Morgunblaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 219. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Eftirförin í gærkvöldi: Myndskeið
2. Fimm leituðu á neyðarmóttöku
3. Unga konan vildi stytta sér leið
4. Fengu pítsur sendar með þyrlu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Leikstjórinn Stefan Metz og leik-
mynda- og búningahönnuðurinn
Sean Mackaoui, sem hlutu einmuna
lof fyrir sviðsetningu sína á Eldraun
Arthurs Millers síðastliðið vor, snúa
aftur til starfa í Þjóðleikhúsinu á
næsta leikári. Að þessu sinni takast
þeir á við íslenska klassísk, því þeir
munu setja upp Fjalla-Eyvind eftir Jó-
hann Sigurjónsson. Verkið var ein af
þremur opnunarsýningum Þjóðleik-
hússins árið 1950 og leikið aftur í
húsinu árið 1988. Skammt er síðan
leikhópurinn Aldrei óstelandi sýndi
verkið við góðar viðtökur. Frumsýn-
ing er áætluð á Stóra sviðinu í apríl.
Í lok febrúar verður á sama sviði
frumsýndur söngleikurinn Loki eftir
Hugleik Dagsson í leikstjórn Selmu
Björnsdóttur. Þar mun Hugleikur
bregða á leik með viðteknar hug-
myndir um norræna goðafræði, Loka
og aðra íbúa Ásgarðs, snúa upp á
þær, toga og teygja á meinfyndinn
hátt undir dynjandi tónlist.
Morgunblaðið/Ernir
Hugleikur og Metz
takast á við arfinn
Gagnrýnendur dagblaðsins Boston
Globe setja sýningu á verki
Ragnars Kjartanssonar, The
Visitors, í Samtíma-
listasafninu í Boston efst
á lista yfir þær sýningar
sem gestir og gangandi
þar í borg þurfa að
sjá. Er myndbands-
verkið sagt
„heillandi“ eins og
þeir sem sáu það í
Kling & Bang gall-
eríi í vetur vita.
Mælt með Gestum
Ragnars í Boston
Á föstudag Norðaustan 3-10 m/s með rigningu fyrir norðan og
austan, en skúrum annars staðar. Hiti 8 til 14 stig.
Á laugardag Norðaustlæg átt 3-10 m/s og skúrir. Hlýjast SV-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 m/s með SA-ströndinni,
en lægir þegar líður á daginn. Víða rigning, síst þó um landið NV-
vert. Hiti 7 til 18 stig að deginum, hlýjast V-til.
VEÐUR
„Þeir tóku ekkert illa í þá
hugmynd okkar að fjölga
liðum á HM í Katar. Sá
möguleiki var því ekkert úti-
lokaður af IHF, heldur vill
sambandið fá að velta
þessu fyrir sér og hvað það
myndi þýða. Það voru ansi
hreinskilnar umræður um
það,“ sagði Guðmundur B.
Ólafsson, formaður Hand-
knattleikssambands Ís-
lands, HSÍ, við Morgun-
blaðið í gær. »1
IHF útilokar
ekkert ennþá
Aron Rúnarsson Heiðdal kom inn í
Pepsi-deild karla í knattspyrnu með
miklum látum þegar miðvörðurinn
ungi skoraði í sínum fyrsta deildar-
leik fyrir Keflavík í
gærkvöldi. Kefla-
vík og Breiðablik
gerður ævin-
týralegt 4:4-
jafntefli. Alls var 21
mark skorað í fjórum
leikjum í gær-
kvöld. Valur
vann Fjölni,
4:3, Fram
sigraði Þór,
2:0 og
Fylkir
hafði bet-
ur gegn
ÍBV, 3:1.
»2-4
Aron kemur inn í Pepsi-
deildina með látum
Sundsamband Íslands, SSÍ, veltir fyr-
ir sér þeim möguleika hvort rétt væri
að sniðganga Evrópumótið í 25 metra
laug sem á að fara fram í Ísrael á
næsta ári, vegna stríðsins milli Ísr-
aels og Palestínu. Það er yfirlýst
stefna íslensku íþróttahreyfing-
arinnar að blanda ekki saman íþrótt-
um og pólitík, en SSÍ vill allavega
ræða málin. »3
Sundsambandið íhugar
að sniðganga Ísrael
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Íslensk ber eru nú komin í búðir og
njóta þau mikilla vinsælda. Logi
Helgason, eigandi búðarinnar Vín-
bersins á Laugaveginum, segir ís-
lensk ber fljúga úr hillunum. „Við
höfum selt fersk ber í nokkur ár.
