Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 15

Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 15
Ný könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið sýnir að meiri- hlutinn í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn. Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í bænum. Sameinað framboð Lista fólksins og Bæjarlistans undir nafni þess síðarnefnda fær tvo bæjarfulltrúa í stað sjö núna. Björt framtíð fær tvo menn kjörna. Vinstri græn bæta við sig manni. Samfylkingin er í lægð og réttir ekki úr kútnum eftir ósigurinn fyrir fjórum árum. SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR kjósa flokkinn. Hinn sameinaði Bæj- arlisti nýtur mests stuðnings meðal fólks á aldrinum 30 til 44 ára, 28%. Þegar litið er á menntun þátttak- enda kemur í ljós að aðeins 6% þeirra sem eingöngu hafa grunn- skólanám að baki styðja Vinstri græn. Stuðningur við VG er mestur meðal þeirra sem lokið hafa bóklegu framhaldsskólanámi, 28% af heild- inni. Fólk með háskólanám er flest í kjósendahópi Bjartrar framtíðar, 26%. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa minna fylgi meðal háskólamenntaðra en nemur meðalfylgi flokkanna. Lágtekjufólk, kjósendur með 200 þúsund krónur eða minna í mán- aðarlaun, er fjölmennast meðal kjós- enda Bjartrar framtíð og Vinstri grænna. Hátekjufólk á Akureyri, fólk með 600 þúsund krónur og meira í mánaðarlaun, er flest meðal kjósenda nýja Bæjarlistans, 27%. Sjálfstæðisflokkurinn er öflugastur meðal þeirra sem hafa tekjur á bilinu 400 til 600 þúsund krónur á mánuði, 35%. 88% Fylgi flokka eftir því hvað var kosið síðast (2010) Fra ms ókn arfl . Kýs nú: Kaus þá: Vin stri -græ n Sam fylk ing List i fó lksi ns Bæ jarl isti nn Sjá lfst æð isfl. Ann an flok k eða fram b. ? Björt framtíð Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Samfylking Vinstri-græn Listi fólksins Flokkur ef kosið yrði á morgun til Alþingis Myndi kjósa í sveitar- stjórn: Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 25.-30. apríl 2014. Fra ms ókn arfl . Myndi kjósa á Alþingi: Sjá lfst æð isfl. Bjö rt f ram tíð Sam fylk ing Vin stri -græ n 37% 10% 27% 7% 24% 10% 6% 58% 10% 14% 11% 55% 4% 5% 6% 13% 45% 5% 13% 80% 13% 7% 65%6% 11% 6% 35% 4% 3% 6% 4% 67% 4% 5% 4% 7% 4% 13% 20% 6% 6% 5% 5% 56% 16% 2% 4% 12% 61% 7% 59% 19% 3% 3% 5%6% 8% 27% 53% 20% Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akureyri Ný könnun sýnir að miklar breytingar verða á skipan bæjarstjórn- arinnar þar eftir kosningarnar í lok maí. Mynda þarf nýjan meirihluta. Akureyri muni kynna stefnurkrá sína í kringum næstu helgi og í framhaldi af því – og þegar önnur framboð hafa kynnt sín mál – reiknar Gunnar með að línur fari að skerpast. Stefnt á fjóra fulltrúa „Við ætlum okkur stærri hluti en könnunin segir til um. Við setjum stefnuna á að fá fjóra bæjarfull- trúa,“ segir Matthías Rögnvalds- son, oddviti Bæjarlistans. Hann bendir á að í skoðanakönnunum að undanförnu hafi listinn mælst með 13 til 20% fylgi. „Þær undirtektir sem við fáum segja mér að við eig- um mikið inni,“ segir Matthías sem viðurkennir þó að fallið sé nokkurt frá síðustu kosningum en þá fengu Bæjarlistinn og L-listi fólksins, sem nú hafa sameinast, sjö bæjarfull- trúa alls. „Þetta er góð vísbending og nið- urstaðan er í samræmi við fyrri kannanir. Erum að sjálfsögðu mjög ánægð ef þetta gengur eftir, að við bætum við okkur einum bæjarfull- trúa,“ segir Sóley Björk Stef- ánsdóttir, leiðtogi Vinstri grænna. Skýringar á fylgisaukningu VG segir hún margar. Á Akureyri hafi liðsmenn flokksins komið með til- lögur um breytingar á stjórnsýslu bæjarins og meira gengsæi þar. Það hafi núverandi meirihluti raun- ar ætlað sér að gera, en ekki náð í gegn, sem með öðru skýri að stuðn- ingur við hann hafi dvínað. „Við neitum að trúa þessu. Nið- urstöður þessarar könnunar eru á allt annan veg en þær undirtektir í bæjarfélaginu sem sjónarmið okkar og stefnumál hafa fengið,“ segir Logi Már Einarsson, forystumaður Samfylkingarinnar. „Við ætlum okkur að ná tveimur mönnum inn í bæjarstjórn, ekkert minna.“ Matthías Rögnvaldsson Sóley Björk Stefánsdóttir Logi Már Einarsson MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014  Listi fólksins vann sögulegan sigur í bæjarstjórnarkosningunum á Ak- ureyri fyrir fjórum árum. Náði hann hreinum meirihluta í bæjarstjórninni, fékk sex af ellefu fulltrúum og hefur síðan stjórnað bæjarfélaginu. Sig- urinn var á kostnað gömlu valdaflokk- anna sem allir biðu afhroð. Þá fékk hinn nýi Bæjarlisti einn mann kjörinn árið 2010. Skoðanakannanir í vetur hafa sýnt að staða meirihlutans, Lista fólksins, og Bæjarlistans er gjörbreytt. Mikið fylgistap hefur blasað við. Þrátt fyrir að engin verulega stór deilumál hafi komið upp í bæjarstjórninni og sam- staða ríki í stóru málunum, virðast kjósendur á Akureyri vilja fá gömlu valdaflokkana aftur. Raunar einnig Bjarta framtíð sem ekki hefur boðið fram áður í sveitarstjórnarkosn- ingum. Við þessari stöðu brugðust Listi fólksins og Bæjarlistinn nú á vordög- um með því að sameinast um eitt framboð, Bæjarlista Akureyrar. Jafn- framt var frambjóðendahópurinn stokkaður verulega upp. Fimm af sex bæjarfulltrúum Lista fólksins eru ekki í framboði og fulltrúi Bæjarlistans hefur einnig dregið sig í hlé. Mestur sjónarsviptir þykir að Oddi Helga Halldórssyni. Hann hefur verið viðloð- andi bæjarstjórn Akureyrar í tuttugu ár, fyrst á vegum Framsóknarflokks- ins. Hann stofnaði Lista fólksins og hefur verið fulltrúi hans frá 1998. Hin nýja skoðanakönnun Félags- vísindastofnunar sýnir að þessi breyt- ing dugar ekki. Sameinaði listinn fær aðeins tvo menn kjörna. Það verður því að óbreyttu myndaður nýr meiri- hluti í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningarnar. Meirihlutinn fellur þó að nýtt fólk sé í framboði 415 4000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.