Morgunblaðið - 10.02.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 10.02.2014, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Vikum samanhafa þeirsem fylgj- ast með erlendu fréttaefni séð góða granna okkar í suðri engjast vegna flóða á engj- um og ökrum Englands. Reyndar er aðdáunarvert hversu vel íbúarnir hafa fram til þessa borið sig í viðtölum við fjölmiðla. Hin „óbifanlega efrivör“ Breta er söm við sig. Flóðin eru komin til vegna mikilla rigninga, sem sömu lægðir flytja og hafa séð Ís- lendingum fyrir bærilegum hita í byrjun þessa árs. Ein- hverjir gætu haldið því fram að lægðir gættu ekki endilega jafnræðis. En þessi miklu vot- viðri á Bretlandseyjum eru ekki einstök í sinni röð. Það liggur við að þau séu að verða nokkuð árvissar uppákomur. Rigningarnar núna eru þó sagðar vera hinar mestu, frá því að stofnað var til skráðra mælinga um þær, fyrir meira en tveimur öldum. Nú er svo komið að hin rómaða þol- inmæði er á þrotum og raddir hækka um að viðbrögð stjórn- valda, ríkisstjórnar Came- rons, Umhverfisstofnunar Bretlands og eftir atvikum stjórnvalda á lægri stjórn- stigum hafi verið með öllu óboðleg. Þessir aðilar reyna í senn að benda á aðra, taka á sig eins litla sök og hægt er að komast upp með og vísa til afla eða fyrirbæra sem geta ekki varið sig. Það er í anda þess sem sagt var: „Nú ertu heppinn, Guð, að ég næ ekki til þín.“ Mikið er vísað til kenninga um veðrabreytingar sem hafa verið ofarlega í umræðu síð- ustu áratuga um hlýnun jarð- ar. Aðrir benda á að hin þétt- býlu, og þéttræktuðu suðurhéruð landsins hafa ekki lengur náttúrulega burði til þess að mæta ofankomum af þessu tagi og stjórnvöld (Um- hverfisstofnunin) hafi skellt skollaeyrum við óskum um að bæta náttúruleg gæði með því að dýpka og hreinsa ár og styrkja flóðvarnargarða. Sum- ir talsmenn stofnunarinnar vísa í vörn sinni til reglu- gerðaflaums ESB sem stýri forgangsröðun og geri því stofnuninni erfitt um vik, en jafnvel breskum ESB- efa- semdarsinnum þykja það ódýr rök. Helsti vísindalegur embætt- ismaður veðurstofuyfirvalda telur að hlýnun jarðar beri mesta ábyrgð. Það er að því leyti til þæginda að Bretar geta ekki mikið í því gert á meðan stærsti hluti verald- arinnar, bæði hinn fjölmenni og fá- tæki, Kína, Ind- land og Afríka og hinn ríkari, Bandaríkin (og í raun fleiri efnuð ríki) eru stikkfrí og ESB er með misheppnaðar sýndaraðgerðir, eins og bent var á í grein í blaðinu nýlega. Fáeinar bláar tunnur í skand- inavískum sveitarfélögum og embættismenn þeirra sem róta í þeim tunnum eru jafn beitt vopn gegn slíku og teygjubyssa gegn vetn- issprengju. Eins og á þessu sést er breska umræðan vegna flóð- anna því miður komin, eins og hinar blómlegu byggðir, út í veður og vind. Formaður Ukip, flokks breskra sjálf- stæðissinna gagnvart ESB, vill draga „smábrot“ af fjár- veitingum Breta til þróun- arhjálpar tímabundið heim á ný, til að bæta hrjáðum heima- mönnum það tjón sem trygg- ingarfélög munu augljóslega ekki bæta. Sveitarstjórn- arráðherrann hafnar slíkum tillögum og kallar lýðskrum, sem er ekki alveg fráleit til- gáta, en rök hans sjálfs eru langsótt. Hann segist vissu- lega vera „jarðhlýnunartrúar“ en ekki þó vera viss um að hægt sé að færa allar óvenju- legar sveiflur í veðurfari hvers tíma á þann opna reikning. En, bætir hann við, ef þangað mætti samt rekja ástæðu þess að Englendingar vaða elginn enn einu sinni, þá sé óráð að taka einhvern hluta af þróun- arhjálpinni til að bæta hluta skaðans. Því þróunarhjálpin sé til þess fallin að gera vanþróuð ríki sjálfbær og þeg- ar að það takist muni það hafa jákvæð áhrif gegn hlýnun jarðar! Þótt þessi ágæti ráðherra væri fæddur í gær, eins og mörg ummæla hans gætu bent til, standa engar líkur til þess að hann muni lifa nógu lengi til þess að sannreyna kenn- ingar sínar. Það er einmitt ástæðan fyrir því að hann og fleiri teygja sig gjarnan í slík