Fyrstu sendingar komu fyrir
stuttu en venjulega byrjar íslenska
berjatínslutímabilið ekki fyrr en
um miðjan ágúst. Þetta eru aðal-
lega Íslendingar sem kaupa berin
en einnig útlendingar að einhverju
leyti.“
Þá segir Logi að margir bíði
spenntir á þessum árstíma. „Marg-
ir bíða spenntir eftir því að berin
komi ár hvert. Ég fæ oft spurn-
ingar í júlí um hvenær berin fari að
koma. Íslensku berin eru nefnilega
afar gott hráefni. Ef við fáum góð
bláber í búðina þá hverfa þau strax
úr hillunum. Við höfum hingað til
verið að selja bláber, aðalbláber og
krækiber.“
Mæta ekki eftirspurninni
Þá var spurt hverjir tíndu blá-
berin. „Það er fólk úti á landi sem
tínir bláberin. Svo er þetta oft líka
fólk í sumarfríum og auðvitað tínir
bændafólk líka mikið. Í fyrra var
ekki tínt nóg af berjum til að mæta
eftirspurninni. En í fyrra var
reyndar sérstaklega slæmt ár fyrir
sprettu berja. Ómögulegt er samt
að mæta eftirspurninni ef berin eru
góð, því þá rjúka þau
út um búðardyrnar.
Eftirspurnin fer
mikið eftir gæð-
um berjanna
þannig að
salan getur
verið mjög
misjöfn. Hún
hleypur alla-
vega á tugum
kílóa á viku á
sumrin,“ segir Logi um stöðu mála.
Bjarni Óskarsson, eigandi Valla í
Svarfaðardal, selur bláber og
krækiber til búða og fyrirtækja á
Íslandi. „Þetta ár hefur byrjað
rosalega vel. Berjasprettan hefur
aldrei verið meiri hér á Norður-
landi. Ég kaupi ber af fólki og við
vinnum síðan úr þeim. Við fengum
fyrstu berin 22. júlí, sem er mjög
snemmt, en veðrið hefur verið
æðislegt og það hjálpar mikið. Við
seljum berin mest fersk til versl-
ana Víðis. Við höfum verið að fram-
leiða nokkrar afurðir úr berjunum,
til dæmis sultur og álíkar vörur. Þá
má nefna að Emmessís framleiðir
ís úr berjunum okkar og Vífilfell
hefur verið að brugga bjór úr
þeim.“
Íslensku berin komin í búðir
Berin rjúka úr
hillunum segir
kaupmaður
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Berjaveisla Logi Helgason, eigandi verslunarinnar Vínbersins á Laugavegi, ásamt starfsmanninum Kristínu Rún
Gunnarsdóttur. Mjög góð berjaspretta hefur verið á Norður- og Austurlandi. Þökk sé hlýindum og sólskini.
Berjasprettan hefur verið misjöfn eftir landshlutum í sumar. Hún hefur
verið mjög góð á Norður- og Austurlandi, þökk sé hlýindum og sólskini.
Að sama skapi hefur berjasprettan farið hægt af stað á Suður- og
Vesturlandi, enda hefur verið mikið um votviðri og kalda
daga þar. Með auknum hlýindum á Íslandi hefur
berjatínslutímabilið færst nær júlí, en áður hófst
berjatínsla venjulega um miðjan ágúst. Guðlaug
Vagnsdóttir hefur tínt ber á Vestfjörðum í 40 ár en hún
býr á Þingeyri. „Berjatínsla hefur farið hægt af stað í
ár. Ekki hefur verið mikið sólskin þannig að berin hafa
ekki látið sjá sig hér á Vestfjörðum. Berin eru þó fljót
að taka við sér ef sólskin kemur, þannig að ekki er öll
von úti,“ segir Guðlaug.
Sólskin skiptir miklu máli
BERJASPRETTAN MISGÓÐ EFTIR LANDSHLUTUM