Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
Ég mæti bara til vinnu eins og venjulega en síðan er náttúr-lega stórleikur í Krikanum, þar sem FH á séns á að komastáfram í Evrópudeildinni. Þar verð ég fremstur í flokki og
hvet mína menn áfram,“ segir Andri Sigurðsson, sem í dag fagnar
23 ára afmæli sínu.
Andri hefur í sumar unnið hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar auk þess
sem hann hefur að undanförnu starfað hjá Lífsverki, Lífeyrissjóði
verkfræðinga. Hjá vinnuskólanum hefur Andri í sumar starfað sem
mannauðsstjóri. „En þar sem flestallir vinnuflokkarnir hafa nú lokið
störfum rúnta ég um á sendiferðabíl, tíni upp graspoka og skila
þeim til síns heima,“ segir hann og bætir við að tími hans hjá vinnu-
skólanum hafi verið um margt gefandi. „Mér finnst mjög gaman að
vinna með börnum. Svo höfum við verið að reyna að bæta ímynd
vinnuskólans í sumar, m.a. með því að setja upp Facebook-síðu sem
ég sá um. Þar gefst fólki kostur á að setja inn ábendingar auk þess
sem við erum búin að vera dugleg við að setja þar inn árangurs-
tengdar myndir úr starfinu,“ segir hann.
Andri stundar nú nám í fjármálaverkfræði við Háskólann í
Reykjavík auk þess sem hann gegnir stöðu formanns Stúdentafélags
HR. „Ég er búinn með tvö ár og stefni að útskrift næsta vor. Eftir
það ætla ég svo að vinna í eitt til tvö ár og finna hvaða sérgrein ég
tek fyrir í meistaranáminu.“ khj@mbl.is
Andri Sigurðsson er 23 ára í dag
FH-ingur Afmælisbarnið Andri Sigurðsson lætur sig ekki vanta á
völlinn þegar hans lið keppir en FH mætir Elfsborg í kvöld.
Hvetur sína menn
áfram í Krikanum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Sigurbjörg Halla Svavarsdóttir er 18
ára í dag en hún fæddist 7. ágúst árið
1996 í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
18 ára
Árnað heilla
Reykjavík Heiðdís Lilja fæddist 8.
ágúst 2013 kl. 10.52. Hún vó 3.080 g
og var 49 cm löng. Foreldrar hennar
eru Berglind Rós Ragnarsdóttir og
Björn Sindri Arinbjarnarson.
Nýir borgarar
J
ónas Þórir fæddist á Ak-
ureyri 7.8. 1944 og ólst
þar upp. Hann var í sveit
hjá frænku sinni í Tungu-
koti í Skagafirði í sjö ár,
gekk í Barnaskóla Akureyrar og í
Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann
var skiptinemi í Bandaríkjunum
1961-62, vann um tíma hjá Bílasölu
Akureyrar og við Útvegsbanka Ís-
lands á Akureyri og í Reykjavík.
Þá stundaði hann nám við biblíu-
skóla í Noregi 1966-67 og lauk
kennaranámi frá Kennaraskóla Ís-
lands 1971.
Jónas Þórir var félagi í KFUM á
Akureyri og tók virkan þátt í starfi
samtakanna. Hann starfaði í Eþíóp-
íu á vegum Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga á árunum 1973-
87. Þar sinnti hann kennslu-
störfum, boðunarstarfi, þróunar- og
hjálparstarfi og vann við fjármál
Jónas Þórir Þórisson framkvæmdastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Jónas Þórir og Ingibjörg með börnum sínum í kveöjuhófi sem Jónasi var haldið í janúar sl..
Kristniboð á tímum
kommúnistabyltingar
Í Eþíópíu Fjölskyldan og innfæddir hjálpast að við að losa bílinn úr forarpytti.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is