Morgunblaðið - 10.02.2014, Page 24

Morgunblaðið - 10.02.2014, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014 frekar að njóta þess sem eftir var. Aldrei heyrði ég hann harma eða kvarta yfir hlutskipti sínu. Hann hafði frekar áhyggjur af sínum nánustu og hversu erfið þessi veikindi væru fyrir fjöl- skylduna. Það var gott að eiga samleið með Þóri Haraldssyni. Maður kom ávallt ríkari af hans fundi. Hann var að sönnu sólskinsmað- ur sem kunni að rækta garðinn sinni. Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Örn Þór Emilsson. Það er svo dýrmætt þegar til- viljanir lífsins koma manni í kynni við gott fólk. Fólk sem skilur eitthvað eftir sig. Þetta upplifði okkar fjölskylda þegar við fluttum við hliðina á Ása- byggð 11, sem var annáluð fyrir það hversu gott var að komast leiðar sinnar í kringum húsið á vetrarmánuðum. Ekki skrýtið þar sem heimilisfaðirinn Þórir Haraldsson kaus sér einna helst snjómokstur sem líkamsrækt. Gott aðgengi að númer 11 varð svo fljótlega sérstakt hagsmuna- mál okkar, sem dvöldum þar oft í notalegu andrúmsloftinu. Leita mátti til heimilisfólks með flest, jafnvel að hýsa táningsstúlku um lengri tíma. Þórir kippti sér heldur ekki upp við það að að- stoða téða stúlku þegar eina lausnin á seinheppni og lykla- leysi var að brjótast inn um glugga á annarri hæð í Ásabyggð 9, sem hefði verið illmögulegt án stiga og verkfæra nágrannans. Nágranninn var ekki feiminn við að gantast með slík atvik, sér í lagi þegar þau endurtóku sig oft- ar en tíundað verður hér. Þórir, mannvinurinn fróði, hafði ein- mitt sérstakt lag á því að líta á lífið á skoplegan hátt og sama hvort um var að ræða kvöldverð- arboð eða spjall í garðinum var hann alltaf með góða sögu á tak- teinunum sem hann sagði á sinn kímna hátt. Elsku Una, Rósa, Inga, Ása og fjölskyldur, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Missir er að mætum manni. Hvíl í friði góði granni. Svanhvít Magnúsdóttir og Una Guðlaug Sveinsdóttir. Jafn sárt og það er að sjá á eftir góðum vini og æskufélaga er um leið ljúft að minnast margra samverustunda, allt frá æskudögum. Við Þórir urðum við upphaf skólagöngu bekkjar- félagar í þá óvenjustórum hópi ágætra bekkjarsystkina í Dalvík- urskóla. Fljótlega varð ég heimagangur í Svalbarði, æsku- heimili Þóris, þar sem þrír og um tíma fjórir ættliðir áttu heimili. Þar kynntist ég fyrst hans ágæta fólki. Þórir var heilsuveill í æsku, og undirritaður reyndar líka, og héldum við okkur því mikið inni við. Lágum við þar mikið í bók- um og tímaritum, ekki síst dönskum viku- og mánaðarritum eins og t.d. Hjemmet og álíka blöðum sem við skoðuðum „upp til agna“ og stautuðum okkur fram úr, því sem vakti áhuga okkar. Við héldum okkur mikið í námunda við Sigurð Beck, móð- urafa Þóris, sem þá var orðinn blindur og hélt orðið mikið kyrru fyrir. Hann hlustaði þá mikið á útvarp en gaf sér oft góðan tíma til þess að skrafla við okkur. Bar þá oftar en ekki kveðskap á góma, t.d. vísur Æra-Tobba, sem manni fundust í meira lagi kyn- legar á þessu aldursskeiði. Ég á einkar ljúfar minningar um sam- neytið við þessa ágætu stórfjöl- skyldu á þessum árum. Þórir var skemmtilegur og hugmyndarík- ur leikfélagi. Við „gáfum út“ í