Morgunblaðið - 07.08.2014, Page 1
F I M M T U D A G U R 7. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 182. tölublað 102. árgangur
GLYS OG GLIMMER
HJÁ KÓNGUM OG
DROTTNINGUM
STJÓRNVÖLD
TAKA AF
SKARIÐ
MARKASÚPA Í
PEPSI-DEILD KARLA
Í KNATTSPYRNU
VIÐSKIPTAMOGGINN ÍÞRÓTTIRDRAGKEPPNIN 31
Fiskidag-
urinn mikli
verður hald-
inn með
pomp og
prakt yfir
helgina á
Dalvík. Bú-
ast má við
tugþús-
undum gesta en þéttsetin dagskrá
verður í boði fyrir þá sem leggja
leið sína þangað. Þar má nefna fjöl-
skylduratleik, Fiskidagsmót í golfi,
grillgleði, tónleika, flugeldasýn-
ingu og margt fleira.
Margar girnilegar veitingar
verða í boði og í fyrsta sinn verður
boðið upp á fiskipylsur. Reynt verð-
ur að slá heimsmet með því að baka
80 fermetra stóra saltfiskpítsu. »14
Búast má við tug-
þúsundum gesta á
Dalvík um helgina
Frá Fiskideginum mikla.
Misjöfn skipting
» Aðeins 8,8% íbúa Suðurnesja
eru komin á ellilífeyrisaldur en
14,7% íbúa Norðurlands eystra
eru komin á þann aldur.
» 7,4% íbúa Mosfellsbæjar eru
67 ára eða eldri en 27,3% íbúa
Tjörneshrepps.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarfélögin vilja ekki taka yfir
þjónustu við aldraða fyrr en ríkið
hefur samið um greiðslu uppsafn-
aðra lífeyrisskuldbindinga hjúkrun-
arheimila. Á meðan eru viðræður
um yfirtöku á þjónustunni í hæga-
gangi og ljóst virðist að hún kemst
ekki í framkvæmd fyrr en eftir
nokkur ár.
Áhugi hefur verið hjá sveitar-
stjórnarmönnum að taka yfir þenn-
an rekstur og Samtök aldraðra eru
því einnig fylgjandi. Auk vandamála
við skuldir hjúkrunarheimilanna
vilja fulltrúar sveitarfélaganna bíða
með ný verkefni þangað til búið er
að vinna að fullu úr málefnum fatl-
aðra sem færðust til sveitarfélag-
anna 2011. Vegna fjölgunar aldraðra
er ljóst að kostnaður við heilbrigð-
iskerfið og aðra þjónustu við aldraða
mun stóraukast á næstu árum og
áratugum. Halldór Halldórsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segir að með því að sameina
heimaþjónustu og heimahjúkrun
geti sveitarfélögin unnið verkefnið
betur en nú er gert og á hagkvæm-
ari hátt. Formaður Landssambands
eldri borgara hvetur til þess að lögð
verði meiri áhersla á þróun heima-
þjónustu í stað uppbyggingar hjúkr-
unarheimila. »12
Hika við að taka verkefnin
Sveitarfélögin setja það sem skilyrði að ríkið leysi vandamál vegna uppsafnaðra
lífeyrisskuldbindinga hjúkrunarheimilanna áður en þau taka við þjónustunni
Flybe Flugfélagið flýgur á milli
Keflavíkur og Birmingham.
Farþegafjöldi um Leifsstöð fór í
fyrsta skiptið yfir hálfa milljón í ný-
liðnum júlímánuði, en þá fóru
546.749 farþegar um flugstöðina.
Aukningin var 17,8% miðað við júlí-
mánuð í fyrra. Í júlímánuði 2005 fóru
301.939 farþegar um Leifsstöð. Á
síðustu tíu árum hefur farþegum í
júlí því fjölgað um tæplega 245 þús-
und, eða um liðlega 81%.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi
Isavia, segir að þetta hafi reyndar
ekki verið eina metið sem slegið var í
júlí, því Flugstjórnarmiðstöðin í
Reykjavík gaf það út í gær, að aldrei
hefðu fleiri flugvélar flogið í einum
mánuði um íslenska flugstjórnar-
svæðið en nú í júlí, en þær reyndust
vera 14.548 talsins. Að auki var sleg-
ið sólarhringsmet á sunnudaginn
þegar 612 flugvélar flugu um flug-
stjórnarsvæðið. Er það mesta um-
ferð á sólarhring að undanskildum
maímánuði 2010 þegar megnið af
allri umferð yfir Norður-Atlantshaf
fór um svæðið vegna gossins í Eyja-
fjallajökli.
Það sem af er þessu ári hafa tæp-
lega 2,2 milljónir farþega farið um
Leifsstöð. »4
Fjölgun um 81% á 10 árum
Farþegar í Leifsstöð 245 þúsundum fleiri í júlí nú en 2005
Árleg kertafleyting var á Tjörninni í Reykjavík í
gærkvöldi, en frá árinu 1985 hafa íslenskir frið-
arsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba
kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí í
Japan 6. og 9. ágúst 1945, þar sem um 200.000
manns létust. Kertunum er fleytt til að leggja
áherslu á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna.
Athöfnin er upprunnin í Japan.
Að þessu loknu voru Friðartónleikar í Frí-
kirkjunni í Reykjavík þar sem tónlistarhópurinn
Kúbus kom fram. Kertum var einnig fleytt við
Minjasafnstjörnina á Akureyri.
Kertum fleytt í minningu fórnarlamba kjarnorkuárása
Morgunblaðið/Ómar
Árleg kertafleyting var á Tjörninni í Reykjavík í gærkvöldi
„Ég fór í þessa ferð meðal annars
til að kynna mér hvernig þetta færi
fram og einnig út frá okkar sjónar-
hóli hjá Vegagerðinni. Það er alveg
ljóst að hjólreiðar á vegum úti hafa
færst í vöxt, bæði hjá ferðamönnum
og einnig verða hjólreiðakeppnir
sífellt vinsælli. Við þurfum að fylgj-
ast með þessari þróun,“ segir
Viktor Arnar Ingólfsson, útgáfu-
stjóri hjá Vegagerðinni, sem í sum-
ar tók þátt í WOW Cyclothon hjól-
reiðakeppninni sem bílstjóri. »13
Vegagerðin fylgist
með hjólreiðum
Mikill straum-
ur ferðamanna
hefur verið í
Þórsmörk í sum-
ar og er tilfinn-
ing þeirra sem
þar starfa að
hann hafi aukist
frá fyrri sumr-
um. Í Húsadal er
nú rekin fjallaskálagisting með að-
eins meiri lúxus en gengur og ger-
ist. Þar er hægt að sofa í uppá-
búnum rúmum, fara í gufu og nudd
og borða á veitingastað sem er með
vínveitingaleyfi. The Volcano Huts
er nú starfrækt þriðja sumarið í
Húsadal. »6
Nudd, gufa og glas
af víni í Þórsmörk
Frá Húsadal.
Novator, fjárfestingafélag Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, er orðið
stærsti einstaki hluthafi pólska
fjarskiptafélagsins Play með um
helmingshlut. Eigendur félagsins
gáfu í seinustu viku út skuldabréf
að andvirði 64 milljarða króna sem
nýtt var til þess að leysa til Novator
hlut Straums í Play. Það var loka-
hnykkur í skuldauppgjöri Björgólfs
Thors. »Viðskipti
Novator stærsti
hluthafinn í Play
orkugjafi
MÚLTI SPORT
FJÖREFNI FYRIR ÍÞRÓTTAMANNINN
eykur kraft
www.gulimidinn.is