Morgunblaðið - 10.07.2014, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þig langar til að bjarga heiminum í
dag og finnur til mikillar meðaumkunar gagn-
vart þeim sem minna mega sín.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert staðráðin/n í að nota peningana
þína til að gera jákvæðar breytingar á heim-
ilinu eða til hagsbóta fyrir fjölskyldu þína. Og
svo aðeins lengra og aðeins lengra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gættu þess að taka engu sem sjálf-
sögðum hlut ella muntu iðrast þess síðar.
Gakktu úr skugga um að þín nálgun sé áhrifa-
ríkust. Dragðu greinileg mörk þar á milli og
hafðu þau á hreinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Staða himintunglanna gerir það að
verkum að þú hefur mikið sjálfstraust. Líttu
þess vegna ekki fram hjá brosi barnsins og
hlustaðu á hljóm hlátursins.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einfaldasta upplifun getur orðið upphaf
mikilla tíma. Tilvonandi elskhugar dragast að
þér þegar þeir álíta að þú gætir líka þarfnast
þeirra. Af hverju? Af því að þú elskar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Félagslífið mun veita þér mikla ánægju
á næstunni. Vertu áhugasamur; það má alltaf
læra eitthvað nýtt af öðrum, hvort sem það
er notað eða ekki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu óhræddur við að bera upp þær
spurningar, sem þér liggja á hjarta. Vertu
réttlátur og leyfðu öðrum að blómstra, þótt
það verði eitthvað á þinn kostnað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu á varðbergi gegn orkusug-
um og hlauptu í burtu ef einhver þeirra verð-
ur á vegi þínum. Hún stjanar við ónefndan
sporðdreka.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú vilt koma skipulagi á hlutina
þannig að þú getir lagt drög að því að fara í
ferðalag eða á námskeið. Gerðu áætlun um
það hvernig þú getur best unnið að heil-
brigðri sál í hraustum líkama.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þig kann að langa að spreyta þig á
nýrri aðferð í samskiptum þínum við börn í
dag. Nýttu þér meðbyrinn en mundu að
skjótt skipast veður í lofti. Og svo aftur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér
kvikmyndir, myndbönd og íþróttir til að gera
daginn ánægjulegan. Vertu þolinmóð/ur og
leyfðu hlutunum að hafa sinn gang.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu það eftir þér að gera eitthvað
óvenjulegt í dag. Kannski kaupir hann eitt-
hvað nýstárlegt, tæknilegt eða nútímalegt.
Ég hef alltaf gaman af því aðrifja upp vísur og sitthvað
smálegt þegar ég er á ferðalögum
og eins fór mér í síðustu viku. Fyrir
jólin 1894 kom út nýtt rit, „Jóla-
gjöf“, eftir Einar Jochumsson. Þar
er þessi kviðlingur til Hallgríms
biskups:
Orðið guðs þú illa passar
ekki þarf að gá að því;
útskrifaðir trúar trassar
trúnni spilla hempum í.
Í Ársriti Sögufélags Ísfirðinga
1986 segir frá því að séra Hannes
Arnórsson hafi verið á heimleið úr
kaupstað en komið við í Arnardal og
setið þar við drykkju nokkra stund.
Þegar komin er kveðjustund segir
prestur: „Ég kem nú fljótlega til þín
aftur, Guðrún mín.“ Síðan tekur
hann sig á og mælti fram þessa vísu:
Einn guð ráði ævi minni
ónýtt þó ég brúki tal.
Kannski það verði í síðasta sinni
sem ég drekk í Arnardal.
Séra Hannes drukknaði í þessari
ferð. Lík hans fannst rekið við lend-
inguna í Arnardal. Þetta var 18. des-
ember 1851. Séra Hannes var vel að
sér og skáldmæltur, lágur vexti og
glímumaður góður.
Sigurður Breiðfjörð kom í Arnar-
fjörð og dvaldi eitthvað í Hvestu, lík-
lega hjá Kristjáni Thorlacius. Sig-
urður þakkaði fyrir sig með þessari
vísu:
Þegar ég vestra var í Hvestu gestur
vinsemd mesta þáði þar
þá var flest til ununar.
Einhverju sinni kom Sigurður á
bæ og var spurður að heiti:
Þekkið þið ekki þennan mann
þá skal fræða yður:
Sigurður Breiðfjörð heitir hann,
húsgistingar biður.
Enn segir í ársritinu:
Víða um svæði hef ég hitt
hverful gæði af mönnum.
Lífið bæði og lánið mitt
leikur á þræði grönnum.
Þar segir að þessi snjalla hring-
henda muni vera eftir annan hvorn
þeirra feðga Jón Guðmundsson, sem
kenndur var við Haga, eða Guð-
mund son hans, sem síðast var
vinnumaður á Hvilft í Önundarfirði
og lést 1889.
Þá var spurt í ársritinu um höf-
und og tildrög þessarar vísu:
Marga vandavini á ég
víða um land er finnast
en Alexanders aldrei má ég
óbölvandi minnast.
Halldór Blöndal.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur að vestan um
guðsmenn og annað fólk
Í klípu
„ÉG VEIT EKKI HVAÐ ÉG Á AÐ SEGJA
ÞÉR. ANNAR BEKKUR ER BARA EKKI EINS
ÆÐISLEGUR OG FÓLK VILL MEINA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÉR SÝNIST ÞETTA VERA
HATTUR, ER ÞAÐ EKKI?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hvernig þú heldur
utan mig.
VIÐ ÆTTUM AÐ
LYFTA OKKUR UPP,
GRETTIR.
EIGUM VIÐ AÐ
HREYFA VARIRNAR
MEÐ GÖMLUM
ÓPERULÖGUM?!
OKKUR VANTAR
VÍKINGA-
HJÁLMA!
MEGIR ÞÚ
SETJAST Á
EINN.
EINKUNNI
R
HATTAR /
YFIRHAFNIR
SJÁÐU!
VEITINGAHÚS
Í MIÐRI
EYÐIMÖRKINNI!
VATN!
VATN!
VIÐ VERÐUM
AÐ FÁ VATN!
SJÁLFSAGT, HERRA
MINN. BORÐ FYRIR
TVO?
Keisarinn er ekki í neinum fötum!“hrópaði barnið í frægu ævintýri,
þegar í ljós kom að það sem menn
höfðu gefið sér væri ekki rétt. Ein-
hvern veginn þannig líður Víkverja
daginn eftir ein ótrúlegustu úrslit
sem sést hafa í sögu HM-keppn-
innar. Brasilíumenn eru ekki lengur
keisarar knattspyrnunnar, og höfðu
reyndar verið stórt spurningarmerki
í gegnum mótið. Sigurleikir liðsins
voru ekki sannfærandi, en tapið, hið
fyrsta í mótsleik í Brasilíu í um
fjörutíu ár, var það svo sannarlega.
x x x
Einn vinnufélaginn hafði á orði aðþetta hefði verið „11. sept-
ember“ fótboltans, það myndu allir
muna eftir því hvar þeir voru þegar
þeir sáu þýska stálið skera brasilíska
smjörstykkið í sundur 7-1. Þeir sem
eldri voru töluðu jafnvel um Kenne-
dy-stund. Þó að það virki nú kannski
fulldramatískt og jafnvel ónærgætið
að líkja þessum harmleikjum við úr-
slit á fótboltavelli, telur Víkverji
samlíkinguna þó rétta að því leyti að
fáir þeirra sem sáu leikinn muni
gleyma honum í bráð, allra síst þó
Brasilíumenn sjálfir.
x x x
Frú Víkverji var þó alsæl með úr-slitin, enda af þýskum ættum.
Hún hafði raunar séð þau fyrir, enda
berdreymin með eindæmum þegar
kemur að knattspyrnu, þrátt fyrir að
hún hafi lítinn áhuga á henni. Varaði
frúin Víkverja því við fyrir leik að
sigurinn yrði öruggur. Hana grunaði
þó ekki, frekar en flesta aðra að leik-
urinn yrði svo gott sem búinn í hálf-
leik, hvað þá að „þjóðarsorg“ myndi
ríkja eftir leikinn á heimili tengda-
foreldra hennar, sem lengi hafa stutt
Brasilíu á öllum stórmótum í gegn-
um þykkt og þunnt.
x x x
Víkverji hefur hins vegar sjálfur ígegnum tíðina frekar haft til-
hneigingu til þess að halda sjálfkrafa
með öllum liðum sem spila gegn
þýska stálinu. Hann mun áreiðan-
lega ekki bregða af þeim vana sínum,
og vonast því til þess að það muni
ekki valda honum of miklum vand-
ræðum þegar úrslitaleikurinn verð-
ur spilaður á sunnudaginn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Enginn er sem þú, Drottinn. Voldugur
ert þú og mikill er máttur nafns þíns.
(Jeremía 10:6)
Sérsmíðaðar baðlausnir
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
• Einangrunargler
• Gluggar (Ál og PVC-plast)
• Hurðir (Ál og PVC-plast)
• Speglar
• Gler
• Hert gler
• Lagskipt öryggisgler
• Litað gler
• Sandblástur
• Álprófílar
• Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-
skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af
ljósaspeglunum okkar vinsælu.
Á heimasíðu okkar glerborg.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Mörkina þar sem fagfólk veitir góða
þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf.