Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
Það verður eitthvað lítið um afmælishald í ár. Ég er á fullu íprófum og dagskráin því þétt eftir því. Ætli ég geri ekki eitt-hvað skemmtilegt um helgina þegar ég verð búin,“ segir
Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir sem er 22 ára í dag en hún nemur
hagfræði við Háskóla Íslands. Hún æfir af fullum krafti fótbolta með
meistaraflokki Þróttar og getur vart beðið eftir sumrinu til að
hlaupa á eftir tuðrunni á keppnisvellinum. Það er einstakt afrek í
sjálfu sér en Fanney lamaðist fyrir þremur árum í skíðaslysi í Nor-
egi. Hún hefur nú náð sér að fullu og má þakka það mikilli ákveðni
og eljusemi. „Hugarfarið fleytir manni langt áfram í þessum að-
stæðum; að vera ákveðin og gefast aldrei upp. Það er eiginlega al-
veg sama hvað maður tekur sér fyrir hendur og þetta hugarfar hef-
ur t.d. nýst mér líka vel í fótboltanum.“
Fanney flutti heim fyrir tveimur árum og segist hún sakna Nor-
egs að hluta. Hún var landsliðskona í skíðum en hefur ekki alfarið
lagt skíðin á hilluna. „Núna fer ég bara þegar það er gott veður en
mér finnst alveg geggjað að fara á skíði.“ Fanney segist aldrei á æv-
inni hafa verið í jafn góðu líkamlegu formi og þegar slysið varð.
Hún segir líkamlegan styrk hafa hjálpað sér mikið til að ná upp
fyrri getu. Síðasta haust tók hún miklum framförum og nú fer hún
til sjúkraþjálfara á tveggja til þriggja vikna fresti. thorunn@mbl.is
Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir er 22 ára
Afmælisbarn Fanney spilar á fullu nú með meistaraflokki Þróttar en
hún lamaðist fyrir nokkrum árum í skíðaslysi í Noregi.
Lamaðist en spilar
nú fótbolta af kappi
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Mía fæddist 8. ágúst
kl. 11.42. Hún vó 10 merkur og var 48
cm löng. Foreldrar hennar eru Brynja
Vattar Baldursdóttir og Steinólfur
Jónasson.
Nýir borgarar
Bolungarvík Sigurbjörg Ásta fæddist
31. ágúst kl. 17.14. Hún vó 3.890 g og
var 53 cm löng. Móðir hennar er
Maríanna Mjöll Sigurgeirsdóttir.
F
riðfinnur Knútur Daní-
elsson fæddist á Ak-
ureyri 5.5. 1954 og ólst
upp á Gnúpufelli í
Eyjafirði. Þar fékkst
hann við sveitastörf frá blautu
barnsbeini. Hann gekk í barnaskól-
ann í Sólgarði í gamla Saurbæjar-
hreppi, var svo einn vetur í Gagn-
fræðaskóla Ólafsfjarðar og tók
miðskólapróf á Laugum í Reykjadal.
Fór síðan til sjós og þaðan í Vél-
skóla Íslands 1972 og lauk vélskóla-
prófi 1976. Stundaði nám við Há-
skóla Íslands og Heriot Watt
University í Edinborg á ár-
unum1978-1983 og lauk þaðan
B.Sc.-prófi í verkfræði.
Starfsferill
Friðfinnur stofnaði fyrirtækið Al-
varr ehf. árið 1985 sem fæst við
jarðboranir og verkfræðiráðgjöf.
Friðfinnur K. Daníelsson, verkfræðingur – 60 ára
Frumkvöðlastyrkur veittur Frá vinstri: Sigurður Ingi Erlingsson, sviðsstjóri véla- og rafmagnsverkfræðideildar
HR, Bogi Kárason, nemandi í vélaverkfræði, og Friðfinnur Daníelsson, eigandi Alvars.
Frumkvöðull í orkumál-
um og jarðborunum
Í Lundi Friðfinnur hefur haslað sér völl í Svíþjóð eftir að það fór að hægjast
um á Íslandi í orkumálunum. Ber hann Svíum vel söguna.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
•100%
NÁTTÚRUL
EG
T
•
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn