Morgunblaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
afi, svo mikið gafstu af þér. Ef
það var eitthvað sem ég þurfti
að fá aðstoð við eins og það að
líta eftir stelpunum, fá góð ráð
eða laga einhverja hluti þá varst
þú alltaf boðinn og búinn til þess
að leggja fram þína aðstoð. Öll
börn og barnabörn sóttu í að
vera með afa Steina enda unni
hann þeim af öllu hjarta, við litlu
börnin sín öll lék hann og sagði
dú dú dú, við þau eldri sat hann
hjá og lék við þau, fór með í
bátsferð, á snjóþotu, í göngu og
margt fleira enda afi af lífi og
sál, og þér ber ég það að þakka
alla tíð afi minn. Þið amma
Ragga voruð samstíga í lífinu og
áttuð góða ævi saman sem ber
að þakka og lofa ég þér því afi
að halda utan um ömmu.
Ég vil biðja algóðan guð að
vaka yfir ömmu Röggu og okkur
öllum, fjölskyldu þinni, einnig
bið ég þess að þú hafir það gott í
sumarlandinu elsku afi og við
hittumst síðar.
Ragnheiður Stefánsdóttir.
Elsku besti afi.
Mikið er sárt að missa þig.
Það hefur alltaf verið svo ynd-
islegt að koma í Stekkjarholtið
til ykkar ömmu. Þið hafið alla tíð
verið svo samhent og tekið svo
vel á móti okkur öllum, alltaf
áhugasöm um það sem við börn-
in, barnabörnin og barnabarna-
börnin erum að gera. Þú hefur
alltaf gefið þér tíma fyrir börnin
og hægt að telja upp ótal minn-
ingar, hverja annarri betri. Við
vorum svo heppin að hafa þig
það lengi að börnin okkar muna
eftir þér og eiga allar þessar
yndislegu minningar með okkur.
Ég er svo innilega þakklát fyrir
að hafa fengið að hitta þig og
spjalla við þig tæpri viku áður
en þú fórst og verið hjá þér síð-
asta daginn með okkar nánustu
fjölskyldu, það er ómetanlegt
fyrir mig. Þú varst svo mikil
hetja og verður það alltaf, þú
ætlaðir að sigrast á krabbamein-
inu og gerðir allt sem þú mögu-
lega gast, ef það virkaði ekki
hafðirðu allavega gert tilraun til
þess. Ég er viss um að þetta hafi
gert gott með hjálp frá von þinni
og baráttuanda.
Elsku afi, minning þín lifir í
hjörtum okkar og mun ylja okk-
ur um ókomna tíð. Megi Guð
styrkja elsku ömmu og okkur
hin í sorginni.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín,
Ágústa, Ásbjörn Jakob
og Jóhann Ingi.
Með örfáum orðum langar
mig að kveðja og þakka áralöng
kynni. Steinar Hagalínsson hef-
ur alla tíð verið hluti af „sviðs-
myndinni“ í lífi mínu, alltaf í
seilingarfjarlægð með góð ráð
og fræðandi spjall, þá oftast um
gróður og nytjar. Lengst af höf-
um við búið í sama húsinu. Árið
1956 byggðu hann og faðir minn
ásamt eiginkonum sínum, systr-
unum Röggu og Siggu frá Teig,
íbúðarhús að Stekkjarholti 24.
Enn er það hús í eigu fjölskyldn-
anna og þar bjó Steini til ævi-
loka. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu
minnar og þó einkum aldraðrar
móður minnar þakka Steina
samfylgdina og áralanga góða
sambúð. Fjölskyldu hans, Röggu
frænku minni, börnum hennar
og fjölskyldum þeirra votta ég
samúð.
Blessi þig blómjörð,
blessi þig útsær,
blessi þig heiður himinn!
Elski þig alheimur,
eilífð þig geymi,
signi þig sjálfur Guð!
(Jóhannes úr Kötlum)
Úrsúla Árnadóttir (Sulla).