um tvö ár í barnaskóla sitt hvort handskrifað blaðið með frétta- og skemmtiefni og teiknuðum myndum. Réðum við til okkar sinn bekkjarfélagann hvor sem blaðamenn. Muni ég rétt lásu engir aðrir en við fjórir þessi blöð! Ég á enn nokkur þessara blaða, þ.e.a.s. blöð Þóris. Leiðir skildi með tímanum eins og oft vill verða en fyrir um fimmtán til tuttugu árum end- urnýjuðum við Þórir gamla vin- áttu og held ég að báðir hafi not- ið þess. Ég kom einstöku sinnum í heimsókn til hans og Unu á þeirra fallega heimili. Þá sýndi hann mér löngum mikið lang- lundargeð er ég spurði hann spjörunum úr um ýmislegt úr heimi náttúru- og líffræði sem ég hafði fengið mikinn áhuga á en vanrækt í hyskni minni að lesa í skóla á unglings- og mennta- skólaárum. Þar var hann auðvit- að á heimavelli. En það var gam- an að ræða við hann um alla skapaða hluti og var þá oft stutt í gömlu gamansemina. Ég kann ekki að dæma um ævistarf Þóris en það kæmi mér á óvart ef hann hefði ekki staðið sig þar afburða vel. Það er dapurlegt að fylgjast með stríði góðs vinar við illvígan sjúkdóm og er þá ekki hér gleymt hlutskipti nánustu ætt- ingja. Eftir eina sjúkdómsor- ustuna sendi hann mér (og kannski fleirum) ljóð og er hér brot úr því: Ég hef legið lágt í rúmi lengi í vetur. Andagift er ekki mikil og aldrei fann ég rétta strikið. Gleðjumst þó sem getum mest, en gætum hófsins. Þó sólin hverfi, sést hún aftur, sálin fjörgast, eflist kraftur. Unu, afkomendum og öðrum nánustu ættingjum Þóris, míns góða vinar, sendi ég samúðar- kveðjur. Atli Rafn Kristinsson. Hálf er öld síðan ég hitti pilt uppi á Hólshyrnu á Siglufirði. Þá vorum við skátar. Skömmu síðar vorum við samferða um ganga Menntaskólans á Akureyri í fjögur eftirminnileg ár. Þá vor- um við skólabræður. Samtímis vorum við síðan stúdentar í Há- skóla Íslands. Í fjóra áratugi höf- um við svo verið kennarar við gamla skólann okkar, MA. Og nú er hann genginn, Þórir Haralds- son, vinur, bróðir og samverka- maður í hálfa öld. Hér er tóm- legt. Sverrir Páll Erlendsson. Lengi hefur verið von á þess- ari fregn. En hún er jafnsár fyrir því. Ég var svo lánsöm að sitja líffræði hjá Þóri í MA og fyrir mér fór eins og svo mörgum nemendum hans; eldur áhuga var kveiktur og loganum haldið stöðugt við. Kennslustundir voru tilhlökkunarefni, enda kennarinn hafsjór af fróðleik og miðlaði af mikilli innlifun. Þórir kveikti bæði líffræðiáhuga og áhuga á kennarastarfinu. Góðir kennarar hafa oft meiri áhrif en þeir gera sér grein fyrir. Uppburðarlítil og lotningarfull hóf ég störf við hlið míns gamla lærimeistara haustið 1999. Ég gat varla verið heppn- ari með deild og samstarfsfólk, bæði Þórir og Kristín voru boðin og búin að aðstoða og ráðleggja, samstarfið var frábært. Í þeirra skjóli óx ég upp í kennslunni, reyndi vængina, gerði mistök sem ég lærði af. Eilíflega verð ég Þóri þakklát fyrir allan stuðning- inn og hvatninguna. Það stekkur enginn út úr háskólanum full- skapaður kennari, kennsla er þannig listgrein að sennilega verður maður aldrei fullnuma. Þórir var afburða kennari, al- veg einstakur. Hann nærði metnað nemenda og gæddi námsefnið iðandi lífi og húmor með leikrænum tilburðum og eftirhermum. Taflan og litkrít- arnar