Morgunblaðið - 04.03.2014, Side 38
fyrir leik sinn í Dallas Buyers Club
og Cate Blanchett fyrir Blue Jasm-
ine og voru vel að þeim komin líkt og
leikararnir sem hlutu styttur fyrir
aukahlutverk, Jared Leto fyrir Dall-
as Buyers Club og Lupita Nyong’o
fyrir 12 Years a Slave. Það sem kom
hins vegar nokkuð á óvart var að
kvikmyndirnar American Hustle og
The Wolf of Wall Street skyldu eng-
in verðlaun fá, í ljósi fjölda tilnefn-
inga. Sú fyrrnefnda var tilnefnd til
tíu verðlauna og sú síðarnefnda til
fimm. Besta erlenda myndin var
valin La Grande Bellezza eftir
ítalska leikstjórann Paolo Sorr-
entino og teiknimyndin Frozen
hlaut tvenn verðlaun, sem besta
teiknimyndin í fullri lengd og
fyrir besta frumsamda lagið,
„Let it Go“, í flutningi Idinu
Menzel. The Great Gatsby eft-
ir leikstjórann Baz Luhrmann,
hlaut einnig tvenn verðlaun,
fyrir búningahönnun og útlits-
hönnun. Í flokki heimildar-
mynda varð 20 Feet from Star-
dom, eftir Morgan Neville,
hlutskörpust.
Heildarlista yfir Óskars-
verðlaunahafa má finna á vef
verðlaunanna, oscar.go.com.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Virtustu kvikmyndaverðlaun heims,
Óskarsverðlaunin, voru afhent í 86.
sinn í Los Angeles aðfaranótt mánu-
dags að íslenskum tíma. Það kom lík-
lega fáum kvikmyndaáhugamann-
inum á óvart að 12 Years a Slave,
kvikmynd breska leikstjórans Steve
McQeen, skyldi hljóta verðlaun sem
besta kvikmynd ársins 2013 þar sem
hún hlaut bæði Golden Globe- og
Bafta-verðlaunin í ár. Steve
McQueen hlaut þó ekki verðlaun fyr-
ir bestu leikstjórn heldur Mexíkóinn
Alfonso Quarón fyrir kvikmyndina
Gravity. Quarón er fyrsti suður-
ameríski leikstjórinn sem hlýtur þau
verðlaun og McQueen fyrsti þeldökki
leikstjórinn sem hlýtur Ósk-
arsverðlaun fyrir bestu kvikmynd.
Gravity hlaut flest Óskarsverðlaun í
ár, eða sjö talsins og þá m.a. fyrir
bestu tækni- eða sjónbrellur, kvik-
myndatöku og klippingu. 12 Years a
Slave og Dallas Buyers Club hlutu
næstflest verðlaun, eða þrenn hvor.
Verðlaun fyrir besta leik komu
ekki heldur á óvart, miðað við spár.
Matthew McConaughey hlaut verð-
laun fyrir besta leik í aðalhlutverki,
Þrælamynd best, Gravity með flest
Alfonso Cuarón hlaut Óskarsverðlaun fyrir bestu leikstjórn, fyrstur Suður-Ameríkana
EPA
Best Matthew McConaughey, Cate Blanchett, Lupita Nyong’o og Jared Leto hlutu Óskarsverðlaun fyrir besta leik í
aðal- og aukahlutverkum, McConaughey og Blanchett fyrir aðalhlutverk og Leto og Nyong’o fyrir aukahlutverk.
AFP
Faðmlag Leikstjórinn Steve McQueen og leikarinn Brad Pitt fagna verð-
launum fyrir bestu kvikmynd, 12 Years a Slave, sem Pitt lék í og framleiddi.
Kæti Alfonso
Cuarón með
leikkonunni
Angelinu Jolie.
EPA
Brellumenn Tim Webber, Chris Lawrence, David Shirk og Neil Corbould
tóku við verðlaunum fyrir bestu tæknibrellur, í kvikmyndinni Gravity.
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Eins og sjá má á einni myndanna
hér fyrir ofan var Daði Einarsson,
listrænn stjórnandi fyrirtækisins
RVX, ekki meðal þeirra sem tóku
við Óskarsverðlaunum fyrir tækni-
brellur (e. visual effects) fyrir kvik-
myndina Gravity. Daði vann þó ná-
ið með leikstjóra hennar í um hálft
ár, allt frá því myndin var á hand-
ritsstigi og bar hann starfstitlana
„animation director“ og „pre-
visualisation supervisor“,
sem eru illþýðanlegir á ís-
lensku. Í stuttu máli var
myndin teiknuð í þrívídd í
tölvu út frá handriti og var
nánast fullgerð í því formi
áður en tökur hófust. Daði
fékk það verkefni að stýra öll-
um hreyfingum, sjónar-
hornum kvikmynda-
tökuvélanna og þar
fram eftir götunum.
Reyndist það mikil
áskorun sem fólst
m.a. í því að átta sig á
því hvernig leik-
ararnir hreyfðu sig í
þyngdarleysi úti í
geimnum en myndin
segir af geimförum
sem lenda í hrakförum
þegar þeir eru að gera
við Hubble-sjónauk-
ann. Spurður að því
hvort ekki hefði verið
eðlilegt að hann væri í hópi til-
nefndra til Óskarsins segir Daði
„bæði og“, stór hópur hafi unnið að
verkefninu og hann hafi snúið sér
að öðru eftir sex mánaða vinnu við
myndina. Um það leyti hafi orðið
ákveðin þáttaskil í vinnslunni.
Everest næst á dagskrá
RVX er með stórt verkefni í
vinnslu, næstu kvikmynd Baltas-
ars Kormáks, Everest. Daði er
nýkominn frá Ítalíu þar sem
tökur á myndinni fóru fram
og fer eftir viku til Eng-
lands, í Pinewood-mynd-
verið þar sem innitökur fara
fram. RVX mun útfæra bak-
grunna í þeim atriðum
myndarinnar, færa
tökurnar af sviði
Pinewood yfir á
Everestfjall, búa til
vonskuveður og
annað tilheyrandi.
„Þetta er rosalega
mikil vinna,“ segir
Daði um verkefnið,
það sé afar viða-
mikið og fleiri fyr-
irtæki þurfi að
koma að því en RVX
til að ná settum skila-
fresti. RVX muni
samt sem áður leiða
það.
Var ekki tilnefndur
Daði Einarsson, listrænn stjórnandi
RVX, vann með Cuarón að Gravity
Óskarsverðlaunin 2014