Morgunblaðið - 18.08.2014, Blaðsíða 1
Engin merki um yfirborðsbreyting-
ar, svo sem sprungur, katlar eða sig-
dældir, sáust í leiðangri jarðvísinda-
manna og fleiri á Bárðarbungu á
Vatnajökli í gær. Skjálftamælar hafa
síðustu daga sýnt þar stöðugan óróa
sem talinn er geta verið fyrirboði um
eldgos. Fylgst er með framvindunni
og hefur mælum og myndavélum á
svæðinu verið fjölgað.
Vegna aðsteðjandi hættu, svo sem
vegna flóða, ákvað sýslumaðurinn á
Húsavík í gær að loka Gæsavatnaleið
og svæðum við Jökulsá á Fjöllum,
svo sem Herðubreiðarlindum, fyrir
umferð. „Í óvissuástandi, eins og nú
hefur verið lýst yfir, töldum við með
hliðsjón af fjarlægð og flóttaleiðum
nauðsynlegt að loka svæðinu,“ segir
Svavar Pálsson sýslumaður. Hann
bendir á að í eldsumbrotum gæti
vatnsflóð norðan Vatnajökuls brotist
fram hratt og af þunga og þá yrði
erfitt að koma björgunarliði á stað-
inn. Því sé allur varinn góður og lok-
un svæðisins eðlileg ákvörðun. 2
Nauðsynlegt að loka
svæðinu í óvissunni
Lokað fyrir umferð
MývatnAkureyri
Askja
Loftmyndir ehf.
Lokað
svæði
M Á N U D A G U R 1 8. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 191. tölublað 102. árgangur
RÆKTA MAT-
JURTIR Í ANDA
VISTRÆKTAR
ÍSLANDS-
MEISTARAR
SJÖ ÁR Í RÖÐ
GLENN SIGURDSON
SKRIFAR UM VÍK-
INGA Á SLÉTTUNNI
SIGLINGAR ÍÞRÓTTIR BÓK UM VESTUR-ÍSLENDINGA 26SAMVINNA 10
Það var mikil gleði og gaman í gær á lokaballi
Reykjadals, sem fram fór í íþróttahúsinu í
Reykjadal, og ætlaði þakið hreinlega að rifna af
stendur að rekstri Reykjadals en þar dvelja ár-
lega um 250 fötluð börn og ungmenni á aldrinum
8-21 árs, sem ekki geta sótt aðrar sumarbúðir.
húsinu þegar stuðboltinn Páll Óskar Hjálmtýs-
son var afhjúpaður sem leynigestur dagsins.
Það er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem
Rífandi stemning þegar Palli steig á sviðið
Morgunblaðið/Eva Björk
Gleðin skein úr andliti viðstaddra á lokaballi Reykjadals í gær
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Verkalýðsforingjar í ASÍ búa sig
undir harðar kjaraviðræður í vetur.
Viðræðurnar hefjast formlega um
næstu mánaðamót, en fyrst um sinn
verða almennari samningsatriði
rædd, áður en samið verður um laun.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sem hefur gagnrýnt hækkandi laun
stjórnenda fyrirtækja, segir að ef
menn vilji hafa misskiptinguna í fyr-
irrúmi, þá muni ASÍ ekki semja um
stöðugleika, heldur taka það sem því
beri og hvetja félagsmenn til að beita
því afli sem verkalýðshreyfingin búi
yfir. Þá telur Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, formaður RSÍ, að ekki
hafi tekist að ná samstöðu á atvinnu-
markaði um hóflegar launahækkan-
ir. „Ljóst er að þegar við fórum í þá
vegferð í fyrra að semja um hóflegar
launahækkanir upp á 2,8% var for-
sendan sú að allir færu með í veg-
ferðina, en ekki einungis aðildar-
félög ASÍ. Augljóst er að það hefur
ekki tekist og mun það eflaust hafa
áhrif á kjaraviðræðurnar í haust,“
segir Kristján, en hann telur að raf-
iðnaðarmenn eigi eftir að fá sína
launaleiðréttingu, sem þurfi ekki að
kalla á aukna verðbólgu, ef aðrar at-
vinnustéttir sitji kyrrar. isb@mbl.is
Mæta misskiptingu með afli
Verkalýðsforingjar gagnrýna kjarasamninga kennara og hækkandi laun stjórn-
enda fyrirtækja Búa sig undir kjaraviðræður sem fara í gang eftir tvær vikur
MVerkalýðshreyfingin »4
Sérfræðingar
vestanhafs vara
netnotendur við
því að þeir megi
vænta frekari
truflana vegna
uppfærslu á net-
beinum netfyr-
irtækja. Netnot-
endur í
Norður-
Ameríku urðu
varir við truflanir í síðustu viku
þar sem gagnaflutningar voru
hægir. Skýringuna á nettruflun-
unum má rekja til þess að sumir
eldri netbeinar netþjónustuaðila í
Bandaríkjunum ráða ekki lengur
við stærð netsins.
Að sögn Björns Róbertssonar,
kerfisstjóra Internets á Íslandi
hf. (ISNIC), mun hinn almenni ís-
lenski netnotandi ekki finna fyrir
beinum áhrifum af þessari stöðu
sem upp er komin í Bandaríkj-
unum en hann telur líkur á því að
fólk geti lent í vandræðum með
stöku vefsíður. » 16
Mega vænta frekari
truflana á netinu
Truflanir Vanda-
mál á netinu.
Heimasíðan Caritas.is er ný ís-
lensk bílaleigumiðlun þar sem bif-
reiðaeigendur eiga kost á því að
láta bílinn sinn vinna fyrir sig.
„Fólk sem á bíl getur skráð sig
inn á síðuna, sent inn upplýsingar
um bílinn sinn og þá er hann skráð-
ur,“ segir Vignir Már Lýðsson, einn
upphafsmanna heimasíðunnar.
Verkefnið er gert í samvinnu við
Samgöngustofu og öll trygginga-
félögin en það er hugbúnaðarfyr-
irtækið Integral Turing sem er á
bakvið síðuna og segir Vignir að
verkefnið sé byggt á erlendri fyr-
irmynd, en samskonar fyrirtæki
hafa náð miklum vinsældum í Kali-
forníu í Bandaríkjunum. »9
Íslendingar geta nú
leigt út bílinn sinn
Bílaleiga Caritas.is býður Íslendingum
upp á að „láta bílinn vinna fyrir sig.“
Vopnaðar öryggissveitir fóru um
borð í Lagarfoss, nýjasta skip Eim-
skipafélagsins, og gaddavír var
festur á skipið áður en það sigldi í
gegnum Súesskurðinn á heimleið-
inni til Íslands, vegna hættu á sjó-
ráni. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim-
skips, segir að ráðist sé á 250 skip á
þessu svæði á hverju ári.
Fjöldi fólks tók á móti Lagarfossi
þegar skipið kom heim til Íslands í
fyrsta sinn, eftir 12.200 sjómílna
ferðalag. ash@mbl.is »4
Þurftu að vígbúast
vegna hættu á sjóráni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lagarfoss Gaddavír var á síðunum
og vopnaðir öryggisverðir um borð
á siglingunni um Súesskurðinn.