Morgunblaðið - 04.03.2014, Page 4

Morgunblaðið - 04.03.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014 Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800 Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is Öðruvísi flísar Kópavogsbær hefur ákveðið að gefa öllum hringtorgum í bænum nöfn. Hringtorgin eru þrjátíu og níu og hvert þeirra fær nafn sem vísar í hverfið sem það stendur í. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ má rekja málið til til- lögu sem lögð var fram í umhverf- is- og samgöngunefnd bæjarins um að merkja þyrfti hringtorg og strætóskýli. Nafnanefnd var end- urvakin en í henni eru m.a. um- hverfisfulltrúi, skipulagsstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs. Auk þess eru tveir fulltrúar tilnefndir af stjórnmálaflokkum. Niðurstaða nefndarinnar var að gefa hringtorgum bæjarins nöfn sem vísuðu í hverfin. Nafngiftirnar voru samþykktar í bæjarstjórn í síðustu viku með átta atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá við af- greiðslu málsins. Eftir er að útfæra hvernig torg- in verða merkt. Einnig voru uppi hugmyndir um að merkja strætó- skýlin í bænum en að lokum var ákveðið að leyfa þeim nöfnum að halda sér sem Strætó bs. hefur þegar notað. Hringtorgin eru 39, þrjú þeirra hafa reyndar ekki enn verið lögð en framkvæmdir við þau fara af stað í sumar. Nöfnin sem hringtorgin fá eru: Hamraborg, Borgarholt, Digranes, Þinghóll, Kópavogur, Nýbýli, Lundur, Birkihlíð, Brekka, Smár- inn, Nónhæð, Dalur, Holt, Smára- torg, Fífuhvammur, Lindir, Brekka, Einbúi, Salir, Hnoðri, Smalaholt, Leirdalur, Rjúpnadal- ur, Markasteinn, Baugur, Austur- kór, Rjúpnahæð, Kjóavellir, Arn- arbæli, Hörðuvellir, Boðinn, Þingnes, Vatnsvík, Kórinn, Þing, Búðakór, Elliðahvammur, Kríunes og Vatnsendi. ingveldur@mbl.is Hringtorgin þrjátíu og níu í Kópavogi fá nöfn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kópavogur Þetta hringtorg við Hamraborg fær nafnið Hamraborg.  Nafnanefnd var endurvakin Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Þessi gleypigangur er þekkt mál. Gömlu stöðumælarnir skila ekki peningunum til baka eins og nýju mælarnir sem gubba þeim bara í gegn ef þeir eru of léttir,“ segir Kol- brún Jónatansdóttir framkvæmda- stjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Nokkrir af gömlu stöðumælunum, sem eru flestir staðsettir í miðborg Reykjavíkur, eiga það til að skynja ekki ákveðna gerð af tíu krónu pen- ingi og gleypa hann, ólíkt nýrri mæl- um sem skila þeim í gegn. Um er að ræða 10 króna mynt sem var sett í umferð árið 1996 en hún var gerð úr annarri málmblöndu en tíkallinn sem fyrir var. Hún er úr nikkelhúðuðu stáli og 6,9 grömm að þyngd en eldri tíkallinn er úr 75% kopar og 25% nikkel og er 8,0 grömm að þyngd. Vandamálið brátt úr sögunni Kolbrún segir að Bílastæðasjóði berist nú um tvær kvartanir á mán- uði út af þessu. Þau vilji að fólk láti vita því þá sé hægt að skipta um haus á þeim mælum sem gleypa tí- kallinn. Vandamálið hefur verið til staðar í mörg ár en er hverfandi því gömlu stöðumælarnir heyra brátt sögunni til. „Þeim hefur fækkað mikið og eru rétt um 300 í dag. Það eru þeir elstu sem skynja ekki léttari tíkallinn, við höfum verið að skipta þeim út og setja betri mæla í staðinn. Við skipt- um þá út hausnum fyrir nýrri mæla sem við höfum tekið úr umferð ann- arsstaðar. Við erum löngu hætt að kaupa stöðumæla og erum að snúa okkur alfarið að nýju gerðinni sem tekur kort og prentar út miða. Þeir skila peningnum ef þeir vilja hann ekki. Ég held að það megi segja að einhverntímann á næsta ári verði gömlu myntstöðumælarnir nánast horfnir, það verða jafnvel bara um tíu til tuttugu eftir þá,“ segir Kol- brún. Spurð hvort hún telji Bílastæða- sjóð hafa grætt mikið á þessum tí- kalla-gleypigangi stöðumælanna svarar Kolbrún neitandi og hlær. „Þetta hefur ekki verið mjög góð fjármögnunarleið. Fólk verður líka svekkt og hringir inn. Við vissum ekki af þessum galla í mælunum fyrr en kvartanir fóru að berast og þá var málið skoðað. Við reynum ekki að pirra viðskiptavinina með þessu, girðum bara fyrir vandamálið með því að skipta út hausnum á mæl- inum. Ég hugsa að það sé núna að- eins um hálft prósent stöðumæla sem skynjar ekki léttari tíkallinn.