Morgunblaðið - 10.02.2014, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
✝ Gunnar JónFinnsson
fæddist á Siglu-
firði þann 3. júní
1934. Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ 2.
febrúar 2014.
Foreldrar hans
voru Ásta María
Grímsdóttir og
Finnur Gíslason,
þau eru bæði látin.
Hálfbróðir Gunnars samfeðra
er Hörður B. Finnsson. Gunnar
giftist 1. september 1961 eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Else-
beth Finnsson (fædd Jacobsen),
ættuð frá Færeyjum. Foreldrar
hennar voru Janus Jacobsen og
Hanna Jacobsen, þau eru bæði
látin. Börn Gunnars og Else-
beth eru Jóhannes Jacobsen,
látinn, eftirlifandi maki er Jór-
unn Jacobsen, þau
áttu saman þrjú
börn og þrjú
barnabörn. Krist-
inn Gunnarsson,
maki Lilja K. Hall-
grímsdóttir, þau
eiga tvö börn og
fjögur barnabörn.
Ásta María Gunn-
arsdóttir. Rafn
Gunnarsson. Hjör-
leifur Gunnarsson,
látinn, hann lét eftir sig einn
son. Anna Gunnarsdóttir. Sús-
anna Gunnarsdóttir, maki Jón
Vilhjálmsson, þau eiga tvö börn
og eitt barnabarn. Bylgja
Gunnarsdóttir. Gunnar starfaði
sem sjómaður meirihluta ævi
sinnar.
Hann verður jarðsunginn frá
Seljakirkju í dag, 10. febrúar
2014, og hefst athöfnin kl. 13.
Elskulegur pabbi minn er
látinn eftir langvarandi veik-
indi. Minningar um yndislegan
pabba eru margar og hlýja mér
um hjartarætur.
Pabbi var einstakt ljúfmenni,
sanngjarn og réttlátur. Ég man
þegar ég var lítil stelpa hvað
mér fannst pabbi minn stór og
sterkur, með hann nálægt mér
gat ekkert illt hent mig. Pabbi
vann allan sinn starfsaldur sem
sjómaður og þegar von var á
honum í land var eftirvæntingin
mikil á meðal okkar systkin-
anna. Hann var góður skíða-
maður á sínum yngri árum og
keppti oft á skíðamótum. Hann
fór stundum með mig og Sússu
systur á skíði í Bláfjöllum þeg-
ar hann var í landi og vorum
við þá ekkert smá montnar því
pabbi var að okkar mati alveg
örugglega besti skíðamaðurinn
á svæðinu. Hann var vel á sig
kominn alla tíð og eftir að hann
hætti að vinna fór hann daglega
í langar gönguferðir. En þótt
líkaminn hafi verið hraustur fór
að bera á minnisglöpum sem
síðar kom í ljós að var byrjun á
Alzheimer-sjúkdómnum. Pabbi
hvarf smátt og smátt en af og
til sást glitta í gamla pabba.
Þegar sjúkdómurinn ágerðist
var hann svo heppinn að kom-
ast í dagvistun í Maríuhúsi þar
sem unnið er frábært starf með
góðu starfsfólki sem vinnur af
alúð og virðingu með skjólstæð-
inga sína. Dvöl hans þar gerði
líf hans og okkar fjölskyldunnar
léttbærara þar sem við vissum
að þar var vel hugsað um hann.
Þegar að því kom að hann gat
ekki lengur verið heima dvaldi
hann á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ. Þar starfar yndis-
legt fólk sem með virðingu og
umhyggju gerði allt sem í þess
valdi stóð til þess að létta hon-
um síðustu sporin og færum við
öllu þessu fólki alúðarþakkir.
Elsku fallegi pabbi minn, ég
veit að það hefur verið vel tekið
á móti þér af þeim sem á undan
eru farnir. Ég mun geyma
minningarnar um þig um
ókomna tíð.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði, elsku pabbi,
þín dóttir,
Anna Gunnarsdóttir.
