Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014 flottir í flísum Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sala á nýjum bílum jókst um 30,3% á tímabilinu 1.-28. febrúar og voru ný- skráðir fólksbílar alls 495, en höfðu verið 380 í febrúarmánuði 2013. Þar af voru 180 bílaleigubílar. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá Bílgreina- sambandinu. Þar kemur einnig fram að samtals hafa 1.037 fólksbílar verið skráðir það sem af er ári en það er 23,5% aukning frá fyrra ári. Þar af eru bílaleigubílar 293. „Bílasala heldur áfram að aukast og er aukningin aðallega í sölu til ein- staklinga og fyrirtækja. Þörfin fyrir endurnýjun var orðin mjög brýn enda gamlir bílar dýrir í rekstri og því er endurnýjun flotans í ágætum far- vegi,“ er haft eftir Özuri Lárussyni, framkvæmdastjóra Bílgreina- sambandsins, í tilkynningunni. Sala nýrra bíla jókst um 30,3%  495 bílar nýskráðir Morgunblaðið/Árni Sæberg Lítið virðist miða í kjaradeilu fram- haldsskólakennara og ríkisins. Fundað var hjá Ríkissáttasemjara í gær og áfram verður fundað í allan dag. „Staðan er óbreytt og áfram verður fundað,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður félags framhaldsskólakennara. Ólafur H. Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum, tekur í sama streng. „Það ber enn mjög mikið á milli. Því miður þá hefur lítið gerst á fundunum sem hægt væri að segja að hafi borið málið áleiðis,“ segir Ólafur. Að öllu óbreyttu munu framhalds- skólakennarar hefja verkfall þann 17. mars. mariamargret@mbl.is Staða kjara- deilunnar sögð óbreytt Nýtt vegglistaverk hefur litið dagsins ljós á horni Framnesvegar og Hring- brautar. Að verkinu standa vegglistamennirnir Kristín Þorláksdóttir og Stefán Óli Baundal. „Þetta er okkar framlag til Vesturbæjarins en okkur langaði að gefa þessu svæði lit,“ segir Kristín. Þau fengu leyfi hjá eiganda hússins fyrir umræddu listaverki. „Það má greina ákveðinn vorboða í verk- inu. Þarna er stúlka að leika sér í blómabeði við risastóra margfætlu.“ Stúlka í ævintýragarði prýðir vegg í Vesturbæ Morgunblaðið/RAX 82,4% Sunnlendinga eru hlynnt gjaldtöku í ferðaþjónustu en flestir eru fylgjandi því að gjaldtakan verði í formi brottfarar- og komu- gjalda, eða 28,3%. Þetta kom fram í viðhorfskönnun Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga, þar sem íbú- ar Suðurlands voru spurðir um af- stöðu sína varðandi gjaldtöku í ferðaþjónustu. Alls tóku 837 þátt í könnuninni en meðal þeirra voru 333 aðilar í ferðaþjónustu. 21,5% vildu að- gangseyri á einstaka staði en 19,5% vildu blöndu af náttúrupassa og gjaldtöku á einstaka stöðum. „Í svörum var nefnt sérstaklega að Íslendingar ættu ekki að þurfa að greiða fyrir aðgang að íslenskri náttúru. Einnig að skattleggja ætti afþreyingarfyrirtæki, svo sem fyr- irtæki með gönguferðir, bátsferðir, skoðunarferðir o.fl., sem í dag greiða engan virðisaukaskatt,“ seg- ir í tilkynningu frá SASS. Meirihluti svarenda trúði því að fjármagnið myndi skila sér til upp- byggingar en margir höfðu áhyggj- ur af framkvæmd og úthlutun. 82,4% segjast vera hlynnt gjaldtöku Gjald Svarendur sögðu Íslendinga ekki eiga að borga aðgangseyri.  Flestir vilja brottfarar- og komugjöld Morgunblaðið/Kristinn María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Íslenskir feður taka í meira mæli fæðingarorlof en feður á öðrum Norðurlöndum eftir því sem fram kemur í nýútkominni skýrslu um staðtölur á sviði félags- og heilbrigð- ismála. Á eftir íslenskum feðrum koma sænskir feður og svo norskir. Þar kemur fram að feður á Norð- urlöndunum taka í vaxandi mæli þátt í umönnun barna sinna með því að taka fæðingarorlof en þróun og fyr- irkomulag fæðingarorlofs er þó ólíkt milli landanna. Eldri á vinnumarkaði Athygli vekur að Ísland er til dæmis eina landið sem hefur barna- bætur tekjutengdar auk þess sem í lögum flestra Norðurlanda er börn- um tryggður réttur til vistunar á leikskóla. Börn á Íslandi og í Fær- eyjum eiga ekki sama lagalega rétt á leikskóladvöl og börn á öðrum Norð- urlöndum. Þá er í skýrslunni töluvert fjallað um atvinnumál Norðurlandabúa en hlutfall fólks á aldrinum 16-64 ára í launavinnu er hæst á Íslandi, eða 81,9% auk þess sem Íslendingar á aldrinum 60 til 65 ára eru í mun rík- ari mæli á vinnumarkaði en jafnaldr- ar þeirra annars staðar á Norður- löndunum. Danmörk og Finnland reka lestina í þeim efnum. Skýrslan ber heitið Social tryghet i de nordiske lande 2013 og er unnin af norrænu nefndunum NOMESCO og NOSOKO og er ætlunin að bera saman stöðu ýmissa mála. Íslenskir feður taka frekar fæðingarorlof  Ísland eitt Norðurlanda með tekjutengdar barnabætur Fjallagarpurinn og ævintýrakonan Vilborg Arna Gissurardóttir var í fyrrakvöld komin, ásamt ferða- félögum sínum, í 3.950 metra hæð á Kilimanjaro, hæsta fjalli Afríku. Fjallið er 5.895 metrar. Hún sagði í færslu á vefsíðu sinni að þau hefðu farið snemma í háttinn og gerðu síðan ráð fyrir því að ganga upp í 4.600 metra hæð í gær. Þetta er sjötti tindurinn af sjö sem hún hyggst klífa, en hún hefur síðustu mánuði klifið hæstu tinda fimm heimsálfa. Verkefnið byggist á því að klífa hæsta fjallstind í hverri heimsálfu á tólf mánaða tímabili frá maí 2013 fram í maí 2014. Þegar hún kemur aftur heim frá Afríku dvelur hún aðeins í þrjár vikur hér á landi áður en hún leggur í hann á Everest. Komin í tæplega fjögurra km hæð Starfsmenn Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands og Ágúst Þór Árnason voru gestir á fundi ut- anríkismála- nefndar í gær, þar sem skýrsla stofn- unarinnar um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið var til umræðu. Nefndin heldur annan fund um skýrsluna í dag, þar sem gestir verða Stefán Már Stefánsson og Maximilian Conrad. Birgir Ármannsson, formaður ut- anríkismálanefndar, segir að þegar nefndin hafi lokið fyrstu yfirferð með skýrsluhöfundum taki við umræður í nefndinni um framhald málsmeðferð- arinnar. Hann segir að nefndin muni ekki fjalla um tillögu utanrík- isráðherra um að draga umsókn Ís- lands um aðild að Evrópusambandinu til baka, né önnur mál, fyrr en hún hefur fengið þau til meðferðar. Klukkan 22 í gærkvöldi höfðu 44.342 undirskriftir safnast á thjod.is, þar sem skorað er á Alþingi að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild- arviðræðurnar. Fjalla um skýrsluna Birgir Ármannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.