Morgunblaðið - 10.02.2014, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
TENERIFE
Skelltu þér í sólina með hálfu fæði til
18. febrúar í 14 nætur
Frá kr. 134.900 í 14 nætur
með hálfu fæði
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Kr. 134.900
Netverð á mann á Jacaranda***
m.v. 2 fullorðna og 2 börn í
fjölskylduherbergi með hálfu fæði
í 14 nætur.
Kr. 179.900
Netverð á mann á Jacaranda***
m.v. 2 fullorðna í herbergi með
hálfu fæði í 14 nætur.
Síðustu sætin í sólina á Tenerife 18. febrúar í 14 nætur.
Frábært sértilboð á Jacaranda*** með hálfu fæði
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri,
vann afgerandi sigur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir
sveitarstjórnar-
kosningarnar í
vor. Alls fékk Ár-
mann 1.711 at-
kvæði, eða 61,5%
atkvæða, í fyrsta
sæti listans. Mar-
grét Friðriks-
dóttir, skóla-
meistari, sóttist
einnig eftir fyrsta
sætinu en hún
hafnaði í öðru
sæti með 1.174 atkvæði í bæði 1. og 2.
sætið.
„Ég lagði mín störf sem bæjar-
stjóri í dóm kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins og skilaboð íbúa eru skýr.
Það er greinilegt að sjálfstæðismenn
vilja halda áfram á þeirri braut
ábyrgrar fjármálastjórnar og niður-
greiðslu skulda sem ég hef staðið
fyrir,“ segir Ármann.
Horfir fram á veginn
Fréttir um deilur og átök innan
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi seg-
ir Ármann eiga heima í fortíðinni.
„Fólk kallaði eftir sáttum í flokknum
og úr prófkjörinu kemur gríðarlega
sterkur listi með skýrt umboð sem á
eftir að gera góða hluti í kosning-
unum í vor.“
Ármann bendir einnig á að þátt-
takan hafi verið mjög góð en tæplega
þrjú þúsund manns tóku þátt í próf-
kjörinu. „Við erum eini flokkurinn
sem kemur til með að bjóða upp á
prófkjör með þessum hætti. Hinir
flokkarnir munu allir ákveða sína
lista í skúmaskotum.“
Prófkjörið fór vel fram að mati Ár-
manns sem segir það bæði hafa verið
skemmtilegt og málefnalegt. „Ég
fann fyrir meðbyr alla kosningabar-
áttuna sem fór vel fram og eiga allir
sem tóku þátt í prófkjörinu heiður
skilinn,“ segir Ármann.
Efstu sætin standa
Bragi Michaelsson, formaður
kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi, segir að prófkjörið hafi
farið vel fram og hann viti ekki til
þess að nokkara kvartanir hafi borist
vegna framkvæmdar þess. „Við
sjálfstæðismenn í Kópavoginum get-
um verið ánægðir með framkvæmd
prófkjörsins og þann sterka hóp
fólks sem mun leiða lista flokksins í
kosningunum í vor.“
Bragi telur sig geta fullyrt að ekki
verði breyting á efstu sætum listans
nema einhver þiggi ekki sæti á list-
anum. „Það hefur ekki tíðkast hjá
okkur að gera breytingar á efstu
mönnum listans eftir prófkjör.“ Alls
sóttust 15 manns eftir sæti á lista
flokksins og var þátttakan tæp 50
prósent. Ekki náðist í Margréti Frið-
riksdóttur við vinnslu fréttarinnar.
Fimm prófkjör voru hjá Sjálf-
stæðisflokknum um helgina. Fjallað
er um prófkjör í Mosfellsbæ, Ísa-
firði, Akureyri og Grindavík á síðu
14.
Niðurstöður prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Sa
m
t. í
1.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
2.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
3.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
4.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
5.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
6.
sæ
ti
1. Ármann Kr. Ólafsson 1.711 1.808 1.874 1.909 1.948 1.995
2. Margrét Friðriksdóttir 956 1.174 1.278 1.328 1.412 1.516
3. Karen Elísabet Halldórsd. 13 742 1.006 1.159 1.359 1.534
4. Hjördís Ýr Johnson 11 115 361 1.081 1.384 1.616
5. Guðmundur Gísli Geirdal 6 86 716 908 1.181 1.439
6. Margrét Björnsdóttir 33 608 819 925 1.079 1.282
Bæjarstjórinn
vann öruggan
sigur í prófkjöri
Hlaut 61,5% atkvæða í 1. sæti
Ármann Kr.
Ólafsson
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Dagur B. Eggertsson hlaut afgerandi
kosningu í fyrsta sætið í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík sem
lauk á laugardag,
en hann hlaut
1.421 atkvæði í
fyrsta sætið eða
82,2 %. Þá hlaut
Björk Vilhelms-
dóttir einnig góða
kosningu í annað
sætið en hún var
með 1.002 at-
kvæði í fyrsta og
annað sætið.