Kæri pabbi minn kvaddi
þennan heim að morgni 2. febr-
úar. Hann dó í svefni. Sagt er
um þá sem deyja í svefni að
þeir hafi verið gott fólk, hann
var einn af þessu góða fólki.
Haft var eftir langömmu minni
í föðurætt, Guðrúnu Erlends-
dóttur, að fólk væri mjög hepp-
ið að deyja í svefni því það vissi
ekki einu sinni að það hefði dá-
ið. Næsta sem það vissi var að
það væri komið í dýrðina í
himnaríki. Pabbi kunni hrein-
lega ekki að vera reiður og ef
einhverjir reyndu að vera með
leiðindi þá var það þeirra
vandamál, ekki hans, þannig er
fólk með gott hjartalag. Pabbi
var sjómaður, síðast á frysti-
togaranum Sjóla sem þá var
gerður út frá Hafnarfirði og var
hann stoltur af því skipi. Túr-
arnir gátu verið langir, allt að
fimm vikur í senn. Hann var
alltaf tengdur sjónum og fannst
við hæfi að ég væri skírð Bylgja
og ber ég það nafn með stolti.
Pabbi greindist með Alz-
heimers-sjúkdóminn rúmlega
sjötugur. Hann var mjög hepp-
in að komast að í Maríuhús í
dagþjálfun fyrir fólk með þann
sjúkdóm. Hann var þar í fjögur
ár, fimm daga vikunnar við
ýmsa iðju. Þar leið honum mjög
vel með yndislegu starfsfólki,
en stundum kom það fyrir að
hann vildi ekki fara, þá voru
góð ráð dýr og hringt var í þá-
verandi forstöðukonu Maríu-
húss og hjálpaði hún okkur við
að koma pabba á staðinn. Hann
kallaði hana ávallt yfirfrúna.
Það var þungbært áfall fyrir
mömmu og pabba að missa son
sinn aðeins 46 ára gamlan.
Pabbi var rúmt ár á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ á rólegri
deild þar sem starfsfólkið er frá
öllum heimshornum og töluðu
þau öll góða íslensku, en sam-
eiginlegt tungumál þeirra allra
er tungumál kærleikans sem
öllu máli skiptir og hafið hjart-
ans þakkir fyrir. Við systkinin
höfum oft gantast með það þeg-
ar fólk með Alzheimer villist,
þá fer það undantekningarlaust
til hægri en þegar pabbi villtist
þá fór hann til vinstri. Tilgáta
okkar er sú að það hafi stafað
af því að hann var kominn af
vinstrisinnuðu fólki. Ég veit að
þú ert á öruggum stað núna í
Sumarlandinu þar sem þér er
fylgt í rétta átt, elsku pabbi. Ég
veit að það verður tekið vel á
móti þér af þínu góða fólki.
Hvíldu í friði.
Þú ert það, sem þú öðrum miðlað
getur,
og allar þínar gjafir lýsa þér
og ekkert sýnir innri mann þinn
betur
en andblær hugans, sem þitt viðmót
ber.
Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur
og lífið daprast, ef hún ekki skín,
svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur
og undir því er komin gæfa þín.
(Árni Grétar Finnsson)
Kveðja, þín dóttir,
Bylgja Gunnarsdóttir.
Gunnar Jón
Finnsson
Elsku amma.
Það er alltaf erf-
itt að kveðja ástvini,
en ég vil fyrst og
fremst þakka þér
fyrir tímann sem ég fékk að eiga
með þér. Minningarnar um þig
eru órjúfanlega tengdar eldhús-
inu í Ásgarðinum (sem virtist
geta rúmað ótrúlegan fjölda
fólks) og kaffibrúsa, bakkelsi og
öskubakka á borðinu. Móttök-
urnar voru alltaf jafn hlýjar og
Sigríður Jónsdóttir
✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist
17.7. 1924. Hún lést
12. janúar 2014. Út-
för Sigríðar fór
fram 21. janúar
2014.
jafn gott að koma í
heimsókn, þó að ég
hafi ekki verið nógu
duglegur við það í
gegnum tíðina, en
ég gleymi aldrei
þegar ég fékk inni
hjá þér haustið sem
ég byrjaði í háskól-
anum. Þar var mað-
ur sannarlega eins
og blómi í eggi.
