Morgunblaðið - 21.01.2014, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Naumur sigur á Makedóníumönnum
2. Skömmin á röngum stað
3. Nauðganir og morð daglegt brauð
4. 40 kíló fokin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Nicolaus Schafhausen, virtur safn-
stjóri Kunsthalle Wien í Austurríki,
flytur í kvöld kl. 20 fyrirlestur í Hafn-
arhúsinu um samtímamyndlist og
leitast við að svara mikilvægum
spurningum um hana. Schafhausen
hefur í tvígang stýrt þátttöku Þjóð-
verja á Feneyjatvíæringnum.
Hvað sameinar sam-
tímalist liðinna ára?
Saxófónleik-
arinn Steinar Sig-
urðsson leiðir
kvartett sinn á
tónleikum á KEX
Hostel við Skúla-
götu í kvöld. Á
efnisskránni er
fönkað popp og
djass eftir ýmsa
listamenn. Kvartettinn skipa, auk
Steinars, gítarsnillingurinn Guð-
mundur Pétursson, Pétur Sigurðsson
og Þorvaldur Þór Þorvaldsson.
Fönkað popp og djass
saxófónkvartettsins
Magnús Þorkell Bernharðsson, pró-
fessor í nútímasögu Mið-Austur-
landa, mun í kvöld kl. 20 halda fyr-
irlestur í Norræna húsinu sem hann
kallar „Vorboða ar-
abíska vorsins.
Hvað vissum við
og hvað vissum
við ekki?“ Að er-
indinu loknu verða
pallborðsumræður
með þátttöku
fleiri sér-
fræðinga.
Fjallar um vorboða
arabíska vorsins
Á miðvikudag Suðaustlæg átt 3-8 m/s og skúrir við
suður og austurströndina. Suðvestan 5-10 m/s undir
kvöld á Suður- og Vesturlandi og slydda eða snjókoma.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 8-15 m/s með rign-
ingu víða um land. Talsverð úrkoma á Austur- og Suð-
austurlandi. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.
VEÐUR
„Með þessu tek ég ansi stórt
stökk upp á við. Ég hef hins veg-
ar öðlast góða reynslu sem
þjálfari hjá Bregenz og tel það
góðan grunn fyrir verðandi starf
sem er mjög spennandi en er
um leið krefjandi. Það er ekki
spurning að ég naut góðs af því
þegar ég var ráðinn að kollegar
mínir frá Íslandi hafa gert frá-
bæra hluti í þýsku deildinni,“
segir Geir Sveinsson sem hefur
verið ráðinn þjálfari þýska hand-
boltaliðsins Magdeburg. »4
Tek ansi stórt stökk
upp á við
Áhugafólk um júdó fær heldur betur
eitthvað fyrir sinn snúð á laugardag-
inn en þá fer fram geysilega öflug
júdókeppni í tengslum við Alþjóða-
Reykjavíkurleikana. „Við erum að fá
menn hingað á mótið sem við áttum
alls ekki von á að fá
og ég held að ég
geti fullyrt að þetta
verður sterkasta
júdómót sem hald-
ið hefur verið
hér á landi,“
segir Bjarni
Friðriks-
son. »4
Sterkasta júdómót sem
hér hefur verið haldið
Ari Freyr Skúlason verður fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu í
fyrsta skipti þegar það mætir Svíum
í vináttulandsleik í Abu Dhabi í dag.
Hann er einn af aðeins þremur
fastamönnum liðsins á síðasta ári
sem taka þátt í leiknum en fimm ný-
liðar eru í hópnum og nokkrir til við-
bótar eiga örfáa landsleiki að baki.
»2
Ari Freyr fyrirliði
gegn Svíunum í dag
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta var mjög gaman og ferðin
gekk sérlega vel,“ segir Erla Þórdís
Traustadóttir um fyrstu ferðina á
vegum nýs fyrirtækis, Fjallhalla Ad-
ventures, sem hún hefur komið á
laggirnar með ferðir erlendra skipti-
nema um landið fyrst og fremst í
huga.
Erla útskrifast í ferðamálafræði
við Háskóla Íslands í vor. Hún segir
að hugmyndin að fyrirtækinu hafi
orðið til hjá sér í tengslum við göngu-
hóp, sem hún sá um í HÍ. „Ég sá að
þörf var fyrir einhvern til þess að
sinna skiptinemum,“ segir hún. „Þeir
eru ekki aðeins margir heldur hafa
mikinn áhuga á að kynnast landinu og
miklu máli skiptir að þeir geri það í
öruggu umhverfi.“
Hugmyndin varð að veruleika og
fyrr en varði varð Erla að fá aðstoð-
arfólk. „Ég sá fljótt að ég þurfti hjálp
og það hefur gengið vel en enn sem
komið er er ég bara með fyrirtækið
innan gæsalappa á fésbókinni, vinn
við að setja upp heimasíðu og sæki
um styrki eins og til dæmis Gulleggið,
styrk í nýsköpunarkeppni Háskólans,
til þess að geta gert allt rétt.“
Hagkvæmni og öryggi
Erla fór með fyrsta hópinn á Esj-
una í fyrradag. „Þetta voru 44 manns,
sem fóru í strætó að Esjunni, rétt
svo komust fyrir og vöktu mikla
kátínu,“ segir hún og áréttar að
lagt sé upp úr því að hafa
ferðirnar sem hagkvæmastar. Hún
bætir við að í erfiðari ferðum eins og
til dæmis jöklaferðum verði farið með
stærri fyrirtækjum eins og Extreme
Iceland, þar sem hún vinnur, til þess
að tryggja að allt verði eins og best og
öruggast verði á kosið.
„Ég hef verið í fjallgöngum alla
ævi,“ segir Erla um áhugann á ferð-
um um landið. Hún segir mikilvægt
að undirbúa skiptinemana vel fyrir
ferðirnar og því bjóði hún líka upp á
námskeið, þar sem farið verði yfir
nauðsynlegan búnað og fleira, en
fyrsta námskeiðið verður um miðjan
febrúar.
Nafn fyrirtækisins vísar annars
vegar í Valhöll og norræna goðafræði
og hins vegar í söguna af Höllu og
Fjalla-Eyvindi. „Ég vildi að nafnið
vísaði í Ísland og söguna,“ segir frum-
kvöðullinn. „Við förum með í ferð-
irnar og aðalatriðið er að allir
skemmti sér vel.“
Í strætó í fyrstu ferð á Esjuna
Skipuleggur ferðir um Ísland fyrir
erlenda skiptinema Óplægður akur
Skiptinemar Fyrsti hópur Fjallhalla Adventures á Esjunni. Þátttakendur kynntust vel í ferðinni og næst er það skíðaferð til Ísafjarðar í febrúar.
Erla Þórdís Traustadóttir hefur
fengið marga í lið með sér. Quin-
ten Verdonck, Elísabet Pálma-
dóttir og Hákon Broder Lund
vinna náið með henni, Kolbrún
Dóra Snorradóttir sér um bók-
haldið, Jessie Kinglan og Kjartan
Þór Kjartansson eru vefhönnuðir
og Ingi Hilmar Thor-
oddsen sér um ein-
staka viðburði.
Perla Magnúsdóttir
var henni til að-
stoðar í fyrstu ferð-
inni nú um helgina.
Margir Erlu
til aðstoðar
FJALLHALLA ADVENTURERS
Ljósmynd/Simone Holl
Erla Þórdís
Traustadóttir
VEÐUR » 8 www.mbl.is