Morgunblaðið - 04.03.2014, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Iðnþing 2014
Framleiðni
Menntun
Samkeppnis-
hæfni
Nýsköpun
Stöðugleiki
Auðlindir
Hugvit
Fagmennska
Fundurinn er öllum opinn - léttar veitingar. Skráning á www.si.is
Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið í Íþrótta- og sýningar-
höllinni Laugardal fimmtudaginn 6.mars kl. 14–16. Á Iðnþingi
verður 20 ára afmæli SI fagnað og fjallað um fjölbreyttan iðnað
sem drifkraft nýrrar sóknar og endurreisnar íslensks efnahagslífs.
Drifkraftur nýrrar sóknar
Dagskrá
Drifkraftur í iðnaði
Ný sókn
Bergsteinn Einarsson,
framkvæmdastjóri Sets
Gylfi Gíslason,
framkvæmdastjóri JÁVERKS
Aðalheiður Héðinsdóttir,
framkvæmdastjóri Kaffitárs
Guðmundur Fertram Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Kerecis
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis á Íslandi
Fundarstjóri: Ragnar Guðmundsson,
forstjóri Norðuráls
Þorsteinn Pálsson,
fv. forsætisráðherra
og framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins
Hilmar Veigar Pétursson,
framkvæmdastjóri CCP
Svana Helen Björnsdóttir,
formaður Samtaka iðnaðarins
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðarráðherra
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-0
1
4
8
Tólf fagfélög og sjúklingafélög af-
hentu í gær áskorun til stjórnvalda
um að hefja hópleit að rist-
ilkrabbameini strax.
Jakob Jóhannsson, formaður
Krabbameinsfélags Íslands, afhenti
Kristjáni Þór Júlíussyni, heilbrigð-
isráðherra, áskorunina.
Fram kemur í tilkynningu, að fé-
lögin leggi áherslu á gildi forvarna
og skimunar fyrir ristilkrabba-
meini því oft sé hægt að koma í veg
fyrir það með skipulagðri hópleit.
Ristilkrabbamein er þriðja al-
gengasta krabbameinið á Íslandi.
Að meðaltali greinast um 140 ein-
staklingar á ári og tíðnin hefur þre-
faldast hjá körlum á síðustu hálfri
öld. Árlega deyja 50-55 manns af
völdum þessa sjúkdóms, segir í til-
kynningunni.
Leiti að
ristilkrabba-
meini
Motta Kristján Þór og Jakob skört-
uðu báðir mottu í tilefni af Mottu-
mars, átaki Krabbameinsfélagsins.
Verslunin Bónus í Reykjanesbæ var
oftast með lægsta verðið þegar
verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í
13 verslunum víðsvegar um landið
hinn 25. febrúar. Farið var í lág-
verðsverslanir, stórmarkaði sem og
klukkubúðir.
Hæsta verðið var oftast að finna í
10-11 á Akureyri eða í meira en
helmingi tilvika. Verðmunurinn á
hæsta og lægsta verði vöru í könn-
uninni var frá 9% upp í 218% en oft-
ast var hann 25-75%. ASÍ segir að
af þeim vörum sem Samkaup-Úrval
á Selfossi átti til hafi í um 10% til-
vika umbeðin vara verið óverð-
merkt, sem sé óviðunandi fyrir
neytendur.
Af 83 vörutegundum sem voru
skoðaðar voru flestar fáanlegar hjá
Fjarðarkaupum Hafnarfirði og
Hagkaupum Kringlunni eða 82 af
83, Krónan Granda átti til 79 og
Iceland 78. Fæstar vörurnar voru
fáanlegar hjá Samkaupum-Strax
eða 51 af 83 og 10-11 átti til 52. Af
þessum 52 vörum sem 10-11 áttu til
voru þeir dýrastir í 46 tilvikum.
Mestur verðmunur í könnuninni
var á appelsínum sem voru dýrastar
á 499 krónur hjá 10-11 en ódýrastar
á 157 krónur hjá Nettó og Kaskó
sem er 342 króna verðmunur eða
218%.
Nánari upplýsingar um könn-
unina eru á vef ASÍ, asi.is.
Allt að 218% verðmunur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mismunandi verð Mestur verðmunur var á ávöxtum eða 70-218%.
Lægsta verðið oftast í Bónus í Reykjanesbæ en hæsta í 10-11
á Akureyri Úrvalið mest í Fjarðarkaupum og Hagkaupum
Alþingismenn
munu lesa Pass-
íusálmana í Graf-
arvogskirkju í
Reykjavík á föst-
unni eins og þeir
hafa gert undan-
farin 12 ár.
Fyrsti lestur er
ávallt á öskudag
kl. 18 og síðan eru
sálmarnir fluttir
alla virka daga fram að skírdegi. Að
þessu sinni les Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra fyrsta sálminn á
morgun, miðvikudag, Upp upp mín
sál og allt mitt geð. Passíusálmalest-
urinn ber yfirskriftina „Á leiðinni
heim“ sem býður fólki að koma við í
kirkjunni sinni á leið heim úr vinnu.
Í tilkynningu frá Grafarvogs-
kirkju kemur fram að í ár eru 400 ár
liðin frá fæðingu Hallgríms Péturs-
sonar en hann fæddist árið 1614. Um
páskana mun Megas ásamt nokkr-
um kórum og hljómsveit fytja alla
sálmana á þremur tónleikakvöldum í
Grafarvogskirkju, síðustu tónleik-
arnir verða á föstudaginn langa.
Sjálfur fagnar Megas 70 ára afmæli
sínu í ár. Tónleikarnir verða allir
teknir upp af Sjónvarpinu.
Þingmenn
lesa Passíu-
sálmana
Bjarni Benedikts-
son les fyrstur.