Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 40
Fjöldi Yfir 15 milljónir Lego-kubba
voru notaðar við gerð myndarinnar.
Þriðju helgina í röð er Lego-
myndin eða The Lego Movie lang-
best sótta kvikmyndin af þeim sem
sýndar eru í bíóhúsum landsins.
Rúmlega 25 þúsund miðar hafa ver-
ið seldir á hana frá frumsýning-
ardegi. Teiknimyndin Frozen eða
Frosinn er sem fyrr sú mynd á topp
tíu listanum sem flestir hafa séð eða
rúmlega 47 þúsund gestir á sl. tólf
vikum. Þrjár nýjar myndir raða sér
á topp listans, m.a. Non-Stop sem
rúmlega þrjú þúsund manns sáu um
helgina. Aðsóknarmesta íslenska
kvikmyndin er Hross í oss með
rúmlega 14 þúsund selda miða.
Um 25.000 Lego-miðar
Bíólistinn 28. febrúar-2. mars 2014
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Lego The Movie
Non-Stop
Gamlinginn (Hundraåringen som klev ut genom fönstret och försvann)
Ride Along
Monuments Men, The
RoboCop
Justin and the Knights of Valour
Lífsleikni Gillz
Frozen
Winter’s Tale
1
Ný
2
3
Ný
5
10
4
12
Ný
3
1
2
2
1
3
5
4
12
1
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Bíóaðsókn helgarinnar
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Svanir skilja ekki fjallar umhjónabandið og þær mörguog jafnvel mótsagnakennduhliðar sem eru á því. Í for-
grunni eru hjón sem eru kölluð hann
og hún í leikskrá. Þau hafa ákveðið
að leita til ráðgjafa vegna sonar síns
sem lætur sig hverfa, svarar ekki
foreldrum sínum og neitar að taka
ofan húfuna við matarborðið. Við
tekur óhefðbundin hjónabands-
meðferð sem flestum áhorfendum
ætti að koma nokkuð á óvart.
Leikritið er raunsæislegt en með
frumlegum frávikum. Hluti af fram-
setningunni eða tjáningunni fer til
dæmis fram með dansi leikendanna.
Það er mjög skemmtileg viðbót við
samræður um samband hans og
hennar. Danshreyfingarnar eru
fremur einfaldar en skemmtilegar.
Þá er góður húmor í verkinu og í lok
þess kemur óvæntur snúningur á at-
burðarásina sem setur allt sem á
undan er komið í nýtt samhengi.
Hún er hjúkrunarfræðingur,
þjökuð af almennum áhyggjum af
því að eitthvað slæmt gerist. Sam-
band hans, sem er húsgagnabólstr-
ari sem tekur stöku sinnum vakt á
leigubíl, við móður sína fer greini-
lega í taugarnar á henni. Hann er
atkvæðalítill maður og er vissulega
með hag móður sinnar afar ofarlega
í huga. Í upphafi virðist ljóst að hinn
svonefndi neisti er horfinn milli
þeirra hjóna.
Samband hjónanna sýnir nokkuð
dæmigerð vandamál í samlífi hjóna
og við fræðumst um þau í gegnum
samtöl og spurningar ráðgjafans.
Persónurnar vísa einnig á tímabili
inn í verkið sjálft þegar þær ræða
um leikrit sem þær hafi séð sem hef-
ur ákveðin líkindi við verkið sem
þær og áhorfendur eru staddir í.
Þær þróast einnig örlítið. Í upphafi
eru hann og hún klædd í fremur lát-
laus föt sem eru ljós- og brúnleit en
í seinni hluta eru þau komin í sterk-
ari liti. Þau virðast einnig glaðari en
í upphafi.
Baldur Trausti Hreinsson leikur
hann. Baldur dregur upp glögga
mynd af nokkuð vönduðum en ekki
sérlega áhugaverðum manni. Hann
á einnig góða spretti í dansinum, í
einu atriðinu stóð hann sig með slík-
um ágætum að það kallaði fram
klapp í salnum. Baldur Trausti er á
góðri leið sem leikari og er hér al-
gerlega upp á sitt besta. Margrét
Vilhjálmsdóttir er hin heldur
óspennandi og taugaveiklaða hún.
Henni tekst einnig vel upp við að
sýna óhamingjusama og mædda
konu á miðjum aldri sem reynir með
misjöfnum árangri að bæla niður
það sem fer í taugarnar á henni í
fari eiginmannsins. Margrét skilar
einnig danshlutanum með ágætum.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur ráð-
gjafann. Ráðgjafinn er svona heldur
léttur á því og virkar fremur ófag-
legur og kærulaus. Ólafía Hrönn
sýnir það af öryggi. Hún hefur
skemmtilegar hreyfingar og býr að
því að geta verið fyndin bara með
því hvernig hún ber sig eða talar.
