Morgunblaðið - 10.02.2014, Síða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Iceland and the International Fin-
ancial Crisis, Boom, Bust and Reco-
very er ný bók eftir Eirík Bergmann
Einarsson prófessor í stjórn-
málafræði við Háskólann á Bifröst.
Bókin er ætluð fyrir alþjóðlegan
markaði og kemur út hjá alþjóðlega
bókarisanum Palgrave Macmillan í
rómaðri ritröð í alþjóðlegri stjórn-
málahagfræði. Í bókinni dregur Ei-
ríkur upp mynd af hruninu, aðdrag-
anda þess og eftirleiknum.
„Ísland er eitt af merkilegustu
dæmunum í þessari alþjóðakrísu og
þar kemur ýmislegt til. Við urðum
fyrst til að falla og umheimurinn
fylgdist með því í beinni útsendingu
og inn í það blönduðust síðan deilur
við Breta og Hollendinga. Hrunið er
mesti fjölmiðlaviðburður sem Ísland
hefur nokkru sinni upplifað,“ segir
Eiríkur. „Þetta er gríðarlega
dramatískt mál á alþjóðlega vísu en
það er ekki endilega mikill skiln-
ingur á því. Það hafa verið sagðar
ótrúlega misvísandi fréttir af því
sem gerðist og í umræðunni verða
til goðsagnir. Sú fyrsta var að Ísland
væri í efnahagslegu svartholi, fólk
myndi flýja eyjuna og hér yrði efna-
hagsleg neyð í áratugi. Þegar bús-
áhaldabyltingin varð voru sagðar
rómantískar byltingarsögur um um-
pólun íslensks samfélags, sem varð
ekki. Síðasta goðsögnin sem varð al-
menn var að Íslendingar hefðu svo
kosið þá sem ollu hruninu aftur til
valda, sem er heldur ekki rétt.“
Er þetta hrunbók?
„Nei, ég myndi ekki lýsa henni
sem hrunbók. Hún er tilraun til að
greina djúpstæð lögmál í íslenskum
stjórnmálum og hvernig þau hafa
áhrif á opinbera stefnumótun í efna-
hagslífi og í utanríkismálum. Mér
fannst ástæða til að reyna að ná ut-
an um þessa atburði, skýra þá og
setja þá í samhengi. Ég nota bóluna,
hrunið og endurreisnina sem tæki til
að skoða þessi lögmál. Þetta er
fremur hagsöguleg greining en
hrunbók. Það að þrír bankar hafi
fallið er ekki það áhugaverðasta í
þessari sögu.“
Hvað er það áhugaverðasta?
„Það er að reyna að grafast fyrir
um það eftir hvaða brautum stjórn-
mál renna og hvað það er sem veld-
ur því að keyrðar eru efnahags-
stefnur með þeim hætti sem hér er
gert. Það er í sjálfu sér ekki áhuga-
vert að skoða hvað gerðist því við
vitum það. En ef við skoðum upp-
gangsárin fyrir hrun þá komu
harðar bóluhvetjandi efnahags-
stefnur hver ofan í aðra. Það voru
stórar opinberar iðnaðarfram-
kvæmdir, farið var í afregluvæð-
ingu fjármálamarkaðarins og látið
duga að nota bara lágmarks Evr-
ópureglur og engar aðrar varnir
settar inn í kerfið. Menn lækkuðu
bindiskylduna og afnámu hana
gagnvart útlöndum. Fjármálafyr-
irtækjum voru veittar heimildir til
að kaupa eigin bréf. Farið var í
viðamiklar skattalækkanir. Hið op-
inbera fór að lána fólki miklu meira
af húsnæðislánum en áður hafði
verið gert. Þegar þetta er allt keyrt
saman þá verður gríðarleg verð-
bólga og þensla skapast. Þetta er
eins og að keyra kappakstursbíl á
fleygiferð og taka hemlabúnaðinn
úr honum. Ekki var gert ráð fyrir
neinu varnarkerfi.“
Var hægt að sjá þetta fyrir?
„Það sem ég er að segja hér er
eftiráspeki. Ég er ekki að þykjast
hafa séð þetta fyrir. En þegar mað-
ur horfir á heildarmyndina þá var
hér rekin óskynsamleg efnahags-
stefna.“
Menn að kaupa verðlaunagripi
Útrásin var svo líka býsna óskyn-
samleg, ekki satt?
„Á sama tíma og við förum inn á
Evrópska efnahagssvæðið eru bank-
arnir einkavæddir og útrásin fer af
stað. Það er gríðarlega margt í út-
rásinni sem eftir á að hyggja var
mjög óskynsamlegt. Til dæmis
hvernig menn keyptu upp fasteigna-
félög og glæsihýsi í miðborg Kaup-
Kerfisgalli
í íslensku
efnahagslífi
Eiríkur Bergmann Einarsson er
höfundur nýrrar bókar um hrunið
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
–– Meira fyrir lesendur
:
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
Tísku og förðun
föstudaginn
14. febrúar 2014.
Tíska & förðun
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
10. febrúar.
Í blaðinu verður
fjallað um tískuna
vorið 2014
í förðun, snyrtingu og
fatnaði, fylgihlutum,
umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira
SÉRBLAÐ