Morgunblaðið - 05.05.2014, Side 6

Morgunblaðið - 05.05.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins. Krefst Vinnslustöðin þess að sérstaka veiðigjaldið, sem lagt var á fyrirtækið á fiskveiðiárinu 2012-2013 með lögum nr. 74/2012, verði endurgreitt, en fjár- hæð þess var um 516 milljónir króna. Málsóknin nær ekki til almenna veiðigjaldsins. Telur Vinnslustöðin að gjaldið brjóti meðal ann- ars í bága við eignarréttarákvæði stjórnarskrár og að hátt skatthlutfall feli í sér í reynd upptöku eigna. Ragnar H. Hall, hæstaréttarlögmaður, flyt- Krefjast endurgreiðslu veiðigjaldsins  Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum stefnir fjármálaráðherra  Segja sérstaka veiðigjaldið jafngilda eignaupptöku  Mismunun byggð inn í útreikninginn ur málið fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar. Hann segir að ákveðið hafi verið að sækja málið, þar sem menn teldu að með álagningunni væri gengið út fyrir mörk löglegrar skattheimtu. Ragnar segir ljóst að sérstaka veiðigjaldið sé verulega íþyngj- andi fyrir fyrirtæki. Ragnar bendir á í því sam- hengi að skattstofninn í þessum gjöldum hafi verið 65% af útreiknuðum gjaldstofni. „Þegar þetta er reiknað út frá rekstrarárinu 2010, þá er þegar búið að greiða af þeirri afkomu tekjuskatt samkvæmt tekjuskattslögum. Sérstaka veiðigjaldið bætist svo við, þó að það sé ekki lagt á fyrr en 2-3 árum seinna. Þetta gjald leggst við al- menna veiðigjaldið, sem er tæpar 200 milljónir. Þetta er gríðarleg skattheimta hjá einu fyrirtæki.“ Ragnar bendir einnig á að mismunun sé nánast innbyggð í útreikninginn. „Þetta gjald er lagt á með þeim hætti, að það eru fjölmargir aðilar sem sleppa við að borga það, vegna aðstæðna hjá þeim,“ segir Ragnar. „Það þýðir að þegar ríkið er búið að ákveða að það ætli sér að ná svo og svo mörgum milljörðum út úr skattheimtunni þá verður að taka meira af þeim sem geta borgað. Það er mikil mismunun byggð inn í kerfið, þegar menn horfa til þess að verið sé að borga fyrir afnot af hinni sameiginlegu auðlind. Sumir borga ekkert, en hinir eru þá bara látnir borga meira.“ Rök Vinnslustöðvarinnar » Sérstaka veiðigjaldið er í eðli sínu skattur til ríkisins en ekki gjald fyrir auðlind. » Rekstrarafkoma fyrirtækis eins og Vinnslustöðvarinnar er nánast þjóðnýtt með háu skatthlutfalli. » Regluverkið sé flókið, erfitt viðfangs og ógegnsætt. » Greiðendur hafa engin tök á að sannreyna hvort forsendur gjaldsins standist. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Allur búnaður sem við notum þarfn- ast nærgætni og nákvæmni í með- höndlun. Reiðbeisli og annar búnað- ur getur meitt ef ekki er haldið rétt á,“ segir Sigurbjörn Bárðarson hestamaður. Hann er ekki fylgjandi banni við tilteknum búnaði en vill þess í stað auka eftirlit með hestum í keppni og herða viðurlög ef notaður er búnaður sem veldur áverkum. Félag tamningamanna styður ekki tillögur stjórnar Landssam- bands hestamannafélaga, dýralækn- is hrossasjúkdóma og yfirdýralækn- is um að banna notkun á stangarmélum með tunguboga. Rannsókn Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma, á gögn- um sem safnað var á Landsmóti hestamanna 2012, bendir til að þessi mél valdi algengum áverkum á kjálk- um hrossanna. Ekki dæmdir úr leik Áverkarnir komu fram við skoðun fyrir úrslitakeppi, ekki síst í tölti. Hestarnir voru ekki dæmdir úr leik. Sigurbjörn segir að áverkar bendi til að reiðmenn hafi ofnotað búnaðinn. „Mér finnst að þeir sem fara yfir strikið eigi að taka út sína refsingu. Kannski hefur ekki verið gengið nógu langt í því að dæma menn úr keppni í stórmótum þar sem komið hefur í ljós að búnaður á þátt í að hesturinn hefur meiðst.“ Sigurbjörn og Súsanna Sand Ólafsdóttir, formaður Félags tamn- ingamanna, taka fram að ekki sé hægt að réttlæta það að búnaður sé notaður þannig að hann meiði hesta. Súsanna segir að Félag tamninga- manna vilji að tamningamenn og þjálfarar beri fulla ábyrgð á heil- brigði hrossa sinna og noti ekki bún- að eða aðferðir sem meiði hesta. Telur hún að ef reglum sem banna áverka á hestum í keppni og sýning- um verði fylgt fast eftir muni knapar gæta sín betur og ekki nota búnað sem hætta sé á að valdi meiðslum. Hestamenn myndu sjálfkrafa velja búnað og aðferðir sem ekki meiði hestana. Ljóður á okkar ráði Sigurbjörn segir að ef það dugi ekki að skerpa á reglum og dæma meidd hross úr leik ættu hestamenn að sjá sóma sinn í því að setja reglur sem tilgreini hvaða búnað er leyfi- legt að nota. „Það er ljóður á okkar ráði að hafa ekki komið þessu fyrr í farveg og yrði heldur snautlegt ef stjórnvöld settu á okkur bann.“ Refsa á þeim knöpum sem fara yfir strikið  Tamningamenn styðja ekki tillögur um bann við búnaði Morgunblaðið/Kristinn Sýning Landsmót hestamanna verður haldið á Hellu í sumar. Óvíst er hvort þá verður búið að banna mélin um- deildu sem talin eru valda áverkum á kjálkabeini keppnis- og sýningarhrossa. Stærsti einstaki eigandi jarð- arinnar Fells kannast ekki við áform verktakafyrirtækisins Þing- vangs um uppbyggingu þjónustu- miðstöðvar við Jökulsárlón. Lög- maður hans segir að engin uppbygging verði á svæðinu nema með afdráttarlausu samþykki allra eigenda. Sameigendafélag jarðarinnar Fells og verktakafyrirtækið Þing- vangur kynntu fyrir helgi áform um uppbyggingu þjónustu- miðstöðvar við Jökulsárlón, í sam- ræmi við nýsamþykkt skipulag svæðisins. Sagt var frá áformunum í Morgunblaðinu í fyrradag. Fram kom að beðið væri eftir fram- kvæmdaleyfi sveitarfélagsins Hornafjarðar. Kannast ekki við áformin Ekki er eining meðal eigenda jarðarinnar um þessi áform. 31 eig- andi er að jörðinni sem er í óskiptri sameign og ekki eiga allir aðild að Sameigendafélaginu. Einar Björn Einarsson sem rekur ferðaþjón- ustuna Jökulsárlón er jafnframt stærsti einstaki eigandi jarðarinnar og heldur á tæplega fjórðungshlut. Hann á ekki aðild að félaginu. Sigríður Andersen, lögmaður hans, segir að hann kannist ekki við þessi tilteknu uppbyggingaráform og honum hafi hvorki verið kynntur samningur við Þingvang né útlits- teikningar sem nú hafa verið birtar. „Engin uppbygging verður á svæðinu nema með afdráttarlausu samþykki allra eigenda og er úti- lokað að sveitarfélagið veiti fram- kvæmdaleyfi nema slíkt samþykki liggi fyrir,“ segir Sigríður. Einar Björn hefur sjálfur kynnt Sameigendafélaginu og sveitarfé- laginu áform um uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu. Vilja rifta samningum Einar hefur rekið ferðaþjónustu við Jökulsárlón í fjórtán ár og býð- ur meðal annars upp á siglingar með hjólabátum á lóninu. Samn- ingar hans við jarðeigendur gildir til ársins 2025. Sameigendafélag jarðarinnar Fells hefur lýst yfir riftun samninga. Sigríður telur engin efni standa til þess og segir að málið sé nú rekið fyrir dóm- stólum. Allt að einu verði jörðinni ekki ráðstafað nema með samþykki allra eigenda. helgi@mbl.is Ekkert byggt nema allir eig- endur samþykki Morgunblaðið/Ómar Jökulsárlón Siglt með ferðafólk um lónið. Talið er að 250 þúsund manns komi að lóninu á hverju ári og fer straumurinn vaxandi.  Málaferli vegna riftunar samninga um ferðaþjónustu við Jökulsárlón Stjórn Félags tamningamanna telur ekki ástæðu til að banna stangamél með tunguboga. Stjórnin endur- birtir hins vegar ályktun sem hún gerði á árinu 2012 þegar fyrir lágu upplýsingar um áverka á hrossum eftir keppnir og sýningar á stór- mótum þess árs. Ályktunin hljóðar svo: „Sam- kvæmt dýraverndarlögum og keppnisreglum skulu hross sem koma til keppni og sýninga vera ósár. Félag tamningamanna hvetur alla þá sem stýra reglusetningum er varða keppni og sýningar hrossa til að samræma áverkaskoðanir og sjá til þess að hross séu skoðuð bæði fyrir og eftir keppni/sýningu. Hross sem skoðast með áverka fyr- ir keppni/sýningu fái ekki að taka þátt og hross sem skoðast með áverka að keppni/sýningu lokinni hljóti ekki einkunn eða verðlaun. Félag tamningamanna vill minna á þá staðreynd að það er og verður alltaf knapinn sem er ábyrgur fyrir heilbrigði hestsins. Boð og bönn eru ekki til þess fallin að vinna á rótum vandans. Félag tamninga- manna vill hvetja til upplýstrar um- ræðu og auka fræðslu og forvarnir um áverka almennt. Auk þess þarf að endurskoða allar hliðar móta og sýningahalds t.d. keppnis- og sýn- ingafyrirkomulag, umgjörð (velli), dómstörf o.s.frv. Grundvallaratriðið er heill hestur inn og heill hestur út!“ Heill hestur inn, heill hestur út FÉLAG TAMNINGAMANNA ÁLYKTAR UM ÁVERKA Umferð um hringveginn var rúm- lega 12% meiri í aprílmánuði en í sama mánuði á síðasta ári. Er það meiri aukning en áður hefur sést í þessum mánuði. Aukningin kemur Vegagerðinni þó ekki á óvart. Hún skýrist að einhverju leyti af færslu páska á milli mánaða. Mest eykst umferðin um Norður- og Austur- land eða um rétt rúm 30%, en minnst í grennd við höfuðborg- arsvæðið eða um rúm 6%. Umferð um hringveginn eykst um 12% Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skíði Margir fóru til Akureyrar um páska.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.