rök. Hvar sem heyrist veð- urfræðilegur hósti eða stuna, urg eða hvísl er áhættulaust að beina athygli sinni fyrst að Grýlu gömlu. Þeir eru ekki margir sem halda því fram að þessi Grýla sé ekki til. En þeir eru fleiri en látið er, sem hafa nokkrar efasemdir um að sannað sé, án eðlilegs vafa, að hún hafi orðið til af manna- völdum. Jólasveinarnir eru að sjálfsögðu ekki í þeim hópi enda er of mikið í húfi fyrir þá, eins og allir vita. Dapurlegt er að fylgjast með flóð- unum í Englandi og eins kenningunum sem eru viðraðar} Flengdir með votum vendi K atrín Jakobsdóttir var með at- hyglisverða lýsingu á stjórn- arflokkunum á flokksráðsfundi Vinstri grænna um daginn. Rík- isstjórnin hefði stillt sér upp „í hópi ójafnaðarmanna“. Rökstuddi hún þá gagn- rýni sína meðal annars með því að gagnrýna það að veiðigjald á útgerðir hefði verið lækkað, og að skattar hefðu verið lækkaðir. Ríkis- stjórnin hefði sýnt að ekki mætti „auka jöfnuð hér heima með skattkerfinu“. Þegar ég heyrði af þessum orðum Katrínar varð mér hugsað til síðasta dags Margrétar Thatcher í breska þinginu. Þar ætluðu stjórn- arandstæðingar aldeilis að ná sér niðri á henni, og spurði einn þeirra hana til dæmis að því hvernig það væri að hafa stóraukið „ójöfnuð“ í samfélaginu á hennar vakt. Thatcher var ekki lengi að benda á það að þó að bilið á milli þeirra ríkustu og fátækustu hefði aukist hefðu þeir fátæku það miklu betra en þeir höfðu gert áður en hún tók við. Af því dró Thatcher þá ályktun að sumum myndi þykja það betra að allir hefðu það verra, bara ef tekjubilið væri minna. Og hvaða aðra ályktun er hægt að draga af orðum Katr- ínar, en að hér eigi skattar alltaf að hækka, og að hlutverk skattkerfisins sé ekki að sjá ríkinu fyrir tekjum fyrir sam- neyslu borgaranna, heldur sé það fyrst og fremst til þess að koma á einhverjum óskilgreindum jöfnuði. Rétt er að halda því til haga að „jöfnuður“ er allt annað fyrirbæri en jafnrétti og jöfn tækifæri. Gallinn er bara sá að jöfnuður í gegnum skatta kemur sér alltaf verst fyrir þá sem minnst mega sín, samanber auðlegðarskattinn, sem lagðist þyngst á eldra fólk í eigin húsnæði. Og enginn virðist skilningurinn á því að ef skattar eru hækkaðir mun fólk bregðast við. Fyrirtæki þurfa að segja upp starfsfólki. Landasala eykst í réttu hlutfalli við hærri skatta á áfengi, og þeir sem geta flust annað þar sem skattar eru hóflegri gera það. Eftir sitja þá þeir sem minna mega sín og þurfa að axla þyngri byrðar. Vilji menn sjá þessa líkingu fyrir sér á ann- an hátt má ímynda sér að samfélagið sé líkt því að rækta stóran og þéttan nytjaskóg. Sum trén búa við verri skilyrði til vaxtar en önnur, hafa minni aðgang að birtu og vætu, en sé rétt hlúð að þeim, búa þau yfir sömu getu og önnur tré til þess að vaxa og dafna. Því að ætla að búa til jöfnuð í gegnum skattheimtu má á óbeinan hátt líkja við það að ætla sér að gera skóginn betri og fallegri með því að saga ofan af þeim trjám sem rísa hærra en lægsta hríslan. Þannig verður bilið milli þeirra hæstu og lægstu miklu minna, en skógurinn verður aldrei jafnfallegur og hann hefði getað orðið. Það er því sama hvernig á málin er litið. Ef jöfnuður næst ekki nema í gegnum skattkerfið, þá er niðurstaða mín er sú að ég er ójafnaðarmaður. Ég vil ekki hækka skatta til að allir hafi það jafnt. Ég vil að allir hafi það betra. sgs@mbl.is Stefán Gunn- ar Sveinsson Pistill Ójafnaðarmaðurinn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Landssamband smábáta-sjómanna hefur lýst mikl-um áhyggjum vegnafækkunar veiðidaga á grá- sleppuvertíðinni í vor og sumar. Samkvæmt reglugerð verða veiðar aðeins heimilar í 20 daga frá því að fyrstu net eru lögð í sjó og skiptir þá engu hvort ótíð hamlar veiðum næstu 19 daga á eftir. Verði veiði- dagarnir aðeins 20 yrði um sögulegt lágmark að ræða. Hafrannsóknastofnun leggur til í ástandsskýrslu sinni að upphafs- aflamark í