Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 ✝ Magnús Guð-mundsson fæddist á Ísafirði 9. ágúst 1916. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Mörk 27. apríl 2014. Foreldrar hans voru Guð- mundur Árnason, f. 20.10. 1883, d. 13.12. 1986, verka- maður á Ísafirði, og Una Magnúsdóttir, f. 12.8. 1895, d. 11.6. 1975, húsmóðir Ísafirði. Systkini Magnúsar: Hulda, f. 3.11. 1913, d. 26.3. 1997, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík en maður hennar var Hjálmar Gunnlaugsson sem einnig er látinn; Margrét, f. 15.4. 1921, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, ekkja eftir Loft Júlíusson; Gunnlaugur, f. 25.6. 1923, d. 14.8. 2010, fyrrv. póst- meistari á Ísafirði, en eftirlif- andi kona hans er Jónína Niel- sen; Guðríður, f. 6.12. 1929, fyrrv. skrifstofumaður, búsett í Reykjavík. Eiginkona Magnúsar er Ag- nete Simson, f. 9.9. 1923, ljós- myndari og húsmóðir. Hún er dóttir Martinusar K.P. Simson, konunglegs dansks hirð- fyrra hjónabandi Stefán Þór- arinsson nemi , f. 2.5. 1988, og Valtýr Þórarinsson nemi, f. 2.4. 1991. Magnús var í barnaskóla á Ísafirði, stundaði nám við Iðn- skólann á Akureyri og lauk þaðan prófi í rafvirkjun. Hann stundaði flugnám við Flugskóla Konna Jóhannessonar í Winni- peg í Kanada og lauk þaðan at- vinnuflugmannsprófi 1943 og öðlaðist bandarísk flug- stjóraréttindi hjá Pan American í New York 1952. Magnús var flugstjóri hjá Flugfélagi Íslands 1945-47, var flugstjóri hjá Loft- leiðum hf. á árunum 1947-73 og síðan flugstjóri hjá Flugleiðum frá 1973-79 er hann hætti vegna aldurs. Hann starfaði sem eftirlitsflugmaður hjá Loft- leiðum hf. og síðan hjá Flug- leiðum frá 1952-79. Hann var síðan flugeftirlitsmaður hjá Flugmálastjórn á árunum 1979- 85. Magnús var flugstjóri í Geysisslysinu í október 1950 er Douglas DC 4 Skymaster-vél Loftleiða, Geysir, brotlenti á Bárðarbungu á Vatnajökli. Magnús rak flugskólann Cumulus ásamt Smára Karls- syni og Jóhannesi Snorrasyni á árunum 1948 til 1950. Hann hafði flugskírteini númer 9 og hætti fyrstur Íslendinga störf- um sem flugmaður á Íslandi fyrir aldurs sakir, þá 63 ára. Útför Magnúsar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 5. maí 2014, og hefst athöfnin kl. 13. ljósmyndara, upp- finningamanns og kennara á Ísafirði, sem var sonur Christians Pet- ersen, b. á Jótlandi í Danmörku, og k.h. Marie Pet- ersen húsfreyju. Móðir Agnete var Guðný Gísladóttir frá Svínafelli í Öræfum Gísla- sonar. Börn Magnúsar og Ag- nete eru: 1) Guðný, f. 10.10. 1946, sálfræðingur, búsett í Reykjavík, og er sonur hennar Magnús Antonsson, f. 18.8. 1967, flugstjóri hjá Icelandair. 2) Guðmundur, f. 11.4. 1951, eftirlitsflugstjóri hjá Icelandair, búsettur í Reykjavík en kona hans er Ragnhildur Gunn- arsdóttir framkvæmdastjóri og eru börn þeirra Styrmir, f. 21.5. 1975, hagfræðingur í Reykja- vík, og Brynja, f. 23.8. 1982, tónlistarkennari á Seltjarn- arnesi. 3) Una Þóra, f. 18.10. 1958, lögfræðingur og fulltrúi hjá sýslumanninum á Ísafirði, en maður hennar er Hörður Högnason, hjúkrunarforstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Ísa- firði og eru synir Unu Þóru frá Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur er orða- tiltæki sem er mér ofarlega í huga þessa dagana. Hlýlegur, góðhjartaður, hógvær og ynd- islegur eru þau fjögur lýsing- arorð sem lýsa þér best. Þrátt fyrir að þú hafir verið á þínu 75. aldursári þegar ég kem inn í þennan heim náðum við 23 góðum árum saman. Þær minningar sem ég á um okkur saman eru ótelj- andi, ein sú skemmtilegasta gerist á golfvellinum úti á Nesi eins og svo margar aðr- ar, en hún átti sér stað þegar þú fórst holu í höggi á annarri brautinni. Við vorum aðeins tveir í þessu holli og höfðum við því eytt dágóðri stund í að leita að kúlunni þegar mér dettur í hug að kíkja ofan í holuna en þar reyndist kúlan síðan vera, nokkrum dögum seinna kom síðan mynd af okkur saman og grein í íþróttablaði Morgunblaðsins með fyrirsögnina „Afi, kúlan er í holunni“. Að fara holu í höggi var eitthvað svo dæmi- gert fyrir þig, enda sigurveg- ari í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur. Það er mér einstaklega minnisstætt hvað þú varst alltaf duglegur að mæta á alla þá fótboltaleiki sem ég spilaði uppi á Holti og tókst fullan þátt í leiknum, það er að segja af hliðarlínunni, þá verandi á níræðisaldri. Þær minningar sem standa mér samt næst eru allar þær óteljandi stundir sem við eyddum í garðvinnu með ömmu á Hlíðargerðinu, við tveir vorum þó meira inni í skúr að bralla eitthvað saman, það var sama hvort það var viðgerð á einhverju tæki eða bogasmíði úr stolnum bambus frá ömmu, það skipti engu máli, það var alltaf jafn lær- dómsríkt og ánægjulegt að vera þarna með þér. Þínir seinustu dagar voru erfiðir, erfitt var að horfa upp á jafn hrausta manneskju og þig verða svona veika. Það sem maður getur samt hug- hreyst sig við er að á meðan á þessu stóð varstu umvafinn þínum nánustu og öllu því góða starfsfólki sem á hjúkr- unarheimilinu Mörk starfar. Þú varst svo yndisleg manneskja að mér finnst ég ekki geta sett það í orð, sökn- uður minn til þín er endalaus, það verður ekki eins að labba inn á Hlíðargerðið vitandi af því að þú sért farinn, en amma verður þarna áfram, ég get lofað þér því að hún er ekki á förum. Dagurinn sem þú kvaddir okkur var einstaklega falleg- ur, fyrsti dagur sumarsins þar sem borgarbúar gátu setið úti og notið þess að sóla sig, mjög viðeigandi fyrir jafn fallega manneskju og þig að kveðja á slíkum degi. Ég veit að þú ert kominn á betri stað núna og vakir yfir okkur öllum og fylgir ömmu enn í anda. Þín verður sárt saknað. Þinn afastrákur, Valtýr Þórarinsson. „Ætli hann sé ekki bara úti að leika sér með krökkunum,“ sagði Dídí þegar ég spurði eft- ir afmælisbarninu í áttræðis- afmæli Magnúsar fyrir hart- nær átján árum. „Að leika sér“ var einkennandi fyrir Magnús alla tíð; hann var sí- ungur, lifandi í anda og léttur á fæti til hins síðasta. Þessi áhugi ásamt hlýju fasi hafði þau áhrif að börn löðuðust strax að honum ekki síður en fullorðnir. Þannig var yngsta ömmustelpan mín skriðin kankvís upp í fangið í honum nokkrum mínútum eftir að við settumst inn í gróðurhúsið þeirra Dídíar fyrir um það bil tveimur árum. Kynni mín af fjölskyldunni í Hlíðargerði hófust um það leyti sem við Guðný