Morgunblaðið - 10.02.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
Nóg járn ámeðgöngu
Hvernig er best að viðhalda járnþörf
líkamans eðlilegri?
Ef þú þjáist af járnskorti ámeðgöngu þá þarftu að
borðamikið af járnríkummat til að leiðrétta það.
Mörgumófrískum konumfinnst erfitt að borða það
magn semþarf til að hækka og viðhalda járnbirgð-
um líkamans. Þá þurfa þær önnur ráð, Floradix
hágæða járnbætandi blanda getur hjálpað til
að ná upp járnbirgðum líkamans hratt.
Floradix inniheldur járn sem frásogast
auðveldlega í líkamanumásamt C-vítamíni,
ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enná upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihaldamýkjandi jurtir sem
hjálpa til að haldameltingunni góðri og koma í veg fyrir harðlífi sem járntöflur geta valdið.
Mikilvægt er að nýbakaðarmæður haldi áfram að
taka Floradix eftir fæðingu til að viðhalda góðum
járnbúskap og byggja upp orku og kraft. Því litla
barnið þarfnast þess að eigamömmu semer full af
orku og áhuga.
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.
Þátttakan í flokksvali Samfylking-arinnar hlýtur að vera for-
ystumönnum flokksins vonbrigði. Að-
eins rúmlega 1.700
greiddu atkvæði, eða
31% þeirra sem þess
áttu kost, þrátt fyrir
að hafa til þess tvo
daga og þrátt fyrir
að mega kjósa hvar
sem er í veröldinni.
En vonbrigðinvoru fleiri.
Skúli Helgason, sem
féll nýlega af þingi,
fékk ekki þann
stuðning sem hann
hafði vonast eftir og
varð að gera sér
fimmta sætið að góðu.
Skúli hugsar að eigin sögn sinngang eftir úrslitin enda ólíklegt
að listi merktur Samfylkingunni fái
fimm fulltrúa. Nú er listinn með þrjá
menn í borgarstjórn og nýleg skoð-
anakönnun Félagsvísindastofnunar
fyrir Morgunblaðið gaf fjóra fulltrúa.
En Skúli er kannski líka að „hugsasinn gang“ vegna þess að for-
dæmi eru fyrir því hjá Samfylking-
unni í borgarstjórn að slíkar vanga-
veltur skili töluverðum árangri.
Fyrir fjórum árum hugsaði Hjálm-ar Sveinsson sinn gang og fékk
að launum að reglum um starfskjör
fyrsta varaborgarfulltrúa var breytt.
Launin voru hækkuð til að Hjálm-ar sætti sig við niðurstöðu kosn-
inganna og hvers vegna skyldi Sam-
fylkingin ekki gera það sama fyrir
Skúla?
Skúli á ekkert síður skilið enHjálmar að launakjörum sé
breytt hjá borginni þegar honum
gengur illa í kosningum.
Skúli
Helgason
Skúli er hugsi eins
og Hjálmar
STAKSTEINAR
Hjálmar
Sveinsson
Veður víða um heim 9.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 léttskýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri 1 alskýjað
Nuuk -7 léttskýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 2 skúrir
Kaupmannahöfn 5 léttskýjað
Stokkhólmur 2 alskýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 6 skúrir
London 7 skúrir
París 7 léttskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 6 skúrir
Berlín 7 léttskýjað
Vín 4 skúrir
Moskva 0 snjókoma
Algarve 16 skýjað
Madríd 5 skúrir
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 15 skýjað
Winnipeg -28 léttskýjað
Montreal -10 léttskýjað
New York -3 heiðskírt
Chicago -11 léttskýjað
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:40 17:45
ÍSAFJÖRÐUR 9:57 17:38
SIGLUFJÖRÐUR 9:40 17:20
DJÚPIVOGUR 9:12 17:12
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umferð jókst á ný um Hvalfjarðargöng á síðasta
ári eftir að hafa dregist verulega saman frá hruni.
Stjórn gangafélagsins Spalar telur þörf á að tvö-
falda göngin á næstu árum og að þau komist í
gagnið eftir 4-5 ár.
Umferð um Hvalfjarðargöng jókst mjög fram
að hruni, mörg árin var 10-14% árleg aukning
umferðar. Með sama áframhaldi töldu forsvars-
menn Spalar ehf. sem byggði göngin og rekur að
fljótt yrði þörf á endurbótum til að anna umferð
og fullnægja öryggiskröfum. Það var talið skyn-
samlegast að gera með því að grafa önnur göng
við hliðina á núverandi göngum og hafa þannig
tvær akreinar í hvora átt. Núverandi göng upp-
fylla reglugerðir um öryggismál en talið er að
besta öryggi verði ekki náð nema með tvennum
göngum þar sem umferðin suður og norður er að-
skilin.
Á tíu ára afmæli ganganna, á árinu 2008, af-
henti stjórn félagsins þáverandi samgönguráð-
herra gögn um þær undirbún-
ingsrannsóknir og hagkvæmni-
athuganir sem gerðar höfðu
verið.
Á árinu 2007 náði umferðin
hámarki. Þá fóru rúmar 2 millj-
ónir bíla um göngin. Svarar
það til þess að 5.563 bílar hafi
farið um göngin á hverjum sól-
arhring.
Eftir hrun minnkaði umferð-
in verulega og var komin niður
í 1,8 milljónir bíla árið 2012. Á síðasta ári varð hins
vegar 2,5% aukning og þá fóru 1.886 þúsund bílar í
gegn.
Verkefninu lýkur 2018
Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, segir
að málið hafi verið lagt í hendur ríkisvaldsins á
sínum tíma. Eigi að síður hefur stjórn fyrirtæk-
isins tekið málið upp að nýju og er að láta reikna
út hvort áframhaldandi innheimta á veggjaldi
gæti staðið undir afborgunum af lánum við ný
göng. Verða þau afhent stjórnvöldum á næstu vik-
um svo þau geti ákveðið framhaldið.
Samið er um að Spölur ljúki innheimtu
veggjalda þegar uppgreiðslu lána vegna fram-
kvæmdarinnar lýkur. Það verður síðla árs 2018.
Að óbreyttu verður gjaldskýlinu því lokað undir
lok þess árs eða í byrjun árs 2019. Gísli tekur fram
að Spölur einbeiti sér að því verkefni.
Talið hefur verið að Hvalfjarðargöngin geti bor-
ið allt að 7 þúsund bíla umferð á sólarhring að
meðaltali. Á síðasta ári var umferðin 5.169 bílar á
dag. Gísli vekur athygli á því hvað árstíðasveiflur
eru miklar. Þannig hafi meðalumferðin í júlí í
fyrra verið 7.648 bílar. Telur hann því að til að
anna umferðinni á öruggan hátt yfir hásumarið
geti orðið þörf fyrir tvöföldun ganganna þegar
umferðin nálgast 6 þúsund bíla að meðaltali yfir
árið. Það gæti orðið á árunum 2018 til 2020. Það
taki hálft annað ár að undirbúa framkvæmdir og
tvö ár að grafa svo tímabært sé að huga að málinu.
Hann bætir því við að með aukinni umferð verði
nauðsynlegt að bæta veginn um Kjalarnesið sam-
hliða og gera umferðina þar öruggari.
Þörf á tvöföldun ganganna
Umferð um Hvalfjarðargöng eykst á ný Tímabært að undirbúa framkvæmdir
Gísli
Gíslason