Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta eykmeð tvír ðlahangikjöti, bal- samrau og piparrótarsósu hetBruc ta með hráskinku, balsam nmgrill uðu Miðjarðar- hafsgræ K r a b b a - salat f ðboskum kryddjurtum í brau B r u c h e t t a Mimeð jarðarhafs-tapende aR i s rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn ónmeð japönsku maj sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax alioá bruchettu með grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is MöndluMix og KasjúKurl er ekki bara hollt snakk. Líka gott á salatið. Hollt oggott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. Yfir 2.000 aðskilnaðarsinnar réðust inn í höfuðstöðvar lögreglunnar í hafnarborginni Odessu í austurhluta Úkraínu í gær, tveimur dögum eftir að tugir manna létu lífið í eldi sem kviknaði í byggingu í borginni eftir að átök blossuðu þar upp. Aðskilnaðarsinnarnir sem réðust inn í höfuðstöðvar lögreglunnar kröfðust þess að hún sleppti mót- mælendum sem hafa verið hand- teknir í átökum í borginni undan- farna daga. Tugir þeirra voru látnir lausir eftir árásina. Að sögn frétta- manns AFP voru aðskilnaðarsinn- arnir vopnaðir bareflum og hrópuðu vígorð gegn „fasistum“. Lýst yfir þjóðarsorg Yfir fjörutíu manns biðu bana í átökum milli aðskilnaðarsinna og úkraínskra öryggissveita á föstudag- inn var. Flestir þeirra sem létu lífið voru aðskilnaðarsinnar sem höfðu lagt byggingu verkalýðssamtaka í miðborginni undir sig þegar eldur kviknaði í henni. Arsení Jatsenjúk, forsætisráðherra Úkraínu, kenndi öryggissveitum landsins um hvernig fór í Odessu. Stjórnvöld í Kænugarði lýstu jafnframt yfir tveggja daga þjóðarsorg vegna mannsfallsins. „Þessar öryggissveitir eru gagns- litlar og brutu lög,“ sagði forsætis- ráðherrann. Stríðandi fylkingar höfðu kastað bensínsprengjum sín á milli og svo virtist sem þannig hefði kviknað í byggingunni. Forsætisráðherrann hét því að eldsvoðinn yrði rannsak- aður ítarlega. Hann sagði að sak- sóknari hygðist byrja á því að yfir- heyra lögreglustjórann á svæðinu og undirmenn hans. Þótt hann kenndi lögreglunni um mannfallið sagði hann aðskilnaðarsinna og stjórnvöld í Rússlandi bera ábyrgð á átökunum sem urðu til þess að eldurinn kvikn- aði. Stjórnvöld í Úkraínu hafa viður- kennt að öryggissveitir landsins hafi verið máttvana gegn uppreisnarhóp- um í austurhluta landsins þar sem margir íbúanna hafa rússnesku að móðurmáli og vilja að austurhlutinn verði hluti af Rússlandi. Á síðustu dögum hafa aðskilnaðarsinnar tekið yfir tug borga og bæja á sitt vald. Átök blossuðu einnig upp í borg- inni Slavjansk um helgina þegar her- menn réðust á staði sem uppreisnar- menn höfðu náð á sitt vald. Íbúar Slavjansk eru um 160.000 og hermt er að skortur sé á matvælum í borg- inni vegna ófriðarins. bogi@mbl.is Vaxandi ólga í Odessu AFP Leystir úr haldi Aðskilnaðarsinnar fagna eftir að þeir voru látnir lausir í höfuðstöðvum lögreglunnar í Odessa í gær. Hundruð manna höfðu þá ráðist inn í höfuðstöðvarnar til að krefjast þess að lögreglan sleppti mönnunum. AFP Átök Aðskilnaðarsinnar ráðast á lögreglumann við byggingu verkalýðs- samtaka í Odessa eftir að tugir manna létu lífið í eldi í byggingunni.  Lögreglan gagnrýnd fyrir að stöðva ekki átök sem kostuðu tugi manna lífið Átök í Úkraínu KÆNUGARÐUR Izjum Krím *Einnig nefnd Horlivka Odessa HVÍTA-RÚSSLAND RÚSSLANDAZOV- HAF SVARTAHAFSevastopol Ú K R A Í N A Donetsk Mariupol Novorossísk 100 km 0 25 50 75 100 Borgir og bæir á valdi aðskilnaðarsinna Opinberar byggingar á valdi aðskilnaðarsinna Hlutfall íbúa sem hafa rússnesku að móðurmáli, í % Kramatorsk Yenakieve Zhdanivka Torez Slavjansk Artemivsk Pervomaisk Stakhanov Alchevsk Gorlivka* Kostjantynivka Donetsk Khartsyzk Makiivka Lugansk 50 km Kirovske Aðskilnaðar- sinnar réðust inn í höfuð- stöðvar lögreglunnar „Vilja tortíma Úkraínu“ » Forsætisráðherra Úkraínu sakaði í gær rússnesk stjórn- völd um að standa á bak við átökin í Odessa og fleiri stöð- um í austurhluta landsins. » „Það sem gerðist í Odessa er liður í áætlun Rússa um að tortíma Úkraínu,“ sagði hann. „Rússar sendu fólk hingað til að skapa glundroða.“ » Utanríkisráðherra Rússa hvatti Bandaríkjamenn til að knýja Úkraínustjórn til að stöðva „stríð hennar gegn eig- in þjóð“. Þess var minnst í gær að 200 ár eru liðin frá því Napóleon Frakk- landskeisari var sendur í útlegð til ítölsku eyj- arinnar Elbu. Fjöldi fólks fylgdist með því þegar Roberto Colla, 59 ára gamall læknir og áhugamaður um Napóleon, var fluttur í léttabáti í land í Elbu, íklæddur einkennisbún- ingi svipuðum búningi keisarans. Napóleon dvaldist á Elbu í 10 mánuði en flúði til Frakklands árið 1815 og náði völdum þar að nýju. Eftir að franski herinn beið ósigur fyrir Bretum og Prússum við Waterloo í Belgíu síðar það ár var Napóleon sendur á ný í útlegð, nú til eyjarinnar St. Helenu í Suður- Atlantshafi þar sem hann lést árið 1821. ÍTALÍA „Napóleon“ snéri aftur til Elbu Napóleon tekur land í Elbu í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.