byrjuðum í skóla. Á þeim árum var Magnús sveipaður miklum ævintýraljóma í mínum barnshuga. Hann fór til fjar- lægra landa, stýrði stórum flugvélum og klæddist glæsi- legu „uniformi“. Ekki spillti að á stundum kom hann með Campbell-súpur og Mackin- tosh sem ekki var daglegt brauð og bráðnaði á tungum okkar vinkvennanna. Á vet- urna skaust hann á skíði og á sumrin fór fjölskyldan til Ísa- fjarðar. Eitt sumarið fór ég með vestur og kynntist fólk- inu þeirra þar. Ekki man ég hvort Magnús var farinn að stunda golfið á þessum árum en seinna áttum við ófáar samræður um golf, sem var eitt af hans miklu áhugamál- um. Hvatti hann mig eindreg- ið til að byrja, reyndi meira að segja að kenna mér sveiflu á góðum sumardegi austur á Þingvöllum. Öll mín skólaár var Hlíð- argerðið mitt annað heimili. Svo urðum við stöllur full- orðnar og heimsóknum fækk- aði. En það var ávallt gaman að stinga sér inn hjá Dídí og Madda, setjast í eldhúsið og spjalla. Umræðurnar voru fjörlegar og víða komið við enda húsráðendur áhuga- samir um dægurmál líðandi stundar, stjórnmál, íþróttir, garðrækt, gamla daga, ferða- lög og síðast en ekki síst flug. Við kveðjum nú skemmti- legan og hlýjan vin sem ef- laust er lentur á litríku leik- svæði í fallegum handan- heimum. Dídí og fjölskyldunni sendum við Skúli og Ásta Olga innilegar samúðarkveðj- ur. Sylvía. Magnús Guðmundsson ✝ GuðbrandurJón Herberts- son fæddist 15. júlí 1946 á Lambeyri við Tálknafjörð. Hann lést á Landspít- alanum 12. apríl 2014. Hann var næst- elstur fimm systk- ina. Foreldrar hans voru Herbert Jó- hannes Guðbrands- son og Málfríður Rannveig Ok- tavía Einarsdóttir, bæði frá Tálknafirði. Nonni, eins og hann var alltaf kallaður, ólst upp hjá foreldrum sínum og systkinum. Þriggja mán- aða flutti hann ásamt fjölskyldu sinni yfir fjörð og bjó fjölskyldan á nokkrum stöðum í þorpinu, en frá árinu 1956 bjuggu þau á Lækj- arbakka. Systkini hans eru Hjört- fríður Olga, Haraldur Sævar, Ein- ar Jóhann og Kristinn Ómar. Nonni byrjaði að vinna í Hraðfrysti- húsi Tálknafjarðar þrettán ára gamall. Hann fór síðan á sjóinn fljótlega eftir það. Hann hóf sína sjómennsku á Guð- mundi á Sveinseyri BA fimmtán ára og var á ýmsum bátum, aðallega frá Vestfjörðum, síðast á Bjarma BA þar sem hann lauk sinni sjómennsku 1995. Sjó- mennska hans einkenndist af dugnaði, samviskusemi og góð- mennsku. Nonni vann ýmist sem háseti, bátsmaður eða stýrimað- ur. Hann veikist á árinu 1995 og vegna heilsubrests varð hann að fara í land og hætta sjómennsku. Jarðsett var frá Fossvogs- kirkju 22. apríl 2014. Elsku Nonni minn. Það er erfitt að skrifa minning- argrein um þig, því ég sakna þín svo mikið. En minningarnar hafa hrannast upp og væru efni í heila bók, enda samskipti okkar mikil allt frá því ég fæddist. Hér langar mig að stikla á stóru. Þú varst einstakur frændi, alltaf svo ljúfur, góður og umburðar- lyndur. Eins barngóður og þú varst þá hafði ég alltaf gaman af því að þú vildir ekki halda á stelpunum mín- um fyrr en þær væru orðnar 6 mánaða, því þú varst hræddur um að meiða þær. Þannig hafðir þú alltaf verið, því þú sagðir mér af því þegar þú þurftir að passa mig úti