Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 6
Forsendur
umræðunnar
eru úreltar
„Umræða um landbúnað og fram-
leiðslustýringin byggist að miklu
leyti á úreltum forsendum. Núver-
andi kvótakerfi var sett fyrir tæpum
þrjátíu árum þegar afurðir voru of-
framleiddar og möguleikar til út-
flutnings þeirra takmarkaðir, nema
þá með meðgjöf. Nú eru möguleik-
arnir aðrir og eftirspurn eykst,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson landbún-
aðarráðherra.
Stjórnvöld hafa falið Hagfræði-
stofnun HÍ að taka íslenska landbún-
aðarkerfið út, svo sem opinbera verð-
lagningu og framleiðslustjórn. Vænst
er þess að skýrsla stofnunarinnar
liggi fyrir í haust sem og niðurstöður
starfshóps sem á að móta tillögur um
hvernig auka megi framleiðslu.
Fá sem flest sjónarmið
„Þótt gagnrýnisraddir um sjónar-
mið hagfræðinga háskólasamfé-
lagsins í landbúnaðarmálum hafi ver-
ið háværar þá tel ég að styrkur sé í
því að þeir komi að þessari vinnu. Við
þurfum að fá sem flest sjónarmið í
þessu stóra máli,“ sagði ráðherrann
við Morgunblaðið
Þörf á meiri framleiðslu matvæla
var rauður þráður í ræðu ráðherra á
Búnaðarþingi um helgina, þar sem
hann hvatti bændur til aukinnar
framleiðslu. Nefndi í því sambandi að
greiðslumark mjólkur hefði verið
aukið um 9 milljónir lítra, eða í 125
milljónir lítra í ár. Þetta hefði verið
gert til að mæta eftirspurn.
Mikil fjölgun ferðamanna hefur
skapað aukna eftirspurn eftir
ákveðnum landbúnaðarafurðum, en
svo fer útflutningur einnig vaxandi
svo sem á skyri. Er í því sambandi nú
meðal annars rætt um að fá auknar
tollheimildir til útflutnings á íslensk-
um matvælum í skiptum fyrir inn-
flutning. Viðræður um þetta er nú að
hefjast. „Vissulega hafa verið efa-
semdir meðal bænda um innflutning,
sem þeir telja að vegi að sínum hags-
munum,“ segir ráðherra. „Menn
verða hins vegar að hugsa þetta öðru-
vísi og til framtíðar. Á heimsvísu þarf
æ fleiri munna að metta og þar á ís-
lenskur landbúnaður sóknarfæri, þó
ekki nema í þeim ramma sem grein-
inni er settur – og er barn síns tíma.“
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Búskapur Rammi greinarinnar er
barn síns tíma, segir Sigurður Ingi.
Möguleikar og eftirspurn er meiri
Húsnæði við Laugaveg 17 og Lauga-
veg 19-19 B mun taka miklum breyt-
ingum ef umsókn Þingvangs ehf. um
endurbyggingu og viðbyggingu á
húsunum verður samþykkt. Sem
stendur liggur umsóknin hjá bygg-
ingafulltrúa Reykjavíkurborgar. Á
síðasta fundi 4. febrúar sl. var af-
greiðslu umsóknarinnar frestað og
hún hefur því ekki verið afgreidd til
skipulagsráðs borgarinnar.
Framhlið húsanna myndi halda
sér að nokkru óbreytt en endur- og
viðbyggingarnar næðu lengra inn á
Hljómalindarreitinn svokallaða sem
er fyrir aftan húsin tvö við Smiðju-
stíg, á milli Hverfisgötu og Lauga-
veg. Þar mun Icelandair Hotels
opna nýtt hótel, ef að líkum lætur,
sumarið 2015. Til að mynda var
skemmtistaðurinn Faktorý á
Smiðjustíg númer 6 en var rifinn sl.
sumar til að unnt væri að byggja
hótel á lóðinni.
Í umsókninni stendur að sótt sé
um leyfi til að endurbyggja eldra
hús á Laugavegi 17 auk viðbygg-
ingar. Þar yrðu innréttaðar fimm
íbúðir og verslunarrými.
Varðandi Laugaveg 19-19B þá
stendur eftirfarandi í umsókninni:
„Sótt er um leyfi til að endurbyggja
eldra timburhús og byggja „Mans-
ard“ hæð ofaná auk steinsteyptrar
viðbyggingar sem yrði þrjár hæðir
og kjallara á bakhlið og innrétta
fimm íbúðir og verslunarrými.“
Mansard-hæð sem vísað er til, er
heiti yfir þak sem hefur í raun tvo
halla.