voru hans tæki til að skapa listaverk sem byrjuðu efst í horninu við gluggann í M1 og unnust svo niður í hornið við vaskinn. Hann veiddi mýs í lysti- garðinum, bjó til bráðsniðugar vísbendingaspurningar, lagði ánamaðka í formalín á haustin og safnaði plöntum til að nota í verklegu. Hag líffræðideildar- innar bar hann fyrir brjósti og var deildarstjóri árum saman. Væri eitthvað sérstakt í um- ræðunni í þjóðfélaginu sem hægt var að fjalla um í tíma þá var upplýsingum safnað og búinn til fyrirlestur. Hver kennslustund var undirbúin af kostgæfni, það var lagður metnaður og um- hyggja í öll verk. Ef nemendur voru ekki alveg með á nótunum þá flautaði Þórir gjarnan smá- lagstúf og þar með átti hann sviðið. Hann vildi eiga sviðið og það kom líka oft berlega í ljós á kennarastofunni, þegar Þórir tók rispur svo að samkennararnir táruðust af hlátri. Þórir var mikill fjölskyldu- maður. Þau Una áttu notalegt heimili og þangað var gott að koma. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Unu og dætrunum. Eft- ir að hafa helgað nemendum MA fjörutíu ár átti Þórir svo sann- arlega skilið mörg ár til að sinna fjölskyldu og áhugamálum. En eins og hann sagði sjálfur þá er lífið ekki sanngjarnt í eðli sínu, það er bæði duttlungafullt og dularfullt, engin leið að skilja það til hlítar. Nú er síðustu orr- ustunni lokið og stríðið tapað. En sá sem hefur lifað lífinu eins og Þórir stendur samt uppi sem sigurvegari. Að gróðursetja græðling, haust þó sé, er gæti rætur fest og orðið tré, sem hörku frosts og hríða standi gegn og höfugt angi þegar drýpur regn. Og kátur þröstur gæti athvarf átt í ungri krónu þess og sungið dátt. Og gisti ég þá garðsins hljóðu byggð ei gerir hót, sé framtíð sprotans tryggð. Ég vildi að hann væri íslensk björk úr vaðlaskógi eða þelamörk. Og fæddi af sér grein af grein í mó, já, grænan, þéttan, háan birkiskóg. (K.f.D) Ásta F. Flosadóttir. Það blésu ferskir vindar á námsárum okkar í Menntaskól- anum á Akureyri. Nýr skóla- meistari kom til starfa, nýrri námsbraut var hleypt af stokk- unum, ungir og sprækir kenn- arar bættust í hópinn sem fyrir var, albúnir að takast á við frísk- an og stundum óstýrilátan nem- endahóp. Einn þeirra var líf- fræðingurinn Þórir Haraldsson. Grannvaxinn, kvikur í spori, síð- hærður og skeggjaður, húmors- glampi í augum, aðeins sjö til átta árum eldri en okkar árgang- ur. Svo hófst kennslan. Taflan fylltist af nostursamlega gerðum glósum þar sem saman blönd- uðust skýringarmyndir og textar, litkrítum beitt af hugvits- semi. Flókin líffærastarfsemi skýrðist og fyrirfram vantrúaðir máladeildar- og félagsfræðinem- ar uppgötvuðu að sannindi lífsins mátti nálgast með fjölþættari og áhugaverðari hætti en þá hafði áður grunað. Gamansamar og stundum tvíræðar skýringar kennarans hresstu andann og stílabækurnar fylltust af efni sem gagnaðist mörgum við áframhaldandi nám og jafnvel kennslu. Þessi var fyrsta mynd okkar af Þóri Haraldssyni. Þá grunaði okkur síst að við ættum ekki ein- asta eftir að vinna saman í fulla þrjá áratugi í MA og HA, heldur vorum við einnig leikhús- og les- félagar í rúm tuttugu ár, góðir nágrannar í hartnær átján. Þórir var sannkallað náttúru- barn við kennslu. Hún