Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014 stofnaði fyrsta fyrirtækið sem sér- hæfði sig í viðgerðum og viðhaldi húsa, 1961, og starfaði síðan við múrviðgerðir á húsum í Reykjavík til 1970. Þá hóf hann störf hjá Vatns- veitu Reykjavíkur og var þar múr- arameistari og byggingastjóri til 1979. Hann var auk þess bygginga- eftirlitsmaður hjá Reykjavíkurborg 1971-79, starfsmaður húsnæðis- deildar Sjóhersins á Keflavíkur- flugvelli 1979-84 og var bygginga- fulltrúi á sama tíma í Hafnahreppi. Svavar var búsettur í Bandaríkj- unum um nokkurt skeið, en eftir að hann kom aftur heim stundaði hann múrverk með eigin fyrirtæki. Svavar hefur stundað myndlist með öðrum störfum frá tvítugsaldri, hefur unnið skúlptúra og teiknar töluvert nú síðari árin. Hann hefur tvívegis haldið listsýningar á verk- um sínum auk þess sem hann hélt stóra sýningu á verkum föður síns sem var í hópi virtustu myndlist- armanna þjóðarinnar. Svavar æfði og keppti í knatt- spyrnu og handbolta með Fram í yngri flokkum félagsins og keppti í meistaraflokki í báðum þessum greinum. Hann var félagi í Múrara- félagi Reykjavíkur og hefur verið fé- lagi í Múrarameistarafélagi Reykja- víkur um árabil. Svavar sat í stjórn Taflfélags Reykjavíkur um árabil, var fyrsti framkvæmdastjóri þess og einnig skákstjóri þess um árabil. Hann var fyrsti formaður skákfélagsins Mjölnis 1978-79 og sá um skákþátt Alþýðublaðsins um langt skeið. Þá kenndi hann skák og félagsmál í skólum um 14 ára skeið. Fjölskylda Svavar kvæntist 17.12. 1965 Bryn- hildi Ingólfsdóttur, f. 17.5. 1940, hús- freyju. Hún var frá Fornhaga í Hörgárdal, dóttir Ingólfs Guð- mundssonar skólastjóra og Herdísar Pálsdóttur garðyrkjufræðings. Svavar og Brynhildur skildu. Börn Svavars Guðna og Brynhild- ar eru Svavar Valur Svavarsson, f. 21.10. 1965, iðnfræðingur, búsettur í Reykjavík en kona hans er Guðrún Hrefna Elliðadóttir skrifstofumaður og eiga þau þrjá syni; Sigríður Svav- arsdóttir, f. 29.7. 1967, viðskipta- fræðingur, búsett í Hafnarfirði en maður hennar er Guðmundur Jón- asson tollvörður og eiga þau tvo syni; Ásta Kristín Svavarsdóttir, f. 5.4. 1972, leikskólakennari, búsett í Reykjavík en maður hennar er Steingrímur Árni Thorsteinson rennismiður og eiga þau fimm börn. Önnur eiginkona Svavars var Sig- ríður Einarsdóttir en þau skildu eft- ir skamma sambúð. Síðar kvæntist Svavar Bernice Svavarsson, f. 13.7. 1938, sem er bú- sett á Cayman-eyjum. Þau skildu. Hálfsystir Svavars, sammæðra, er Hulda Guðmundsdóttir, f. 21.8. 1940, glerskurðarmeistari, búsett í Mos- fellsbæ. Foreldrar Svavars voru Svavar Guðnason, f. á Heklu á Höfn í Hornafirði 18.11. 1909, d. 25.6. 1988, listmálari í Reykjavík, og Sigríður Ólafsdóttir, f. á Garðsstöðum í Ög- urhreppi í Ísafjarðardjúpi 27.4. 1912, d. 25.3. 1978, húsfreyja í Reykjavík. Stjúpfaðir Svavars og eiginmaður Sigríðar var Páll Melsted Ólafsson, f. 28.6. 