Morgunblaðið - 10.07.2014, Síða 19
UMRÆÐAN 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2014
Kynnt hefur verið
hugmynd að breyttri
legu nýs vegar yfir Öxi
á milli Háubrekku og
Reiðeyrar í botni Beru-
fjarðar. Hún snýst um
að vegurinn verði lagð-
ur upp brekkurnar í
vestanverðum Beru-
fjarðardal í gegnum
klappirnar undir Víð-
ineshjalla og þaðan yfir
Gljúfrið alla leið að
brúnni á Hemru. Í brekkunni fyrir
ofan sem sleppur aldrei við mikla
snjódýpt og blindbyl fer vegurinn
inn á gamla veginn. Samkvæmt þess-
ari hugmynd hefur verið hætt við að
leggja nýja veginn yfir túnið fram
hjá eyðibýlinu Melshorni og uppi í
brattri fjallshlíðinni fyrir neðan Mið-
hjalla og Mannabeinahjalla. Fullyrð-
ingar um 4 milljóna króna sparnað af
hverjum einasta flutningabíl sem aki
frekar yfir Öxi í stað þess að fara
Fjarðaleiðina og í gegnum Fá-
skrúðsfjarðargöngin einkennast af
tilefnislausum árásum á samgöngu-
mál fjórðungsins og eru í hróplegri
mótsögn við góða blaðamennsku.
Hafi stuðningsmenn Axarvegar
skömm fyrir kröfuna um lokun
Breiðdalsheiðar sem þeir setja fram
í þeim tilgangi að níða skóinn af
Breiðdælingum án nokkurs tilefnis.
Eldsneytis- og rekstrarkostnaður
flutningabifreiða margfaldast sé ekið
upp brekkurnar í Berufjarðardal og
yfir Öxi. Þegar ekið er niður brekk-
urnar eykst hættan á því að bremsu-
rör springi með skelfilegum afleið-
ingum um leið og bílstjórarnir reyna
allt sem þeir geta til að draga úr ferð
stóru ökutækjanna. Samkvæmt
breyttri legu kemur
þessi staðreynd í ljós ef
vegurinn í vest-
anverðum Berufirði
verður lagður í miklum
halla fram hjá Árnhús-
aflóa upp brekkurnar
fyrir neðan Víði-
neshjalla. Í tillögunni
að nýrri veglínu upp úr
Berufirði kemur hvergi
fram hvort hallinn á
veginum verði innan
við 10% eða vel yfir
þessari tölu. Með tilliti
til umferðaröryggis er
núverandi vegur yfir Öxi erfiður,
hæðóttur, hlykkjóttur, víða mjög
brattur og stórhættulegur mal-
arvegur. Hugmyndin að breyttri
veglínu segir ekkert að nýr vegur
upp úr vestanverðum Berufjarðardal
og yfir Öxi verði nú alveg hættulaus.
Á hlykkjóttum svæðum sem eru víða
mjög brött bjóða uppbyggðir vegir
upp á mikla slysahættu. Þar geta
snöggar veðrabreytingar sem eng-
inn sér fyrir óvænt hrellt vegfar-
endur þvert á allar veðurspár. Í
brekkunni fyrir ofan Hemru er nú-
verandi vegur í 13% halla. Þaðan fer
nýi vegurinn í beinu framhaldi niður
fyrir Hænubrekku og Háubrekku og
lendir í mikilli snjódýpt sem getur
orðið 6-10 metrar. Af þessum snjó-
þungu svæðum hefur greinarhöf-
undur tekið margar myndir og mælt
hæð snjóþyngslanna án þess að nú-
verandi vegir í þessum brekkum hafi
verið mokaðir í fleiri vikur og mán-
uði. Ólíklegt er að nýr vegur yfir Öxi
sé í sjónmáli eftir 15-20 ár á meðan
Vegagerðin og ríkissjóður festast í
svikamyllu Vaðlaheiðarganga sem
vegtollur á hvern bíl fjármagnar
aldrei. Útilokað er að Vegagerðin
geti tryggt að uppbyggður vegur á
öllu svæðinu milli Háubrekku og
Hemru verði hindrunarlaus og losni
endanlega við allt fárviðrið og öll
snjóþyngslin sem stuðningsmenn
Axarvegar vilja flytja yfir á Breið-
dalsheiði. Uppbyggður vegur yfir
Öxi sem hart er deilt um tryggir
aldrei að Egilsstaðir, Fljótsdals-
hérað og Djúpivogur fari um ókomin
ár inn á eitt samfellt atvinnusvæði.
Ástand núverandi vegar við Víná og í
bröttu brekkunni á Þrívörðuhálsi er
engu betra en í hinum brekkunum
sem hér eru nefndar. Til þess að
sleppa við snjóþyngslin og illviðrið
milli Háubrekku og Hemru ætti
frekar að athuga hvort nýi vegurinn
yrði öruggari fyrir mikilli snjódýpt
ef hann væri tekinn frá svæðinu nær
Merkjalæk og farið með hann í
litlum halla niður fyrir Vínárnes-
hjalla og Víðineshjalla í vest-
anverðum Berufjarðardal. Uppi í
brattri fjallshlíðinni í austanverðum
dalnum fyrir neðan Miðhjalla og
Mannabeinahjalla lendir vegurinn
frekar á hættusvæði. Þar getur hann
með skelfilegum afleiðingum sópast
niður snarbratta fjallshlíðina í aust-
anverðum Berufjarðardal fyrir ofan
Beitivelli ef aurskriður, grjóthrun og
snjóflóð hrella vegfarendur.
Nýr Axarvegur á snjóþungu svæði
Eftir Guðmund
Karl Jónsson »Eldsneytis- og
rekstrarkostnaður
flutningabifreiða marg-
faldast sé ekið upp
brekkurnar í Beru-
fjarðardal og yfir Öxi.
Guðmundur Karl
Jónsson Höfundur er farandverkamaður.
Það er svo óend-
anlega margt sem er
ruglandi þessa dagana
hér á Íslandi. Sumarið,
sem allir eru að bíða
eftir, minnir helst á
djúpa haustlægð sem
engan endi ætlar að
taka. Verslanir hafa
stillt upp strandskóm
og kjólum sem enginn
lítur á á meðan lopa-
peysur og regnjakkar rjúka út eins
heitar lummur. Krakkaræflarnir
okkar rembast við úti-íþróttirnar þar
sem þrautseigjan skiptir meira máli
en tæknin. Ferðamenn virðast vera
þeir einu sem eru rétt klæddir á
Laugaveginum í fjallaskóm með bak-
poka, algerlega við öllu búnir á mal-
bikinu í Reykjavík.
Þrátt fyrir að þetta sé allt saman
afar undarlegt er fátt sem toppar þá
umræðu sem á sér stað um komu
Costco til Íslands. Sem betur fer
megum við enn ferðast til útlanda og
þeir sem hafa hætt sér til Bandaríkj-
anna hafa slysalaust komist í gegn-
um stórmarkaði sem selja bæði
verkjalyf, vín og kjöt undir sama
þaki. Það þarf ekki endilega að kaupa
alla þessa hluti í sömu ferðinni en for-
réttindin eru þau að þetta sé í boði.
Sú forræðishyggjuumræða sem á
sér stað um að við séum ekki þjóð
sem vilji breyta reglugerðum til að
þóknast stórum verslanakeðjum er
að mínu mati algerlega á villigötum.
Ég ímynda mér að þær verslana-
keðjur sem nú þegar eru hér á landi
hafi ekkert á móti breytingum á
reglum og lögum er lúta að frjálsari
innflutningi og fjölbreytni í vöruvali
verslana. Mér finnst rök margra
þeirra sem hafa horn í síðu fjöl-
breyttari verslunar á Íslandi frekar
þunn og á köflum hlægileg. Ég
treysti Íslendingum vel fyrir því að
velja heimilisvörur ásamt lausa-
sölulyfjum og vínflösku í
eina og sömu körfuna án
þess að draga af því þá
ályktun að viðkomandi
sé að stofna lífi sínu í
hættu.
Uppljóstranir þess
efnis að við séum ekki
að borða „íslenskt“ í ís-
lenskum pakkningum
eru sláandi en hins veg-
ar hafa þær ekki orðið
til þess að heilsufari
þjóðarinnar hafi farið
neitt sérstaklega aftur
við það eitt. Utanlandsferðir þar sem
brjálaðir Íslendingar versla í stór-
mörkuðum og borða „útlenskt“ hafa
heldur ekki borið velferðarkerfið of-
urliði. Bændur og matvælaframleið-
endur hafa ekki undan að rækta fæðu
ofan í okkur ásamt þeim milljón
ferðamönnum sem hingað eiga að
koma á næstunni og upplifa hreint
Ísland. Íslensk matvælaframleiðsla
er til fyrirmyndar og flest veljum við
að versla við okkar heimafólk en við
viljum einnig geta flutt þessar vörur
út til sölu og fengið þannig gjaldeyri.
Verndun matvæla eða landbúnaðar-
iðnaðarins á ekki að vera á kostnað
réttar neytandans til að velja hvað
hann vill. Honum á einnig að vera
treystandi til þess að bera ábyrgð á
heilsu sinni sjálfur án þess að tengja
það við að hann þurfi að fara í margar
sérverslanir til þess að bragðbæta
sunnudagssteikina með víni og losna
við hausverkinn sem því fylgir á
mánudegi.
Kostuleg umræða!
Eftir Karen
Elísabetu
Halldórsdóttur
Karen Elísabet
Halldórsdóttir
» Þrátt fyrir að þetta
sé allt saman afar
undarlegt er fátt sem
toppar þá umræðu sem
á sér stað um komu
Costco til Íslands.
Höfundur er bæjarfulltrúi í Kópavogi.
DÚKA www.duka.is
KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322
SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Litríkar, hagnýtar,
fíngerðar, óbrjótandi,
fallegar, spennandi,
endingargóðar, mjúkar,
skemmtilegar...
Allskonar gjafir
á óskalistann ykkar
Kláraðu listann
Brúðhjón sem gera
óskalista fá 10% afslátt
af öllum vörum hjá okkur
í 6 mánuði eftir brúðkaupið
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR