Morgunblaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2014 Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Legur og drifbúnaður Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Yfirvöld í Kírgistan og Kasakstan sögðu í gær að þau hefðu ekki orðið vör við malasísku flugvélina sem hvarf aðfaranótt laugardags 8. mars á leið frá Kuala Lumpur til Peking. Nýjar upplýsingar hafa leitt í ljós að mögulegt er að vélin hafi flogið um lofthelgi Mið-Asíuríkjanna en einnig er talið mögulegt að henni hafi verið flogið yfir Indlandshaf, í átt að Ástralíu. Forsætisráðherra Ástralíu, Tony Abbott, tilkynnti í gær að þarlend stjórnvöld myndu leiða leitina að vélinni á hafsvæðinu við vesturströnd landsins. Þrátt fyrir að margt sé á huldu um afdrif flugs MH370 gefa nýjar upplýsingar skýrari mynd af at- burðarásinni þessa örlagaríku nótt. Vélin tók af stað frá Kuala Lumpur kl. 00.41, með 239 farþega innan- borðs. Hálfri klukkustund síðar sendi samskiptabúnaður vélarinnar, ACARS, frá sér gögn í síðasta sinn en hann safnar m.a. upplýsingum um ástand vélarinnar og athafnir flugmannanna. Klukkan 01.19 kveður áhöfn vél- arinnar flugumferðarstjórn í Malas- íu er hún er við það að fljúga inn í lofthelgi Víetnam. „Allt í lagi, góða nótt“ eru síðustu orðin sem flug- turninn nemur en það var líklega aðstoðarflugstjórinn, Fariq Hamid, sem lét þau falla, að sögn malas- ískra yfirvalda. Rán eða hryðjuverk? Samkvæmt Richard Quest, fréttaritara CNN sem sérhæfir sig í flugmálum, hafa yfirvöld og rann- sakandur ekki upplýst hvort flugstjórnaryfirvöld í Víetnam hafi verið í sambandi við vélina en ljóst er að kl. 01.21 er slökkt á rad- arsvara vélarinnar. Til að slökkva þarf aðeins að ýta á rofa, segir Quest, en frá þeim tíma sér flug- umferðarstjórn aðeins blett á rat- sjám og fær hvorki upplýsingar um hvaða vél er að ræða né á hvaða leið hún er. Í kjölfarið hverfur Boeing 777- 200-vélin af ratsjá flugstjórnaryf- irvalda í Malasíu og kl. 01.37 berst ekki áætluð gagnasending frá AC- ARS-kerfinu, sem bendir til þess að slökkt hafi verið á því milli kl. 01.07 og 01.37. CNN hefur eftir Quest að þetta sé mikilvægt atriði, þar sem það krefjist kunnáttu að slökkva á kerfinu. Þá bæri það vott um út- sjónarsemi ef um rán eða hryðju- verk væri að ræða, þar sem bún- aðurinn sendir upplýsingar um allt sem gert er við vélina. Samkvæmt embættismanni innan malasíska flughersins sást vélin á hernaðarratsjá er hún flaug yfir eyjuna Pulau Perak í Malacca- sundi. Þá var hún komin langt af 1 2 3 Gervihnettir Senda upplýsingar til vélarinnar um staðsetningu gegnum GPS Móttekur gögnin og vinnur úr þeim Flugum- ferðarstjórn Í sérstökum tilfellum er einnig hægt að nálgast gögn frá hernaðarratsjám Flugvélin sendir merki með upplýsingum um staðsetningu, hraða og stefnu til ratsjárstöðvar Í fyrsta lagi: Ratsjár Rekja feril vélarinnar frá jörðu án þess að bera kennsl á hana. Afla upplýsinga um: stefnu drægi staðsetningu Biður vélina um auðkenna sig. Í öðru lagi: Fylgst með farþegaþotum ACARS* Sendir lítil magn gagna frá vél til jarðar með radíófjarskiptum eða um gervihnött *Aircraft Communications Addressing and Reporting System Heimildir: Honeywell, Flightradar24 Atburðarásin skýrist en margt er enn á huldu  Tvö risastór svæði undir í leitinni  Viljandi slökkt á samskiptabúnaði AFP Leitað Alls 26 