Morgunblaðið - 18.08.2014, Blaðsíða 23
Kjartan var í danshljómsveitum á
árum áður og lék tónlist í leikhúsi fyr-
ir erlenda ferðamenn. Hann gaf út
hljómplötur og skrifaði og gaf út
kennslubækur í gítarleik.
Kjartan var um skeið virkur í
stjórnmálum, var varaþingmaður og
sat á þingi í nokkra daga á vormán-
uðum 2008. Þá sat hann í nokkrum
nefndum Reykjavíkurborgar um
árabil.
Áhugamál Kjartans og Svanhvítar
snúast um þessar mundur um sumar-
húsið sem þau eru að koma sér upp í
Grímsnesinu: „Ég held að það sé svo-
lítill Bjartur í Sumarhúsum í flestum
Íslendingum og þar erum við engin
undantekning.
Ég er líka mikill Breiðfirðingur í
mér og sæki þar stíft í eyjarnar.
Þangað á ég ættir að rekja og þar var
ég í sveit hjá afa og ömmu. Þar hugar
stórfjölskyldan að hlunnindum og ég
hef aflað mér skipstjórnarréttinda til
að geta sinnt þeim fjölmörgu störfum
sem eyjalífið hefur upp á að bjóða.
Loks er ég félagi í rótarýklúbbi
Reykjavíkur í Grafarvogi, en á sínum
tíma tók ég virkan þátt í starfi Lions-
klúbbsins í Búðardal.“
Fjölskylda
Eiginkona Kjartans er Svanhvít
Sigurðardóttir, f. 26.7. 1957, tónlist-
arskólastjóri. Foreldrar hennar: Sig-
urður Guðmundsson, f. 10.7. 1928, d.
28.7. 2004, símstöðvarstjóri á Bíldu-
dal og bóndi í Otradal, og Ingrid Mar-
ie Kirstine Guðmundsson, f. Christe-
sen í Danmörku 21.11. 1930, hatta-
hönnuður og póstafgreiðslumaður á
Bíldudal, nú búsett í Reykjavík.
Börn Kjartans og Svanhvítar eru
Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir, f.
29.10. 1980, BS í sjúkraþjálfun og
sjúkraþjálfari við Landspítalann í
Fossvogi, Reykjavík, en maður henn-
ar er Viðar Guðmundsson, BA í sál-
fræði, kennari og starfsmaður TM en
börn þeirra eru Sandra Irena Viðars-
dóttir, f. 4.2. 2008, og Sigurberg Ein-
ar Viðarsson, f. 2.4. 2011; Ingrid Örk
Kjartansdóttir, f. 7.4. 1984, BA í tón-
listarfræðum og tónlistarkennari í
Reykjavík en maður hennar er Leif-
ur Gunnarsson Myschi, B.MUS. í
djasstónlist og kontrabassaleikari og
er sonur þeirra Bergsteinn Þór
Leifsson, f. 18.4. 2012; Eggert Thor-
berg Kjartansson, f. 20.1. 1990,
verkamaður og nemi í Reykjavík.
Systkini Kjartans eru Eggert
Eggertsson, f. 9.7. 1956, lyfjafræð-
ingur og gæðastjóri hjá AGA, búsett-
ur á Seltjarnarnesi; Gísli Karel Egg-
ertsson, f. 2.5. 1961, viðskiptastjóri
hjá prentsmiðjunni Odda í Reykja-
vík; Snorri Pétur Eggertsson, f. 19.5.
1973, verkefnastjóri hjá WOW air í
Reykjavík; Lilja Eggertsdóttir, f.
15.11. 1977, tónlistarmaður í Mos-
fellsbæ.
Foreldrar Kjartans eru Eggert
Thorberg Kjartansson, f. 20.12. 1931,
múrari og ættfræðingur, og Hólm-
fríður Gísladóttir, f. 6.9. 1935, hús-
freyja og ættgreinir. Þau búa í
Reykjavík.
Úr frændgarði Kjartans Eggertssonar
Kjartan Eggertsson
Eggert Thorberg Gíslason
b. í Fremri-Langey
Þuríður Jónsdóttir
húsfreyja Fremri-Langey,
Breiðafirði
Kjartan Eggertsson
b. og kennari í Fremri-Langey
Júlíana Silfá Einarsdóttir
húsfr. Fremri-Langey
Eggert Thorberg Kjartansson
múrari og ættfr. í Rvík
Einar Jónsson
b. í Bíldsey
Guðrún Helgadóttir
vinnuk. í Bíldsey
Vilborg Gísladóttir
húsfr. í Rvík
Svafa Kjartansdóttir
húsfr. í Rvík
Grétar Reynisson
myndlistarm. í Rvík
Lára Gunnarsdóttir
húsfreyja í Rvík.
