Morgunblaðið - 18.08.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía GWalthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
„...Virkilega vönduð, lipur
og góð þjónusta“
Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha,
til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann
fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr
að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni.
Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst
og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha.
Kv. Áslaug og Benni
820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í óvissuástandi, eins og nú hefur ver-
ið lýst yfir, töldum við með hliðsjón af
fjarlægð og flóttaleiðum nauðsynlegt
að loka svæðinu,“ segir Svavar Páls-
son, sýslumaður á Húsavík. Ákveðið
var síðdegis í gær að loka Gæsavatna-
leið og öðrum hálendisvegum austan
Skjálfandafljóts. Einnig veginum í
Herðubreiðarlindir af Mývatns-
öræfum vegna jarðhræringa við
Bárðarbungu. Mælingar sýna áfram-
haldandi ólgu á svæðinu og að eldgos
á Vatnajökli gæti hafist þá og þegar.
Viðvarandi órói
Vegna þessa hefur eftirlit vísinda-
manna með svæðinu verið eflt auk
heldur sem Almannavarnir, lögregla
og landverðir fylgjast grannt með
stöðunni. Á Vatnajökulssvæðinu kom
í gær fram viðvarandi órói á jarð-
skjálftamælum Veðurstofunnar.
Stærstu skjálftarnir voru 3,3-3,5 á
Richter og áttu uppstök sín við
Kverkfjöll og Kistufell, það er við
jökulinn norðanverðan.
Svavar Pálsson segir aðgerða-
stjórn almannavarna á Húsavík hafa
verið í sambandi við landverði og fleiri
og vitað sé um nokkurn fjölda ferða-
manna norðan Vatnajökuls. „Við telj-
um nauðsynlegt að sporna við umferð
fólks inn á svæðið. Ef kemur til elds-
umbrota gæti flóð runnið fram á mikl-
um hraða og þunga og þá yrði erfitt
að koma björgunarliði á staðinn. Við
ákváðum líka að loka þeim leiðum að
Herðubreiðarlindum sem liggja
nokkuð lágt og ekki fjarri Jökulsá á
Fjöllum þar sem vatn gæti fallið
fram.“
Elgur til Grímsvatna
Mat vísindamanna er að hugsan-
lega hafi komið kvikuinnskot í öskju
Bárðarbungu, þar sem yfir liggur 700
til 800 metra íshella. Talið er að vatns-
elgur vegna eldsumbrota myndi fær-
ast til Grímsvatna. Þaðan gæti vatn
brotist fram um Skeiðará rétt eins og
gerðist í eldgosinu haustið 1996.
Einnig gæti það komið fram við
norðanverðan Vatnajökul, svo sem
við Kverkfjöll eða svonefnt Kistufell,
og fallið þar í Jökulsá á Fjöllum eða
Skjálfandafljót. Einnig er sá mögu-
leiki fyrir hendi að flóð leiti til Sylgju-
jökuls í vestri – með flóði í Hágöngu-
lón og þar með inn á vatnasvæði
Þjórsár og Tungnár. Rögnvaldur
Ólafsson hjá almannavarnadeild Rík-
islögreglustjóra segir að meðan stað-
an sé óljós og óvissuástand ríkjandi
verði sólarhringsvakt hjá vísinda-
mönnum. Þá verði net mæla og
myndavéla á Vatnajökli þétt.
Leiðum norðan Vatnajök-
uls lokað í varúðarskyni
Áfram ólga við Bárðarbungu Viðbragðsstaða Flóð gætu víða brotist fram
Jarðhræringar í Bárðarbungu
Höfn í Hornafirði
Jökulsárlón
Sylgjujökull
Skeiðará
Kverkfjöll
Kistufell
Skjálftasvæðið
Skjálftar yfir 3 á Richter
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Horft yfir Vatnajökul. Kverkfjöll eru fremst og fjær Herðubreið.
Nú hefur þetta svæði verið lokað á stórum hluta í varúðarskyni,
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir koma til greina að
stofna sérstakt ráðuneyti dómsmála.
