Morgunblaðið - 21.01.2014, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Bíólistinn 17.-19. janúar 2014
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Cloudy with a Chance of Meatballs 2
Secret Life of Walter Mitty
The Wolf Of Wall Street
Hobbit: Desolation of Smaug
12 Years A Slave
American Hustle
Frozen
47 Ronin
Lone Survivor
Anchorman 2
Ný
1
3
2
Ný
5
4
Ný
6
8
1
3
4
4
1
2
6
1
2
5
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Teiknimyndin Skýjað með kjötboll-
um á köflum 2 er sú sem mestum
miðasölutekjum skilaði yfir helgina
af þeim myndum sem sýndar eru í
kvikmyndahúsum landsins. The
Secret Life of Walter Mitty, kvik-
mynd Bens Stiller, víkur úr topp-
sætinu en þar sat hann í tvær helg-
ar í röð. Alls hafa tæplega 30
þúsund manns séð mynd Stillers.
Best sótta myndin til þessa er Hob-
bitinn, en á sl. fjórum vikum hafa
rúmlega 67 þúsund manns séð
hana, en fast á hæla henni kemur
Frosinn sem rúmlega 43 þúsund
manns hafa séð. Hross í oss, verð-
launakvikmynd Benedikts Erlings-
sonar, ratar í 17. sæti listans, en á
sl. 21 viku hafa tæplega 14 þúsund
manns barið myndina augum.
Bíóaðsókn helgarinnar
Kjötbollur eru málið
Vinsæl Fjölskyldurnar hafa þyrpst
á kjötbollumyndina um helgina.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Um helgina fóru fram tvær verð-
launaafhendingar vestanhafs og
óhætt er að segja að óvissan hafi að
vissu leyti aukist ef litið er til kom-
andi Óskarsverðlaunahátíðar. Al-
mennt er talið að verðlaunaafhend-
ingar sem þessar gefi sterkar
vísbendingar um hverjir hljóta síðan
Óskarsverðlaunin. Nú virðast hins
vegar skiptar skoðanir um val á
bestu mynd ársins 2013. Kvikmynd-
in American Hustle hlaut Screen
Actors Guild (SAG) verðlaunin í
flokki bestu mynda og tvær myndir
urðu hlutskarpastar í þeim flokki á
verðlaunahátíðinni Producers Guild
Awards (PGA) eða Gravity og 12
Years a Slave en þetta er í fyrsta
skipti í sögu verðlaunanna sem jafn-
tefli verður.
Vísbending um Óskarinn
PGA verðlaunin þykja almennt
nokkuð traust mælistika á vel-
gengni mynda á Óskarsverðlauna-
hátíðinni en í fyrra var Argo valin
besta myndin á báðum stöðum.
Jafnteflið hjá PGA í ár skapar því
áhugaverða stöðu og eykur eft-
irvæntingu eftir Óskarnum. Brad
Pitt, leikari og einn framleiðenda 12
Years a Slave tók við verðlaunum á
PGA verðlaununum og sló á létta
strengi í ræðu sinni og sagðist ekki
skilja af hverju hann væri að leiða
hópinn því hann hefði sjálfur kosið
Gravity.
Minni óvissa ríkir um val á bestu
leikurum en Cate Blanchett hrifsar
til sín hverja styttuna á fætur ann-
arri fyrir stórleik sinn í Woody Al-
len myndinni Blue Jasmine. Hún er
dálæti margra og kemur vel fyrir
sig orði eins og heyra mátti á SAG
verðlaunaafhendingunni en þá gerði
hún gys að því að hún hefði aðeins
29 sekúndur til þess að halda ræðu
á meðan Matthew McConaughey
fór um víðan völl í sinni þakkarræðu
og talaði meðal annars um Neptún-
us.
Önnur sigurstrangleg leikkona er
Lupita Nyong’o fyrir besta leik í
aukahlutverki í myndinni 12 Years a
Slave en hún etur kappi við Jennifer
Lawrence í American Hustle.
McConaughey
sigurstranglegur
Matthew McConaughey hlaut
SAG verðlaunin fyrir besta leik í að-
alhlutverki en hann hlaut einnig
Gyllta hnöttinn á dögunum og þykir
því mjög sigurstranglegur á kom-
andi Óskarsverðlaunahátíð. Athygli
vakti að Leonardo DiCaprio var
ekki tilnefndur fyrir leik sinn í The
Wolf of Wall Street en það gæti ver-
ið vegna skilafrests tilnefninga sem
SAG setur á meðlimi samtakanna
en hann þykir með fyrra fallinu og
myndin seint á ferðinni. Þá þótti
það óvænt að sjá Jared Leto hreppa
SAG-verðlaun fyrir besta leik í
aukahlutverki í myndinni Dallas Bu-
yers Club.
Sérfræðingar eru sammála um að
þegar öllu er á botninn hvolft þá sé
allt í lausu lofti hvað varðar Ósk-
arinn eftirsótta og ljóst að búast
megi við öflugu lokaátaki kynning-
arherferða á næstu vikum.
Tvær myndir
valdar bestar á
PGA-verðlaununum
AFP
AFP
Flottur Michael Douglas fékk verð-
laun fyrir túlkun sína á Liberace.
SAG verðlaunin
Besta myndin – American Hustle
Besti leikarinn – Matthew McConaughey
Besta leikkonan – Cate Blanchett
Besti leikari í aukahlutverki
Jared Leto
Besta leikkona í aukahlutverki
Lupita Nyong’o
Besti leikarinn í sjónvarpsmynd
Michael Douglas (Behind the Candelabra)
Besta leikkonan í sjónvarpsmynd
Helen Mirren (Phil Spector)
PGA-verðlaunin
Besta myndin – Gravity og 12 Years a Slave (jafntefli).
Besta sjónvarpsmyndin – Behind the Candelabra
Besta teiknimyndin – Frozen
Besti dramatíski sjónvarpsþátturinn
Breaking Bad
Besti spjallþátturinn
The Colbert Report
Besti gamanþátturinn
Modern Family
Besta heimildarmyndin
We Steal Secrets: The Story of Wikileaks
Þrjár myndir bestar
VERÐLAUN SEM VEITT VORU UM HELGINA
Ánægður Matthew McCo-
naughey var valinn besti
leikarinn í aðalhlutverki á
SAG-hátíðinni fyrir leik
sinn í Dallas Buyers Club.
Á sandölum
Mörgum þótti Emma
Thompson vera snið-
gengin á hátíðum und-
anfarið.
Bleik
Cate
Blanchett
í kjól frá
Givenchy.
Gullfalleg
Lupita
Nyong’o bar
af á hátíð-
inni. Hún
klæddist túr-
kísbláum kjól
frá Gucci.
Óvissan um Óskarinn sjaldan meiri