1907, d. 5.2. 1992, múrara- meistari í Reykjavík. Úr frændgarði Svavars Guðna Svavarssonar Svavar Guðni Svavarsson Margrét Jónsdóttir húsfr. í Efstadal Guðmundur Egilsson b. í Efstadal í Ögurhreppi Sólveig Guðmundsdóttir húsfr. á Ísafirði og í Rvík Ólafur Kr. Ólason trésmiður á Ísafirði og í Rvík Sigríður Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Guðríður Bjarnadóttir húsfr. í Hvítanesi Óli Kr. Ólafsson vinnumaður við Djúp Auðbjörg Sigurðardóttir húsfr. á Brunnhóli, bróðurdóttir Guðnýjar, ömmu Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar, og Benedikts, langafa Einars Braga skálds Þórður Guðmundsson b. á Brunnhóli á Mýrum Ólöf Þórðardóttir húsfr. á Vopnafirði og á Höfn Guðni Jónsson skósm. á Vopnafirði og kaupm. á Heklu á Höfn í Hornafirði Steinunn Stefánsdóttir húsfr. á Sævar- hólum Jón Þorsteinsson b. á Sævarhólum í Suðursveit Svavar Guðnason myndlistarmaður í Rvík Stefán Kristján Guðnason trygginga- yfirlæknir Ólöf Stefánsdóttir hjúkrunarfræð- ingur í Rvík Guðrún Stefánsdóttir fyrrv. ritstj. Alþingistíðinda Björn Karlsson brunamálastjóri Stefán Karlsson læknir og vísindamað- ur í Bandaríkjunum Ólafur Baldursson lækningaforstj. LHS Jón Baldursson læknir í Rvík Gömul mynd Svavar Guðni með föður sínum, stjúpmóður og elstu börnunum, Svavari Val og Sigríði. Jón úr Vör Jónsson skáld fædd-ist á Vatneyri við Patreks-fjörð 21.1. 1917. Hann var sonur Jóns Indriðasonar, skósmiðs þar og síðar í Kópavogi, og Jónínu G. Jónsdóttur húsfreyju. Fósturforeldrar Jóns voru Þórð- ur Guðbjartsson á Geirseyri og Ól- ína Jónsdóttir húsfreyja. Jón úr Vör var bróðir Hafliða, garðyrkjustjóra Reykjavíkur- borgar. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Bryndís Kristjánsdóttir frá Nesi í Fnjóskadal og eignuðust þau þrjá syni, Karl, Indriða og Þórólf. Jón stundaði nám við Unglinga- skóla Patreksfjarðar, Héraðsskól- ann á Núpi, Brunnsviks folkhög- skola í Svíþjóð og Nordiska folkhögskolan í Genf. Jón var ritstjóri Útvarpstíðinda, starfsmaður bókaútgáfu Pálma H. Jónssonar, ritstjóri tímaritsins Stjörnur, fombókasali í Reykjavík 1952–62 en lengst af bókavörður í Kópavogi frá 1952 og sá lengi um vísnaþátt í DV. Jón varð fyrir sterkum áhrifum sænskra skálda eins og fram kemur í Þorpinu, þriðju ljóðabók Jóns, sem er sú langþekktasta og reyndar tímamótaverk í íslenskri ljóðagerð. Ljóðin í bókinni eru samfelld og lýsa uppvexti skáldsins í íslensku sjávarþorpi á kreppuárunum. Með bókinni varð Jón, ásamt vini sínum, Steini Steinarr, einn fyrirrennara atómskáldanna. Ljóðabækur Jóns: Ég ber að dyr- um, 1937; Stund milli stríða, 1942; Þorpið, 1946; Með hljóðstaf, 1951; Með örvalausum boga, 1951; Vetr- armávar, 1960; Maurildaskógur, 1965, 100 kvæði, úrval, 1967; Mjall- hvítarkistan, 1968; Stilt vaker ljos- et, ljóðaúrval á norsku, 1972; Vin- arhús, 1972; Blåa natten över havet, ljóðaúrval á sænsku, útg. í Finn- landi, 1976; Altarisbergið, 1978; Regnbogastígur, 1981, og Gott er að lifa, 1984. Jón var heiðursfélagi Rithöfunda- sambands Íslands. Hann var sæmd- ur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu og hlaut heiðurslaun lista- manna frá 1986. Jón lést 4.3. 