Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is STUTTAR FRÉTTIR ● Allar helstu hlutabréfavísitölur heims féllu í gær, vegna óróleikans í Úkraínu og hættu á stríðsátökum á Krímskaganum. Mest varð fallið í kauphöllinni í Moskvu, eða lið- lega 13%. Rúblan hríðféll líka í verði og brást seðlabanki Rússlands við með því að hækka stýrivexti. Hlutabréf í Lundúnum, Frankfurt, París og Asíu féllu einnig í verði í gær. Verðfall á hlutabréfum á helstu mörkuðum í gær Rússneska rúblan hríðféll í gær. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Vodafone vill ekki gefa upp hver ná- kvæmur kostnaður fyrirtækisins hef- ur verið, til þessa, af upplýsingaleka af vef félagsins 30. nóvember á síð- asta ári. Hrannar Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Vodafone, segir að út- lagður kostnaður sé vissulega nokkur en teljist þó ekki verulegur þegar horft er til stærðar fyrirtækisins. „Við nutum verulega góðs af sam- starfi okkar við Vodafone erlendis, bæði í beinni þjónustu sem þeir veittu okkur og ráðgjöf sem var ómetanleg enda er Vodafone eitt stærsta fjar- skiptafyrirtæki í heimi,“ segir Hrann- ar. Vodafone hefur þurft að grípa til ýmissa tæknilegra aðgerða vegna málsins og segir Hrannar að gerðar hafi verið úttektir af ýmsum toga og m.a. unnið með opinberum stofnun- um auk innlendra og erlendra sér- fræðinga. Neita skaðabótaábyrgð Vodafone segist ekki bera skaða- bótaábyrgð á innbroti og dreifingu þriðja aðila á gögnum sem voru í vörslu fyrirtækisins en málsóknar- félag var stofnað þann 14. febrúar til að sækja sameiginlega í einu dóms- máli skaðabætur á hendur Vodafone vegna upplýsingalekans. „Vodafone hvorki dreifði né birti umrædd gögn og hafnar skaðabótaábyrgð vegna af- brotsins sem fyrirtækið og viðskipta- vinir urðu fyrir,“ segir Hrannar og bendir á að málsóknarfélagið ætti frekar að leita réttar síns hjá þeim sem dreifðu og birtu gögnin. Snýst um neytendavernd Skúli Sveinsson, lögmaður hjá Lögvernd, rekur málið fyrir hönd málsóknarfélagsins á hendur Voda- fone og segir hann undirbúning vera kominn vel af stað. „Það getur tekið nokkurn tíma að fá endanlega niður- stöðu í málið en undirbúningurin hef- ur gengið vel og ég mun fljótlega hafa samband við Vodafone vegna máls- ins,“ segir Skúli. Hann telur málið ekki síður lúta að neytendavernd. „Markmiðið með málsóknarfélögum sem þessum er að gefa þeim sem brotið hefur verið á tækifæri til að sækja rétt sinn saman og þannig myndast vonandi varnar- áhrif sem eiga að leiða til þess að aðrir hegði sér með ábyrgari hætti,“ segir Skúli sem telur að margt í opinberum málflutningi Vodafone bendi til gá- leysis fyrirtækisins í málinu. Kostnaður Vodafone vegna upplýsingaleka nokkur  Deilt um hvar bótaábyrgðin liggur í málinu  Hagsmunamál fyrir neytendur Innbrot Brotist var inn í tölvukerfi Vodafone 30. nóvember í fyrra og hefur nú hópur fólks stofnað málsóknarfélag til að sækja rétt sinn vegna þess. Morgunblaðið/Ómar Skaðabótamál » Málsóknarfélag stofnað til að sækja mál á hendur Voda- fone. » Vodafone segir skaðabóta- ábyrgð ekki liggja hjá sér held- ur þeim sem síðar dreifðu stolnum upplýsingum.                                    !  !   "# $ #    %  "&'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5                                     Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.