Lífshlaup þitt var
fullt af áskorunum sem erfitt er
að setja sig inn í nú til dags, en
staðfestan skein í gegn ávallt í
gegn og skilaði sér til þinna fjöl-
mörgu afkomenda.
Takk fyrir allt og hvíl í friði,
amma mín.
Þorgils Jónsson.
Elsku afi okkar
hefur nú kvatt jörð-
ina og er farinn á vit
ævintýra himingeimanna. Afi
Nonni var einstakur maður, hann
hefði getað lifað að eilífu án þess
að láta sér nokkurn tíma leiðast.
Hann var stöðugt að grúska,
hann grúskaði í tölvum, bílum,
bókum, kvikmyndum, tónlist og
dansi.
Afi var ungur í anda og yfir
honum var svo dásamlegur létt-
leiki. Hann tók ávallt á móti
manni með bros á vör og léttri
lund, tilbúinn að spjalla um allt á
milli himins og jarðar og útí geim,
að óendanleikanum og tilbaka.
Hann hafði svo einlægan áhuga á
lífinu og tilverunni og öllu því
sem við vorum að bardúsa hverju
sinni. Við erum þakklát fyrir að
Jón Gunnar
Hermanníusson
✝ Jón GunnarHer-
manníusson fædd-
ist í Reykjavík 4.
júní 1922. Hann lést
26. janúar 2014. Út-
för Jóns Gunnars
var gerð 3. febrúar
2014.
börnin okkar fengu
tækifæri til að
kynnast gull-
drengnum langafa
sínum. Þau elstu
eiga minningar um
skemmtilegar heim-
sóknir til langafa og
langömmu þar sem
þau voru umvafin
ást þeirra og hlýju.
Þau hlustuðu ein-
beitt á langafa segja
skemmtilegar sögur og ómiss-
andi var að fá stafinn hans góða
aðeins lánaðan í leik.
Afi Nonni og amma Ninna eru
ein besta fyrirmynd sem óskast
getur um ást, kærleika og um-
hyggju. Þau hafa leitt börn,
barnabörn og barnabarnabörn í
þennan heim með þá ást að gjöf
og fyrir það erum við að eilífu
þakklát.
Þú drengur, stígðu djúpan dans við mig
Þú þarna, tónlistin mun tæla þig
og máninn hann svo feiminn felur sig
Konan frá Kotka örmum vefur þig
(þýð: Kristján E. Hjartarson)
Auður Bryndís, Eygló Lilja,
Hugrún Fjóla og fjölskyldur.
Hinsta kveðja
Ég sendi þér kæra
kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
Haraldur Ringsted
✝ HaraldurRingsted fædd-
ist 5. október 1919.
Hann lést 23. jan-
úar 2014. Haraldur
var jarðsunginn 3.
febrúar.
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem
lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú
hljóta skalt.
(V. Briem)
Blessuð sé minning kærs bróð-
ur. Takk fyrir allar góðu berja-
ferðirnar sem við fórum sumar
eftir sumar, það eru þær minn-
ingar sem mér eru efstar í huga,
því við nutum þess svo sannar-
lega á gömlum æskuslóðum.
Kveðja,
Elín systir.
Það er alltaf mik-
ið áfall þegar fólk er
kallað snögglega á
brott á besta aldri.
Systurdóttir mín, Inga Rósa, lést
eftir erfið veikindi aðeins 48 ára
gömul. Þótt sambandið hafi ekki
verið mikið undanfarin ár, var
taugin sterk og óvæntur hitting-
ur því enn skemmtilegri hin síð-
ari ár. Já, það var gaman að rek-
ast á Ingu Rósu á förnum vegi.