Björn Ágústsson úrsm.
og framkv.stj. Meba í Rvík
Kjartan Kópsson
bifvélav. í Rvík
Unnur Baldursdóttir
grunnskólakennari í Eyjum
Selma Kjartansdóttir b. á
Ormsstöðum í Dölum
Gunnar Kjartansson
járnsm. í Rvík
Unnur Kjartansdóttir
húsfr. í Rvík
Kópur Z. Kjartansson
bifreiðastj. í Rvík
Elsa Kjartansdóttir
húsfr. á Hnúki í Dölum
Kristín Gunnarsdóttir
ljósm. og hjúkrunarfr. á
Selfossi
Halldór Páll Halldórsson
skólameistari ML
Jóhanna Haraldsdóttir
handavinnukennari í Rvík
Ragnheiður Elísdóttir
barnalæknir í Rvík
Pálína Gísladóttir
húsfr. og kaupmaður
í Grundarfirði
Elís Gíslason
skipstj. í Grundarfirði
Elís Gíslason
útvegsb. í Oddsbúð og á
Vatnabúðum
Vilborg Jónsdóttir
húsfr. í Oddsbúð og á
Vatnabúðum í Eyrarsveit
Gísli Karel Elísson
b. á Grund í Eyrarsveit
Jóhanna Hallgerður Jónsdóttir
húsfr. á Grund í Eyrarsveit
Hólmfríður Gísladóttir
húsfr. og ættgreinir í Rvík
Jón Jóhann Kristjánsson
b. í Vindási í Eyrarsveit
Jónína Guðrún Jónsdóttir
frá Kothrauni í Helgafellssv.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
Jónas Þ. Jónassen landlæknirfæddist í Reykjavík 18.8. 1840,sonur Þórðar Jónassen, há-
yfirdómara, stiftamtmanns og alþm,
og k.h., Dorotheu Sophiu Lynge.
Kona Jónasar var Þórunn Péturs-
dóttir Havstein og áttu þau eina
dóttur. Þórunn var dóttir Péturs
Havsteen, amtmanns og alþm. á
Möðruvöllum og því hálfsystir, sam-
feðra, Hannesar, skálds og ráðherra.
Voru þau Jónas Hannesi mjög innan
handar á skólaárum hans í Reykja-
vík. Þau bjuggu í Jónassenshúsi,
sem enn stendur sem Lækjargata 8,
og sem Jónas lét reisa árið 1870.
Jónas lauk stúdentsprófi frá
Lærða skólanum 1860, prófi í lækn-
isfræði frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1866 og fór síðan nokkrum
sinnum þangað í framhaldsnám og
varði doktorsritgerð um sullaveiki á
Íslandi 1882.
Jónas var staðgengill Jóns Hjalta-
lín landlæknis 1867, var settur að-
stoðarmaður hans við læknakennslu
árí síðar og um leið sýslulæknir í
Kjósarsýslu og Borgarfjarðarsýslu.
Þá var hann læknir við sjúkrahúsið í
Reykjavík og héraðslæknir í
Reykjavíkurhéraði 1873-95.
Þegar Jón Hjaltalín hætti fyrir
aldurs sakir 1881 áttu flestir von á
að Jónas yrði næsti landlæknir enda
góður og vinsæll læknir og vel
menntaður. En þá var Daninn
Schierbeck skipaður í embættið eftir
að hafa staðist íslenskupróf.
Jónas var kennari við Læknaskól-
ann frá stofnun, 1876, og forstöðu-
maður hans eftir að hann varð land-
læknir 1895. Hann lét af embætti
landlæknis 1906.
Jónas var alþm. Reykvíkinga
1886-92 og var konungkjörinn þing-
maður 1899-1905. Auk þess hafði
faðir hans verið alþm., Eggert, bróð-
ir hans, tengdafaðir hans, Hannes
ráðherra, mágur hans, og tveir svil-
ar hans. Hann átti jafnframt sæti í
bæjarstjórn Reykjavíkur 1888-1900.
Jónas vildi efla almennings-
fræðslu um heilsuvernd og hollustu
og samdi m.a.Lækningabók fyrir al-
þýðu, 1884.
Jónas lést 22.11. 1910.
Merkir Íslendingar
Jónas Þ.