Ekki fengust teikningar af breyt-
ingum á húsunum sem Þingvangur
sótti um þar sem málið er enn á
vinnslustigi. thorunn@mbl.is
Fimm íbúðir og verslunarrými
Vilja endurbyggja og stækka hús-
næðið við Laugaveg 17 og 19-19B
Næði inn á Hljómalindarreitinn
Morgunblaðið/Golli
Byggingar Laugavegur 17 (fjær) og Laugavegur 19-19B (nær). Þingvangur ehf. er eigandi húsanna.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Aukin eftirspurn eftir bæði mjólk og nautakjöti hefur
kallað á aukna framleiðslu bænda. Nú nýta þeir gripi
sína lengur og fjölga í fjósum, en sem kunnugt er ósk-
aði Mjólkursamsalan eftir því nýverið að bændur í
landinu fjölguðu mjólkurkúm sínum um allt að 1.000. Í
því felast tækifæri sem bændur hafa eftir megni reynt
að nýta sér, þó þeir hafi líka gagnrýnt hve fyrirvarinn
sé lítill af hálfu MS. Í þessu sambandi bendir Sigurður
Ingi Jóhannsson, sem er dýralæknir og starfaði lengi
sem slíkur, að fjölgun í fjósum, hvort heldur kúa eða
holdagripa, sé tveggja til þriggja ára ferli og því þurfi að hugsa þessi mál
langt fram í tímann og vanda allan undirbúning.
Fjölgun í fjósi þarf undirbúning
VAXANDI EFTIRSPURN EFTIR MJÓLK OG NAUTAKJÖTI
Nautgripir Kýr í
haga í sveitinni.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Á meðal keppenda á Reykjavík-
urskákmótinu sem hefst í Hörpu í
dag er hinn 71 árs gamli Jón Krist-
insson en hann keppti einnig á því
fyrsta fyrir hálfri öld. Jón hefur ekki
keppt í skák í tíu ár en ákvað að
spreyta sig nú í tilefni afmælisins.
„Þetta var nú bara hugdetta í
[fyrrakvöld]. Ég hef eiginlega ekki
keppt neitt í fjörutíu ár. Bara aðeins
við og við. Nú er ég bara orðinn at-
vinnulaus og hef meiri tíma til að
prófa þetta,“ segir hann.
Síðustu árin hefur Jón helst teflt á
netinu en hann segir það allt aðra til-
finningu að sitja fyrir framan tölvu
en að sitja andspænis andstæðingi
með taflmennina fyrir framan sig.
Maður missi tilfinningu fyrir leiknum
fyrir framan skjáinn.
Tal sneri á hann í lokin
Jón tefldi meðal annars við lettn-
eska stórmeistarann Mikhail Tal sem
varð heimsmeistari fjórum árum áð-
ur.
„Ég var nærri því að vinna hann
reyndar. Þetta var nú eiginlega
þannig að hann tefldi byrjunina ekki
nógu vel og það virtist vera að ég
gæti þvingað fram jafntefli. En hann
vildi það ekki og tók áhættu, fannst
að það væri of langt á milli Riga og
Reykjavíkur til að gera svona jafn-
tefli. Svo sneri hann bara á mig á
sinni reynslu og færni,“ segir Jón.
Spurður hvaða vonir hann geri sér
um árangur á mótinu segist Jón bara
ætla að taka þátt og hafa gaman af.
Geysilega mikil gróska sé í skákinni
hér á landi og mikið af skákmönnum
á Reykjavíkursvæðinu.
„Það er gaman að prófa að tefla
svona og vita hvort maður getur eitt-
hvað. Ef það gengur mjög illa þá er
stutt þarna í höfnina,“ segir Jón og
hlær við.
Hann er þó ekki einn reyndra
kappa sem taka þátt í mótinu eftir
langt hlé, því Helgi Ólafsson stór-
meistari tekur einnig þátt í því í
fyrsta skipti í tíu ár. Hann er einnig
að rita 50 ára sögu Reykjavík-
urskákmótsins um þessar mundir.
Keppti á fyrsta Reykjavíkur-
skákmótinu fyrir 50 árum
Stutt í höfnina ef illa gengur, segir Jón Kristinsson
Morgunblaðið/Ómar
Skák Jón Kristinsson tefldi við lettneska stórmeistarann Mikhail Tal.
Það er óhætt að segja að bollur hafi verið á allra vörum
í gær. Nemendur Laugarnesskóla voru þar engin und-
antekning en þar var bolludeginum fagnað með viðeig-
andi hætti. Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að
garði voru börnin að gæða sér á dýrindis rjómabollum
áður en haldið var af stað í frístundaheimilið.
Morgunblaðið/Golli
Bollurnar slógu í gegn hjá unga fólkinu