2000. Merkir Íslendingar Jón úr Vör 102 ára Ingigerður Þórðardóttir 90 ára Erna Kristjánsdóttir 85 ára Svanhildur L. Aðalsteinsdóttir 80 ára Alda Sófusdóttir Árni Reynir Óskarsson Ástdís Lilja Óskarsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Ragnar Birkir Jónsson 75 ára Guðmundur Sigurjónsson Gunnar J. Magnússon 70 ára Aðalheiður Sigurðardóttir Skúli M. Gestsson Sólrún Jósefína Valsdóttir 60 ára Björn Arngríms Harðarson Ísleifur Arnar Vignisson Jón Þór Ólafsson Málfríður Finnbogadóttir Nikulás Ívarsson Njála Laufdal Þorsteinsdóttir Olga Ólafsdóttir Reynir Viðar Georgsson Snæbjörn Friðriksson 50 ára Ásdís Ásmundsdóttir Guðmundur Stefán Óskarsson Joel Tuazon Aguilar Jón Valgeir Skarphéðinsson Júlíus Smári Kristín Álfhildur Ákadóttir Sigrún Rósa Vilhjálmsdóttir Steinn Guðjónsson Þorvaldur Jón Kr. Sturluson 40 ára Bergsteinn Eyfjörð Gunnarsson Halla Rósenkranz Guðmundsdóttir Helga Bragadóttir Jón Ingvi Hilmarsson Jón Valgeirsson Kestutis Kiskevicius Kristján Pálmar Guðmundsson Nanna Ósk Jónsdóttir Ragnar Heiðar Sigtryggsson Skúli Sveinsson Urszula Bukrewicz 30 ára Bradford Harry Spencer Brynhildur Ingimarsdóttir Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir Ingibjörg Ósk Einarsdóttir Joanna Szczur Jónbjörg Sesselja Hansen Kristján Egill Karlsson Lukasz Pawel Grabowski Ómar Örn Aðalsteinsson Til hamingju með daginn 30 ára Ingimar er búsett- ur á Akranesi og starfar á Grundartanga. Maki: Rósa Kristín Guðnadóttir, f. 1981, hús- freyja og verslunarmaður. Börn: Andrés Emil, f. 2004; Helga Rós, f. 2006; Tryggvi Rafn, f. 2008; Alma Hlín, f. 2010, og Ax- el Guðni, f. 1998 (stjúps.). Foreldrar: Hafliði Gunn- arsson, f. 1963 (fóst- urfaðir) og Kolbrún Alma Rafnsdóttir, f. 1966. Ingimar Ólafsson 40 ára Ragnar ólst upp í Fnjóskadal, er búfræð- ingur frá Hvanneyri, fram- leiðslustjóri og bóndi í Bakkakoti við Blöndós. Maki: Aðalbjörg Valdi- marsdóttir, f. 1973, bóndi í Bakkakoti. Synir: Gísli, f. 1999; Pálmi, f. 2002, og Guðni, f. 2009. Foreldrar: Sigtryggur Gíslason, f. 1954, og Guðný Sólveig Sigurð- ardóttir, f. 1953. Ragnar Heiðar Sigtryggsson 30 ára Eva María ólst upp í Kópavogi og í Bandaríkjunum, er búsett í Reykjavík, lauk atvinnu- flugmannsprófi í Banda- ríkjunum og er flugmaður hjá Icelandair. Maki: Bjarki Gunnarsson, f. 1982, kerfisstjóri. Dóttir: Sólfríður Lilja, f. 2012. Foreldrar: Guðmundur Ingason, f. 1951, d. 2007, og Sólfríður Guðmunds- dóttir, f. 1951. Eva María Guðmundsdóttir Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.