Jónassen
75 ára
Árni Vestergaard
Guðmundur Guðlaugsson
Gunnar Klingbeil
Heiðar S. Valdimarsson
Karl Bergsson
Ragnar Hólm Bjarnason
Svana Jónsdóttir
Valborg Guðmundsdóttir
70 ára
Benjamín G. Magnússon
Bjarni Debess Hammer
Brynja Jónsdóttir
Guðrún Herbertsdóttir
Ingileif Daníelsdóttir
Kári Steindórsson
Sigurjón Gunnlaugsson
Þórir Konráð
Guðmundsson
60 ára
Guðbjörg Ása Andersen
Guðný Ágústa Steinsdóttir
Guðrún Þorbjörnsdóttir
Jóhann Guðbjörn
Guðjónsson
Jón Stefán Kjartansson
Kristbjörg G.
Steingrímsdóttir
Ólafur Ágúst Baldursson
Sigfús Birgir Haraldsson
50 ára
Anna Kristín Birgisdóttir
Guðmundur Karl Jónsson
Helgi Helgason
Hildigunnur Jónsdóttir
Jón Heiðar Daðason
Júlíus Geir Geirsson
Kristín Sólveig Eiríksdóttir
Sveinn Ásgeirsson
Víðir Stefánsson
Þórdís Anna Njálsdóttir
40 ára
Aleksandra
Babik-Andonova
Björn Ingi Björnsson
Gestur Baldursson
Gunnar Þór Ásgeirsson
Joanna Szerszen
Jóhannes Helgi
Hjörleifsson
Marek Dzierzanowski
Rachael Wanjiku Gichuru
Reynir Baldursson
Sabit Crnac
Þórður Ágúst Hlynsson
30 ára
Guðrún María Ævarsdóttir
Inga Rut Pétursdóttir
Kristinn Már Ólafsson
Magdalena Maria Poslednik
Milosz Julian Wojtania
Nhung Thi Nguyen
Til hamingju með daginn
30 ára Ólafur ólst upp í
Reykjavík, er rekstrar- og
rafiðnfræðingur frá HR og
er nú rafvirki í Noregi.
Maki: Erna Rósa Eyþórs-
dóttir, f. 1986, nemi.
Foreldrar: Róbert Gräns,
f. 1947, landvörður í
Galtalækjarskógi, og Jó-
hanna Ingimundardóttir,
f. 1953, verslunarmaður.
Ólafur sendir bestu kveðj-
ur til vina og vandamanna
heima á Íslandi á afmæl-
isdaginn.
Ólafur
Gränz
40 ára María ólst upp á
Selfossi, býr þar og er
grunnskólakennari.
Maki: Ingvar Björnsson, f.
1972, verkstjóri.
Börn: Björn Leví, f. 2002;
Daníel Örn, f. 2003; Vikt-
or Ingi, f. 2008, og Ásta
Sóley, f. 2010.
Foreldrar: Páll Sigur-
þórsson, f. 1938, hús-
gagnasmiður, og Guðný
Halldórsdóttir, f. 1944,
hjúkrunarfræðingur. Þau
búa á Selfossi.
María
Pálsdóttir
40 ára Selma lauk próf-
um í uppeldis- og sál-
fræðiráðgjöf við Háskól-
ann í Árósum og starfar
hjá sveitarf. Skagafirði.
Maki: Róbert Óttarsson,
f. 1972, bakarameistari.
Börn: Linda Þórdís, f.
1998; Reynir Bjarkan, f.
2004; Rebekka Helena, f.
2006, og Emilía Ragn-
heiður, f. 2010.
Foreldrar: Reynir Barð-
dal, f. 1949, og Helena J.
Svavarsdóttir, f. 1947.
Selma Barðdal
Reynisdóttir
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | act@actehf.is
RakvélRakvél
Lithium
rafhlaða
Skeggsnyrtir
Lithium rafhlaða
Alhliða
snyrtitæki
Lithium rafhlaða
Fæst í öllum helstu raftækjaverslunum á Íslandi
Ci96S1 – Silk alhliða hár-mótunartæki
25mm klofin töng sem býr til margar tegundir af hárgreiðsl-
um, meðalstórar krullur, lausar krullur, bylgjur, mjúka liði.
Digital skjár 120-230˚C, hitnar upp á 30 sek., læsing á
hitastillir, slekkur sjálfkrafa á sér
eftir 60 mín., alþjóðlegur s
traumur 120-240V
Hárklippa
S9600-Remington SILK sléttujárn
Digital LCD skjár sem sýnir hitan 150-240˚C
Hitnar á 10 sek. Hægt að læsa hitastilli, digital
skjár sem sýnir hitastig, alþjóðlegur
straumur 120-240V AC 9096 – Remington Silk
hárblásari
Kraftmikill 2400W hárblásari, AC mo-
tor, blæs 140 km/h, kaldur blástur