✝ Skúli Skúlasonfæddist í
Reykjavík 1. júní
1942. Hann lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 29.
júlí 2014.
Foreldrar hans
voru Skúli Þórðar-
son, yfirkennari
við Menntaskólann
í Reykjavík, f. 21.
júní 1900, d. 15.
maí 1983, og Helga Álfheiður
Árnadóttir húsmóðir, f. 26.
ágúst 1913, d. 1. febrúar 1998.
Systir Skúla er Líney, f. 15.
október 1939. Systkini Skúla
samfeðra voru Helga, f. 10.
desember 1926, d. 26. maí
1976, og Stefán, f. 13. desem-
ber 1929, d. 6. mars 1974. Þau
börn þeirra eru Kári Rúnar, f.
2009, og Kormákur Flóki, f.
2012.
Skúli ólst upp í Reykjavík og
gekk í Austurbæjarskóla. Hann
tók landspróf með góðri ein-
kunn árið 1958. Eftir tvo vetur
við Menntaskólann í Reykjavík
lá leið hans á sjóinn og síðar í
Stýrimannaskólann. Hann út-
skrifaðist frá Stýrimannaskól-
anum árið 1964.
Skúli stundaði sjómennsku í
rúm 30 ár. Hann vann ýmis
önnur störf tímabundið; sem
meðferðaraðili á Kleppspítala,
á Unglingaheimilinu í Kópa-
vogi og síðar Sjúkrahúsinu
Vogi. Skúli hætti alfarið sjó-
mennsku og hóf störf hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur ár-
ið 1997. Hann starfaði þar til
ársins 2011.
Útför Skúla fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 7. ágúst
2014, og hefst athöfnin kl. 13.
voru búsett í
Kaupmannahöfn.
Fyrri eiginkona
Skúla var Ragn-
heiður Edda Há-
konardóttir, f. 12.
ágúst 1939, og
eignuðust þau eina
dóttur, Helgu, f.
22. desember 1962.
Helga á eitt barn,
Skúla Flego, f.
1998. Seinni eig-
inkona Skúla var Kolbrún Þór-
arinsdóttir, f. 26. ágúst 1953,
og eignuðust þau tvær dætur,
Dagnýju, f. 25. desember 1980,
og Guðnýju, f. 5. febrúar 1984.
Maki Dagnýjar er Sif Hrafns-
dóttir, barn þeirra er Lovísa, f.
2010. Sambýlismaður Guðnýjar
er Valgeir Arnar Knútsson,
Vináttan er ein sál í tveim
kroppum, segir Aristoteles ein-
hvers staðar, sem er auðvitað
rugl. Ástin er háð stað og tíma, en
vináttan helst þrátt fyrir aðskiln-
að löngum stundum. Þannig var
það með okkur Skúla stýrimann.
Við kynntumst þegar ég flæmdist
burt úr Sigöldu vegna átaka við
Júkkana og réðst á togbátinn
Guðbjörgu frá Ólafsvík sem áður
var gerður út frá Ísafirði, mikið
aflaskip. Vinur minn hafði þurft
að fara í land til að hjálpa konu
með latínu á stúdentsprófi, sem
auðvitað endaði með hjúskap og
tveim dætrum og síðar barna-
börnum. Leysti ég hann af sum-
arið1975. Skúli var þá stýrimaður
á bátnum og urðum við strax góð-
ir félagar og vinir. Því segi ég að
Aristóteles rugli um vináttuna að
þessi fjörutíu ár sem vinskapur
okkar Skúla stóð er ekki með
nokkrum hætti hægt að segja að
við höfum verið ein sál. Við vor-
um mjög ólíkir að mörgu leyti, þó
aðallega vegna þess að Skúli var
miklu betri maður en ég.
Snemma fór hann á sjóinn,
trúlega í uppreisn gegn föður sín-
um Skúla magister Þórðarsyni.
