Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 14
SKOÐANAKÖNNUN
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Meirihlutinn í bæjarstjórnAkureyrar er fallinnsamkvæmt nýrri skoð-anakönnun sem Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla Íslands
hefur gert fyrir Morgunblaðið. Sjálf-
stæðisflokkurinn bætir við sig
tveimur fulltrúum frá kosningunum
2010 og Vinstri græn einum. Nýtt
framboð Bjartrar framtíðar fær tvo
menn kjörna.
Niðurstöðurnar eru mjög svip-
aðar og í síðustu könnun Fé-
lagsvísindastofnunar á fylgi flokka
og lista á Akureyri, en hún var birt í
lok febrúar. Meginbreytingin á milli
kannana er að sameinað framboð
Lista fólksins og Bæjarlistans undir
nafni hins síðarnefnda fær tvo full-
trúa í stað eins og Framsóknarflokk-
urinn tapar einum fulltrúa.
Sjálfstæðisflokkur stærstur
Niðurstöðurnar eru nánar tiltekið
þessar: Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti flokkurinn á Akureyri. Fylgi
hans mælist 21,8% þeirra sem af-
stöðu tóku. Hann fengi þrjá fulltrúa í
bæjarstjórn ef kosið yrði núna. Í
kosningunum vorið 2010 beið flokk-
urinn afhroð eins og allir gömlu
flokkarnir í bænum, fékk 13,3% at-
kvæða og einn bæjarfulltrúa. Kjör-
tímabilið 2006 til 2010 hafði hann
haft fjóra fulltrúa í bæjarstjórn.
Björt framtíð er næststærsti
flokkurinn. Hún mælist með 20,6%
fylgi sem gefur tvo fulltrúa. Flokk-
urinn hefur ekki áður boðið fram í
sveitarstjórnarkosningum.
Sameinað framboð Lista fólksins
og Bæjarlistans undir nafni hins síð-
arnefnda nýtur stuðnings 19%
þeirra sem afstöðu tóku í könn-
uninni. Framboðið fengi tvo fulltrúa
í bæjarstjórn. Listi fólksins, sem
einn fer með meirihluta í bæjar-
stjórninni, hefur nú sex fulltrúa og
Bæjarlistinn einn. Verði þetta nið-
urtaðan er því um mikið afhroð að
ræða.
Tapar á milli kannana
Framsóknarflokkurinn mælist
með 12,3% fylgi og fær þá einn full-
trúa. Það er nokkru minna en í síð-
ustu könnun. Þá mældist fylgið
14,7% sem gaf tvo fulltrúa. Um
aukningu er hinsvegar að ræða frá
kosningunum 2010 þegar flokkurinn
fékk 12,8% atkvæða og einn bæj-
arfulltrúa.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð nýtur fylgis 16% kjósenda.
Fengi flokkurinn tvo menn kjörna í
bæjarstjórn. Það er aukning um
einn mann frá kosningunum 2010
þegar flokkurinn fékk 10,4% at-
kvæða.
Samfylkingin er í mikilli lægð á
Akureyri. Hún mælist með 9,5%
fylgi og fengi einn fulltrúa. Það er
lítilsháttar aukning frá síðustu
könnun þegar hún mældist með
8,7% fylgi. Fylgið núna er nánast hið
sama og í bæjarstjórnarkosningum
á Akureyri fyrir fjórum árum.
Dögun, sem ekki hefur áður boðið
fram á Akureyri, mælist með 0,3%
fylgi. Listinn fengi engan fulltrúa.
Rétt er að geta þess að tilkynnt var
um framboð Dögunar tveimur dög-
um áður en könnun Félagsvís-
indastofnunar hófst.
Kynferði hefur áhrif
Könnunin var gerð meðal kjós-
enda á Akureyri dagana 25. til 29.
apríl. Spurt var: Ef sveitarstjórn-
arkosningar væru haldnar á morg-
un, hvaða flokk eða lista myndir þú
kjósa? Tvær leiðir voru notaðar til
að ná til kjósenda. Annars vegar var
hringt í 320 manna tilviljunarúrtak
úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum
18 ára og eldri. Hins vegar var send
netkönnun til 280 manna úrtaks úr
netpanel Félagsvísindastofnunar.
Alls fengust 418 svör frá svarendum
á aldrinum 18 til 90 ára og var svar-
hlutfall 70%. Vigtaður svar-
endafjöldi var 417.
