Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys tá n fy rir va ra . Frá kr. 105.200 Pella Steve I m/bókunarafslætti Netverð á mann frá kr. 105.200 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/2 svefnherbergjum. Netverð á mann frá kr. 116.700 m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð. 15. sept í 10 nætur. Krít Seiðandi stemning Allt að20.000 kr.bókunarafsláttur síðasti dagur afslátts í dag, valdir gististaðir, valdar dagsetningar. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 2.000 íbúðir eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir, sem er langt undir því sem markaðurinn þarf. Þetta er mat Samtaka iðnaðarins sem hafa tekið saman fjölda íbúða í byggingu. Kom þá fram að 1.103 íbúðir, í flokknum frá sökklum að fokheldi, eru í smíð- um. Í hinum flokknum sem spannar stigið frá fokheldi að fullbúinni eign, var 891 íbúð. „Markaðurinn kallar á aukið framboð húsnæðis, viðmiðið er að á ári hverju þurfi 1.500-1.800 nýjar íbúðir,“ sagði Jón Bjarni Gunnarsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri SI, í samtali við Morgunblaðið í gær. Leiguverð í hæstu hæðum Segja má að allar framkvæmdir hafi stöðvast í hruninu – og hafa þær farið hægt af stað aftur. Því er mikil uppsöfnuð þörf eftir fleiri íbúðum, sérstaklega litlum sem henta fyrstu kaupendum. Þetta hef- ur orðið til þess að leiguverð er í hæstu hæðum. Það viðmið gildir að 18 til 24 mán- uði tekur að reisa nýtt fjölbýlishús. Sé miðað við stöðuna nú þegar 2.000 íbúðir séu á framkvæmdastigi, segir Jón Bjarni, þá þyrfti 1.000 í viðbót. „Það jákvæða sem kom út úr taln- ingu nú er að framleiðsla á íbúða- húsnæði er meiri en var í síðustu könnun, sem við gerðum í ágúst í fyrra. Samt vantar meira.“ Seldist á sólarhring Í umræðum um húsnæðismál að undanförnu hefur komið fram að mikil þörf sé á litlum og ódýrum íbúðum sem hentað gætu til dæmis hinum efnaminni og þeim sem eru að kaupa sína fyrstu eign. Er bent á að nýlega hafi 25 íbúðir í nýju fjölbýlishúsi á Völlunum í Hafnarfirði verið auglýstar og seldust þær allar á einum sólar- hring. Þetta voru um það bil 70 fermetra íbúðir sem kostuðu um 20 millj. kr. Eru það einmitt slíkar eignir sem markaðurinn kallar á nú í dag. 1.000 íbúðir þarf í viðbót  Samtök iðnaðarins telja á höfuðborgarsvæðinu  Um 2.000 íbúðir í smíðum  Markaðurinn vill meira  Uppsöfnuð þörf  Lítið og ódýrt er eftirsótt í dag Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdir Verktakar byggja íbúðarhúsnæði nú á nýjan leik. Meira vantar samt, sérstaklega litlar íbúðir á verði sem er efnaminna fólki viðráðanlegt. Húsin á höfuðborgarsvæðinu Staða byggingarframkvæmda í sjö sveitarfélögum Heimild: Samtök iðnaðarins Fokhelt og lengra komið 4 herb. 5 herb. 6 herb. 7 herb. Samtals Mosfellsbær 0 18 15 0 33 Reykjavík 11 80 42 18 151 Seltjarnarnes 31 0 0 0 31 Kópavogur 166 60 6 18 250 Álftanes 0 0 0 0 0 Garðabær 18 0 32 3 53 Hafnarfjörður 16 32 51 44 143 Samtals 242 190 146 83 661 Að fokheldu 2 herb. 3 herb Samtals Mosfellsbær 0 0 0 Reykjavík 94 268 362 Seltjarnarnes 0 4 4 Kópavogur 27 246 273 Álftanes 0 0 0 Garðabær 14 230 244 Hafnarfjörður 20 147 167 samtals 155 895 1050 Strandveiði- tímabilið hófst á miðnætti í nótt. Sam- kvæmt upplýs- ingum frá stjórnstöð Landhelg- isgæslunnar mátti búast við mikilli ásókn, miðað við reynsluna síðustu ár, þó að færri hafi sótt um strandveiðileyfi í ár en í fyrra. Landhelgisgæslan væri því reiðubúin