Hún var þeim kostum gædd að
vera með munninn fyrir neðan
nefið. Inga Rósa talaði ekki í
kringum hlutina, sagði sína skoð-
un umbúðalaust og þótt maður
væri ekki alltaf sammála henni,
þá var enginn í vafa um hennar
skoðun á viðkomandi máli.
Það er einkum tvennt sem er
minnisstætt þegar við hugsum til
baka og minnumst Ingu Rósu.
Hún vann í Vinnslustöðinni, þar
sem við bæði unnum og þótt oft
væri mikið unnið og vinnan erfið,
þá var alltaf hægt að treysta á að
Inga Rósa
Arnardóttir
✝ Inga Rósa Arn-ardóttir fædd-
ist 17. janúar 1966.
Hún lést miðviku-
daginn 22. janúar
2014. Útför Ingu
Rósu fór fram 31.
janúar 2014.
Inga lét engum leið-
ast í kaffitímum og
pásum.
Hins vegar er það
fyrst og fremst
ógleymanleg Fær-
eyjaferð sem stór-
fjölskyldan fór, þeg-
ar Inga Rósa bjó í
Þórshöfn. Við feng-
um að gista hjá
henni, líklega tíu
eða ellefu manns, á
öllum aldri en það þótti ekkert
tiltökumál af hálfu Ingu Rósu að
taka allan hópinn inn fyrir þrösk-
uldinn hjá sér. Þetta var góð ferð
enda alltaf gaman að heimsækja
frændur vora Færeyingana en
ekki síður minnumst við tímans
fyrir það að hafa kynnst Ingu
Rósu betur en við höfðum gert.
Og skemmtilegur talandi Ingu
Rósu naut sín enn betur þegar
færeyski hreimurinn bættist við
orðfærið. Þessi tími lifir í minn-
ingunni þegar við hugsum um
Ingu Rósu sem við kveðjum nú.
Með þessum fátæklegu orðum
minnumst við Ingu Rósu. Við
þökkum fyrir góðu stundirnar og
við hjónin sendum Pétri, Möggu,
Gogga, Júlla og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Ingi og Guðlaug.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Minningargreinar
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og tengdasonur,
ÞORSTEINN JÓHANNSSON,
Lyngbraut 8,
Garði,
lést á HSS hinn 5. febrúar slíðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Útskálakirkju 13.
febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Björgunarsveitina Ægi, Garði, eða
Krabbameinsfélag Íslands.
Ingveldur Ásdís Sigurðardóttir,
Sólveig H. Þorsteinsdóttir, Elísabet Ó. Þorsteinsdóttir,
Jóhann A. Þorsteinsson, Helga S. Bjarnadóttir,
Þórhallur Jóhannsson, Hlynur Jóhannsson,
Njörður Jóhannsson, Sólveig Ívarsdóttir,
Trausti B. Óskarsson.
SIGURJÓN GUÐNASON
málmsteypumeistari,
áður Skipasundi 45, Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2.
febrúar sl., verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju miðvikudaginn 12. febrúar.
Snorri Sigurjónsson, Ingibjörg G. Guðmundsdóttir,
Hörður M. Sigurjónsson, Kelli C.M. Sigurjónsson,
Anna Lísa Sigurjónsdóttir, Sigurður Þ. Þórðarson,
Ragnhildur Guðmundsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, elskuleg móðir
okkar, tengdamóðir, amma, tengdaamma
og langamma,
SJÖFN HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Norðurbakka 21 B, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudagskvöldið
6. febrúar.
Guðmundur Björnsson,
Elín Helga Guðmundsdóttir, Pétur Kjartansson,
Björn Guðmundsson, Valdís H. Haraldsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir,
Sjöfn Þórðardóttir, Lárus B. Lárusson,
Sif Björnsdóttir,
Sigrún Margrét Pétursdóttir, Þorvaldur Egilson,
Heiðrún S. Sigurðardóttir, Sigmar Ó. Kárason,
Guðmundur G. Pétursson, Tinna B. Guðjónsdóttir,
Þorbjörg Pétursdóttir,
Vilhjálmur Pétursson,
Guðmundur Björnsson,
og barnabarnabörn.