Þegar niðurstöður könnunarinnar
eru skoðaðar með tilliti til kynferðis
þátttakenda kemur í ljós umtals-
verður munur á fylgi flokkanna.
Konur eru í miklum meirihluta með-
al kjósenda Bjartrar framtíðar og
Vinstri grænna. Karlar eru aftur á
móti mun fleiri en konur meðal kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins.
Aldur kjósenda hefur einnig áhrif
á það hvernig þeir hyggjast verja at-
kvæði sínu. Yngsti kjósendahóp-
urinn, fólk á aldrinum 18 til 29 ára,
er fjölmennastur meðal stuðnings-
manna Bjartrar framtíðar, 33% af
heildinni. Aðeins 2% fólks á þessum
aldri styðja Samfylkinguna. Aftur á
móti ætla 20% fólks í elsta kjós-
endahópnum, 60 ára og eldri, að
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Ný könnun á fylgi flokka á Akureyri Sameinaður listi meirihlutans í bæjarstjórn undir nafni
Bæjarlistans fengi aðeins tvo menn kjörna Björt framtíð með tvo menn Samfylkingin í lægð
21,8% 20,6% 19,0% 16,0%
12,3% 9,5%
0,3% 0,3%
Fylgi stjórnmálaflokka á Akureyri
samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 25.-30. apríl 2014
vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014
Svör alls: 418 Svarhlutfall: 70%
Nefndu einhvern flokk: 278
Veit ekki: 87 Skila auðu/ógildu: 25
Ætla ekki að kjósa: 21 Vilja ekki svara: 7
Niðurstöður kosninga 2010
Fjöldi bæjarfulltrúa,
eftir síðustu kosningar.
Fjöldi bæjarfulltrúa,
væri gengið til kosninga nú.
Fylgi skv. könnun 18.-23. feb.
Fylgi skv. könnun 25.-30. apr.
Fylgi skv. könnun 15.-23. jan.
Bjö
rt f
ram
tíð
Sjá
lfst
æð
isfl.
Vin
stri
-græ
n
Fra
ms
ókn
arfl
.
Bæ
jarl
isti
nn*
Sam
fylk
ing
Dög
un
?
Ann
að
*L-listinn og Bæjarlistinn hafa sameinast um framboð undir nafni Bæjarlistans
13
,3
% 2
0,
7%
23
,2
%
16
,0
%
16
,6
%
53
,7
%
15
,2
%
14
,3
%
10
,4
%
16
,0
%
16
,7
%
12
,8
%
15
,6
%
17
,7
%
9,
8%
11
,0
%
8,
7%
5,
5%
5,
8%
3 2 2 2 1 11 7 1 1 1
„Þetta gefur okkur
vind í seglin,“ segir
Margrét Kristín
Helgadóttir sem fer
fyrir framboðslista
Bjartrar framtíðar á
Akureyri. Hún segir
að frá áramótum hafi
framboðið mælst með í
kringum 20% stuðning
– líkt og nú. Sú nið-
urstaða standi á pari við góðar und-
irtektir sem frambjóðendur hafi
fengið meðal bæjarbúa.
„Við höfum reynt að tala á
mannamáli um þau atriði sem
skipta almenning mestu. Ungt fólk
og konur finna væntanlega sam-
hljóm milli sín og okkar í þessu
efni,“ segir Margrét Kristín spurð
um mikinn stuðning þessara
tveggja hópa við Bjartra framtíð.
Sjálfstæðisflokkur vill 28%
„Ég er ánægður með að við séum
inni með þrjá bæjarfulltrúa sam-
kvæmt þessari könnun. Hefði þó
viljað sjá hærri tölur, við setjum
stefnuna á að fá 25-28% fylgi í
kosningunum. Hins vegar eru
framboðin mörg og því dreifist
fylgið,“ segir Gunnar Gíslason sem
er í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins.
Með tilliti til þess að um 30% að-
spurðra í könnun Gallup svöruðu
ekki segir Gunnar ljóst að ýmis
tækifæri séu í stöðunni. Margir eigi
væntanlega eftir að gera upp hug
sinn, enda sé kosningabaráttan
varla hafin. Sjálfstæðisflokkurinn á
Vindur í segl en
sumir vilja meira
Samfylk-
ingin neitar
að trúa
könnuninni
Margrét Kristín
Helgadóttir
Gunnar
Gíslason
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is