Morgunblaðið - 18.08.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Ísraelar vöruðu við því í gær að þeir
myndu ekki undirrita samkomulag
um langtímavopnahlé á Gaza nema
það tryggði öryggi Ísrael. Viðræður
milli fulltrúa Ísrael og Palestínu hóf-
ust aftur í Kaíró í gær en yfirstand-
andi vopnahlé rennur út á miðnætti
að staðartíma.
Hlé var gert á viðræðum sl. mið-
vikudag, þegar fulltrúarnir sneru
heim til að ráðfæra sig við pólitíska
leiðtoga. Að viðræðunum koma m.a.
talsmenn Hamas og Íslamsks jíhads,
sem voru væntanlegir til Egypta-
lands í gærkvöldi.
Talsmaður Hamas á Gaza, Sami
Abu Zuhri, sagði í samtali við AFP
að Palestínumenn myndu ekki falla
frá kröfum sínum, þ. á m. að her-
kvínni um svæðið yrði aflétt. Ben-
jamin Netanyahu, forsætisráðherra
Ísrael, sagði hins vegar að Hamas-
samtökin myndu ekki bæta upp
hernaðarlega ósigra með pólitískum
sigrum við samningaborðið.
AFP hafði eftir ísraelskum emb-
ættismanni í gær að Ísraelar hefðu
ákveðið að heimila veiðar frá Gaza,
en þær hafa verið óheimilar frá því
að átökin hófust 8. júlí sl. Þrátt fyrir
að tímabundið vopnahlé hafi gefið
íbúum svæðisins grið undanfarna
daga búa margir þeirra við ömur-
legar aðstæður, t.d. vatnsskort.
„Það er ekkert vatn hér og sal-
ernin eru afar skítug; þetta er ekk-
ert líf,“ hafði AFP eftir Feriel al-
Zaaneen í gær, en hún býr í einu af
fjölmörgum flóttamannaskýlum
Sameinuðu þjóðanna og hefur ekki
getað farið í sturtu í mánuð.
holmfridur@mbl.is
Öryggi Ísrael
verði tryggt
AFP
Flóttafólk Fjölskyldur hafast við í
eyðilagðri íbúðablokk í Gaza.
Vopnahlésviðræður hefjast á ný
Setja fram ófrávíkjanlegar kröfur
Hernaðarmálayfirvöld í Kænugarði
sögðu frá því í gær að þau hefðu
dregið úkraínska fánann að húni við
lögreglustöð í norðausturhluta
borgarinnar Lugansk, en borgin
hefur verið eitt helsta vígi uppreisn-
armanna í austurhluta landsins.
Utanríkisráðherrar Úkraínu, Rúss-
lands, Þýskalands og Frakklands
funduðu í Berlín í gær, þar sem
ræða átti mögulegar leiðir að varan-
legu vopnahléi.
Stjórnvöld í Úkraínu héldu því
fram í gær að enn fleiri hergögn
hefðu verið flutt inn í landið frá
Rússlandi, þ. á m. þrjú Grad-
flugskeytakerfi. Þá sagði Alexander
Zakhartsjenkó, sem titlar sig for-
sætisráðherra Alþýðulýðveldisins
Donetsk, í myndbandi sem birt var á
laugardag að uppreisnarmönnum
hefði borist 1.200 manna liðsauki
sem hefði verið við þjálfun í Rúss-
landi í fjóra mánuði, og fjöldi her-
gagna, þ. á m. skriðdrekar.
Talsmaður Vladimírs Pútín, for-
seta Rússlands, neitaði því í gær að
Rússar hefðu sent vopn yfir landa-
mærin en minntist ekki á meinta
sendingu af bardagamönnum. Ang-
ela Merkel, kanslari Þýskalands,
sagði í gær að stjórnvöld í Moskvu
þyrftu að gera grein fyrir staðhæf-
ingum uppreisnarleiðtogans.
Trójuhestur?
Yfirvöld í Úkraínu og Rússlandi
héldu áfram að deila um gríðarstóra
sendingu af neyðargögnum sem var
stöðvuð við landamærin sl. fimmtu-
dag. Um er að ræða u.þ.b. 300 vöru-
bíla sem Rússar segja flytja nauð-
þurftir til handa íbúum Lugansk, en
stjórnvöld í Kænugarði og banda-
menn þeirra óttast að um Trójuhest
sé að ræða og sendingin sé ætluð
uppreisnarmönnum hliðhollum
Rússum.