í bíl þegar ég var nýskírð, hvað þú varst hræddur og vissir ekki hvað þú áttir að gera þegar ég fór að væla því ekki gastu tekið mig upp. Þegar þú komst úr siglingunum færðir þú okkur iðulega mackin- tosh, sem var geymt til jóla. Einnig gafstu mér stóra dúkku í jólagjöf sem gat staðið sjálf og ég skírði hana Jónu. Þessa dúkku á ég enn. Á Lækjarbakka voru ófáar stundirnar sem ég átti uppi í her- berginu þínu þar sem mátti spila plöturnar þínar, hvort sem þú varst heima eða ekki. Stundum fórstu í „útilegu“ í gamla daga, milli Hólsárinnar og skreiðarhjallanna. Sem barn hafði ég smá áhyggjur af þér þá, en tjaldið þitt var í beinni sjónlínu við Lækjarbakka og við gátum fylgst með þér. Ég fékk að búa hjá þér í tvö sumur og í jólafríum þegar ég var unglingur. Ég gleymi ekki jólun- um sem við eyddum saman þegar ég var 16 ára og ég eldaði fyrir okkur, því amma og afi voru í bænum þau jól og við gátum ekki borðað þar eins og árið áður. Þegar Olga mín var lítil og við bjuggum í íbúðinni fyrir neðan þig, þá hafðir þú alltaf áhyggjur af því að trufla eða vekja okkur með hlátrinum þegar þú varst að horfa á grínmyndirnar eins og þú gerðir svo oft. Nei, þú gerðir það ekki, en mikið var gaman að heyra þig hlæja svona innilega og mikið. Allar samverustundirnar eftir að þrjár yngstu stelpurnar fædd- ust og hvað þú hafðir gaman af þeim, sérstaklega ef þær gerðu eitthvað af sér eða sögðu eitthvað einlægt en pínu neyðarlegt. Eins ef þær voru að borða sælgæti þá raulaðir þú alltaf Karíusar og Baktusar-lagið. Stríðinn varstu en alltaf á góð- legan og meinlausan hátt og til- svörin voru oft full af húmor. Einnig var þér í blóð borið að vera svolítið þver, þegar þú hafðir tek- ið ákvörðun varð henni ekki hagg- að, enda lærði maður fljótt að reyna það ekki. Við áttum fullt af samveru- stundum bæði með gleði og raun- um, stundum komstu með þær til mín og öðrum frétti ég af og mikið leið mér oft illa þegar á þér dundi því þú áttir það aldrei skilið, gerð- ir sjálfur ekki sálu mein. Nú eigum við aldrei aftur eftir að heyra útidyrnar opnast og heyra „ho ho hó“ og svo „hvað segja frænkur mínar títt?“ Ég kveð þig með söknuð í hjarta, yndislegi frændi minn og vinur. Þín Aðalbjörg (Alla). Mig langar að minnast frænda míns, Guðbrandar Jóns Herberts- sonar frá Lækjarbakka, Tálkna- firði. Amma mín og mamma hans voru systur. Og kom ég oft með mömmu og ömmu á Lækjarbakka þar sem ég hitti Nonna. Hann var góður skemmtilegur og yndisleg- ur frændi. Ég hitti hann síðast við jarðarför föður hans síðastliðið sumar, þá spurði hann mig hvern- ig ég hefði það? Mér þótti vænt um þessa góðu stund sem við gát- um talað saman. Kæri frændi, þakka þér góð kynni og Guð blessi þig. Fjöl- skyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Guð veri með ykk- ur öllum. Guðrún Lára Pálsdóttir. Guðbrandur Jón Herbertsson Elsku afi, núna ertu kominn í sum- arlandið til ömmu. Það eru ótal marg- ar góðar minningar sem við munum alltaf eiga um þig. Þeg- Guðbjörn Ingvar Jónsson ✝ Guðbjörn Ingv-ar Jónsson fæddist 15. október 1922. Hann lést 17. mars 2014. Útför Guðbjörns fór fram 3. apríl 2014. ar við vorum yngri náðum við