fyrir strandveiðarnar og tilbúin til þess að aðstoða alla sem þyrftu á því að halda. sgs@mbl.is Má búast við mikilli ásókn í strandveiðar Jarðskjálftahrina við Herðubreið- artögl, sunnan Herðubreiðar, heldur áfram. Stærsti skjálftinn varð um klukkan hálftvö í fyrrinótt, 3,9 stig. Skjálftinn fannst á Akureyri. Síðustu tvo daga hafa um sjö- hundruð skjálftar mælst undir Herðubreiðartöglum. Þeir stærstu, utan skjálftans í fyrrinótt, urðu á laugardag, 3,3 og 3,5 stig. Veðurstofan taldi í gær líklegt að nokkuð yrði um smáskjálfta á næstu dögum. Jarðskjálftar yfir þrjú stig að stærð voru einnig taldir líklegir. Tekið var fram að engin mælanleg merki væru um að hrinan myndi leiða til eldgoss. Skjálftahrina við Herðubreið Kort af vef Veðurstofu Íslands „Núna þegar kosningar nálgast og mikið er rætt um húsnæðis- mál ættu frambjóðendur að bregaðst við, því sveitarstjórnir geta svarað þessu með lækkun lóðaverðs og breytingu á sam- setningu þess,“ segir Jón Bjarni Gunnarsson. „Margar af þeim eignum sem eru í byggingu núna eru stórar og dýrar – því lóðaverðið er nánast það sama hvort sem íbúðin er lítil eða stór. Það skapar þann hvata að stjórnendur fyrirtækja byggja frekar dýrari eignir, til að skapa meiri framlegð, á meðan hrópandi þörf er fyrir litlar íbúðir á hóf- legu verði. Ég sé heldur ekki að sjónarmið um þéttingu byggðar svari þessu, því þar eru undir gróin hverfi þar sem eignaverð er fyrir nokkuð hátt.“ Hvati fyrir dýrar eignir HÁTT LÓÐAVERÐ VANDI Jón Bjarni Gunnarsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mb.is Hrunamannahreppur og eigendur jarðarinnar Jaðars þar í sveit fengu á dögunum 1,4 millj. kr. styrk úr Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða til umhverfisbóta á aust- urbakka Hvítár, það er svæðinu sem liggur að Gullfossi. Þegar farið er upp frá Tungufelli, sem er efsti bær í Hrunamannahreppi, tekur við afréttarvegur. Frá veg- inum liggja troðningar að árbakkanum. Fjöldi ferða- manna, sem sjá vilja fossinn frá nýju sjónarhorni, fer gangandi um þetta svæði á hverju ári, sem skapar álag á viðkvæman gróður þar. Framkvæmdir hefjast í sumar Að sögn Jóns G. Valgeirssonar, sveitarstjóra Hruna- mannahrepps, hafa verið lagðar línur um skipulag þessa svæðis. Leggja þurfi markaða göngustíga og fleira og hefjist framkvæmdir í sumar. Úr áðurnefndum sjóði fengu svonefndir Kerlingar- fjallavinir 1,7 millj. kr. styrk. Nota á peninganna til góðra verkefna í Kerlingarfjöllum. Þau innan marka Hruna- mannahrepps og því kemur sveitarfélagið að málum þar. Jón G. Valgeirsson telur líklegt að fjallasalur þessi komi til með að verða heitur reitur í framtíðinni, enda ægifag- ur. Svipi að sumu leyti til Landmannalauga og Friðlands- ins að fjallabaki, sem sé eitt vinsælasta ferðamannasvæði landsins. Ætla að greiða leiðina að Gullfossi frá eystri bakka Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gullfoss Fallegur frá öðru sjónarhorni af austurbakka.  Framkvæmdasjóður leggur lið  Kerlingafjöll á dagskrá Vélhjólamanninum sem var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann í Fossvogi fyrir tæpri viku er enn haldið sofandi í öndunarvél. Líðan hans er stöðug, að sögn læknis á gjörgæsludeild. Maðurinn lenti ut- an vegar í Kömbunum fyrir ofan Hveragerði aðfaranótt sunnudags fyrir rúmri viku, en talið er að hann hafi misst stjórn á hjólinu. Haldið sofandi í öndunarvél

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.