Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
Tweeter ein nýjung frá
Ármúla 24 • S: 585 2800
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
84% tilvika flokkast sem gróft
eða mjög gróft kynferðislegt
ofbeldi.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
H
a
u
ku
r
1
.1
4
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Stór og rótgróin heildverslun með tæknivörur fyrir sjávarútveg.•
Ársvelta 860 mkr.
Öflug heildverslun með leikföng og gjafavörur. Góð umboð.•
Ársvelta um 120 mkr.
Stór og mjög vinsæll skemmtistaður í miðbænum.•
Stór og þekkt bílaþjónusta og verkstæði á góðum stað.•
Vel tækjum búið. Ársvelta 150 mkr.
Heildverslun með sérhæfðar byggingavörur. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki,•
en eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta
síðustu árin um 300 mkr. og góð framlegð.
Glæsilegt hótel.sem er vel staðsett í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík.•
Hagstæð áhvílandi lán. EBITDA 60 mkr. og ört vaxandi.
Lítið en vel tækjum búið trésmíðaverkstæði sem sérhæfir sig í gluggum•
og hurðum.
Heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði (non-food). Ársvelta 100 mkr.•
Góð EBITDA. Hentar vel sem viðbót hjá heildverslun með svipaðar vörur.
Vel þekkt innflutningsfyrirtæki með fæðubótarefni.•
Rótgróin heildverslun með vinsælar vörur fyrir konur, sem seldar eru í•
verslunum um land allt. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 50 mkr.
Rógróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði sem annast m.a. steinslípun í•
nýbyggingum. Góð verkefnastaða og ágætur hagnaður. Tilvalið tækifæri
fyrir duglegan mann með verkstjórnarhæfileika að fara í eigin rekstur.
Þrír starfsmenn auk eiganda. Auðveld kaup.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Samfélagsmiðlar geta nýst okkur
mjög vel í leitarstarfi, þar sem miðl-
un upplýsinga og skilaboð frá al-
menningi skipta
öllu. Hins vegar
þarf að sýna að-
gát þegar eitt-
hvað er gert að
frásagnarefni,“
segir Ólöf Snæ-
hólm Bald-
ursdóttir, upplýs-
ingafulltrúi
Slysavarna-
félagsins Lands-
bjargar.
Á formannafundi SL sem haldinn
var vestur í Stykkishólmi um sl.
helgi var notkun samfélagsmiðla á
netinu í brennidepli.
Að sögn Ólafar eru flestar þeirra
100 björgunarsveita sem starfa inn-
an vébanda SL með vefsíður og á
sýnilegum félagsmiðlum eins og
Facebook. Reynslan af því er í
meginatriðum mjög góð.
„Okkur er mjög þýðingarmikið að
vera sýnileg. Hins vegar hafa komið
upp nokkur dæmi sem skoða þarf
betur,“ segir Ólöf. Nefnir þar sem
dæmi að eitt sinn hafi verið sagt að
björgunarsveitarbíl hefði verið ekið
utan vegar – sem ýmsum sem lásu
þótti hið versta mál. Staðreyndin í
því máli var hins vegar sú að fara
hefði þurft út af markaðri braut til
þess að ná smábíl upp úr hálendisá. Í
öðru tilviki fóru í loftið myndir af bíl
sem var fastur í skafli og björg-
unarsveitarmenn losuðu. Þar sást
númer bílsins, sem þótti miður.
„Fólk á að geta leitað til okkar án
þess að hátt fari hver sé á ferð. Það
er mikilvægt atriði sem snýr að
grunngildum starfs okkar. Þau mál
sem ég nefni, þar sem óheppilegar
upplýsingar fóru í loftið, hafa ekki
haft nein eftirköst, en við getum
samt lært af þeim,“ útskýrir Ólöf.
Samráð við lögreglu
Ólöf leggur áherslu á að miðlun
upplýsinga við leitar- og björgunar-
aðgerðir sé eftir ákveðnum starfs-
reglum og oft í samráði við lögreglu.
Þeim verði að fylgja. Umræðan um
þetta á formannafundinum hafi ann-
ars verið gagnleg og upplýsandi og
áhugverð sjónarmið komið þar fram.
Farið sé varlega á félagsmiðlum
Björgunarsveitarfólk ræðir reynslu af Facebook Upplýsingum sé miðlað með
aðgát Fólk geti leitað aðstoðar án þess að hátt fari Bílnúmerin sjáist ekki
Ólöf Snæhólm
Baldursdóttir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Æfing Björgunarsveitarfólk sinnir fjölbreyttum verkefnum og margt þarf
að athuga, svo sem hvernig og hvort sagt sé frá ýmsu því sem sinna þarf.
Tveir skiptu með
sér sjöföldum
lottópotti í út-
drætti sl. laug-
ardagskvöld og
fær hvor rúmlega
42 milljónir í
vinning. Annar
vinningsmiðinn
var keyptur hjá Olís, Norð-
lingabraut 7 í Reykjavík, og hinn í
Ísgrilli, Bústaðavegi 130, Reykjavík.
Tveir voru með bónusvinninginn
og hlaut hvor þeirra 541.410 kr. Sex
voru með fjórar réttar tölur í réttri
röð í Jókernum og fengu þeir
100.000 kr. í vinning.
Tveir skiptu með sér
stóra vinningnum
„Þetta sannar það sem ég er að
segja. Verkið er fullkomnað með því
að það er eyðilagt,“ segir Sara
Björnsdóttir myndlistarmaður.
Listaverk hennar í Skúrnum á
Klambratúni var eyðilagt í fyrradag.
Listaverkið er eftirprentun af
Mónu Lísu og pæling listakonunnar
um tilveru listapersóna eins og
hennar sjálfrar og það sem hún kall-
ar menningartregðu í samfélaginu.
Skúrinn sjálfur er hluti af verkinu.
Sýningin var sett upp 1. maí. Þá
þegar hafði verið brotin rúða í
glugga Skúrsins. Myndin fékk að
vera í friði í tvo til þrjá daga en var
stolið í fyrradag. Með því að taka
myndina er verkið í heild eyðilagt.
Sýningunni var lokað tímabundið í
kjölfarið og málið kært til lögregl-
unnar. helgi@mbl.is
Verkið full-
komnað
Ljósmynd/Finnur Arnar
Opnunardagur Rúða í Skúrnum var brotin daginn fyrir opnun sýningar
Söru Björnsdóttur, Nono Lisa, og myndinni stolið nokkru síðar.