Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. M A R S 2 0 1 4 Stofnað 1913  53. tölublað  102. árgangur  TEFLDI VIÐ TAL Á FYRSTA MÓTINU FYRIR 50 ÁRUM REYNSLU- AKSTUR OG RAFBÍLAR GRAVITY FÉKK SJÖ VERÐLAUN BÍLAR ÓSKARINN 38REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ 6 Morgunblaðið/Malín Brand Merking Þeir ljósastaurar sem fengið hafa vottun eru oft merktir með þessum hætti.  Ljósastaura af ýmsum gerðum er að finna hér á landi. Sumir þeirra uppfylla prófunarstaðla en alls ekki allir. Sumir staurar sem víða eru um landið hafa aldrei verið árekstr- arprófaðir. Þessir staurar eru hannaðir eftir amerískum staurum sem upphaflega voru settir upp við Reykjanesbrautina og eru þeir smíðaðir á Akureyri. Þegar ekið er á staur á 90 kíló- metra hraða á hann að gefa eftir eða brotna en því miður er það ekki alltaf raunin og því geta árekstr- arnir orðið býsna harkalegir og af- leiðingarnar skelfilegar. Víða hefur gömlu staurunum verið skipt út fyrir nýja, eins og til dæmis á Reykjanesbrautinni. »Bílar Margir ljósastaurar hafa aldrei verið árekstrarprófaðir Eldfimt ástand » Churkin sagði á fundinum í gærkvöldi að stjórnvöld í Moskvu teldu það ekki sitt hlut- verk að koma Janúkóvítsj aftur til valda. » Hann vildi ekki tjá sig um það hvort hann væri samþykkur eft- irliti Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu í Krím. Vitaly Churkin, fulltrúi Rússlands í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, lagði fram bréf frá Viktori Janúkó- vítsj, fyrrverandi forseta Úkraínu, á fundi ráðsins í gærkvöldi, þar sem Janúkóvítsj biðlar formlega til stjórnvalda í Moskvu um hernaðar- íhlutun í Úkraínu. „Úkraína er á barmi borgarstyrjaldar. Það ríkir ringulreið og stjórnleysi í landinu,“ las Churkin upp úr bréfinu. Þar kom einnig fram að íbúar landsins sættu ofsóknum vegna tungumáls síns og af pólitískum ástæðum en fulltrúar Bretlands, Frakklands og Bandaríkjanna sök- uðu Rússa um að skálda átyllur til að réttlæta brot gegn alþjóðalögum. Sendifulltrúi Úkraínu við Samein- uðu þjóðirnar, Yuriy Sergeyev, sagði á fundinum að stjórnvöld í Kænu- garði hefðu enn ekki fengið formlegt svar við því hvers vegna hersveitir Rússlands hefðu staðið að ólögmætu hernámi Krímskaga. Seint í gær- kvöldi bárust fregnir af því að stjórn- völd í Bandaríkjunum ynnu að lána- pakka til handa Úkraínu. MMesta krísa »20-23 Janúkóvítsj biðlaði til Rússa um aðgerðir  Sagði íbúa Úkraínu sæta ofsóknum  Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í gærkvöldi AFP Patt Óeirðalögregla stendur vörð um stjórnarbyggingar í Donetsk í gær. Morgunblaðið/Golli Orka Rafmagnsbilunin olli nokkurri röskun svo sem á vökudeild nýbura. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Alvarlegt ástand skapaðist síðdegis á miðvikudaginn í fyrri viku þegar raf- magn fór í hálfa klukkustund af Barnaspítala Hringsins. Við hefð- bundið viðhald og eftirlit með vara- aflsstöðvum sjúkrahússins, sem knúnar eru díselolíu, kom upp bilun í stjórnkerfi aðalrafmagnstöflu sjúkra- hússins svo rafmagnslaust varð á barnaspítalanum. Bilunin olli nokkurri röskun í með- ferð sjúklinga, til að mynda á vöku- deild nýbura, þar sem strax var brugðist við með viðeigandi hætti svo öryggi sjúklinga væri tryggt. „Engan sakaði en hér innandyra er þetta mál litið mjög alvarlegum augum og það skilgreint sem rautt atvik, eða þannig er það skráð í okkar bækur,“ sagði Jón Hilmar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Landspítala. Strax í kjölfar þessa atburðar var sett upp sólarhringsvakt vélgæslu- manna í díselstöðinni. Farið var vand- lega yfir allan rafbúnað til að fyrir- byggja að svona geti endurtekið sig. Rafmagn af barnaspítala  Alvarlegt ástand á vökudeild í síðustu viku  Rautt atvik Sjá mátti sanddæluskipið Sóleyju dæla skelja- sandi úr sjónum í Nauthólsvík í gærkvöldi upp á ylströndina sem þar er. Dælt er að meðaltali annað hvert ár og tekur það ekki nema klukku- stund en það verður þó að eiga sér stað þegar flóð er. Nauthólsvík er vel sóttur staður hvort sem er að vetri eða sumri. Þar má finna sjósundkappa og aðra sem vilja njóta náttúrufegurðarinnar. Horft á Sóleyju dæla sandi á ylströndina í Nauthólsvík Morgunblaðið/Árni Sæberg Ylströndin gerð klár fyrir sumarið  Yfirmaður PISA-kannana hjá OECD, Andr- eas Schleicher, segir að of mikið sé um brottfall í íslenskum skól- um, ljóst sé að margir nem- endur fari að dragast aftur úr snemma á skóla- göngunni. Hann vill að skólastjórn- endur hafi víðtækt vald til að laða góða kennara að skólanum. „Mik- ilvægi skólastjórnenda er aldrei hægt að ofmeta,“ segir hann. »14 Of mikið um brott- fall í skólunum Andreas Schleicher Vodafone segist ekki bera skaða- bótaábyrgð á innbroti og dreifingu á gögnum sem voru í vörslu fyr- irtækisins. „Vodafone hvorki dreifði né birti umrædd gögn og hafnar skaðabótaábyrgð vegna af- brotsins sem fyrirtækið og við- skiptavinir urðu fyrir,“ segir Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Vodafone. Skúli Sveinsson lögmaður hjá Lögvernd undirbýr nú málsókn á hendur Vodafone fyr- ir hönd skjólstæðinga sinna en mál- sóknarfélag var stofnað 14. febr- úar. Undirbúningurinn gengur vel að sögn Skúla. »19 Vodafone neitar skaðabótaábyrgð vegna lekans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.