Morgunblaðið - 10.02.2014, Qupperneq 31
Árni Þór vann lengi í fiskvinnslu
hjá Drangi en var jafnan heima við
á sumrin og þó einkum á vorin í
sauðburðinum og á haustin í slát-
urtíðinni. Hann var verkstjóri hjá
Drangi um árabil, er löggildur vikt-
armaður fyrir Kaldrananeshrepp
oghafnarstjóri í Dragsnesi frá 2009
og þar til í fyrra er hann þurfti að
fara í uppskurð vegna gamalla
meiðsla á öxl sem tóku sig upp.
Árni Þór er formaður Sund-
félagsins Grettis í Bjarnarfirði:
„Rétt norðan við Baldurshaga er
Hótel Laugarhól sem áður var
gamla skólahúsið á Klúku. Þar er
Gvendarlaug sem nú er friðlýstar
fornminjar. Sagan segir að Guð-
mundur biskup góði hafi vígt þar
vatnið. Nokkru neðar er svo sund-
laug sem heitir Gvendarlaug hins
góða, eftir gömlu lauginni. Sú laug
var steypt upp og hlaðin á sínum
tíma, en í fyrra var hafist handa við
að styrkja laugina. Þetta er laugin
sem Sundfélagið Grettir hefur haft
til afnota.“
Nóg að sýsla á Ströndum
En leiðist Árna ekki fásinnið?
„Nei, nei. Maður er alinn upp við
þetta hógværa mannlíf og vill helst
hafa hlutina í þokkalegum skorð-
um. Hér er alltaf nóg við að vera og
bústörfin eru fjölbreytileg og
bjóða upp á tilbreytingu. Það er
gaman í sauðburðinum og
skemmtilegt að fara í göngur. Ég
er leitarstjóri á Hólsfjalli en þetta
er töluverð yfirferð hjá okkur og
torfarið, yfir þrjú mikil gil að fara.
Ég hef einnig gaman af því að
veiða í Bjarnarfjarðará en þar
fáum við myndarlegar bleikjur.
Ég fékk mér stafræna myndavél
árið 2004 og hef verið að nostra við
að taka myndir af náttúrunni hér
og mannlífinu.
Svo má ekki gleyma því að hér
kemur fólk saman eins og annars
staðar og gerir sér glaðan dag. Það
er jafnan vorfagnaður hjá Drangi,
haldin Bryggjuhátíð á sumrin, síð-
an er réttað í Skarðsrétt og haldið
fjörugt réttarball á Hótel Laug-
arhóli og loks skemmtum við okkur
á þorrablóti. Það þarf því enginn að
láta sér leiðast hér um slóðir.“
Fjölskylda
Árni Þór er ókvæntur og barn-
laus.
Systkini Árna Þórs eru Hafdís
Baldursdóttir, f. 6.2. 1966, matráðs-
kona við Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands á Hólmavík, búsett í Odda;
Steinar Þór Baldursson, f. 1.9.
1982, verkamaður á Hólmavík en
kona hans er Dagbjört Torfadóttir,
starfsmaður hjá Deloitte og er son-
ur þeirra Torfi Hafberg, f. 2013,
auk þess sem Steinar Þór á Guðjón
Örn Steinarsson, f. 2000, með Stef-
aníu Jónsdóttur, og dótturina Önnu
Theodóru Steinarsdóttir, f. 2005.
með Magneu Hrönn Jóhannsdóttir;
Sölvi Þór Baldursson, f. 1.9. 1982,
bústjóri í Odda og verkamaður.
Foreldrar Árna Þórs: Baldur
Sigurðsson, f. 31.7. 1934, d. 30.5.
2008, bóndi í Baldurshaga, og k.h.,
Erna Arngrímsdóttir, f. 11.5. 1945,
húsfreyja og bóndi í Baldurshaga.
Úr frændgarði Árna Þórs Baldurssonar
Árni Þór
Baldursson
Helga Guðbjörg
Jónsdóttir
húsfr. á Fitjum
Loftur Bjarnason
b. á Fitjum og skip-
stj. á Hólmavík
Þórdís Loftsdóttir
húsfr. í Odda
Karl Loftsson
oddviti, útgerðarm.
og bankastjóri á
Hólmavík
Guðjón
Ingimundarson,
kennari og forseti
bæjarstjórnar
Sauðárkróks
Erna Arngrímsdóttir
húsfr. í Baldurshaga
Jóhann Björn
Arngrímsson fr.stj.
Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands í Hólmavík
Guðjón Hjörtur
Arngrímsson
verkstj. á Kefla-
víkurflugvelli
Ólöf
Ingimundardóttir
húsfr. á Svanshóli
af Tröllatunguætt
Ingimundur Jónsson
b. á Svanshóli
Fríða Ingimundardóttir
húsfr. á Klúku
Sigurður Arngrímsson
b. á Klúku í Bjarnarfirði
Baldur Sigurðsson
b. í Baldurshaga í Bjarnarfirði
Kristbjörg Rósilía
Magnúsdóttir
húsfr. í Reykjarvík
Arngrímur Jónsson
b. í Reykjarvík
Arngrímur Jóhann
Ingimundarson
b. í Odda
Birgir Guðjónsson
læknir
Ingimundur
Kristján
Guðjónsson
tænnlækir
Sigurður
Guðjónsson
verkfræðingur
Afmælisbarnið Árni Þór Baldursson.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
Þóra Einarsdóttir, stofnandiVerndar, fæddist á Hvann-eyri 10.2. 1913. Foreldrar
hennar voru Einar Jónsson, ráðs-
maður og kennari við Bændaskólann
á Hvanneyri, síðar yfirvega-
vinnuverkstjóri í Austfirðingafjórð-
ungi og k.h., Lísbet Guðbjörg Krist-
jánsdóttir húsfreyja.
Einar var bróðir Þórfríðar, móður
sr. Guðmundar Sveinssonar, skóla-
meistara FB. Einar var sonur Jóns
Einarssonar, bónda á Saurhaga,
bróður Hjörleifs á Undirfelli, föður
Einars Kvaran rithöfundar.
Eiginmaður Þóru var Jón Pét-
ursson, prófastur á Kálfafellsstað í
Suðursveit og eru börn þeirra Pétur,
fyrrv. framkvæmdastjóri á Land-
spítalanum, Helga fótaaðgerðar-
fræðingur og Einar, fyrrv. prestur á
Kálfafellsstað.
Þóra flutti tólf ára með foreldrum
sínum á Akraness, útskrifaðist úr
Samvinnuskólanum 1931 og hlaut
framhaldsmenntun í Danmörku,
m.a. í félagsráðgjöf.
Þóra lagði drög aö stofnun Verka-
kvennafélags Akraness 1931 og var
prestfrú á Kálfafellsstað til 1944 er
fjölskyldan flutti til Reykjavíkur.
Hún starfaði fyrir mæðrastyrks-
nefnd, stofnaði félagasamtökin
Vernd 1959, gaf út tímaritið Vernd
1961-81, var formaður Verndar í
áratugi, framkvæmdastjóri samtak-
anna í 23 ár og heiðursformaður
þeirra.
Þóra fór á námskeið hjá Guð-
spekifélaginu í Adiyar í Madras 1981
og hóf þá hjálparstarf þar. Hún
starfaði um tíma með móður The-
resu, stofnaði síðan skóla í Madras
fyrir munaðarlaus og holdsveik
börn, sem var starfræktur til 2000.
Íslenska-Indverska barnahjálpin,
sem Þóra var formaður fyrir, hefur
síðan starfrækt sjálfstætt hjálp-
arstarf í Madras í samvinnu við
þýska holdsveikrasjúkrahúsið.
Þóra fór fjölda ferða til Indlands
og safnaði styrkjum hér á landi sem
hún fékk ekki síst frá kvenfélögum,
víða um land. Hún sendi frá sér end-
urminningar sínar, Af lífi og sál, sem
út kom 1989.
Þóra lést 14.4. 2000.