grásleppu í ár verði ekki hærra en sem nemur um 970 tonn- um sem samsvarar um tvö þúsund tunnum af söltuðum hrognum. Stofnunin mun hins vegar að lokinni stofnmælingu í mars endurskoða þetta aflamark og veita ráðgjöf um heildaraflamark fiskveiðiársins, svipað og er viðhaft í ráðgjöf um loðnuveiðar.Veiðunum er stýrt með sóknarmarki og eigi síðar en 1. apríl verður endanlegur dagafjöldi ákveð- inn. Smábátasjómenn benda á að þá verði vertíð hafin fyrir norðan land. Verðlækkun á hrognum í fyrra Í fyrravetur var miðað við 20 veiðidaga í aðdraganda vertíðar, en þeim var síðan fjölgað í 32. Þá var miðað við 1.700 tonn sem upphafs- afla, en endanleg tillaga stofnunar- innar að heildarafla var fjögur þús- und tonn. LS hefur bent á að nokkrir þættir takmarki veiðar; m.a. stærð báta, netafjöldi og veðurfar, auk þess sem verðsveiflur á hrognum geti dregið úr sókn. Verð á hrognum lækkaði verulega á síðasta ári, en á móti kom að nú er farið að hirða fisk- inn allan og fengust drjúgar tekjur fyrir hann á markaði í Asíu. Á fundi LS með Atvinnuvega- nefnd Alþingis 28. janúar viku fulltrúar LS að aðsteðjandi vanda grásleppukarla. LS sagði fulla nauð- syn á að lög um stjórn fiskveiða mundu heimila aflabætur til grá- sleppukarla ef takmarkanir veiða leiddu til verulegs tekjutaps. Miklar sveiflur hafa verið í grá- sleppuafla síðustu áratugina og náði hann hámarki árið 1984 er hann nam um þrettán þúsund tonnum. Í ástandsskýrslu Hafrannsóknastofn- unar kemur fram að þróun í stofn- vísitölum grásleppu og rauðmaga valdi áhyggjum. Ráðgjöf Hafró mið- ar að því að veiðiálag sé svipað og ár- in 1985-2012 og að halda grásleppu- stofninum yfir sögulegu lágmarki. Margt á huldu um lífshlaupið Margt er á huldu um lífshlaup grásleppu, en meðal annars vinnur fyrirtækið BioPol á Skagaströnd að rannsóknum á fiskinum í samvinnu við Hafrannsóknastofnun, sjómenn og fleiri aðila. Grásleppa, sem hefur verið merkt að vetri eða vori endur- heimtist í langflestum tilvikum á sömu vertíð, en þá virðist hún oft hafa ferðast um talsverðan veg með stöndinni. Hversu oft grásleppan hrygnir er meðal þess sem er rannsakað, en ljóst þykir að a.m.k. sumar þeirra hrygna tvisvar á líflsleiðinni. Þegar seiðin hverfa frá landi halda þau sig uppsjávar í úthafinu þar til fiskurinn er orðinn kynþroska, 3-5 ára að því að talið er. Grásleppa finnst víða á svæðinu milli Íslands, Noregs, Grænlands og Kanada og ennfremur í Eystrasalt- inu. Nýlegar erfðarannsóknir greina á milli grásleppu í austan- og vest- anverðu Atlantshafi en ekki á milli Íslands og Noregs. Reynt hefur ver- ið að merkja grásleppu í úthafinu, en erfitt hefur reynst að fá merki til að tolla í fiskinum. Eitthvað hefur verið um að grásleppa komi sem meðafli í veiðarfæri uppsjávarskipa. Vilja bætur leiði tak- markanir til tekjutaps Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Grásleppu landað á Siglufirði Auk hrognanna er nú skylt að koma með allan fiskinn að landi og hefur hann verið seldur á mörkuðum í Asíu. World Wildlife Fund hefur lýst yfir áhyggjum af stöðu grá- sleppustofnsins og því að ekki sé ljóst hvort veiðar á grásleppu eru sjálfbærar. Af þeim sökum hefur WWF ákveðið að setja grásleppuna á rauðan lista í Svíþjóð og Þýskalandi og beina því til fólks að kaupa ekki afurð- ir úr henni, þá hafa dönsk nátt- úruverndarsamtök ákveðið að beina sams konar upplýsingum til neytenda í Danmörku. Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri LS, segir þessa umræðu vera mikið áhyggjuefni. Þó Ís- land sé ekki nefnt sérstaklega séu fyrrnefndir markaðir gríðar- lega mikilvægir fyrir grá- sleppukarla. Örn segist ekki sammála því að litlar upplýs- ingar séu fyrirliggjandi um grá- sleppuna. Á Íslandi hafi sjó- menn skilað margþættum upplýsingum til Hafrann- sóknastofnunar í áratugi. Áhyggjur WWF af grá- sleppunni EFI UM SJÁLFBÆRNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.