Sviðsmyndin samanstendur af
stórum ferhyrningslaga römmum
með rúllugardínum. Rammarnir
rísa upp af einni hlið þríhyrnings-
laga undirstöðu. Hægt er að aka
þessum einingum til og tvöfalda
rammana. Með þessu móti er meðal
annars hægt að búa til „lokað“ rými
úr römmunum og setja þá upp á
ýmsan hátt. Á undirstöðunum eru
svo einhvers konar kollar sem hægt
er að sitja á. Það var gaman að sjá
hvað þessi einföldu form voru notuð
á fjölbreytilegan og hugmyndaríkan
hátt.
Tónlistin í verkinu og hljóð-
myndin er gerð af Ragnhildi Gísla-
dóttur. Hún er nokkuð stór hluti
verksins og vel heppnuð. Tónlistin
„sándaði“ líka mjög vel svo gripið sé
til frasa sem erfitt hefur reynst að
íslenska.
Það er ánægjulegt að sjá hversu
góðum tökum Auður Ava hefur náð
á leikritsforminu en það er mjög
langt frá því að vera sjálfsagt að
skáldsagnahöfundur geti skrifað
fyrir svið. Viðfangsefnið er ekkert
sérlega nýstárlegt en efnistökin og
framsetningin er spennandi.
Þetta er skemmtileg uppfærsla af
hálfu hjónanna Charlotte Bøving og
Benedikts Erlingssonar. Verkið
vekur meðal annars athygli á og
skoðar þann einkennilega galdur
sem þarf til að hið margþætta og
flókna samband hjóna gangi upp og
sé farsælt. Mögulega örlar þarna
einnig á boðskapnum: brjótið ykkur
úr vanaviðjum.
Samband allra sambanda
Þjóðleikhúsið
Svanir skilja ekki bbbmn
Svanir skilja ekki eftir Auði Övu Ólafs-
dóttur. Leikarar: Baldur Trausti Hreins-
son, Margrét Vilhjálmsdóttir og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir. Leikmynd og bún-
ingar: Eva Signý Berger. Tónlist og
hljóðmynd: Ragnhildur Gísladóttir.
Dansar og sviðshreyfingar: Melkorka
Sigríður Magnúsdóttir. Lýsing Magnús
Arnar Sigurðarson. Leikstjórn: Char-
lotte Bøving. Aðstoð við leikstjórn:
Benedikt Erlingsson. Frumsýning í
Kassanum 28. febrúar 2014.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
Ljósmynd/Eddi
Góð tök „Það er ánægjulegt að sjá hversu góðum tökum Auður Ava [Ólafsdóttir] hefur náð á leikritsforminu en það
er mjög langt frá því að vera sjálfsagt að skáldsagnahöfundur geti skrifað fyrir svið,“ segir meðal annars í dómi.
Sagað nefnist
sýning Sindra
Leifssonar sem
opnuð hefur ver-
ið í Kunstschla-
ger. „Sýningin er
allt í senn inn-
setning, högg-
myndir og gjörn-
ingur en öðru
fremur afrakstur
viðveru lista-
mannsins í sýningarrýminu. Hún er
í raun ferli sem bíður þess að verða
eitthvað sem ekki var ákveðið fyr-
irfram – er verk í sífelldri vinnslu.
Sýningin vekur spurningar um al-
veldi „vinnunnar“ og þeirra afurða
sem hún getur af sér og beinir sjón-
um sínum að ferlinu sjálfu,“ segir
m.a. í tilkynningu. Sýningin stend-
ur til 15. mars og er opin mánudaga
til laugardaga kl. 15-18.
Sagað í Kunst-
schlager
Trésög Spurning
um vinnu.
Sænska hljómsveitin The Knife bar
sigur úr býtum á Norrænu tónlist-
arverðlaununum eða Nordic Music
Prize sem veitt voru í Ósló í Noregi
sl. sunnudag. Þetta er þriðja árið í
röð sem sænsk hljómsveit hlýtur
verðlaunin. Fyrir Íslands hönd voru
þetta árið tilnefndar hljómsveit-
irnar Hjaltalín og múm. Í grein sem
tónlistarfræðingurinn Arnar Egg-
ert Thoroddsen skrifaði í Morg-
unblaðinu fyrir stuttu sagði hann
um plötu The Knife: „Hitt sænska
tilleggið er svo umdeild plata The
Knife, Shaking the Habitual, sem
sænski dómnefndarmeðlimurinn
kallaði „Metal Machine Music“ Sví-
þjóðar, nokkuð glúrin samlíking
það.“
Svíar bestir
enn eitt árið
Plötuumslag Shaking the Habitual
nefnist umdeild plata The Knife.
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
raestivorur.is
Rétt magn af hreinlætisvörum
sparar pening
– láttu okkur sjá um það
Hafðu samband og fáðu tilboð
sími 520 7700 eða sendu línu á
raestivorur@raestivorur.is
Heildarlausnir í hreinlætisvörum
Sjáum um að birgðastaða hreinlætis-
og ræstingarvara sé rétt í þínu fyrirtæki.
Hagræðing og þægindi fyrir stór og lítil
fyrirtæki, skóla og stofnanir.
Hafðu samband og fáðu tilboð