Merkir Íslendingar
Þóra
Einarsdóttir
90 ára
Gunnþórunn Sigurðardóttir
85 ára
Sigríður Einarsdóttir
80 ára
Margrét Sigurbjörnsdóttir
75 ára
Birgir Magnússon
Eva Elsa Sigurðardóttir
Sigrún Andrésdóttir
Svanbjörg Gísladóttir
70 ára
Ásdís B. Geirdal
Margrét Þórhildur Fairbairn
Viktoría Þórey Ström
60 ára
Aðalheiður Arnóra
Oddsdóttir
Ásdís Skarphéðinsdóttir
Dagbjört K. Ágústsdóttir
Guðný Elín Geirsdóttir
Guðrún S. Björnsdóttir
Gunnar Orvar Skaptason
Gústaf Gústafsson
Kjartan Guðbjartsson
Kolbrún Harpa
Kolbeinsdóttir
Lilja Ásgeirsdóttir
Margrét Stefanía Jónsdóttir
Pálmi Hannesson
Þórunn Gísladóttir
50 ára
Birna Bragadóttir
Björg Árnadóttir
Dragan Jokic
Drífa Guðjónsdóttir Plank
Friðrik Kjartansson
Guðjóna Harpa Helgadóttir
Guðrún Brynjólfsdóttir
Inga Bryndís Jónsdóttir
Margrét Erlingsdóttir
Olaf Sveinsson
Páll Kristberg Pálsson
Sigurður Sigurgeirsson
Viktor Þór Reynisson
Þórir Már Einarsson
40 ára
Björn Böðvarsson
Guðrún Hulda Eyþórsdóttir
Hildur Guðrún Elíasdóttir
Hörður Guðmundsson
Ingibjörg Elín Baldursdóttir
Jacek Tomasz Koziol
Kári Pétur Ólafsson
Kristinn Arnar Stefánsson
Ómar Örn Magnússon
Ragnheiður Esther Briem
Sigrún Íris Sigmarsdóttir
Sylwia Izabela Choinska
Tryggvi Gunnarsson
Þórður Másson
30 ára
Arnbjörg Magnea Jónsdóttir
Áslaug Baldvinsdóttir
Birta Líf Kristinsdóttir
Björgvin Karlsson
Bryndís Bjarnadóttir
Dóra Gígja Þórhallsdóttir
Elva Björk Kristjánsdóttir
Gunnar Ingi Gunnarsson
Helgi Rúnar Hlynur
Eiríksson
Kolbrún Silja Harðardóttir
Marta Kristín
Sigurbergsdóttir
Nína Björk Gísladóttir
Ragnar Andri Hlöðversson
Sigfús Sturluson
Til hamingju með daginn
30 ára Valur ólst upp á
Bálkastöðum í Hrútafirði,
er búsettur á Akureyri og
er nú vöruflutningabíl-
stjóri þar.
Systur: Elín Sigríður, f.
1975, Jóhanna, f. 1980,
og Anna Karen, f. 1993.
Foreldrar: Eyjólfur Valur
Gunnarsson, f. 1956,
póstfulltr. í Húnavatns-
sýslu, og Steinunn María
Óskarsdóttir, f. 1955,
skrifstofumaður hjá Póst-
inum á Akureyri.
Valur Már
Eyjólfsson
30 ára Gunnlaug ólst upp
á Ólafsfirði en er hús-
freyja á Reynimel á Mýr-
um.
Maki: Rögnvaldur Rúnar
Þorkelsson, f. 1983,
starfsmaður hjá Meitli.
Dætur: Thelma, f. 2004;
Guðrún Eygló, f. 2006, og
Rakel Svava, f. 2007.
Foreldrar: Eygló Guðna-
dóttir, f. 1963, vinnur á
Aflagranda, og Gunn-
laugur Jónsson, f. 1956,
húsv. við Langholtsskóla.
Gunnlaug S.
Gunnlaugsdóttir
30 ára Kristín ólst upp í
Garðinum, lauk tann-
læknaprófi frá Tann-
læknaháskólanum í Árós-
um og er tannlæknir í
Reykjanesbæ.
Maki: Ögmundur Er-
lendsson, f. 1984, jarð-
fræðingur.
Dóttir: Alda Ögmunds-
dóttir, f. 2012.
Foreldrar: Jóna Sigurð-
ardóttir, f. 1963, rafvirki,
og Ólafur Róbertsson, f.
1962, kaupmaður.
Kristín Erla
Ólafsdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
PAPPÍR • POKAR • RÚLLUR
Sérprentanir í minni eða stærri upplögum!
PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði • Sími 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is
Íslensk
framleiðsla