alltaf að draga þig með okk- ur niður að Hrúts- vatni á sumrin þar sem við kepptumst við að fleyta kell- ingar. Okkur fannst samt skemmtilegust ferðin sjálf þar sem við fengum að sitja á vagninum á með- an þú keyrðir traktorinn. Og þegar við komum heim beið amma með kókómjólk og klein- ur. Já, það var nú aldeilis fjör að koma í heimsókn til þín, afi. Það var einnig mikið ævintýri að koma í fjósið hjá þér því þar leyndust nú gersemar sem eru sjaldséðar. Þar mátti finna eft- irlíkingar af brúm, Kálfholts- kirkju og torfbæjum og þar vantaði sko ekki smáatriðin í vinnubrögðunum. Að spila á spil var oft gert í Framnesi þegar við komum í heimsókn og ætli það hafi ekki verið þú sem vaktir áhuga okkar á því. Þín verður sárt saknað en það er gott að þú ert kominn aftur til ömmu. Margét Harpa, Þuríður Marín, Steinunn Birna og Bergþór Kristinn. ✝ Erla S. Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 11. febrúar 1928. Hún lést 23. apríl 2014. Foreldrar hennar voru Jón H. Vilhjálmsson, f. 17.9. 1908, d. 20.12. 1990 og Kristbjörg Jóns- dóttir, f. 14.5. 1907, d. 9.12. 1986. Bróðir Erlu var Einar Ingi Jónsson, f. 13.7. 1930, d. 15.4. 1987. Dætur Erlu eru: 1) Krist- björg Einarsdóttir, gift Guð- laugi Ellertssyni. Hennar og d) Signý Björg Guðlaugs- dóttir, maki Dan Lemmon. 2) Ingibjörg Magnúsdóttir, gift Júlíusi Jóni Jónssyni. Hennar börn eru: a) Hildur Hrund Hallsdóttir, maki Hreinn Ingi Hreinsson. Börn þeirra eru Íris Marí, Aníta Hrund og Fannar Ingi. Sonur Hildar Hrundar er Axel Jónsson. b) Andrea Mekkín Júlíusdóttir og Jón Hallvarður Júlíusson. Dóttir Júlíusar er Harpa Rós Júlíusdóttir. 3) Sólbjörg Harðardóttir, hennar börn eru: a) Hörður Fannar Þórs- son Clausen, b) Elísabeth Þórsdóttir Clausen og c) Katrín Erla Þórsdóttir Clau- sen. Útför Erlu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 5. maí 2014, kl. 13. börn eru: a) Anna María Snorra- dóttir, maki Elv- ar Örn Magn- ússon. Þeirra börn eru Alex- andra, Rúna Mar- en og Snorri Hrafn, b) Jón Trausti Snorra- son, maki Anna Soffía Sigurð- ardóttir. Dóttir þeirra er Agnes Eva og son- ur Jóns Trausta er Sindri Snær, c) Dagný Ósk Guð- laugsdóttir, maki Magnús Jósepsson. Synir þeirra eru Jósep Dagur og Róbert Torfi Elsku hjartans mamma mín hefur kvatt þennan heim. Ég trúi því að nú sé hún komin í Sumarlandið þar sem fjöldi ást- vina tekur á móti henni, Einar bróðir hennar og pabbi minn þar fremstir í flokki. Ég er svo þakklát fyrir okk- ar fallega samband, við gátum talað saman um allt og treyst á stuðning hvor annarrar alla tíð. Þú varst börnunum mínum ást- rík og gefandi amma og það var yndislegt að sjá hvað þau gáfu þér mikið. Við munum sakna þín sárt en ég veit að þú munt fylgjast með okkur og vernda alla tíð. Svo ástrík var hún mamma mín og merk er hennar saga því yndi kærleiks ennþá skín á alla mína daga. Hlý og blíð hún hjá mér stóð, minn helsti leiðarvísir, af mildi sinni gaf hún glóð sem gæfuspor mín lýsir. Er æskuslóð um gróna grund gekk ég fyrir skömmu þá sá ég loga ljúfa stund ljósið hennar mömmu. (Kristján Hreinsson) Sólbjörg Harðardóttir. Erla S. Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.