„Ég er mjög
ánægður með stuðninginn við mig og
þetta er mjög gott veganesti fyrir
vorið. Listinn er bæði fjölbreyttur og
sterkur þó að vissulega sé mjög
naumt á milli þeirra sem raðast í sæt-
in sem neðar eru á listanum. Það var
mjög mikið af reynslumiklu fólki að
bjóða sig fram og við þyrftum helst
að fá fleiri borgarfulltrúa til þess að
tryggja þessu fólki sæti í borgar-
stjórninni. Þessi hópur á að geta auð-
veldað það verkefni,“ segir Dagur.
Persónuleg vonbrigði
Skúli Helgason, fyrrverandi þing-
maður, gaf kost á sér í þriðja sætið en
laut í lægra haldi fyrir Hjálmari
Sveinssyni borgarfulltrúa en aðeins
munaði 13 atkvæðum á þeim.
Athygli vekur að Skúli hefði átt að
hljóta fjórða sætið en lenti í því
fimmta vegna reglna Samfylkingar-
innar um fléttulista. Kristín Soffía
Jónsdóttir færðist því upp í fjórða
sætið en hún hlaut 665 atkvæði í
fyrsta til fjórða sætið á meðan Skúli
hlaut 669 atkvæði.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönn-
unum fengi Samfylkingin fjóra full-
trúa í borgarstjórn og kemst Skúli
því ekki inn.
„Það hefur lengi verið grundvall-
aratriði hjá okkur að jafnræði sé á
milli kynja á framboðslistum Sam-
fylkingarinnar,“ segir Dagur um
beitingu fléttulista.
Þátt í prófkjörinu tóku 1.732 fé-
lagsmenn og var kjörsókn því
30,74%.
Niðurstöður flokksvals Samfylkingar í Reykjavík
Sa
m
t. í
1.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
2.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
3.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
4.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
5.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
6.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
7.
sæ
ti
Sa
m
t. í
1.-
8.
sæ
ti
1. Dagur B. Eggertsson 1421 1489 1526 1538 1548 1552 1557 1570
2. Björk Vilhelmsdóttir 72 1012 1125 1209 1255 1294 1312 1330
3. Hjálmar Sveinsson 26 134 501 693 881 952 1002 1029
4. Kristín Soffía Jónsdóttir 33 172 470 665 774 874 932 1007
5. Skúli Helgason 43 131 488 669 835 913 979 1013
6. Heiða Björg Hilmisdóttir 21 187 368 561 659 791 854 926
7. Magnús Már Guðmundsson 14 57 122 377 508 589 675 719
8 Dóra Magnúsdóttir 9 56 103 260 352 476 583 672
Dagur og Björk örugg
í tveimur efstu sætunum
Mjótt á munum í önnur sæti Reglum um fléttulista beitt
Dagur B.
Eggertsson
Enn er verið að útfæra breytingar á Hofsvallagötu en
fyrir skemmstu var komið fyrir þar til gerðum stikum
við gatnamót Hofsvallagötu og Hringbrautar sem
þrengja akreinina. Með þessu er verið, með varanlegri
hætti, að tryggja að aðeins ein akrein sé til staðar og
þar með komið í veg fyrir beygjuakrein eins og hefð
var fyrir. Áður var aðeins búið að mála örvar á þennan
hluta götunnar til leiðsagnar.
Samkvæmt heimildum eru þessar framkvæmdir hluti
af breytingum sem umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar hafði ákveðið eftir að búið var að
afturkalla þær framkvæmdir sem gerðar voru á Hofs-
vallagötunni á síðasta ári. Mikil óánægja ríkti meðal
íbúa hverfisins í kjölfar þeirra breytinga og kallað var
eftir auknu samráði. Komið var til móts við íbúa að ein-
hverju leyti og fuglahús, eyjur og flögg fjarlægð.
Kostnaðurinn við framkvæmdirnar sem áttu að vera
tímabundnar voru 20,2 milljónir. Ekki reyndist unnt í
gær að fá frekari upplýsingar hjá borginni um nýjustu
framkvæmdirnar.
Enn er framkvæmt við Hofsvallagötu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stikur torvelda umferð
Skúli Helgason náði ekki þriðja
sætinu í prófkjöri Samfylking-
arinnar eins og hann ætlaði sér.
Hann hafnaði í fimmta sæti.
„Þetta var augljóslega ekki
það sem ég stefndi að þannig
að úrslitin voru vonbrigði fyrir
mig persónulega. Þetta var hins
vegar góð og málefnaleg bar-
átta og ég óska öllum meðfram-
bjóðendum mínum til hamingju.
Ég mun velta fyrir mér minni
stöðu og tek mér tíma í það.
Frekari vangaveltur um sæta-
röðun eru ótímabærar þar sem
aðeins fjögur efstu sætin eru
bindandi og það er ákvörðun
valnefndar að raða í önnur
sæti,“ segir Skúli.
Persónuleg
vonbrigði
HAFNAÐI Í FIMMTA SÆTI