Morgunblaðið - 10.07.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2014
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Íslendingar eru ekki þeireinu sem hafa áhuga á ætt-feðrum sínum. Englending-urinn Jon Kay ætlar að
ferðast um landið á þá staði, þar sem
afi hans, Abel Stone, gegndi her-
þjónustu fyrir breska herinn á her-
námstímabilinu. Kay er verkfræð-
ingur og vinnur um þessar mundir
tímabundið í álverinu í Straumsvík.
Kay á nokkrar myndir af afa
sínum í herþjónustu hér á landi en á
erfitt með að staðsetja sumar þeirra.
„Ég vil ferðast til staðanna á mynd-
unum til að finna fyrir aukinni teng-
ingu við afa minn og þann tíma sem
hann eyddi á Íslandi í hernum. Hann
talaði sjaldan um síðari heimsstyrj-
öldina þegar ég ólst upp. Hann sagði
fyndnar sögur frá þessum tíma, en
sleppti því að tala um allt það hrylli-
lega, sem hann upplifði í sex ára her-
þjónustu sinni. Ef ég gæti heimsótt
staðina sem hann var á, þá liði mér
eins og ég stæði nær honum. Ég hef
nefnilega ætlað að heimsækja Ísland
síðan ég var á tvítugsaldri en lét
aldrei verða af því. Núna er ég svo
heppinn að vera að vinna í verkefni
tengdu ISAL, þannig ég get notað
tímann meðan ég er hérna til að fá
betri innsýn í líf afa míns með því að
feta í fótspor hans hér á landi.“
Móðir Kays kemur til Íslands
seinna í sumar og vonast hann til að
geta farið með hana á slóðir föður
hennar. „Ég held að það geti verið
skemmtilegt fyrir móður mína að
tengjast fortíð sinni og föður sínum í
gegnum staðina sem hann var á,“
segir Jon Kay.
Var fjarri í sex ár í stríði
Abel Stone, afi Jons Kays, var á
Íslandi í hálft ár frá mars 1941 fram
í október sama ár en hann var í her-
þjónustu frá því að heimsstyrjöldin
hófst þar til henni lauk. Hann var í
fyrstu og níundu liðsveit Manchest-
er-hersveitar á árunum 1939-1945.
Móðir Kayes fæddist tveimur dög-
um eftir að stríðið skall á þannig hún
á sá föður sinn sjaldan á sínum
yngstu árum, þar sem hann eyddi
stríðsárunum á hinum ýmsu vígvöll-
um Evrópu.
Stone fæddist 9. desember árið
1910 og var þriðji yngstur í níu
systkina hópi. Lífið var erfitt fyrir
stórar verkamannafjölskyldur í
Bretlandi á fyrri hluta 20. aldar og
byrjaði Stone að vinna í vefnaðar-
verksmiðju 14 ára að aldri en á þeim
tíma var vefnaðariðnaðurinn mjög
mikilvægur Manchester/Lancas-
hire-svæðinu í Norðvestur-
Englandi. Síðar byrjaði hann að
versla með kol þangað til stríðið
braust út.
Stone var hluti af bresku her-
sveitunum sem voru sendar til
landamæra Frakklands og Belgíu í
kjölfar innrásar Þýskalands í Pól-
land haustið 1939. Þýskaland réðst
svo inn í Frakkland 1. maí árið 1940.
Bretar misstu marga menn í sókn
Þjóðverja og neyddust til að flytja
herinn á brott frá meginlandinu. Í
átökunum um Frakkland og Belgíu
lést 12.431 breskur hermaður,
14.070 slösuðust og 41.030 voru
teknir til fanga. Stone slapp með
naumindum í hinu fræga undanhaldi
frá Dunkirk í Frakklandi yfir til
Englands. Hann komst yfir sundið á
gufuknúnu hjólaskipi, en Þjóðverjar
Leitar á slóðir afa
síns í hernáminu
Bretinn Jon Kay ætlar að ferðast um Ísland og heimsækja þá staði þar sem afi
hans, Abel Stone, kom á þegar hann gegndi herþjónustu fyrir breska herinn á her-
námstímabilinu í síðari heimsstyrjöld. Kay vinnur á Íslandi um þessar mundir og
vill nota tækifærið til að tengjast betur lífi afa síns sem lést fyrir nærri 20 árum.
Abel Stone barðist víðsvegar um Evrópu á stríðsárunum.
Morgunblaðið/Þórður
Forvitinn „Ef ég gæti heimsótt staðina sem hann var á, þá liði mér eins og
ég stæði nær honum,“ segir Englendingurinn Jon Kay um afa sinn.
Braggar Ljósmynd af bröggum og kirkju á Íslandi sem Abel Stone tók á
þann 28. júní 1941. Óskað er eftir upplýsingum um hvar myndin er tekin.
