Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 13
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég fór í þessa ferð meðal annars til
að kynna mér hvernig þetta færi
fram og einnig útfrá okkar sjón-
arhóli hjá Vegagerðinni. Það er al-
veg ljóst að hjólreiðar á vegum úti
hafa færst í vöxt, bæði hjá ferða-
mönnum og einnig verða hjólreiða-
keppnir sífellt vinsælli. Við þurfum
að fylgjast með þessari þróun,“ seg-
ir Viktor Arnar Ingólfsson, ritstjóri
hjá Vegagerðinni, sem í sumar tók
þátt í WOW Cyclothone hjólreiða-
keppninni sem bílstjóri í einu
keppnisliðanna.
Viktor ritar um þetta ferðalag ít-
arlegan pistil í fréttabréfi Vegagerð-
inni og veltir m.a. upp nokkrum
álitamálum sem geta komið upp í
tengslum við hjólreiðakeppnir og
umferð hjólreiða almennt um landið.
Alvöru hraðakeppnir
Viktor segir vegakerfið almennt
þola hjólreiðar áætlega, sér í lagi á
breiðustu og fjölförnustu vegunum.
Þar hafi bundið slitlag verið lagt á
vegaxlir og staðlar yfir nýja vegi
verið breikkaðir. En eftir því sem
vegirnar þrengjast þurfa hjólreiða-
menn og aðrir vegfarendur að gæta
sín betur.
Viktor bendir á að í tilviki WOW
Cyclothone hafi fjöldi keppenda tvö-
faldast á hverju ári undanfarin þrjú
ár. Í sumar tóku þátt yfir 60 lið með
alls 507 manns, bílstjórar meðtaldir.
Einnig eru hjólreiðakeppnir á
styttri vegalengdum vinsælar, eins
og Jökulmílan á Snæfellsnesi og
Gullni hringurinn um Laugavatn og
nágrenni.
„Þetta eru allt alvöru hraða-
keppnir og við hjá Vegagerðinni
þurfum að skoða hvað við getum
lagt á keppnishaldara með að
merkja vegi og annað slíkt. Við lít-
um ekki svo á að það sé hlutverk
Vegagerðarinnar.
Eins og reglurnar eru í dag þá
getum við hvorki bannað eða leyft
mönnum að halda hjólreiðakeppni á
vegum. Það er öllum heimilt að hjóla
eftir þjóðveginum,“ segir Viktor,
sem telur rétt að skoða hvort keppn-
ishaldarar sjái ekki til þess að merk-
ingar séu í lagi þegar keppnir fara
fram.
Viktor segir afar mikilvægt að
hjólreiðamenn séu klæddir litríkum
fötum, helst með endurskinsvesti.
Of mikið sé um dökkklædda hjól-
reiðamenn sem sjáist verr.
Aðspurður segir hann það ekkert
verra þótt hjólað sé í hnapp frekar
en að hópur hjólreiðamanna dreifi
sér meira, enda sæki þeir í að hjóla í
knapp til að brjóta betur vindinn og
spara orkuna.
Ljósmynd/Vegagerðin
Merkingar Vegagerðin telur æskilegt að merkingar séu settar upp sem vara vegfarendur við reiðhjólaumferð.
Fylgst með hjólum
Aukin hjólaumferð á vegum landsins Vegagerðin fylg-
ist með þróuninni Hjólreiðakeppnir verða æ vinsælli
Morgunblaðið/Golli
Hjólreiðakeppni Sigurvegarar í einstaklingskeppni WOW Cyclothone í
sumar. Hjólað var hringinn um landið dagana 24.-26. júní.
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Á
sg
ei
r
Sm
ar
i
Úthlutun húsnæðis á Stúdenta-
görðum lýkur á næstu dögum. Fjöldi
umsókna í ár stefnir í að verða svip-
aður og á síðasta ári en þá voru um-
sóknir fleiri en nokkru sinni fyrr,
eða rúmlega 1.800. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá FS,
Félagsstofnun stúdenta.
Síðastliðinn vetur bættust 299
leigueiningar við á Stúdentagörðum,
sem eru nú rúmlega 1.100 talsins,
þ.e. herbergi, einstaklings-, para- og
fjölskylduíbúðir. Á Stúdentagörðum
búa um 1.600 manns. Þrátt fyrir
þessa fjölgun húsnæðis á vegum FS
gerir félagið ráð fyrir að tæplega 800
manns verði eftir á biðlista.
Félagsstofnun stúdenta undirbýr
nú byggingu tæplega 100 stúd-
entaíbúða í Brautarholti og bíður
eftir úthlutun frekara byggingar-
lands. if@mbl.is
Fleiri vilja búa á Stúd-
entagörðunum en áður