þjóðríki koma að leitinni að flugi MH370 en hvorki tangur né tetur af flugvélinni hefur fundist síðan hún hvarf fyrir tíu dögum. Barnaheimili í Guangzhou í suður- hluta Kína hefur lokað svokallaðri barnalúgu, úrræði sem gerir for- eldrum kleift að yfirgefa börn sín á öruggum stað án eftirmála, en alls hafa 262 börn verið skilin eftir á heimilinu frá því að lúgan var „opn- uð“ í lok janúar. Framkvæmda- stjóri heimilisins segir það ekki geta tekið við fleiri börnum í bili en þar dvelja nú 1.121 ungbarn og ungt fólk. Önnur 1.274 börn dvelja hjá fósturfjölskyldum á svæðinu. Fylgjendur úrræðisins segja það bjarga mannslífum en gagnrýn- endur vilja meina að það leiði til þess að fleiri foreldrar yfirgefa börnin sín. Alls hafa 25 barnalúgur verið opnaðar í 10 héruðum í Kína en undir kínverskum lögum verða flestir foreldr- ara að gera sér að góðu að eignast eitt barn. Þá eru heilbrigðir drengir efst á óskalista flestra foreldra en öll börnin sem skilin voru eftir á barnaheimilinu í Guangzhou reynd- ust þjást af einhverjum sjúkdómi, s.s. heilalömun eða meðfæddum hjartagalla. KÍNA Loka vegna fjölda yfirgefinna barna Stelpur eru ekki efst á óskalistanum. Samkvæmt gögnum sem breski fjölmiðill- inn Guardian hefur undir höndum voru 4.638 börn á aldrinum 10-16 ára beðin um að afklæðast áður en leitað var á þeim af Lund- únalögreglunni frá apríl 2008 fram til ársloka 2013. Í yfir þriðjungi til- fella var viðkomandi sleppt í kjöl- farið og engin ákæra gefin út. Í Bretlandi er lögreglu heimilt að framkvæmda svokallaða „strip search“ ef grunur leikur á um að einstaklingur feli á sér vopn eða hörð fíkniefni á borð við heróín eða kókaín. Leitina má aðeins framkvæma á einstaklingum sem hafa verið handteknir og verður hún að fara fram í fangaklefa eða á varðhaldsstofnun. Julian Huppert, þingmaður Frjálslyndra demókrata, segir töl- urnar vekja áhyggjur en hann lagði til á sínum tíma að lögreglu yrði eingöngu heimilt að leita á börnum með þessum hætti ef full- orðinn einstaklingur, sem væri ekki lögregluþjónn, væri við- staddur. BRETLAND 4.638 börn látin afklæðast fyrir leit LÍBÍA Bandaríkjamenn til bjargar Líbíustjórn AFP Úrvalssveitir bandaríska sjóhersins tóku í gær yfir olíuflutningaskipið Morning Glory á alþjóðlegu haf- svæði suðaustur af Kýpur. Fregnir herma að skipið hafi verið hlaðið 234.000 tunnum af hráolíu þegar það komst framhjá líbískum her- skipum utan við höfnina í Al-Sidra í síðustu viku. Höfnin er á valdi uppreisnar- manna sem hafa farið fram á að- skilnað austurhéraðsins Cyrenaica en úrræðaleysi líbískra yfirvalda í málinu þykir endurspegla veikleika stjórnvalda, sem hafa átt fullt í fangi með vopnaða uppreisnar- menn síðustu misseri. Bandarískir vísindamenn sögðu frá því í gær að þeir hefðu numið enduróm Miklahvells fyrir 14 millj- örðum ára. „Fyrsta beina sönnun útþenslu alheimsins“ fannst með hjálp stjörnusjónauka á suð- urpólnum og var kynnt af vís- indamönnum við Harvard- Smithsonian-miðstöðina í stjarneðl- isfræði. Sjónaukanum var beint að svæði utan sólkerfisins þar sem lítið er af ryki og öðru sem birgir mönn- um sýn en smáar sveiflur í bak- grunninum, leifar af Miklahvelli, gefa vísindamönnum nýjar vísbend- ingar um aðstæður við upphaf al- heimsins. BANDARÍKIN Nýjar vísbendingar um upphaf heimsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.