var hon- um hugleikin, hann leitaði stöð- ugt nýrra fanga og hann var óþreytandi að miðla þekkingu sinni áfram. Ógleymanlegar eru vísbendingaspurningar sem hann lagði iðulega fyrir í lok kennslustundar. Mikil vinna var í þær lögð og afleitt þótti höfund- inum ef einhver rambaði fljótt á rétta svarið. Hann naut þraut- arinnar meðan hún stóð en sam- fagnaði innilega að lokum. Síð- ustu árin bauð hann nemendum gjarnan að semja svona spurn- ingar um sjálfvalið efni á próf- um. Þeir vissu það fyrir og glöddu kennara sinn mikið ef augljóst var að alúð var lögð í verkið. Natni Þóris kom vel fram í grúski hans og rannsóknum. Hann kannaði bókasöfn af kost- gæfni og safnaði miklu efni um náttúrufræði á handskrifuð spjöld sem hann nýtti að hluta til útgáfu en meira til kennslu. Átt- hagafræði hans var (og er) mikið lesin í skólum en komst því mið- ur aldrei á prent. Það gerði hins vegar stórfróðlegur og læsilegur kafli um dýralíf á landi í bókinni Líf í Eyjafirði (2000). Fleira var í bígerð en lítill áhugi á hagnýt- ingu og beitingu tölvutækni var Þóri viss hemill. Í önn hvers- dagsins komu taflan og krítin honum best og eftir á að hyggja var hann líklega nær fullmótaður sem kennari þegar við upphaf starfs. Tregða hans við að ganga til móts við margvíslegar tækni- kröfur breytti hins vegar engu um hæfileika hans til að heilla ólíka námshópa. Minnisstæð er umsögn kennaranema sem sagði í námskeiðsmati: „Þórir, hann er idolið mitt!“ Þórir var mikill gæfumaður í einkalífi. Fyrst eignaðist hann Unu og síðan dæturnar þrjár. Allar fjórar vöfðu hann örmum, nánast sem í bómull væri. Seinna komu tengdasynir og barnabörn sem honum þótti undurvænt um. Þessum öllum sendum við ein- lægar samúðar- og saknaðar- kveðjur. Ragnheiður og Bragi. Sæmdarmaðurinn Þórir Har- aldsson er látinn, ástsæll kennari við Menntaskólann á Akureyri í 40 ár, hollur í hugum, hógvær og lítillátur, áhugasamur og kíminn – og lét sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Þegar við Þórir höfðum starf- að saman 20 ár spurði hann mig, Norðfirðinginn, hvort ég þekkti Brynhildi Haraldsdóttur á Norð- firði. Við Bryna vorum fjór- menningar, komin út af Her- manni í Firði, sem snemma varð þjóðsagnapersóna, skáld, sögu- fróður, fjölkunnugur og dugandi búhöldur og kvennamaður og „kvað engan vita hve mörg börn hann ætti nema guð einn“. Þórir hafði komist að því að Brynhild- ur var hálfsystir hans samfeðra. Bryna var hins vegar fóstursyst- ir föður míns, alin upp hjá Maríu ömmu í Sandhúsi í Mjóafirði. Kallaði faðir minn hana systur sína. Í fimmtugsafmæli Þóris sagði ég að fyrst Bryna væri systir föður míns og Þórir og hún hálfsystkin hlyti Þórir að vera föðurbróðir minn. Þórir tók spauginu og það kumraði í hon- um við söguna. Þórir sagði mér kímilega sögu um tengdaföður sinn, Sigurliða Jónasson. Í minningargrein um hann sagði Þórir „að hann hefði ekki talað af sér við ókunnuga, sem væri eyfirsk heimanfylgja, en þegar hann hafði áttað sig á fólki gat hann verið allra manna skemmtilegastur enda fullur af húmor“. Saga Þóris var á þá leið, að þegar hann fór að gera sér títt um Unu, dóttur Sigurliða, spurði hann Sigurliða um álfa og huldufólk í Eyjafirði. Sigurliði svaraði