Alþjóðanefnd Rauða krossins,
sem hefur umsjón með afhendingu
gagnanna, sagði í gær að Úkraínu-
menn og Rússar hefðu komist að
samkomulagi um hvernig eftirliti
með sendingunni yrði háttað en eftir
væri að tryggja öryggi hennar er
hún ferðaðist gegnum yfirráðasvæði
uppreisnarmanna. Talsmaður
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu sagði í gær að aðilar myndu
funda í dag. holmfridur@mbl.is
Úkraínski her-
inn í Lugansk
Uppreisnarmenn segjast hafa fengið
1.200 manna liðsauka frá Rússlandi
AFP
Stop Fólk bíður við Donetsk-
Izvarino landamærastöðina.
Umferð um landamærin
» Uppreisnarleiðtogi sagði í
myndbandi sem birt var á
laugardag að aðskilnaðar-
sinnum hefði borist 1.200
manna liðsauki frá Rússlandi.
» Stjórnvöld í Kænugarði og
bandamenn þeirra óttast að
sendingunni frá Rússlandi sé
jafnvel ætlað það hlutverk að
skapa ástæðu fyrir Rússa til að
senda hermenn inn í austur-
hluta Úkraínu.
Írak. AFP. | Hersveitir Kúrda náðu
Mosul-stíflunni í Írak aftur á sitt
vald í gær, á sama tíma og íraskar
öryggissveitir og ættbálkar súnní-
múslíma börðust við vígasveitir
Ríkis íslams vestur af Bagdad. Um
er að ræða stóran sigur en stíflan
sér íbúum á stóru svæði við ána
Tígris fyrir rafmagni og vatni til
ræktunar.
Viðureignin um stífluna vannst
eftir að Bandaríkjamenn létu til
skara skríða gegn íslamistunum á
laugardag og sunnudag, með orr-
ustuflugvélum og ómönnuðum flug-
tækjum. Hermálayfirvöld vestra
sögðust í gær m.a. hafa eyðilagt tíu
vopnuð farartæki, tvær brynvarðar
fólksflutningabifreiðar og eina eft-
irlitsstöð Ríkis íslams. AFP hafði
eftir háttsettum einstaklingi innan
íraska hersins í gær að þrátt fyrir
að bardögum umhverfis stífluna
væri lokið væru sum svæði enn
ófær vegna sprengna sem íslamist-
arnir hefðu komið fyrir.
Ættbálkarnir rísa upp
Á öðrum vígstöðvum, vestur af
Ramadi, höfuðborg Anbar-héraðs,
sóttu íraskar öryggissveitir og ætt-
bálkar súnní-múslíma á gegn ísl-
amistunum. Þá var einnig barist
nærri bænum Haditha í Efrat-daln-
um, nálægt annarri mikilvægri
stíflu. Fleiri en 25 súnní-ættbálkar
lýstu yfir stríði gegn Ríki íslams á
föstudag, sem kann að marka þátta-
skil í átökunum gegn íslamistunum.
Abduljabbar Abu Risha, einn
leiðtogi uppreisnar ættbálkanna,
sagði hana hafa verið í undirbúningi
síðustu vikur og að hún tengdist
ekki yfirlýsingu Muri al-Maliki, for-
sætisráðherra Írak, sem tilkynnti á
fimmtudag að hann hygðist ekki
gegna embættinu þriðja kjörtíma-
bilið í röð. Hins vegar er talið víst
að ættbálkarnir verði fúsari til að
eiga samstarf við stjórnvöld í kjöl-
far yfirlýsingar Maliki, sem er sjíti.
Myrtu 80 jasída á föstudag
Þrátt fyrir þróun mála yfir
helgina stendur minnihlutahópum á
borð við jasída og kristna enn ógn
af íslamistunum í norðurhluta
landsins, en þeir myrtu 80 jasída í
þorpinu Kocho, nærri borginni Sinj-
ar, á föstudag. Mannréttindasamtök
og íbúar hafa sagt að bardagamenn
Ríkis íslams hafi krafist þess að
minnihlutahópar á Mosul-svæðinu
snúist til íslamskrar trúar eða hafi
sig á brott, ellegar hefnist þeim fyr-
ir.
AFP
Ógn Að sögn Amnesty International hafa 200 þúsund manns flúið undan árásarmönnum Ríkis íslams síðustu vikur
og leitað skjóls á sjálfstjórnarsvæði Kúrda, meðal annars í borginni Dohuk.
Tóku Mosul-stífluna
Sóttu fram undir loftárásum Bandaríkjamanna Enn
fjöldi sprengna á svæðinu Barist nærri annarri stíflu