Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný
hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift
aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum.
ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter
að fáþau ímörgumútfærslum.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Okkur langar að kynna íslenska
þjóðlagatónlist fyrir sem flestum,
þetta er hálfgert trúboð,“ segir
Snorri Helgason tónlistarmaður og
framkvæmdastjóri Reykjavík Folk
Festival sem fer fram 6. til 8. mars
næstkomandi.
Hátíðin er haldin í fimmta sinn
en forsvarsmaður hennar var Ólafur
Þórðarson heitinn. Hann var einn af
ástsælustu tónlistarmönnum þjóð-
arinnar og var meðal annars í hljóm-
sveitunum Ríó Tríó, Kuran Swing
og South River Band. Snorri tók við
sem framkvæmdastjóri hátíðarinnar
þegar Ólafur féll frá.
Miklar hræringar hér á landi
Snorri bendir á að á síðustu ár-
um hafi mikið verið að gerast í ís-
lenskri þjóðlagatónlist og að margt
ungt tónlistarfólk sé undir áhrifum
þessarar tónlistar í listsköpun sinni
og byggi á þessum grunni.
„Það sem mig langaði að gera
þegar ég tók við var að fram kæmu
ný bönd og eldri; blanda saman
þjóðlagatónlistarmönnum og -hljóm-
sveitum á ólíkum aldri og frá ólíkum
áttum innan þessa tónlistarheims,“
segir Snorri.
Hann segir undirbúninginn
ganga mjög vel. Helgi Pétursson,
faðir Snorra, er formaður stjórnar
Reykjavík Folk Festival. Þeir vinna
því saman að undirbúningi hátíð-
arinnar. „Það er alltaf gaman að fá
tækifæri til að vera meira saman.
En við erum báðir með mikla ástríðu
fyrir þjóðlagatónlist og því er þetta
mjög skemmtilegt,“ segir Snorri.
Hátíðin er haldin í rúmlega
hundrað manna sal á Kex hosteli.
„Mikil nánd skapast í salnum því
hann er lítill og hljómburðurinn góð-
ur. Það hentar vel því mikill texti
fylgir oft þjóðlagatónlist sem krefst
þess að fylgst sé með af einbeitingu,
því er þetta kjörinn staður,“ segir
Snorri.
Þeir tónlistarmenn og hljóm-
sveitir sem troða upp eru m.a. Bjart-
mar Guðlaugsson, Bubbi, Drangar,
Elín Ey, KK og Kristín Ólafs.
Upphaf hátíðarinnar er rakið til
þess að árið 2010 fagnaði hljóm-
sveitin South River Band tíu ára af-
mæli sínu. Af því tilefni var efnt til
alþýðu- og heimstónlistarhátíðar.
Á heimasíðu hátíðarinnar er að
finna skilgreiningu á þjóðlagatónlist.
Þar stendur að hún sé skilgreind
sem tónlist eða tónlistaráhrif sem
rekja uppruna sinn til hins venju-
lega alþýðumanns, tónlistararf sem
borist hefur mann frá manni, kyn-
slóð frá kynslóð. Oftar en ekki má
rekja þetta til þess að vinir eða fjöl-
skyldan hafa komið saman, sungið
og spilað af fingrum fram. Þjóðlaga-
tónlist er einnig oft nefnd alþýðu-
tónlist.
Með ástríðu fyrir þjóðlagatónlist
„Okkur langar að kynna íslenska þjóðlagatónlist fyrir sem flestum, þetta er hálfgert trúboð,“ seg-
ir Snorri Helgason tónlistarmaður og framkvstj. Reykjavík Folk Festival sem haldin er í fimmta sinn
Morgunblaðið/Golli
Feðgar Helgi Pétursson og Snorri Helgason, feðgar og tónlistarmenn,
hafa báðir mikla ástríðu fyrir íslenskri þjóðlagatónlist.
Reykjavík Folk Festival
2014
» Haldin í fimmta sinn á Kex
hosteli 6.-8. mars nk.
» Forsvarsmaður hennar var
Ólafur Þórðarson heitinn.
» Tólf listamenn og hljóm-
sveitir koma fram, m.a.
Bubbi, Drangar, Elín Ey, Hym-
nalaya, KK, Kristín Ólafs,
Kristjana Arngríms, Skúli
Sverrisson, Snorri Helgason
Soffía Björg og Steindór And-
ersen.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
fellt niður mál fernra umhverfis-
verndarsamtaka sem stefndu Vega-
gerðinni á síðasta ári vegna lagning-
ar nýs Álftanesvegar. Samtökin
kröfðust lögbanns á framkvæmdina í
lok ágúst. Lögmaður samtakanna
fór fram á það í héraði í gær að málið
yrði fellt niður og varð dómari við
þeirri kröfu.
„Það er orðið svo langt um liðið og
m.a. raunverulegir hagsmunir eyði-
lagðir. Það er ekkert að gerast og
það verður því að fella það niður,“
segir Ragnheiður Elfa Þorsteins-
dóttir, lögmaður Landverndar,
Náttúruverndarsamtaka Íslands,
Náttúruverndarsamtaka Suðvestur-
lands og Hraunavina, í samtali við
mbl.is.
Ragnheiður bendir á að um hálft
ár sé liðið frá því farið var fram á lög-
bannið. Framkvæmdir hófust hins
vegar í hrauninu október sl. og hafa
staðið yfir síðan þá.
Tvö dómsmál hafa verið í gangi
vegna Álftanesvegar. Annars vegar
mál þar sem samtökin vildu fá
hrundið ákvörðun sýslumanns um að
synja lögbanni á framkvæmdina, en
sýslumaður vísaði lögbannskröfu frá
á þeirri forsendu að samtökin ættu
ekki lögvarða hagsmuni og því ekki
aðild að málinu. Samtökin höfðuðu
dómsmál til að fá ákvörðuninni
hnekkt. Í því máli var farið fram á að
fá ráðgefandi álit EFTA-dómstóls-
ins en Héraðsdómur Reykjavíkur og
Hæstiréttur höfnuðu því.
Hitt málið snýst um vegarlagn-
inguna sjálfa og lögmæti hennar á
þeim grundvelli að umhverfismat og
framkvæmdaleyfi séu ekki gild. Í því
máli var einnig óskað ráðgefandi
álits EFTA-dómstólsins.
„Okkur fannst vera komið að þeim
tímapunkti núna að það væri ekki
forsvaranlegt að halda áfram með
þetta,“ segir Ragnheiður um lög-
bannsmálið. jonpetur@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Vegagerð Unnið er að því að leggja nýjan Álftanesveg í gegnum Garða-
hraun. Lögbannsmál umhverfisverndarsamtaka hefur verið fellt niður.
Lögbannsmál
fellt niður
Hálft ár liðið frá því farið var fram á
lögbann á framkvæmdir við Álftanesveg