Fantafínn vefur er til um hernámið á
Íslandi en þar eru varðveitt mynd- og
hljóðbrot frá hernámsárunum. Vefur-
inn, www.servefir.ruv.is/her, var unn-
inn af Ljósmyndasafni Reykjavíkur
menningardeild Ríkisútvarpsins og
heimildirnar sem þar er að finna ein-
stakar.
Þar er að finna umfjallanir um
Bretana, útvarpið í stríðinu, banda-
ríska setuliðið, ástandið og stríðslok.
Kemur meðal annars fram á vefsíð-
unni að frá upphafi hernámsins hafi
starfsemi Ríkisútvarpsins verið undir
eftirliti og sættu bæði fréttir og aug-
lýsingar ritskoðun til að ekkert kæmi
þar fram sem Þjóðverjar gætu notað í
hernaði. Íslendingar gátu þó fylgst
með útsendingum frá BBC frá 1. des-
ember 1940 en þá hófu Bretar viku-
legar útsendingar hér á landi. Þetta
og fjölmargt fleira um þessi áhuga-
verðu ár á vefnum um hernámið.
Vefsíðan www.servefir.ruv.is/her
Hernámið Á síðunni eru bæði mynd- og hljóðbrot frá hernámsárunum.
Þegar hermenn stigu á land
Á ári hverju eru
haldnar margar
veglegar sýningar
á Listasafni Árnes-
inga og oftar en
ekki sýna þar
margir listamenn
saman. Það er því
ekki úr vegi fyrir
fólk á ferð um
Suðurlandið að líta
inn í safninu sem
er við hliðina á
Eden, eða þar sem
Eden stóð, í Hvera-
gerði. Á sunnudag-
inn klukkan 14.
verður opnuð þar
sýningin Snerti-
punktar með verk-
um eftir sjö listamenn. Það eru þau
Anna Eyjólfsdóttir, Birgir Snæbjörn
Birgisson, Helgi Hjaltalín Eyjólfs-
son, Helgi Þorgils Friðjónsson,
Ragnhildur Stefánsdóttir, Þórdís
Alda Sigurðardóttir og Þuríður Sig-
urðardóttir sem þar sýna og eru
þau fædd á árunum 1948-1966 og
hafa sýnt verk sín bæði innanlands
sem utan. Viðfangsefni og efnis-
notkunin endurspeglar gróskuna í
íslenskri samtímamyndlist. Saman
mynda listamennirnir sjö tvo lista-
hópa sem halda sýningar erlendis
og halda utan um rekstur sýning-
arrýma.. Annar hópurinn saman-
stendur af Önnu, Ragnhildi, Þórdísi
Öldu og Þuríði, sem voru stofn-
endur StartArt gallerísins við
Laugaveginn og ráku það ásamt
fleirum á árunum 2007-2009. Hinn
hópurinn samastendur af Birgi
Snæbirni, Helga Hjaltalín og Helga
Þorgils. Sýningarstjóri Snerti-
punkta er Margrét Elísabet Ólafs-
dóttir.
Endilega …
… heimsækið Listasafn Árnesinga
Feldur hests Verk eftir Þuríði Sigurðardóttur eru á með-
al verka á sýningunni í Listasafni Árnesinga í Hveragerði.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan verð-
ur haldin á Stykkishólmi nú um
helgina 11-13. júlí og verður fjölmargt
um að vera í bænum og óhætt að
segja að bæjarbragurinn verði nokk-
uð hátíðlegur. Meðal annars verður
Norska húsið opið á laugardeginum á
milli klukkan 11 og 17 og verður þar
handverksfólk að störfum yfir dag-
inn. Þjóðbúningar verða rækilega
kynntir, meðal annars í fyrirlestri
Kristínar Björnsdóttur sem hefst þar
klukkan 14 og ber yfirskriftina Álf-
konan og breiðfirska handlínan. Sagt
verður frá vinnu Faldafeykis við end-
urgerð gamla faldbúningsins og
handlínur fá sérstaka athygli.
Skotthúfukeppnin verður á sínum
stað á loftinu, Steindór Andersen
kveður rímur og þjóðdansahópurinn
Sporið sýnir þjóðdansa.
Myndasmiðurinn Hörður Geirsson
tekur ljósmyndir með einstakri gam-
alli tækni sem nefnist votplötutækni
og var notuð hér á landi fyrir 140 ár-
um.
Fjöldi tónlistarfólks kemur fram á
þjóðlegum tónleikum og gamli tím-
inn og nýi mætast þessa helgi á
Stykkishólmi. Frítt er inn á alla við-
burðina nema á tónleika sem haldnir
verða í kirkjunni og þjóðdansa-
námskeið.
Þétt dagskrá á Skotthúfunni 2014
Þjóðbúninga-
hátíð haldin
Skotthúfan Ilmur liðinna daga verður eflaust í loftinu á Stykkishólmi.
SMÁRALIND • 2 HÆÐ • SÍMI 571 3210
Herraskór
stærðir 40-45
Verð nú kr. 4.896
5áður kr. 6.99