framhleypnum mennta- skólanemanum engu. Þrettán ár- um síðar, þegar Þórir og Una höfðu eignast þrjár dætur, eft- irlæti afa síns, sagði Sigurliði við Þóri: „Þú varst að spyrja um álfa og huldufólk í Eyjafirði, Þórir,“ og sagði honum margt um álfa, enda fróður – en talaði ekki af sér. Þórir Haraldsson var í hópi áhugafólks sem setti á stofn minningarstofu um skáldið og náttúrufræðinginn Jónas Hall- grímsson og tók virkan þátt í starfi okkar, fór um land jarð- arinnar og gerði skrá um blóm- jurtir í landi Hrauns. Hangir skrá Þóris í minningarstofunni sem vottur um elju hans og vandvirkni. Þórir Haraldsson setti saman smákvæði sem hann sendi vinum sínum um jól. Jólin 2012 sendi hann okkur þetta smákvæði: Þótt dimmi’ á glugga svo að minni á sót og sjáist hvergi á himni vetrarsól. Við gefumst ekki upp né guggnum hót því gleðileg oss nálgast heilög jól. Þótt kaldir vindar blási um gras og grjót og gusti stíft um menn og þeirra ból. Við gefumst ekki upp né guggnum hót því gleðileg oss nálgast heilög jól. Hér má ef til vill greina kvíða, enda hafði Þórir um árabil glímt við sjúkdóm þann sem dró hann til dauða. Nemendur Þóris bera honum vel sögu og segja frá því hvernig hann vakti áhuga þeirra á líf- fræði með lifandi tali og sýndi með leikrænni tjáningu og sterku látbragði frumuskipti spendýra og æxlun blómplantna. Þannig lagði Þórir Haraldsson líf og sál í kennslu sína. Fyrir góða kennslu og annað sem hann var Menntaskólanum á Akureyri – og mér þakka ég um leið og við Gréta vottum Unu og dætrum þeirra samúð við fráfall sæmd- armannsins Þóris Haraldssonar. Tryggvi Gíslason. Látinn er fyrir aldur fram Þórir Haraldsson kennari við Menntaskólann á Akureyri. Að honum er mikil eftirsjá. Kynni okkar hófust ekki að marki fyrr en haustið 2002 þegar hann kom á ný til kennslu við MA eftir árs- leyfi sem hann hafði notfært sér til endurmenntunar. Næstu fjóra vetur spjölluðum við einatt sam- an í frímínútum á kennarastof- unni, og naut maður þá hinna góðu frásagnarhæfileika Þóris. Við áttum það sameiginlegt að hafa báðir dálítið fjallað um hvítabirni á opinberum vettvangi og snerist talið því stundum um birnina. Þessi ár, fram til 2007, var a.m.k. tvisvar staðið fyrir ferðum frá Akureyri, undir stjórn Guðmundar Sigvaldason- ar, sveitarstjóra, til hinnar fornu Eystribyggðar á Suðvestur- Grænlandi, Þórir fór í fyrri ferð- ina. Þær voru undirbúnar með fyrirlestrahaldi hér heima fyrir þátttakendur og ræddi Þórir þá um náttúru Grænlands, einkum dýralíf. Eitt sinn fékk ég hann líka til að koma á fund í Rót- arýklúbbi Akureyrar til að ræða um lifnaðarhætti hvítabjarn- anna. Hann hafði alveg sérstakt lag á því að vera fræðandi og mjög skemmtilegur í senn, sem örugglega nýttist honum vel í kennslu. Eitt haustið fundum við hjón- in nokkuð heillegt geitungabú í garði okkar og færði ég Þóri það til að sýna nemendum í náttúru- fræðinni. Því tók hann vel. Um tíma stóð Þórir ásamt öðrum fyrir stuttum gönguferð- um um nágrenni Akureyrar að morgunlagi um helgar. Minnist ég sérstaklega ánægjulegrar göngu undir hans leiðsögn um Vaðlareitinn í Kaupangssveit, þar sem hinn forni þingstaður Eyfirðinga var áður fyrr. Í nokkur ár í kringum 2005 stóð Þórir manna mest fyrir því að nokkur hópur manna, einkum framhaldsskólakennarar, læsu upp Passíusálma Hallgríms Pét- urssonar í Akureyrarkirkju á föstudaginn langa, og var mjög áhugavert að fá að taka þátt í þeirri athöfn. Þetta, ásamt ýmsu öðru, sýndi hve menningarlegur áhugi Þóris heitins var víðfeðm- ur og ekki einvörðungu bundinn við náttúrufræðina. Hann var áhugasamur um bókmenntir, ljóðelskur og dável hagorður, um það báru t.d. vott vísur á jóla- kortum frá þeim hjónum. Einkar ánægjulegt var að koma í matarboð til þeirra Þóris og Unu á hinu fallega heimili þeirra í Ásabyggð 11. Þetta voru mjög höfðingleg boð og samræð- ur fjörlegar, enda Þórir ávallt mjög gamansamur og léttur í tali. Síðast sáum við Þóri á Sjúkrahúsinu á Akureyri 1. des- ember síðastliðinn, en þá var því miður af honum dregið og aug- ljóst hvert stefndi. Minningin um vináttuna við hinn glaðværa og góða dreng lif- ir. Við Anna kona mín erum mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Þóri Haraldssyni og sendum Unu og dætrum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Björn Teitsson. Sífellt hverfa af sjónarsviðinu samferðamenn, sem við höfum átt samleið með, og sumir langt fyrir aldur fram. Einn af mínum bestu samferðamönnum var Þór- ir Haraldsson, líffræðingur og líffræðikennari við Menntaskól- ann á Akureyri. Þórir lagði snemma rækt við íslensku flór- una og þekkti hana því mjög vel. Því var mikils virði að hafa hann með sér á rannsóknaferðum um landið, þar sem reyndi á þekk- ingu á flórunni. Þóri kynntist ég fyrst, þegar hann var við nám á fyrstu árum líffræðikennslu við Háskóla Ís- lands upp úr 1970. Árin 1974- 1976 tók hann þátt í leiðöngrum Náttúrugripasafnsins á Akureyri við rannsóknir á flóru Þingeyj- arsýslu. Þá var farið vítt og breitt um öræfi Þingeyjarsýslu norðan Vatnajökuls og vestan Jökulsár á Fjöllum. Í þessum ferðum var oftast gist í tjöldum á þeim stað sem menn voru komn- ir hverju sinni. Þórir var ein- staklega laginn við að lífga upp á tilveruna, þótt aðbúnaður væri ekki alltaf sem bestur. Árið 1974 fórum við víða um Mývatnsöræfi, allt norðan frá Grísatungufjöll- um og Mælifellshögum suður í Bláfellshala og Ketildyngju. 1975 var farið um Dyngjufjallasvæðið, Gæsavötn og Bleiksmýrardals- botn, og 1976 um Bleiksmýrar- dal og Þríhyrningssvæðið norðan Þórir Haraldsson HINSTA KVEÐJA Lífið er tilviljunum háð en að sama skapi hefur val okkar á lífsleiðinni áhrif á hvaða stefnu við tökum. Það kann að hafa verið til- viljun að Þórir Haraldsson kenndi mér líffræði við MA á níunda áratug síðustu aldar en eftir að hafa setið líffræðitíma Þóris þá var það ekki lengur nein tilvilj- un að líffræði varð fyrir val- inu þegar ég hóf nám við Háskóla Íslands haustið 1989. Starri Heiðmarsson, grasafræðingur á Nátt- úrufræðistofnun Íslands. Í minningu Þóris Vinur: Sýndu mér vini þína: Fugla himins, fiðrildi, blóm, það líf er í fjörunni finnst, jafnvel flugurnar smá, og ljósgeisla er skína, langvegu komnir, um loftin blá. Þú ert sá er þeir segja. Nú þegar horfum við hugklökk á eftir þér, hinst. Haf þökk! Þín minning mun aldrei deyja. Hún lifir í landinu: - Innst. Erlingur Sigurðarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.