Sigríður Halldóra
Guðmundsdóttir
✝ Sigríður Hall-dóra Guð-
mundsdóttir fæddist
í Súðavík 27. júlí
1922. Hún lést á
hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Brák-
arhlíð í Borgarnesi
23. desember 2013.
Hún var jarðsungin
frá Borgarneskirkju
4. janúar 2014.
krakkana og þau
dilluðu sér. Þau
munu alltaf muna
eftir ömmu lang þar
sem þú varst alltaf
örlát á ísinn og
frjálst aðgengi að
frystikistunni
heima á Kveldúlfs-
götunni. Pönnukök-
ur, gott kaffi og að
taka spil saman eru
stundir sem við
munum alltaf varðveita. Einnig
munum við taka upp þann sið að
standa í dyrunum eða í gluggan-
um og vinka börnum og barna-
börnum okkar þangað til þau
hverfa úr augsýn. Yndisleg minn-
ing um þig standandi í svaladyr-
unum og vinkandi bless.
Takk fyrir að vera besta amma
í heimi. Við elskum þig.
Rakel, Sóley og börn.
✝
Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna
sem sýndu okkur samúð og heiðruðu
minningu
LEIFS ÞORSTEINSSONAR
ljósmyndara.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans
sem annaðist hann af mikilli alúð.
Friðrika G. Geirsdóttir,
Björn Geir Leifsson, Sigrún Hjartardóttir,
Þorsteinn Páll Leifsson,
Hjörtur Geir Björnsson,
Ólafur Hrafn Björnsson,
Friðrika Hanna Björnsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
EINAR HELGASON,
Grenimel 19,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, þriðju-
daginn 14. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. janúar kl. 15.00.
Hulda Marinósdóttir,
Marinó Einarsson, Margrét S. Hansdóttir,
Árni Vilhjálmsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Ásgarði 133,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í
Reykjavík sunnudaginn 12. janúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju í dag,
þriðjudaginn 21. janúar, kl. 13.00.
Ingibjörg, Ragnar, Björg, Jón, Anna, Árni,
Guðrún og Eyvindur Þorgilsbörn,
tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, bróðir og fóstursonur,
BJÖRN DANÍELSSON
lögmaður,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
laugardaginn 18. janúar.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju
mánudaginn 27. janúar kl. 13.00.
Ísabella Sch. Björnsdóttir,
Hjálmtýr D. Sch. Björnsson,
Kristín Halla Daníelsdóttir,
Brynja Daníelsdóttir,
Eva María Daníelsdóttir,
Aron Daníelsson,
Elín Elídóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUNNAR SVAVAR GUÐMUNDSSON,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
8. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna.
Erna Friðriksdóttir,
Valdimar Víðir Gunnarsson, Dagrún Björnsdóttir,
Gunný Gunnarsdóttir, Magnús Hjartarson,
Friðrik Gunnarsson, Hulda R. Magnúsdóttir,
Þorsteinn Gunnarsson, Fríða Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
andaðist á Dvalarheimilinu Lundi, Hellu,
að morgni mánudagsins 20. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson,
Erla Guðrún Hafsteinsdóttir,
Hörður Þór Hafsteinsson,
Haukur Hafsteinsson
og fjölskyldur.