Þá segir hann mögulegt að gerðar
verði frekari breytingar á stjórnar-
ráðinu samhliða því að dómsmálin
verði færð frá innanríkisráðuneyt-
inu. Frá þessu var sagt í fréttum
RÚV í gærkvöldi, en þar kom einnig
fram að Bjarni og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
hefðu fundað um málið um helgina, í
kjölfar þess að Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra óskaði
eftir því að málefni er varða dóms-
stóla og ákæruvald yrðu færð til
annars ráðherra.
Þingflokkur Pírata tilkynnti í gær
að hann hygðist leggja fram van-
trauststillögu gegn Hönnu Birnu
þegar þing kæmi saman í septem-
ber. „Ákvörðun þingflokks Pírata
um vantraustsyfirlýsingu er ekki
eingöngu byggð á formlegri ákæru á
hendur aðstoðarmanni ráðherra
heldur viðbrögðum ráðherrans í orð-
um og athöfnum frá því málið kom
fyrst upp,“ segir í tilkynningu þing-
manna flokksins. Þeir segja af-
greiðslu ráðherra á málinu
óásættanlega.
Dómsmálin
mögulega
aðskilin
Píratar undirbúa
vantrauststillögu
Metfjöldi erlendra ferðamanna seg-
ist ætla að mæla með Reykjavík við
aðra, samkvæmt könnun sem lögð
var fyrir erlenda ferðamenn í Leifs-
stöð síðasta vetur, frá september
2013 til apríl 2014. Að meðaltali
98,7% svarenda sögðust myndu
mæla með höfuðborginni við aðra.
Hlutfallið var eilítið lægra hjá
sumargestum sem komu á tíma-
bilinu maí til ágúst, en 96% þeirra
sögðust ætla að mæla með borginni.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Höfuðborgarstofu, en þetta eru
bestu niðurstöður könnunarinnar
síðan Rannsóknir og ráðgjöf ferða-
þjónustunnar hófu að framkvæma
hana árið 2004. „Þetta er ekki bara
árangur ferðaþjónustunnar í
Reykjavík heldur er þetta árangur
borgarbúa allra,“ er haft eftir Einari
Bárðarsyni, forstöðumanni Höfuð-
borgarstofu, en hann segir niður-
stöðurnar sérstaklega ánægjulegar í
ljósi þess að „hér hafa ýmsir sér-
fræðingar spáð heimsendi og hruni í
ferðaþjónustunni í kjölfar aukinnar
aðsóknar“.
98,7% hyggjast mæla með
höfuðborginni við aðra
Metfjöldi frá því
að mælingar hófust
fyrir tíu árum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ó borg mín borg Erlendir ferðamenn virðast afar hrifnir af Reykjavík.
„Við sáum engin merki um af-
gerandi yfirborðsbreytingar á
jöklinum, þrátt fyrir þessar
jarðhræringar,“ sagði Björn
Oddsson, jarðeðlisfræðingur
hjá almannavarnadeild Ríkis-
lögreglustjóra, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld. Hann
var þá að koma úr flugi með
þyrlu frá Landhelgisgæslunni,
en í ferðinni voru vísindamenn
og menn frá Almannavörnum.
„Við sáum hvorki sprungur,
jarðhitakatla né sigdældir sem
gætu hafa myndast við svona
óróa,“ segir Björn.
Hvorki katlar
né dældir
FLOGIÐ Á JÖKUL Í GÆR
Veðurstofan
gerir ráð fyrir
ágætu veðri fram
eftir vikunni.
Spáð er hægri
vestan- og norð-
vestanátt víðast
hvar í dag, en
þykknað gæti
upp við vestur-
ströndina. Á sunnanverðu landinu
gæti hiti rokkað á bilinu 10 til 18
stig. Á þriðjudag snýst vindur til
vestlægrar eða breytilegrar áttar.
Þá gæti orðið skýjað við sjávar-
síðuna. Þegar komið er fram á
miðvikudag má sums staðar búast
við vætu, en léttskýjuðum himni
og þægilegum hita um landið
sunnanvert. sbs@mbl.is
Gott veður
fram í viku