“ Áður en bílastæðagjaldið hækkaði gaf tíkallinn fjórar mínútur í stöðu- mæli en í dag fær fólk rétt um tvær mínútur fyrir hann. Gamlir stöðu- mælar gleypa léttari tíkallinn  Fá um tvær kvartanir á mánuði  Vandamálið brátt úr sögunni Morgunblaðið/Ásdís Úreltur Þessi gerð stöðumæla á það til að gleypa léttari tíu krónurnar. Tíu krónur » Tíkallinn var settur í umferð árið 1984. Á framhlið mynt- arinnar er stílfærð mynd af landvættum eins og á öðrum myntum, en á bakhlið er mynd af loðnu. » Engar ábendingar hafa bor- ist Seðlabankanum vegna þessa vandamáls með léttari tíkallinn og gömlu stöðumæl- ana, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Tónleikarnir sem Björk stendur fyrir nefnast Stopp gætum garðsins og fara fram 18. mars í Hörpu. Fram koma tónlistarmenn á borð við Patti Smith, Björk, Lykke Li, Highlands, Of Mon- sters and Men, Mammút, Retro Stefson og Samaris. Sama dag verður sérstök frum- sýning á Noah, nýjustu mynd Darren Aro- nofsky. Allir lista- menn gefa vinnu sína og allur ágóði rennur til Nátt- úruverndarsamtaka Íslands og Land- verndar. Takmark- að magn miða er í boði. Patti Smith á tónleikunum TÓNLEIKAR OG BÍÓ Hallur Már Hallsson María Margrét Jóhannsdóttir Tónlistarkonan Björk Guðmunds- dóttir ásamt hópi listamanna krefst þess að náttúruverndarlög, sem samþykkt voru í fyrra og áttu að taka gildi í apríl, standi. Þetta sagði hún á kynningarfundi í Hörpu í gær vegna náttúruverndartónleika sem verða í Hörpu þann 18. mars. Tón- leikarnir fara fram undir nafninu Stopp gætum garðsins en sama dag verður sérstök frumsýning á Noah, nýjustu mynd Darren Aronofsky, leikstjóra, sem var að miklu leyti mynduð hér á landi. Töluðu í gegnum Skype Bæði Björk og Aronofsky voru viðstödd á fundinum í gegnum sam- skiptaforritið Skype. Aronofsky sagði á fundinum að hann fyndi til mikillar ábyrgðar gagnvart Íslandi eftir dvöl sína hér og vildi láta gott af sér leiða. Sér- staða Íslands væri náttúran og að hún væri ekki þakin girðingum og rafmagnslínum og hann sagðist vona að Ísland færi ekki að fordæmi Bandaríkjanna þar sem skamm- tímaávinningur hefði haft sigur um- fram þau verðmæti sem fælust í ósnortinni náttúru. Mótmæla aðför yfirvalda „Við höfum einstakt tækifæri núna til að gera hálendið allt að ein- um þjóðgarði með lögum frá Al- þingi. Þar með verði hálendi Íslands sett undir eina skipulagsstjórn og skýrt afmarkað. Þar með heyri öll áform um lagningu raflína, vega- gerð eða önnur mannvirki sem kljúfa eða sundra dýrmætum lands- lagsheildum hálendisins sögunni til,“ segir í yfirlýsingu sem lesin var upp á fundinum. Varað var við áformum um virkjun jarðvarma við Mývatn og sagt að brýnt væri að ríkisvaldið myndi verja náttúrusvæði gegn ágangi ferðamanna. Þá var aðför yfirvalda að náttúruverndarfólki mótmælt og yfirgangur lögreglu var sagður fordæmalaus og ákær- ur gagnvart þeim sem vildu vernda Gálgahraun grimmar. Skype Björk Guðmundsdóttir og Darren Aronofsky ávörpuðu gesti á tjaldi á blaðamannafundi í Hörpu í gær. Björk og Aronofsky standa vörð um náttúru  Náttúruverndartónleikar og frumsýning Noah í mars Patti Smith

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.