Maður eignast ekki marga vini á
fullorðinsárum, flestir safnast að
manni fyrir tvítugt. Vinátta okk-
ar Skúla var þess vegna sérstök
og höfðum við samband af og til
upp frá Ólafsvíkursumrinu. Dreif
hann mig hvað eftir annað með
sér á togara, en hann var lengi
annar og fyrsti stýrimaður á Maí
frá Hafnarfirði.
Þegar ég hóf kennslu í Flens-
borg fór ég jafnan með nemendur
niður að höfn og væri Maí inni
bar oft við að Skúli sýndi skipið.
Hann hefði verið afburðakennari.
Einhvern tíma var ég að hjálpa
nemanda í Stýrimannaskólanum
og hafði samband við Skúla út af
siglingafræði. Þar var hann
heima og hafði yndi af því að
skýra hana fyrir mér, rétt eins og
þegar hann kenndi mér á Lóran-
tækin í Guggunni.
Sjómannslíf er erfitt, sérstak-
lega þegar komin er kona og börn
í spilið. Skúli fór því í land og fór
að keyra strætó. Samgangur
okkar var slitróttur en eftir að við
fórum að hittast reglulega í viku
hverri efldist vináttan á ný. Við
hugsuðum báðir gott til glóðar-
innar að eldast. Hann hafði
brugðið sér til Kína og dvalið þar
langdvölum. Ræddum við um að
gaman væri að fara þangað.
Þá er það að – „vinir berast
burt á tímans straumi/ og blómin
fölna’ á einni hélunótt“ – við
stöndum eftir hálf ráðvillt þegar
sjálfan stýrimanninn vantar.
Fáum mönnum lýsa þessar línur
betur en Skúla: – „þá er það víst,
að bestu blómin gróa/ í brjóstum
sem að geta fundið til“.
Fjölskyldu og börnum flyt ég
samúðarkveðjur.
Guðmundur Ólafsson.
Skúli Skúlason stýrimaður,
gamall og góður vinur, hefur nú
kvatt. Leiðir okkar lágu fyrst
saman þegar við hófum störf á
deild 10 á Kleppi haustið 1967.
Skúli var þá að koma í land eftir
tíu ára togarasjómennsku, 28 ára
gamall og var að takast á við
hjónaskilnað við móður Helgu,
elstu dóttur sinnar. Skúli ákvað í
jólafríinu sínu í 4. bekk í MR að
ráða sig á togara. Þar með voru
örlög hans ráðin. Hann lauk námi
við Stýrimannaskólann í Reykja-
vík og starfaði mestan hluta ævi
sinnar sem stýrimaður á togur-
um og bátum. Hann kunni sitt fag
sem stýrimaður mjög vel og bjó
yfir mikilli kunnáttu og reynslu.
Skúli kom þó víðar við í atvinnu-
lífinu, vann meðal annars við ung-
lingameðferð og áfengismeðferð.
Síðustu starfsárin keyrði hann
strætó í Reykjavík. Skúli var vel
gerður maður og góðhjartaður,
hreinn og beinn og talaði um-
búðalaust. Hann var sósíalisti af
guðs náð og hafði mikið innsæi í
stjórnmál, ekki síst þegar kom að
sjávarútvegi. Hann var glæsileg-
ur á velli og gustaði oft af honum.
Hann hafði mikinn áhuga á gít-
arleik, ekki síst rafmagnsgítar-
leik þeirra sem voru fremstir í
spilamennsku á árunum 1950-70.
Hann var ágætur gítarleikari
sjálfur, sótti tíma hjá Jóni Páli og
Ólafi Gauki á árum áður og átti
marga góða gítara gegnum tíð-
ina. Skúli eignaðist þrjár dætur
sem hann hugsaði vel um og var
stoltur af. Um leið og ég kveð vil
ég þakka fyrir áralanga vináttu í
leik og starfi, bæði á sjónum og í
meðferðarstarfinu. Fjölskyldu
Skúla, dætrunum Helgu, Dag-
nýju, Guðnýju, barnabörnum og
systur hans Líneyju, sendi ég og
fjölskylda mín samúðarkveðjur.
Georg Heide Gunnarsson.
