Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rangárþing Meðal staða sem segir frá eru hinar fornu og frægu Landréttir, þar sem fé var dregið í dilka um aldir. Hvers konar ævintýraferðir eru orðnar mjög áberandi í ferða- sporti landsmanna, það er ögrun og áhugi á því að leggja í bröttustu brekkurnar. Af því leiðir sú spurn- ing hvort fólk velti síður fyrir sér náttúrunni og sögu landsins á ferð- um um landið. Á þessu er sjálfsagt allur gangur og Páll segir val sitt á áfangastöðum að einhverju leyti helgast af sínum eigin áhugamálum. „Mér finnst náttúran oftast heillandi í sjálfu sér en þegar ein- hver áhugaverð saga af mannlegum örlögum fylgir með breytir það upplifun ferðalangsins. Þú tiltekur dæmi í spurningu um sprungu í Að- aldalshrauni, sem Steingrímur Baldvinsson kennari og sveit- arskáld féll niður í árið 1946 og þurfti að dúsa þar matarlaus í nokkuð á þriðja sólarhring, uns hann fannst af sveitungum sínum. Ég þekki til í Aðaldal og á vini þar sem hafa oft sagt mér þessa sögu og sýndu mér holuna. Mér fannst þetta ágæt tilraun til þess að reyna að gera holu í jörðina að áhugaverð- um áfangastað. Hvort það tekst veit ég ekki,“ segir Páll og heldur áfram: Hver einn bær á sína sögu „Ég reyndi eftir megni að hafa nokkuð jafna dreifingu áfangastaða um land allt því hver einn bær á sína sögu, sigurstund og rauna- bögu, eins og einhvers staðar er sagt. Athugull lesandi sér þó að hlutfall áfangastaða á Vestfjörðum er eflaust hærra á einhvern mæli- kvarða en það ætti með réttu að vera. Það skýrist af því að ég er runninn upp vestur í Djúpi. Þar sleit ég mörgum pörum af hvítbotn- uðum gúmmískóm áður en ég villt- ist út í heiminn en þar eru mínar rætur og allir mínir uppáhalds- staðir eru á Vestfjörðum. Þar er mitt draumaland og þangað leita ég í vöku og draumi.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 Íslandsmeistarakeppnin í blóma- skreytingum fór fram í sjöunda sinn á sumardaginn fyrsta. Garðyrkjuskólinn í Hveragerði stendur fyrir keppninni. Í ár kepptu eingöngu faglærðir blómaskreytar og bar Valgerður Jóndís Guðjóns- dóttir sigur úr býtum. Valgerður hefur starfað við blómaskreytingar í 20 ár en hún útskrifaðist úr Garð- yrkjuskólanum í Hveragerði árið 1998. Hún vinnur í verslun Blóma- vals í Skútuvogi eins og keppand- inn sem hafnaði í þriðja sætinu, Jón Þröstur Ólafsson, sem varð Ís- landsmeistari árið 2010. Keppnin gekk þannig fyrir sig að keppendur voru beðnir að útbúa tvær skreytingar með ólíku þema. Annars vegar var það þemað „án upphafs og endis“ og hins vegar „sumardagurinn fyrsti“. Keppendur fengu að vita hvert fyrra þemað var með nokkrum fyrirvara en greint var frá seinna þemanu rétt áður en keppendur hófust handa. Valgerður hefur áður tekið þátt í keppninni og var að vonum sæl með titilinn sem hún segir vera mikla viðurkenningu á starfi sínu sem blómaskreytir. Blómaskreytinganámið í Garð- yrkjuskólanum hefur notið nokk- urra vinsælda en þar læra nem- endur að þekkja og vinna með algengustu stílbrigði blómaskreyt- inga og flest er viðkemur meðferð og notkun blóma í skreytingum, form, litafræði, útstillingar og með- höndlun helstu garðplantna. Námið fer fram á Reykjum í Ölfusi og er til þriggja ára. Nánari upplýsingar um námið er að finna á vef Landbúnað- arháskóla Íslands en blómaskreyt- ingabrautin heldur úti facebooksíðu þar sem hægt er að skoða fjölda mynda frá Íslandsmeistaramótinu. Keppt var í blómaskreytingum á sumardaginn fyrsta Ljósmynd/Spessi Blómaskreytar Valgerður og Jón Þröstur við verk sín að móti loknu. Valgerður er Íslandsmeistari Í heilsupistli Heiðdísar Sigurðar- dóttur sálfræðings sl. mánudag um átraskanir misritaðist þar sem tal- að var um aukna matarfíkn, en þar átti að standa að viðkomandi yrði meira upptekin af mat. Fíkn átti alls ekki við í því samhengi sem þarna var skrifað um. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mis- tökum. Leiðrétting Vegna heilsupistils um átraskanir Margir sem fara um landið æja við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. En það getur verið ekki síður áhugavert að koma að Fjallsárlóni sem er lítið eitt vestar á sandinum. Niður að lóninu falla Fjallsárjökull og Hrútárjökull, þar sem ís brotnar reglulega svo verða jakar, spangir og dreifar úti á lóninu. „Þar koma fáir og sá sem heim- sækir Fjallsárlón snemma dags í kyrru veðri heyrir auðveldlega gnesta og braka í jöklinum sem skríður fram með nokkurra milli- metra hraða á dag. Sé maður heppinn falla jakar úr stálinu með- an á heimsókninni stendur með til- heyrandi brestum og boðaföllum,“ segir Páll Ásgeir í bókinni. Þar kemst hann svo að orði um Fjalls- árlón að það sé fyrir einfara. Og hann bætir ennfremur við í lýsingu sinni á staðnum: „Hér truflar ferðamannastraum- ur ekki upplifun manns af hrika- legri náttúru þar sem jökullinn geymir leyndarmál frá landnámi Íslands.“ Frá fleiri stöðum í Öræfasveit segir í bókinni 155 Ísland. Þar má til dæmis nefna Fagurhólsmýri, þar sem lengi var sláturhús, kaup- félag og flugvöllur og samgöngu- miðstöð sveitar sem var úr öllum alfaraleiðum þar til brúin yfir Skeiðará var byggð árið 1974. Með henni komst hringvegurinn í gagn- ið og einangrun sveitarinnar milli sanda var rofin. – Þá greinir einnig frá Sandfelli. Það er gamall kirkju- staður og enn sjást menjar kirkju- garðs þar. Nú er staðurinn hins vegar þekktastur fyrir að vera upp- hafspunktur flestra ferða á Hvannadalshnjúk, sem er 2.111 metra og hæsta fjall landsins. Jökullón fyrir einfarana ÓTRÚLEGUR STAÐUR AUSTUR Í ÖRÆFASVEIT Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjallsárlón „Sé maður heppinn falla jakar úr stálinu meðan á heimsókninni stendur með tilheyrandi brestum og boðaföllum,“ segir Páll Ásgeir í bókinni. Hádegisfyrirlestur verður í dag kl. 12 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, en þar mun heimspekipófessorinn Graham Parkes fjalla um loftslags- breytingar og Kína. Undirtitill fyrir- lestursins er: Ways toward Lives Worth Living, og gæti útlagst sem: Leiðir í átt til lífs sem vert er að lifa. Graham mun meðal annars koma inn á það að í baráttunni við loftslags- breytingar muni lítið þokast í rétta átt án samráðs við Kína. Hann telur hefðbundna kínverska heimspeki gagnast þar. Hádegisfyrirlestur í dag um loftslagsbreytingar Kína skal haft með í ráðum Graham Parkes Fyrirlesari dagsins. Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 hberg@hberg.is | hberg.is NÝTT!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.