Skúli Skúlason
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Minningargreinar
✝
Elskuleg móðir mín,
AÐALHEIÐUR BJÖRGVINSDÓTTIR,
Skarðshlíð 17,
Akureyri,
lést á Öldrunarheimilinu við Vestursíðu,
Akureyri, þriðjudaginn 29. júlí.
Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni,
Skarðshlíð 20, Akureyri, föstudaginn
8. ágúst kl. 13.30.
Jarþrúður Björg Sveinsdóttir.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir,
sonur, stjúpsonur og bróðir,
KAREL KRISTJÁNSSON
setjari,
Kleppsvegi 124,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
1. ágúst.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn
11. ágúst klukkan 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
Reykjadal.
Friðrik Ingi Karelsson, Sigrún Ammendrup,
Þórdís Karelsdóttir,
Þórdís Karelsdóttir,
Steinlaug Gunnarsdóttir
og systkini.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
BIRGIR INGÓLFSSON,
lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi,
laugardaginn 2. ágúst.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
föstudaginn 8. ágúst kl. 15.00.
María Guðmundsdóttir,
Sigríður Birgisdóttir, Karl Óskar Aðalsteinsson,
Ingólfur Birgisson, Herdís Fjóla Kristinsdóttir,
Garðar Birgisson, Friðný Sigurðardóttir,
Sigurður Birgisson, Helen Ósk Pálsdóttir,
Guðmundur Helgi Birgisson, Anke Steiniger,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
ÓÐINN LOGI BENEDIKTSSON,
Sléttuvegi 7,
Reykjavík,
lést á St. Franciskusspítala í Stykkishólmi
fimmtudaginn 31. júlí.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju
miðvikudaginn 13. ágúst kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök lungnasjúklinga.
Reikningur samtakanna er 115-15-372748, kennitala: 670697-
2079. Einnig er hægt að panta minningarkort á vef samtakanna:
http://www.lungu.is/
Kristín Björnsdóttir, Benedikt Lárusson,
Eyþór Benediktsson, Unnur H. Valdimarsdóttir,
Ingibjörg H. Benediktsdóttir, Gretar D. Pálsson,
Bryndís Benediktsdóttir, Birgir Jónsson,
Björn Benediktsson, Árþóra Steinarsdóttir,
Lára Benediktsdóttir,
Anne Bau.
✝
ÁRNI L. JÓNSSON
bólstrari og söðlasmiður,
Jófríðarstaðavegi 11,
Hafnarfirði,
lést mánudaginn 28. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Aðstandendur.
✝
Ástkær móðir mín og dóttir okkar,
BJÖRK AGNARSDÓTTIR
Gautlandi 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 29. júlí.
Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju
mánudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast Bjarkar er bent á
Geðhjálp og Klúbbinn Geysi.
Rakel Rósa Ingimundardóttir,
Guðjón Agnar Egilsson, Guðlaug Rakel Pétursdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ILLUGASON,
Helluhrauni 15,
Mývatnssveit,
lést föstudaginn 1. ágúst á Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga.
Útförin fer fram frá Reykjahlíðarkirkju
þriðjudaginn 12. ágúst kl. 14.00.
Guðrún Þórarinsdóttir,
Bára Mjöll Jónsdóttir, Jóhann Stefánsson,
Þórarinn Pálmi Jónsson, Ásta Price,
Illugi Már Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
EINAR ÞÓR GARÐARSSON,
Grænlandsleið 35,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
laugardaginn 2. ágúst.
Kristín Guðlaugsdóttir,
Guðný Pála Einarsdóttir, Bárður Guðlaugsson,
Þórunn Einarsdóttir, Guðbjörn Sigurvinsson,
Garðar Einarsson, Helga Baldvinsdóttir,
Sigríður Hanna Einarsdóttir, Samúel Ingi Þórarinsson,
Guðlaugur Einarsson, Gyða Sigurðardóttir,
Anna Kristín Einarsdóttir, Hannes Guðmundsson,
Erna Margrét Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.